Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2010, Side 64
n Valgarður Guðjónsson, betur
þekktur sem Valli í Fræbbblun-
um, hefur boðið sig fram til að sitja
fyrirhugað stjórnlagaþing. Fram-
boðsfrestur rennur út 18. október
og er þetta fyrsta tilkynningin um
framboð til þingsins. „Sú spurning
var höfð eftir ónefndum lögfræðingi
hvort fólk héldi virkilega að stjórn-
arskráin ætti að vera plagg sem
almenningur gæti lesið og skilið.
Aðalástæðan fyrir framboðinu er að
svar mitt er afdráttar-
laust „já“,“ segir Val-
garður á Eyjublogg-
inu sínu. Hann
segist ætla að
leggja áherslu á
beint lýðræði,
þrískiptingu
valds, mann-
réttindi, að-
skilnað ríkis
og kirkju og
að stjórnskip-
an verði skýr.
Lítið skjól í Granaskjóli?
Valli í Fræbbblunum
á stjórnlagaþing
Skólarnir eru
að byrja!
Troðfullar búðir
af skólavörum
og frábær tilboð...
Skiptibókamarkaður á Smáratorgi
Gerið verðsamanburð!
Smáratorgi + Gleráreyrum + sala@a4.is + www.a4.is + Sími: 580-0000
n Gylfi Magnússon, efnahags- og
viðskiptaráðherra, hélt í fyrradag
vestur á firði þar sem hann ætlaði
að ganga um óbyggðir á Horn-
ströndum. Gylfi hafði skipulagt
ferðina löngu áður en vitneskja
hans um lögfræðiálit um ólög-
mæti gengistryggðra lána komst í
hámæli. Hitnað hefur undir Gylfa
eftir að upp komst um málið. Þing-
menn stjórnarandstöðunnar telja
að Gylfi hafi staðið sig illa og vilja að
hann víki úr embætti. Óvíst er hvort
þingmönnunum verður kápan úr
því klæðinu því Gylfi er talinn hafa
stuðning innan stjórn-
arflokkanna. Gylfi
hefur verið utan
símasambands á
Vestfjörðum. Hefur
Benedikt Stefáns-
son, aðstoðarmaður
Gylfa, spunnið
í fjarveru
hans.
gylFi á
Hornströndum
n Á föstudagskvöldið verður has-
armyndin Expendables frumsýnd í
Laugarásbíói. Myndin skartar öllum
helstu harðhausum kvikmyndanna
og hefur hennar verið beðið í of-
væni. Stjörnur á borð við Egil „Gillz“
Einarsson og Hjalta Úrsus standa
fyrir miklum dýrðlegheitum á frum-
sýningunni, en sá síð-
arnefndi verður með
bekkpressu á staðn-
um. Allir frumsýn-
ingargestir sem geta
lyft hundrað kílóum í
bekkpressu fá frítt inn
á sýninguna. Það má
því búast við því
að testóster-
ónið verði
í hámarki
þegar vöð-
vatröll
landsins
sam-
einast í
einum
bíósal.
VöðVabúnt
í bíó
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Áskriftarsíminn er 512 70 80
Fréttaskot 512 70 70
sólarupprás
05:12
sólsEtur
21:51
Tólf til þrettán ára gamlir strákar í
Vesturbæ Reykjavíkur minna Geir
H. Haarde, fyrrverandi forsætisráð-
herra, á bankahrunið með veggja-
kroti í grennd við heimili hans.
Geir býr við Granaskjól, ekki ýkja
langt frá KR-vellinum. Þar er að finna
gönguleið um Frostaskjól, sunn-
an Einimels og yfir Hofsvallagötu.
Göngustígurinn heldur síðan áfram
austan Hofsvallagötu milli Ægisíðu
og Kvisthaga.
Svo virðist sem unglingspiltarnir
hafi veitt því athygli að Geir leggi leið
sína reglulega um þennan stíg. Þeir
hafa útbúið mynd af forsætisráð-
herranum fyrrverandi og yfir henni
stendur „Wanted“.
„Veggjarkrotið er mikil plága, eink-
um í Breiðholti eins og er. Við könn-
umst við veggjakrotið á þessum stíg,“
segir starfsmaður Reykjavíkurborg-
ar í samtali við DV. „Þeir eru til inn-
an borgarkerfisins sem líta á þetta
sem list og gera lítið úr þessu. Kostn-
aðurinn við að mála og koma öllu í
samt horf er gríðarlegur,“ segir borg-
arstarfsmaðurinn og kveðst ætla að
skoða veggjakrotið á umræddum stíg.
Samkvæmt heimildum DV er
þetta ekki í fyrsta skipti sem þessi
tegund veggjakrots sést við þenn-
an sama göngustíg. Reglulega fer
meðfylgjandi mynd upp á bílskúrs-
veggi eða rafmagnskassa Orkuveitu
Reykjavíkur.
Geir H. Haarde minntur á bankahrunið af grunnskólabörnum með veggjakroti:
lýsa EFtir gEir mEð VEggjakroti
Eftirlýstur
Grunnskólabörn lýsa eftir Geir Haarde.