Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Qupperneq 44
NafN og aldur?
„Hera Hilmarsdóttir, 21 árs.“
atviNNa?
„Leiklistaranemi.“
Hjúskaparstaða?
„Hún er tryllt.“
fjöldi barNa?
„Engin enn sem komið er.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Já. Köttinn Grímu og hundinn Krumma. Svo er
náttúrulega bróðir minn Oddur.“
Hvaða tóNleika fórst þú á síðast?
„Bon Jovi í Vín 2003.“
Hefur þú komist í kast við lögiN?
„Kannski brotið einhverjar lögreglusamþykktir. Að
öðru leyti er ég löghlýðin.“
Hver er uppáHaldsflíkiN þíN og af Hverju?
„Lopapeysan mín. Reyndar á mamma hana.“
Hefur þú farið í megruN?
„Nei.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmæl-
um?
„Já.“
trúir þú á framHaldslíf?
„Já. Allt sem er hressara en fullkomin endalok styð
ég.“
Hvaða lag skammast þú þíN mest fyrir að
Hafa Haldið upp á?
„Ég hef haldið upp á mörg fáránleg lög í gegnum
tíðina. Það væri rugl að skammast sín.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Lagið úr kvikmyndinni The Jerk. Það er gott.“
til Hvers Hlakkar þú NúNa?
„Til sýninga á leikritinu Vakt á artFart, sem ég leik í
ásamt Einari Aðalsteinssyni. Svo hlakka ég til að fá
mér ís næst.“
Hvaða myNd getur þú Horft á aftur og aft-
ur?
„Annie Hall, hún er geðveik.“
afrek vikuNNar?
„Frumsýning á leikritinu Vakt.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Já, hjá góðri vinkonu. Mér leist vel á spána.“
spilar þú á Hljóðfæri?
„Selló og píanó. Svo er ég góð á þríhorn og slag-
gígju.“
viltu að íslaNd gaNgi í evrópusambaNdið?
„Ég sé kosti og galla. Á erfitt með að gera upp hug
minn.“
Hvað er mikilvægast í lífiNu?
„Að hafa gaman og eyða tíma með sínum nánustu.“
Hvaða ísleNska ráðamaNN vildir þú Hella
fullaN og fara á trúNó með?
„Þeir eru margir. En ég myndi örugglega enda með
að velja Davíð. Hann er bara svo mikil kempa.“
Hvaða fræga eiNstakliNg vildir þú Helst
Hitta og af Hverju?
„Sigurð Einarsson. Hann skuldar mér pening.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já. En voru þau góð?“
Nýlegt prakkarastrik?
„Setti náunga sem ég þekki í öndunarvél og sára-
bindi og hló svo mjög mikið að honum.“
Hvaða fræga eiNstakliNgi líkist þú mest?
„Obama.“
ertu með eiNHverja leyNda Hæfileika?
„Já, ég er orðfræðingur.“
á að leyfa öNNur vímuefNi eN áfeNgi?
„Mér finnst að það eigi ekki að útiloka neitt í barátt-
unni gegn fíkniefnavandanum.“
Hver er uppáHaldsstaðuriNN þiNN?
„Heima. Og úti í móa.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður eN þú
ferð að sofa?
„Býð góða nótt.“
Hver er leið íslaNds út úr kreppuNNi?
„Jákvæðni og bjartsýni. Húmor og popp.“
Leikkonan Hera Hilmarsdóttir leikur í leikritinu Vakt sem
var frumsýnt í gær á artFart. Hera, sem er nemandi við leik-
listarskólann Lamda, fór síðast á tónleika í Vín árið 2003 og
heldur mikið upp á Annie Hall.
liðtækur slag-
gígjuleikari
44 hin hliðin 13. ágúst 2010 föstudagur
Remington 700 Varmint cal 243 / 308
Bushnell 6-18x50 - banner -
tvífótur stillanlegur gikkur Tilboð kr. 219.000
Remington 700 SPS cal 243 / 270 / 308
Bushnell Banner 3-9x50 sjónauki
stálfestingar - tvífóturTilboð kr. 198.000
Tilboð kr. 154.000
S é r v e r s l u n v e i ð i m a n n a L a u g a v e g 1 7 8 - s í m i : 5 5 1 6 7 7 0 - w w w . v e s t u r r o s t . i s
Vesturröst
Marlin XL7 cal 270
Bushnell Banner 3-9x50
sjónauki - stálfestingar - tvífótur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
TVÆR KONUR
2 JÁKVÆÐARNÝJUNGAR
Sykurveiðarinn Suco Bloc. 180 töflur.
Hentar öllum, stöðvar sykurinn
áður en hann verður að fitu.
STÖÐVIÐ SYKUR
OG KOLVETNI
NÝJUNG! BRENNIÐ FITU
30 Days
120 töflur ásamt
samnefndu
kremi vinnur á
appelsínuhúð.
30 Days (120 töflur)ásamt OxyTarm
(60 eða 150)töflur gegn kviðfitu
gefur 35% meiri virkni.
Valin
heils
uvara
ársin
s
2008
&
B e t r i a p ó t e k i n o g M a ð u r l i f a n d i w w w . s o l o g h e i l s a . i s
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur