Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Page 46
46 útlit umsjón: IngIbjörg dögg kjartansdóttIr ingibjorg@dv.is 13. ágúst 2010 föstudagur
Vúhú! Nú er ástæða til þess að fagna. Konur sem nota stærri flíkur en númer 14 hafa hingað til ekki getað keypt sér fatnað frá helstu hátísku-
húsum heims. Nú fyrst verður breyting þar á
en Marc Jacobs ríður á vaðið með línu sem
er ætluð konum sem nota svokallaðar stórar
stærðir, eða öllu heldur konur sem nota eðli-
legar stærðir. Því auðvitað eru konur alls kon-
ar og auðvitað hafa alls konar konur áhuga á
tísku.
skIlur þörfIna
Þetta kemur fram í Guardian sem vitnar í
Twitter-síðu Roberts Duffy, forstjóra fyrir-
tækisins, og ef marka má ummæli hans er enn
um ársbið eftir línunni sem er á fyrstu stigum
í framleiðsluferlinu. Sjálfur er hann í stórum
stærðum og á því erfitt með að finna fatnað
á sig frá tískuhúsunum. Persónuleg reynsla
hans og skilningur á þessu meini tískubrans-
ans virðist því vera drifkraftur breytinganna.
„Ég veit hvernig ykkur öllum líður. Ég reyndi
megrun en ... Ég kann ekki við þennan frasa,
stórar stærðir. Einhverjar tillögur?“ skrifaði
hann einnig á Twitter-síðuna og bætti því
við að tískuhúsin yrðu að taka sig taki í þessu
efni. „Ég er með ykkur. Um leið og ég kem aft-
ur til New York. Ég er að vinna í þessu. Það
mun taka mig svona ár.“
Árangursrík auglýsIngaherferð
Linda Pétursdóttir virtist hitta naglann á höf-
uðið með auglýsingaherferðinni fyrir Bað-
húsið þar sem konur af öllum stærðum og
gerðum sátu naktar fyrir. Herferðin vakti at-
hygli og almenna lukku meðal almennings
sem fagnaði því að hefðbundnum ímyndum
væri storkað. Þetta var í takt við tíðarandann
og merki um hægfara en jákvæðar breytingar
á tískuheiminum. Hér má svo minnast þess
að Jean-Paul Gaultier braut blað í sögunni
þegar Crystal Renn gekk pallana fyrir hann
fyrir vor- og sumarlínuna árið 2006 en hún
notar stærð 14 en ekki 8 eins og flestar sýn-
ingardömur. Hann endurtók svo leikinn fyrir
haust- og vetrarlínuna 2010 og Chanel gerði
slíkt hið sama fyrir „resort“-línuna sína 2010.
storkaðI tískubransanum
Crystal er ein þeirra kvenna sem hafa stork-
að staðalmyndum tískubransans. Hún sagði
sögu sína í bókinni Hungry þar sem hún var
sársvangt, ofurlétt og óheilbrigt módel en í
kjölfarið sættist hún við eðlilega þyngd sína
og hóf farsælan feril sem fyrirsæta í stærri
stærð.
Síðan hefur hún setið fyrir í herferðum
fyrir H&M, Dolce & Gabbana og fleiri auk
þess sem hún hefur lagt undir sig ófáar síður
í tískuþáttum heimsþekktra tímarita á borð
við bandaríska, ítalska, franska og þýska
Vogue, ítalska Elle, rússneska Harper’s Baz-
aar, Glamour, V, i-D og Vanity Fair. Hún er
vinsælt viðfangsefni ljósmyndara á borð við
Ruven Afandor og Steven Meisel og er eina
konan í þessari stærð sem hefur prýtt for-
síðuna á Harper’s Bazaar.
Þrátt fyrir allt þetta er stærsti sigurinn
á ferlinum kannski auglýsingaherferð fyr-
ir Mango þar sem hún sat fyrir ásamt minni
módelum án þess að nokkuð væri minnst á
stærð hennar.
eftIrmInnIlegur tískuþÁttur
Tímaritið V eftirlét einnig stærri konu forsíðu
blaðsins sem var kærkomin breyting frá hefð-
bundnum forsíðum blaðsins. Aðalleikkonan
í Precious, Gabourey Sidibe, var nefnilega á
forsíðunni þegar birtur var eftirminnilegur
tískuþáttur þar sem konur í alls konar stærð-
um sátu fyrir og slógu í gegn meðal lesenda
blaðsins. Reyndar vöktu þær athygli víða um
heim fyrir fegurð sína og þokka.
Eins vakti það marga til umhugsunar þeg-
ar tímaritið Glamour birti myndir af venju-
legum konum í alls konar stærðum á nærföt-
unum. Myndirnar voru tvenns konar, annars
vegar voru stelpurnar í eigin stærð og svo
var búið að fótósjoppa þær niður í stærð 0.
Myndirnar voru svo bornar undir þær sjálf-
ar sem og aðra álitsgjafa og niðurstaðan var
skýr: Stelpurnar þóttu allar fegurri í sinni
náttúrulegu stærð.
breytt vIðhorf
Hægt og rólega virðist ætla að verða breyt-
ing á viðhorfum tískuheimsins gagnvart kon-
um af öllum stærðum og gerðum. En það eru
fleiri konur en Crystal sem eru sagðar hafa
áhrif á það. Ein af þeim er söngkonan og
tískugyðjan Beth Ditto sem á yfirleitt sæti á
fremsta bekk á tískusýningum helstu tísku-
húsa, þar á meðal Chanel og Fendi. Sjálf er
hún vel í holdum og hannaði tískulínu und-
ir merkjum Evans fyrir konur í stærðum 14–
32 og naut þar aðstoðar Kate Moss vinkonu
sinnar.
Það er reyndar áhugavert að Chanel hafi
tekið þátt í þessum breytingum á tískubrans-
anum þar sem Karl Lagerfeld hefur löng-
um hneykslað umheiminn með ummælum
um venjulegar konur. Honum fannst það til
dæmis út í hött að þýska tímaritið Brigitte
ætlaði að nota venjulegar konur í tískuþætti
og sagði að hugmyndin væri komin frá „feit-
um mömmum sem sitja með snakkpokann
fyrir framan sjónvarpið og segja að mjó mód-
el séu ljót.“ Í raun vilji enginn sjá þrýstnar
konur og föt missi sjarma sinn séu þau stærri
en númer 14.
fjölbreyttarI fyrIrmyndIr
Hann er reyndar ekki einn um þessa skoðun.
Fleiri hönnuðir hafa haldið því fram að það
sé bæði erfiðara að hanna fyrir konur í stærri
stærðum og lítil eftirspurn sé eftir slíkum
fatnaði. Það sé einnig hlutverk tískubransans
að skapa tálsýn og selja drauma.
Raunveruleikinn er aftur á móti sá að
tískubransinn veltir milljónum á milljónir
ofan hvert ár. Konur hafa áhuga á tísku — og
reyndar karlar líka, ekki bara konur í ákveðn-
um stærðum heldur alls konar konur.
Nú reynir á Marc Jacobs. Hann er góður
hönnuður og ætti að geta leyst þetta verkefni
svo sómi sé að. Það er vonandi því ef allt geng-
ur að óskum og fatnaðurinn selst vel munu
fleiri hönnuðir fylgja fordæmi hans og hanna
fatnað fyrir allar konur óháð vaxtarlagi. Þang-
að til er um að gera að fagna hverju smáskrefi
og hverjum smásigri í baráttunni fyrir fjöl-
breyttari fyrirmyndum í tískubransanum. Það
gerir hann bara litríkari og skemmtilegri.
ingibjorg@dv.is
Marc Jacobs hannar föt á
„stórar“ konur
af síðustu sýningu marcs jacobs Fyrirsæta
sem myndi kallast „venjuleg“ í heimi tískunnar.
marc jacobs Fyrsta hátískuhúsið til að
framleiða föt fyrir „stórar konur“.
stórar stelpur
Verða sífellt
meira áberandi í
tískuheiminum.