Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Síða 34
34 ÚTTEKT 13. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR LEYNDARMÁL KIRKJUNNAR Síðustu daga hefur DV ítrekað óskað eftir upplýsingum um kynferðisbrotamál innan kirkjunnar en hefur alls staðar komið að lokuðum dyrum. Biskupsstofa neitar að láta af hendi afrit af bréfi biskupsdóttur, for- maður fagráðs um kynferðisbrot neitar að upplýsa um mál og neitar þar að auki að gefa upplýsingar um fjölda mála. DV hefur vitneskju um að Guðrún Ebba Ólafsdóttir studdi Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur sem lýsir reynslu sinni og fundi með kirkjuráði og hvetur kirkjuna til þess að setja af stað rannsókn á málum Ólafs. DV birtir einnig brot úr bréfi Guðrúnar Ebbu og ræðir við Thelmu Ásdísardóttur sem hefur tekið á móti fórnarlömbum kirkjunnar. Sigrún Pálína Ingvarsdóttir er kon- an sem sakaði Ólaf Skúlason biskup og föður Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttir um nauðgunartilraun. Guðrún Ebba studdi baráttu Sigrúnar sem er Guð- rúnu Ebbu þakklát fyrir stuðninginn og hjálpina. „Það hafði klárlega áhrif á gang mála að Guðrún Ebba talaði mínu máli. Hún sem dóttir gerand- ans var ansi sterkur málsvari.“ Tveimur árum áður en Sigrún Pál- ína fékk fund með kirkjuráði átti hún fund með Karli Sigurbjörnssyni bisk- upi. Á sínum tíma sakaði hún Karl um að halda hlífiskildi yfir Ólafi og sagði hann hafa reynt að þagga niður í sér. „Við gerðum upp samskipti okk- ar. Hann kannaðist reyndar ekki við mína útgáfu en bað mig afsökunar á því ef hann hefði gert eitthvað rangt. Það var mjög erfitt að það skyldu vera tvær mismunandi útgáfur af sama at- burði. Ég var reyndar ekki ein á fund- inum með honum á sínum tíma, maðurinn minn var með mér og við upplifðum bæði það sama. En þetta er auðvitað óþægilegt mál og það er sárt að horfast í augu við það. Það er mjög erfitt. Og ég get ekki ætlað hon- um að upplifa það sama ég.“ Í sárum eftir kirkjuna Ástæðan fyrir því að Sigrún sagði sögu sína var að hún er með óvenju- sterka réttlætiskennd og óttaðist um afdrif annarra kvenna í návist Ólafs. „Ég gat ekki sætt mig við það að mað- ur í þessari valdastöðu væri svona sjúkur. Ég vildi taka ábyrgð á þess- ari vitneskju minni því ég óttaðist að hann myndi misnota aðstöðu sína til að misnota og nauðga öðrum kon- um. Ég vildi koma í veg fyrir að það gæti gerst. Ég óttaðist að hann hefði áreitt fleiri konur sem ég fékk svo staðfest. Ég varð að segja sannleik- ann. Og ég hef aldrei hætt því.“ Viðbrögðin voru þó önnur en hún hafði búist við. „Ég bjóst alls ekki við því að fólkið í landinu myndi bregð- ast svona við. Ég fékk mjög sterk við- brögð. Fólk virtist telja að ég væri sek.“ Að lokum neyddist hún til að flytja úr landi. „Ég bý hér í Danmörku vegna þeirrar meðferðar sem kirkjan sýndi mér á sínum tíma og vegna þess að almenningsálitið snerist gegn mér. Ég fór út og sleikti mín sár. Þær konur sem voru með mér í þess- ari baráttu voru allar í sárum eftir hana. Ég bíð enn eftir því að kirkjan setji á fót rannsóknarnefnd um mál- ið eða fái einhverja utanaðkomandi aðila til að kafa ofan í þetta mál því ég var ekki ein. Þessu máli er hvergi lokið. Enn hefur ekki allt komið fram í dagsljósið. Fórnarlömb Ólafs voru svo mörg. Þau eru ekki bara konurn- ar sem urðu fyrir barðinu á honum, samstarfsfólk hans og prestarnir eru líka fórnarlömb hans. Maðurinn var svo valdamikill.“ Hún segist einnig vita um fleiri konur sem urðu fyrir barðinu á Ólafi. „Mjög fljótlega frétti ég af einni í gegnum skólasystur mína. Við vorum tvær saman að leita leiða í nokkur ár þar til hún dró sig til baka. Það tókst að brjóta hana niður og þagga niður í henni. Hún dró mál- ið til baka en ekki sannleikann. Önn- ur kona bar vitni í mínu máli en steig aldrei fram. Fleiri konur hafa haft samband við mig.“  Afdrifaríkt atvik Sjálf lenti hún í þessu þegar hún var í viðtölum hjá Ólafi vegna hjóna- bandserfiðleika. „Hann taldi mér trú um að ég yrði að opna á reynslu mína af kynferðisofbeldi í æsku. Það sem gerði mig svo hrædda var að hann virtist æsast upp við frásögn mína af þessari reynslu. Hann henti mér upp á bedda, setti hendurnar á brjóstin og tunguna upp í mig.“ Sigrún náði að henda honum ofan af sér. „Þegar ég hafði kastað honum af mér þótt- ist hann gráta og sagði: „Guð minn góður, hvað er ég búinn að gera?“ Ég sagði honum að hann yrði að leita sér aðstoðar, hann væri sjúkur og hann væri prestur þannig að hann yrði að fá hjálp. Ég sagði honum líka að ég gæti aldrei hitt hann aftur. Þá leit hann á mig með þessu djöfullega augnaráði og sagði: „Þú skalt koma til mín aftur.“ Bara þetta augnaráð gerði mig skelfingu lostna.“ Þegar hún hafði nokkurn veg- inn jafnað sig á ný fór hún aftur á fund Ólafs. „Ég fór á fund hans og fór fram á opinbera afsökunarbeiðni. Hann sagði að hann myndi aldrei viðurkenna þetta. Ég vildi sjá hvort hann hefði breyst og hvort ég gæti þá sloppið við það að bera ábyrgð á þessu og farið með þetta lengra.“ Þá fór Sigrún Pálína til kirkjunn- ar og bað um hjálp. „Þetta var árið sem hann var kosinn biskup og ég fór á fund Sigurbjörns Einarssonar biskups. Ég trúði því ekki að það gæti gerst. Sigurbjörn sendi mig aftur á fund Ólafs. Með öðrum orðum þá sendi biskup mig aftur til baka til ger- andans þar sem ég átti að leysa mál- in. Í dag þykir mér það með ólíkind- um en þá fór ég bara og gerði það.“ Er ekki í hefndarhug Meðan á öllu þessu stóð óttaðist Sig- rún álit Guðs. „Það sem gerist þeg- ar einhver er beittur kynferðisof- beldi er að hann tekur á sig skömm gerandans. Og ég óttaðist að Guð myndi ekki vilja mig núna þar sem ég væri að vinna gegn kirkjunni. En þegar ég kom út kynntist ég prestum sem hjálpuðu mér að vinna úr því og sögðu mér að ég yrði alltaf barn Guðs. Kirkjan á að vera hús kærleika og hreinleika. En það er eins með svona mál og alkóhólisma: Ef ein- hver er sjúkur þá veikist öll fjölskyld- an. Þakklát fyrir stuðning Guðrúnar Ebbu INGIBJÖRG DÖGG KJARTANSDÓTTIR blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is Sigrún Pálína Ingvarsdóttirsakaði Ólafumnauðgunartilraun.Meðstuðningi GuðrúnarEbbufékkhúnáheyrn kirkjuráðs. Guðrún Ebba Ólafsdóttir sendikirkju- ráðibréf.Umræðansemfylgdiíkjölfarið komuppumleynimakkkirkjunnar.Alls staðarkomafjölmiðlaraðlokuðum dyrumerþeiróskaeftirupplýsingum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.