Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2010, Blaðsíða 6
6 fréttir 20. október 2010 miðvikudagur
F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
ÞÆGILEGIR & LÉTTIR
www.gabor.is
Sérverslun með
Stærðir 35-42
Verð kr. 16.495.-
Þjóðin kjósi um
ESB-viðræður
Sjö þingmenn Framsóknarflokks,
Vinstrigrænna og Hreyfingarinnar
standa að þingsályktunartillögu sem
dreift var á Alþingi á þriðjudag. Í
tillögunni er lagt til að efnt verði til
þjóðaratkvæðagreiðslu um aðlög-
unar- og viðræðuferli Íslands við
Evrópusambandið. Þannig muni
Alþingi álykta að fela dómsmála-
og mannréttindaráðherra að efna
til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort
halda eigi áfram áðurnefndu að-
lögunar- og viðræðuferli Íslands og
Evrópusambandsins. Er lagt til að
atkvæðagreiðslan fari fram samhliða
kosningu til stjórnlagaþings 27. nóv-
ember næstkomandi.
Missti stjórn á
sér í heimahúsi
Kona gekk berserksgang í heima-
húsi á Akranesi aðfaranótt laug-
ardags. Konan var gestkomandi
á heimilinu þegar á hana rann
æði. Er lögreglu bar að garði var
af konunni mesti móðurinn og
hafði hún falið sig undir rúmi.
Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu gátu hvorki konan
né húsráðandi gefið skýringar
á tryllingskastinu. Húsráðandi
hafði læst sig inni á baði til að
flýja konuna.
Íbúðin var illa útleikin, eða
eins og segir í lögregluskýrslu:
„Íbúðin var gjörsamlega í rúst.“
Það breytti því þó ekki að húsráð-
andi bauð konuna velkomna til
baka að morgni eftir að hún hafði
sofið úr sér í fangageymslu. Ekki
er búist við því að hann hafi uppi
kröfur vegna tjónsins.
Búseti tapaði
550 milljónum
Búseti á Norðurlandi tapaði um 550
milljónum króna á síðasta ári. Þetta
kom fram í fréttum RÚV á þriðjudag
en félagið er með á sínum snærum
234 íbúðir á Akureyri og Húsavík.
Benedikt Sigurðarson, framkvæmda-
stjóri Búseta á Norðurlandi, sagði
í fréttum RÚV að viðræður væru í
gangi við Íbúðalánasjóð og Íslands-
banka um endurfjármögnun lána
félagsins. Hann hafnaði því að félagið
hefði farið ógætilega í fjárfestingum
en ekki hefði staðið annað til boða
en að taka verðtryggð lán og því væri
staðan jafnerfið og raun ber vitni.
„Hárin risu á höfði mér þegar ég
sá að þetta voru myndirnar af Ísa-
bellu. Ég hafði óttast að þær væru
glataðar að eilífu. Þetta var gleði-
stund,“ segir Linda Pétursdóttir,
eigandi Baðhússins, sem varð fyr-
ir því óláni að morgni 12. októ ber
að þjófar brutust inn í Baðhúsið.
Mennirnir létu greipar sópa og
rústuðu skrifstofu Lindu. Auk þess
að skemma og eyðileggja stálu þeir
tölvu hennar og diskum með afrit-
um. Meðal gagnanna voru per-
sónulegar myndir af Ísabellu, dótt-
ur Lindu.
Sama um peningana
„Mér var sama um peningana sem
þeir tóku en það var sárt að missa
myndirnar sem ná allt frá fæðingar-
degi Ísabellu og fram að þjófnaði,“
segir hún.
Mynd náðist af öðrum þjófnum á
öryggismyndavél. Myndin var birt á
DV.is og í framhaldinu í öðrum fjöl-
miðlum. Lögreglan hóf árangurs-
lausa rannsókn á innbrotinu. Sjálf
biðlaði Linda til glæpamannanna
opinberlega um að skila ljósmynd-
unum. Það voru þó ekki þeir sem
höfðu samband.
„Það var haft samband við mig
tveimur dögum eftir innbrotið. Það
voru menn sem þekktu vel til und-
irheimanna og voru með tengingar
þangað. Þeir þekktu þjófinn af mynd-
inni og buðust til að ganga í málið. Ég
þáði það að sjálfsögðu. Örfáum dög-
um seinna höfðu þeir aftur samband
og sögðust hafa sótt gögnin. Milli-
göngumaður kom síðan með góssið í
Baðhúsið á mánudaginn. Ég er þess-
um mönnum afskaplega þakklát fyr-
ir að hafa bjargað myndunum og þar
með minningum okkar Ísabellu,“ seg-
ir Linda.
Báðu um lausnargjald
Þjófarnir vildu fá eins konar lausnar-
gjald fyrir að skila gögnunum en þeir
sem komu til hjálpar gerðu þeim grein
fyrir að það kæmi ekki til greina. Far-
sælast væri fyrir þá að skila einfaldlega
því sem þeir tóku. Hún er þess fullviss
að þjófarnir muni hugsa sig vandlega
um áður en þeir leggja til atlögu aftur.
„Mér skilst að innbrotsþjófarn-
ir séu sprautufíklar sem hafi verið að
fjármagna neyslu sína. Annar þeirra
er vel þekktur í undirheimunum. Það
var sá sem náðist á öryggismyndavél
og gleymdi verkfæratöskunni sinni.
Velgjörðarmenn mínir hafa sagt mér
að það verði þeim að mæta ef einhver
abbast aftur upp á mig. Það er notaleg
tilfinning eftir að hafa gengið í gegn-
um svona brot gegn friðhelgi minni.
En ég er sátt við þessi málalok,“ segir
Linda.
Mér skilst að inn-brotsþjófarnir
séu sprautufíklar sem
hafi verið að fjármagna
neyslu sína.
einar þór SigurðSSon
blaðamaður skrifar: einar@dv.is
Sprautufíkill látinn
Skila yndum lindu
Í síðustu viku brutust tveir menn inn í Baðhúsið. Þeir
rústuðu skrifstofu Lindu Pétursdóttur og stálu
peningum og tölvu. Meðal þess sem þeir höfðu
á brott með sér voru myndir af Ísabellu, dóttur
Lindu. Fimm ára saga var horfin. Linda biðlaði
til undirheimanna um að fá myndirnar aftur.
Brotist inn í Baðhúsið LindaPétursdóttir, igandiBaðhússins,
varðfyrirþvíólániaðmorgni12.októbe
raðþjófarbrutustinní
Baðhúsið.
Fékk myndirnar af Ísabellu aftur Linda
fékkafturmyndiraffimmáragamallidóttur
sinni,Ísabellu,semvarstoliðíinnbrotinuí
Baðhúsiðfyrirskömmu.
Stórt, alþjóðlegt íshokkímót á Íslandi síðar í mánuðinum:
Viljabjargaefnahagnum
„Það hefur verið haldið svona mót
hér á hverju ári, en nú ákváðu þeir að
hafa þetta öllu veglegra og það eru
fleiri keppendur. Þeir ætla að styrkja
Rauða krossinn og einnig barnastarf
í íslensku íshokkíi. Þetta er bara já-
kvætt og svo fylgir þessu auðvitað
mikill túrismi,“ segir Hallmundur
Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Ís-
hokkísambands Íslands.
Fjölþjóðlegur hópur áhuga-
manna um íshokkí á besta aldri ætlar
að koma hingað til lands síðar í mán-
uðinum og halda stórt góðgerðamót.
Leikmennirnir hafa komið hingað til
lands undanfarin ár, en í ár ætla þeir
um leið að safna fé fyrir Íslendinga
sem hafa komið illa út úr efnahags-
hruninu. Frá þessu er sagt í kanad-
ískum fréttamiðlum. Af 113 þúsund
króna mótsgjaldi á hvern keppanda,
renna 10 prósent, eða rúmlega 11
þúsund krónur til styrktar góðgerða-
málum hér á landi. Einn skipuleggj-
enda mótsins, Phil Mass, segir í sam-
tali við kanadískan vefmiðil að þeim
hafi sárnað að sjá hvernig komið er
fyrir Íslendingum eftir hrunið. Mass
er í samstarfi við Bandaríkjamann-
inn Michael Dee og kalla þeir við-
burðinn „Stóra íslenska íshokkí-
björgunaraðgerðin.“
Að minnsta kosti 10 lið munu
koma hingað til lands, meðal ann-
ars frá Rússlandi, Bandaríkjunum
og Kanada. „Við vitum að við erum
ekki að fara að bjarga efnahagnum
með mótinu. En við ætlum að hjálpa
krökkum á Íslandi að kaupa búnað til
að spila íshokkí. Heilt land varð fyrir
barðinu á Enron-svindli og alþjóða-
samfélaginu er sama.“
Íshokkíleikmennirnir ætla einn-
ig að styrkja efnahaginn með öðrum
hætti. „Við ætlum einnig að vera dug-
legir að styðja mjög vel við bakið á
öldurhúsum Reykjavíkur, því við ætl-
um að sletta hressilega úr klaufunum
í leiðinni,“ segir Mass.
valgeir@dv.is
Íshokkí Stórtalþjóðlegtgóðgerðarmótí
íshokkíferframhérálandisíðaríþessum
mánuði.