Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Page 52

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Page 52
Á síðustu tuttugu árum hef-ur internetið orðið algjör-lega órjúfanlegur partur af tilveru nútímamannsins, hvort sem er í vinnu eða heima við. Sú landamæralausa veröld sem netið opnaði fyrir almenningi var í byrjun helsta aðdráttarafl þessa fyrirbæris og gerði hverjum og ein- um kleift að ferðast heimshorna á milli á örskotsstundu, kynna sér framandi menningu og málefni eða hafa samskipti við fólk hinum megin á hnettinum. Kannski blundaði djúpt í okkur öllum sú hugsun að hér gæti verið um stærsta skrefið að ræða á langri leið mannkynsins í átt að upplýstri umræðu, endurreisnartímabili hug- ans, þar sem nýjar hugmyndir og frjáls skoðanaskipti myndu sigra í baráttunni við fordóma og ranglæti og sameina okkur að einhverju leyti sem jarðarbúa frekar en margar ólík- ar þjóðir og þjóðarbrot. Því í reynd er netið eini vettvang- urinn þar sem allir eru jafnir og hafa sömu möguleika til að kynna sér hugmyndir eða koma einhverju sjálf- ir á framfæri, nema þar sem stjórn- völd hafa ákveðið að stunda ritskoð- un eða hefta á einhvern annan hátt aðgang almennings að netinu. Aðkoma fréttamiðla varð síðan til þess að almenningur gat í auknum mæli kynnt sér hvað væri að gerast í fjarlægum heimshornum og færði okkur öll nær hvert öðru, við erum orðin eitt stórt og stafrænt heims- þorp. Nethlutleysi Mikil umræða hefur átt sér stað síð- ustu ár um jafnt aðgengi að netinu, ekki síst eftir að ljóst var að stærstu fjarskiptafyrirtæki Bandaríkjanna vilja flest ef ekki öll breyta þeim regl- um sem hafa viðgengist hingað til. Hugtakið „net neutrality“ eða „nethlutleysi“ varð til og byggir á því að öll netumferð, hvort sem um er að ræða vefsíður eða annað, skuli lúta sömu reglum varðandi aðgengi og hraða hjá netþjónustufyrirtækjum og hýsingaraðilum. Markaðslögmál Hugmyndir stóru fjarskiptafyrir- tækjanna eru hins vegar þær að fyr- irtæki geti greitt sérstaklega fyrir hraðara aðgengi að efni sínu á net- inu og skotið þar með samkeppnis- aðilum ref fyrir rass. Í augum sumra er þessi hugmynd ekki slæm, sér- staklega fyrir þau fyrirtæki sem bjóða upp á háskerpumyndefni sem streymt er yfir netið til notandans og þarf mikla bandvídd eða hraða. Net- hlutleysi geti einnig komið í veg fyr- ir eða hægt á nauðsynlegum tækni- framförum. Jafnræðið horfið Aðrir telja að verði þetta skref tekið hafi markaðslögmálin í raun yfirtek- ið það jafnræði sem ríkt hefur hingað til og muni í framhaldinu leita í aðra anga netsins, til dæmis fréttamiðla, og verði til þess að raska því jafnvægi sem nauðsynlegt er fyrir óskert tján- ingarfrelsi. Að netumferð sé stýrt af markaðslögmálum sé jafnslæmt og að henni sé stýrt af pólitískum eða trúarlegum öflum. Open Internet Coalition Fjölmörg stærstu netfyrirtæki Bandaríkjanna eru nú hluti af sam- tökum sem kallast Open Internet Coalition og er ætlað að styðja við jafnan aðgang að netinu. Þar má telja heimsþekkt fyrirtæki eins og Google, Facebook, Twitter, Skype, Amazon, PayPal og eBay. Það vakti því nokkra furðu í vikunni þegar Google lagði fram sameiginlega tillögu með Verizon, einu stærsta fjarskipta- fyrirtæki Bandaríkjanna, um að net- aðgengi í gegnum þráðlaus kerfi eins og 3G séu undanþegin reglum um hlutleysi. Fjarskiptastofnun Banda- ríkjanna og helstu stuðningsmenn nethlutleysis hafa gagnrýnt Google harðlega vegna þessa en einnig vakti athygli yfirlýsing sem Facebook sendi frá sér í kjölfarið þar sem fyr- irtækið lýsir sérstaklega yfir áfram- haldandi stuðningi við jafnt að- gengi: „Facebook mun áfram styðja þær grunnhugmyndir sem lúta að jöfnu aðgengi almennings að net- inu, hvort sem notuð er jarðlína eða þráðlaust kerfi. Að viðhalda opnu interneti sem er aðgengilegt sprota- fyrirtækjum og frumkvöðlum, án til- lits til stærðar eða fjármagns, leiðir til heilbrigðrar og lifandi samkeppni þar sem hinn almenni notandi hefur fulla stjórn á því efni og þeirri þjón- ustu sem hann sækir í gegnum teng- ingu sína við netið.“ palli@dv.is 52 tækni umsjón: páll svaNssON palli@dv.is 13. ágúst 2010 föstudagur Padd eða iPad? Höfundar vísindaskáldsagna og þeir sem koma að útlitsþáttum vísinda- skáldsagnamynda eða sjónvarps- þátta virðast oft og tíðum hitta nagl- ann á höfuðið varðandi framtíðina. Nú eru liðin 23 ár frá því að Star Trek-myndaflokkurinn The Next Gene ration hóf göngu sína en að- dáendur Star Trek sáu þar í fyrsta skipti áhöfnina á Enterprise halda á snertiskjám sem veittu upplýsingar og stýrðu geimskipinu. Snertiskjáirn- ir voru kallaðir Padd eða „Personal Access Display Devices“. Athygli vek- ur hvað þessar tölvur eru sláandi lík- ar iPad að stærð og útliti. aukinn hraði í FireFox Mozilla kynnti þriðju beta-útgáfuna af Firefox 4 í vikunni en með þessari uppfærslu býðst stuðningur fyrir fjöl- snertiviðmót í Windows 7 og aukinn hraði á síðum sem byggja verulega á JavaScript. Notendur Gmail og Face- book ættu því að finna fyrir auknum hraða með þessari nýju beta-útgáfu. Fjölsnertiviðmótið gerir notendum Windows 7 kleift að stjórna vafranum með ákveðnum handarhreyfingum á tölvum eins og HP TouchSmart. nýta sér Facebook Blaðamenn og ritstjórar fréttamiðla nota í síauknum mæli efnivið sem þeir finna á samskipta- og bloggsíð- um sem mikilvægan hluta af frétt- um sínum. Þetta kemur fram í nýrri bandarískri könnun en um 56 pró- sent þeirra blaðamanna sem tóku þátt í könnuninni sögðu mikilvægi slíkra síðna ótvírætt við fréttaöflun. 84 prósent töldu þó að efni sem væri aflað með þessum hætti væri ekki eins áreiðanlegt og það efni sem afl- að væri með hefðbundnari leiðum. Um 61 prósent blaðamanna nota Wiki pediu að jafnaði til að staðfesta ýmsar heimildir sínar. Zuckerberg Facebook gaf út yfirlýsingu í vikunni um áframhaldandi stuðning við jafnt aðgengi að netinu. Nethlutleysi eða „net neutrality“ verður sífellt mikilvægara hugtak eftir því sem áhrif netsins aukast í daglegri tilveru okkar og á það við jafnt um fyrirtæki sem almenning. JaFnt aðgengi veldur deilum Heftur aðgangur menningar- og upplýsingaráðuneyti konungsríkisins Barein heftir aðgang landsmanna að ýmsum hlutum netsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.