Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2010, Blaðsíða 21
Grétar Þorsteinsson
FYRRV. FORSETI ASÍ
Grétar fæddist í Fróðholtshjáleigu á
Rangárvöllum en ólst upp í Vestra-
Fróðholti. Hann stundaði nám
við Iðnskólann í Reykjavík og lauk
sveinsprófi í húsasmíði 1961.
Grétar var síðan húsamiður í
Reykjavík um árabil.
Grétar hóf snemma afskipti af fé-
lagsmálum í Trésmiðafélagi Reykja-
víkur, var varaformaður þess og síð-
an formaður 1978–97, var jafnframt
formaður Sambands bygginga-
manna og síðan Samiðnar er hún var
stofnuð 1993. Grétar var forseti ASÍ
1996–2008.
Grétar starfaði mikið með bind-
indishreyfingunni og sinnti þar
mörgum trúnaðarstörfum. Þá var
hann um tíma varaþm. fyrir Alþýðu-
bandalagið.
Á yngri árum æfði Grétar frjálsar
íþróttir hjá Ármanni, lagði stund á
spretthlaup og var um skeið í lands-
liðinu í frjálsum íþróttum.
Fjölskylda
Börn Grétars eru Jón Gunnar, f. 9.1.
1961, d. 8.12. 2007, var fréttamað-
ur hjá ríkissjónvarpinu, var kvænt-
ur Önnu S. Harðardóttur leikskóla-
stjóra og eru börn þeirra Andri,
Sandra og Tinna; Nína Karen, f. 23.7.
1962, tækniteiknari hjá Símanum,
gift Gylfa Guðmundssyni og er þeirra
dóttir Sigrún Elísa; Hjörtur Þór, f.
2.10. 1968, verslunarmaður í Reykja-
vík, kvæntur Önnu Kristínu Péturs-
dóttur og eru börn þeirra Dóra, Ingi-
björg Anna og Hjörtur Andri; Selma
Björk, f. 28.4. 1971, starfsmaður við
ferðaskrifstofu, gift Halldóri Gunn-
arssyni og eru börn þeirra Lúðvík
Þór, Gunnar Freyr og Grétar Már.
Stjúpdóttir Grétars er Jódís Jó-
hannsdóttir, f. 5.2. 1966, verslunar-
maður.
Bræður Grétars eru Árni Þor-
steinsson, f. 13.9. 1947, verkstjóri í
Þorlákshöfn, kvæntur Önnu Hjálm-
arsdóttur; Gunnar Þorsteinsson, f.
8.2. 1957, verslunarmaður, búsettur í
Reykjavík, kvæntur Valgerði Stefáns-
dóttur.
Foreldrar Grétars voru Þorsteinn
Sigmundsson, f. 22.4. 1915, d. 13.3.
1992, bóndi í Vestra-Fróðholti á
Rangárvöllum, og k.h., Jónína Árna-
dóttir, f. 18.6. 1920, d. 25.9. 1992, hús-
freyja.
Ætt
Þorsteinn var sonur Sigmund-
ar, vinnumanns í Rifshalakoti Þor-
steinssonar, b. í Götu í Landeyjum
Guðmundssonar.
Móðir Þorsteins í Vestra-Fróð-
holti var Filippía Filippíusdóttir, b.
á Klofa á Landi Sæmundssonar, b.
á Fossi Ólafssonar, b. í Húsagarði
Sæmundssonar, b. á Hellum Ólafs-
sonar. Móðir Sæmundar var Guð-
ný Sigurðardóttir, b. í Húsagarði Er-
lendssonar. Móðir Filippíusar var
Þórunn Hafliðadóttir, b. í Miðhús-
um í Hvolhreppi Sigurðssonar, b. í
Eystra-Fróðholti Jónssonar. Móðir
Þórunnar var Þórunn Sigurðardóttir,
b. á Ægissíðu Ólafsdóttur.
Jónína var dóttir Árna, hálfbróður
Guðmundar, steinsmiðs í Reykjavík,
föður prentsmiðjustjóranna Ágústs í
Alþýðuprentsmiðjunni og Hafsteins
í Þjóðsögu. Árni var sonur Helga, b.
á Grímsstöðum í Landeyjum Árna-
sonar, og Guðrúnar Hildibrands-
dóttur.
Móðir Jónínu var Guðný Gísla-
dóttir, b. í Húnakoti í Þykkvabæ,
bróður Vilhjálms í Dísukoti, föð-
ur Ingvars útgerðarmanns, föð-
ur Jóns stjórnarformanns. Gísli var
sonur Hildibrands, b. í Vetleifsholti
Gíslasonar, b. í Oddsparti í Þykkva-
bæ Gíslasonar. Móðir Gísla var Sig-
ríður Einarsdóttir, b. á Búðarhóli í
Þykkva bæ Ólafssonar, b. á Seli í Holt-
um Jónssonar. Móðir Ólafs var Guð-
rún Brandsdóttir, b. á Felli í Mýrdal,
bróður Ólafs á Fossi, langafa Odds á
Sámsstöðum, langafa Davíðs Odds-
sonar Morgunblaðsritstjóra. Ann-
ar bróðir Brands var Stefán í Árbæ,
langafi Stefáns í Núpstúni, afa Brynj-
ólfs Bjarnasonar, heimspekings, ráð-
herra og formanns Kommúnista-
flokks Íslands. Brandur var sonur
Bjarna, ættföður Víkingslækjarætt-
ar Halldórssonar. Móðir Guðnýjar
var Margrét Hreinsdóttir, b. á Sperðli
í Landeyjum Guðlaugssonar, b. í
Hemlu í Landeyjum Bergþórssonar.
30 ÁRA
Sirilak Lomain Hafnargötu 1, Vogum
Paulina Kaczor Víghólastíg 6, Kópavogi
Anna María Guðmundsdóttir Álaþingi 18,
Kópavogi
Kristinn Eiríkur Gunnarsson Kapellustíg 7,
Reykjavík
Vala Björnsdóttir Grandavegi 3, Reykjavík
Jóhannes Elías Sigurjónsson Frostafold 20,
Reykjavík
Þráinn Fannar Gunnarsson Sævarlandi 10,
Reykjavík
Einar Daði Halldórsson Asparfelli 2, Reykjavík
Ingólfur Elfar Pétursson Austurbergi 20,
Reykjavík
Ylfa Rún Jörundsdóttir Vegghömrum 37,
Reykjavík
40 ÁRA
Emmanuel Pastolero Antioquia Faxabraut
34b, Reykjanesbæ
Markiyan Khudoba Eskivöllum 7, Hafnarfirði
Dainis Cirulis Frakkastíg 8, Reykjavík
Kín Van Ngo Háaleitisbraut 113, Reykjavík
Nancy Janeth Guarderas Hurtado Úthlíð
12, Reykjavík
Árni Kristjánsson Hjarðarhaga 13, Reykjavík
Össur Björnsson Kálfhólum 19, Selfossi
Jens Heiðar Ragnarsson Jörundarholti 111,
Akranesi
Ragnheiður H. Guðjónsdóttir Melteigi 6,
Akranesi
Hólmfríður Skarphéðinsdóttir Æsufelli 4,
Reykjavík
Gísli Jökull Gíslason Glaðheimum 8, Reykjavík
50 ÁRA
Ævar Ágústsson Kársnesbraut 45, Kópavogi
Sigurþór Sigurþórsson Keilugranda 4,
Reykjavík
Óskar Baldvin Hauksson Smárarima 36,
Reykjavík
Ólafía Sigrún Helgadóttir Írabakka 34,
Reykjavík
Guðrún Valgerður Ásgeirsdóttir Hallgils-
stöðum, Akureyri
Vigdís Heiðrún Viggósdóttir Marargötu 7,
Grindavík
Sigurrós Einarsdóttir Þverárseli 22, Reykjavík
Björn Bjarnason Hjallabraut 7, Hafnarfirði
Kristján Þröstur Daðason Furugrund 31,
Akranesi
Sigurbergur S. Jónatansson Lyngmóum 7,
Garðabæ
Kristjana Hrafnkelsdóttir Heiðarbrún 12,
Hveragerði
Bjarni Gunnar Guðmundsson Suðurmýri
46a, Seltjarnarnesi
Guðrún Magnea Rannversdóttir Brekku-
byggð 54, Garðabæ
Jan Bernstorff Thomsen Ægisíðu 78,
Reykjavík
60 ÁRA
Nína Nhan Thi Tran Kleppsvegi 96, Reykjavík
Aðalsteinn Þórðarson Fellahvarfi 14, Kópa-
vogi
Smári Einarsson Heiðarholti 3, Garði
Margrét Bjarnadóttir Berjavöllum 4, Hafn-
arfirði
Björn Guðjónsson Bakkagerði, Drangsnesi
Halldóra Lúðvíksdóttir Þrastarási 44, Hafn-
arfirði
Rúnar Bergs Þorsteinsson Jöklafold 41,
Reykjavík
Victor Manuel Munoz Krummahólum 11,
Reykjavík
70 ÁRA
Guðmundur Sigþórsson Sendiráði Brussel,
Reykjavík
Rafn Georg Sigurbjörnsson Örlygsstöðum 2,
Skagaströnd
Kristján Oddgeirsson Marargötu 3, Grindavík
Þórhildur Halldórsdóttir Borgarbraut 24,
Stykkishólmi
Kristín Egilsdóttir Réttarheiði 2, Hveragerði
Haukur Sölvason Jöklafold 4, Reykjavík
Margrét Kristjánsdóttir Kjalarlandi 21,
Reykjavík
75 ÁRA
Sævar Sörensson Pósthússtræti 1, Reykja-
nesbæ
Mary Karlsdóttir Torfnesi Hlíf 1, Ísafirði
80 ÁRA
Sigurður Björnsson Rafnkelsstaðavegi 3,
Garði
Sigrún Clausen Stekkjarholti 7, Akranesi
Sigurþór Jónsson Háaleitisbraut 45, Reykjavík
Sigurjón Einarsson Arnartanga 70, Mos-
fellsbæ
Haukur Guðjónsson Víðigerði 4, Grindavík
Stefanía Þórðardóttir Eyrargötu 5, Eyrar-
bakka
85 ÁRA
Anna Pála Sveinsdóttir Aspargrund 5,
Kópavogi
Þorgerður Ragnarsdóttir Hlíðarhjalla 37,
Kópavogi
95 ÁRA
Margrét Pétursdóttir Dalbraut 27, Reykjavík
Ragnhildur Dagbjartsdóttir Kleppsvegi 64,
Reykjavík
30 ÁRA
Angeline Rodela Septimo Laugavegi 142,
Reykjavík
Heiðar Már Ólafsson Fjóluási 14, Hafnarfirði
Díana Lind Monzon Grænási 2b, Reykjanesbæ
Mariusz Janiszewski Asparskógum 20,
Akranesi
Lilja Harðardóttir Kveldúlfsgötu 18, Borgarnesi
Kristján Þórður Snæbjarnarson Sóleyjarima
23, Reykjavík
Unnur Ýrr Helgadóttir Gautlandi 13, Reykjavík
Anna Rós Sigmundsdóttir Tröllaborgum 14,
Reykjavík
Einar Bjarg Sigurðsson Ársölum 3, Kópavogi
Unnur Jakobsdóttir Smári Öldugötu 5,
Reykjavík
40 ÁRA
Friðbergur Ólafsson Birkivöllum 15, Selfossi
Laufey Gísladóttir Fagragarði 8, Reykjanesbæ
Ingileif Helga Leifsdóttir Klapparhlíð 11,
Mosfellsbæ
Jóhannes V. Gunnarsson Lindarhvammi 10,
Hafnarfirði
Guðbjörg Bjarnadóttir Suðurgötu 10, Sauð-
árkróki
Bjarni Sveinbjörn Guðmundsson Kvíslar-
tungu 32, Mosfellsbæ
Arnar Ágúst Klemensson Sléttuvegi 7,
Reykjavík
50 ÁRA
Jónas Pétursson Strandgötu 32, Hafnarfirði
Halldóra Georgsdóttir Brekkuseli 32,
Reykjavík
Sigríður Sch. Þorleifsdóttir Laufási 5,
Garðabæ
Baldur Pétursson Brattholti 1, Hafnarfirði
Steinfríður Cathleen Alfreðsson Langanes-
vegi 35, Þórshöfn
Tryggvi Frímann Arnarson Ljósalandi 12,
Reykjavík
Hanna Guðjónsdóttir Þrastarhöfða 1, Mos-
fellsbæ
Anna Jóna Snorradóttir Svalbarði 13, Hafn-
arfirði
Tómas Gunnarsson Lágengi 27, Selfossi
Sigurður Elísson Sólbakka 2, Breiðdalsvík
Guðný Hulda Reimarsdóttir Deildarási 20,
Reykjavík
Ólafur Þórólfsson Heiðarhjalla 14, Kópavogi
Ingi Rúnar Sigurjónsson Bakkahlíð 12,
Akureyri
Benjamín Vilhelmsson Borgarholtsbraut 14,
Kópavogi
Hulda Jónasdóttir Bollagötu 1, Reykjavík
Sigfús Aðalsteinsson Beykilundi 5, Akureyri
60 ÁRA
Sigurveig Björnsdóttir Ránargötu 26, Ak-
ureyri
Björn Pétursson Hólmgarði 6, Reykjavík
Benedikt Guðbrandsson Jötunsölum 2,
Kópavogi
Sveinn Helgason Jakaseli 3, Reykjavík
Sigurður B. Pétursson Klukkurima 1, Reykja-
vík
Gylfi Ásmundsson Holtateigi 21, Akureyri
Halldór Árnason Baughúsum 28, Reykjavík
Stefanía Hjartardóttir Norðurbakka 3a,
Hafnarfirði
70 ÁRA
Guðgeir Sigurðsson Skammadal, Vík
Erla M. Karelsdóttir Engihjalla 11, Kópavogi
Ingimar Hólm Ellertsson Þjóðbraut 1,
Akranesi
Lilja Friðbertsdóttir Háengi 19, Selfossi
75 ÁRA
Guðjón Axelsson Ystaseli 35, Reykjavík
Kristinn Sigurpáll Kristjánsson Skálateigi
1, Akureyri
Ragnar Zophoníasson Dynsölum 2, Kópavogi
Guðmundur Steinþórsson Ytri-Lambadal,
Þingeyri
80 ÁRA
Garðar Svavarsson Barðavogi 16, Reykjavík
Erlendur Magnússon Skógarseli 17a, Egils-
stöðum
Þórður Einarsson Hverfisgötu 49, Hafnarfirði
85 ÁRA
Ásdís Jóhannesdóttir Silfurteigi 2, Reykjavík
Ósk Jónsdóttir Gautlandi 9, Reykjavík
Magnús Magnússon Fossvogsv. Fossvbl. 13,
Reykjavík
90 ÁRA
Alfreð Kristjánsson Norðurbrún 1, Reykjavík
TIL HAMINGJU HAMINGJU
AFMÆLI 20. OKTÓBER
Ernst fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp.
Ernst var laugarvörður við
Sundhöll Reykjavíkur og starfaði
auk þess við sundþjálfun, einkum
hjá Ármanni, auk þess sem hann
þjálfaði ýmsa einstaka sundmenn,
s.s. Eyjólf Jónsson sjósundkappa.
Ernst lauk prófi sem íþrótta-
kennari frá Íþróttakennaraskólan-
um á Laugarvatni 1955 og starfaði
síðan sem sundkennari um áratuga
skeið í Reykjavík og var auk þess
með sundnámskeið víða um land
á sumrin.
Ernst var auk þess frumkvöðull
í sundkennslu og sundleikfimi fyr-
ir aldraða og sinnti því áhugamáli
sínu um árabil.
Á þessu ári var Ernst sæmdur
gullmerki Sundsambands Íslands
fyrir störf sín.
Ernst var einn af frumkvöðl-
um að stofnun Félags áhugafólks
um íþróttir aldraðra og sat í stjórn
þess félags í tuttugu og fimm ár, allt
þar til á síðasta aðalfundi. Á veg-
um félagsins hefur hann verið virk-
ur í kennslu og félagsstarfi víða um
land.
Ernst er margt til lista lagt og
hefur m.a. tónlist verið stór hluti í
hans lífi. Hann hefur leikið á píanó
og harmóníku frá unga aldri og er
enn söngfélagi í EKKÓ, kór kenn-
ara á eftirlaunum. Fyrir ári kom
út bráðskemmtilegur hljómdisk-
ur með dans- og sönglögum eftir
Ernst.
Fjölskylda
Ernst kvæntist 23.10. 1948 Ragn-
heiði Jónsdóttur, f. 10.4. 1928,
sjúkraliða, en hún er dóttir Jóns
Einarssonar, trésmiðs í Vestmanna-
eyjum, og Ólafar Friðfinnsdóttur
húsmóður.
Börn Ernst og Ragnheiðar: Þur-
íður, f. 8.1. 1948, alþm. og hjúkr-
unarfræðingur á Egilsstöðum, gift
Birni Kristleifssyni arkitekt og eiga
þau þrjú börn, Ragnheiði, Kristleif
og Þorbjörn; Jón Rúnar, f. 6.1. 1951,
húsamiður í Garðabæ, kvæntur
Þóru Elínu Guðjónsdóttur hjúkr-
unarfræðingi og eiga þau þrjú
börn, Ernst Guðjón, Elínu Rúnu og
Jón Þór.
Systkini Ernst: Halldór Sigurð-
ur, f. 30.1. 1922, d. 1984; Elsa Viola,
f. 21.11. 1924; Henning Karl, f. 27.7.
1927; Helga, f. 24.1. 1930; Valgeir, f.
19.10. 1931.
Hálfbróðir Ernst, sammæðra, er
Ingimar Karlsson, f. 15.10. 1914.
Uppeldissystir Ernst er Sonja
Backman, f. 26.8. 1938.
Foreldrar Ernst voru Ernst Frid-
olf Backman, f. 13.8. 1891, d. 1959,
verkamaður, og Jónína Salvör
Helgadóttir, f. 16.7. 1894, d. 1988,
húsmóðir.
Ernst Fridolf Backman
FYRRV. SUNDKENNARI Í SUNDHÖLL REYKJAVÍKUR
TIL HAMINGJU
AFMÆLI 21.OKTÓBER
MIÐVIKUDAGUR 20. október 2010 UMSJÓN: KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON kjartan@dv.is ÆTTFRÆÐI 21
70 ÁRA Á MIÐVIKUDAG
90 ÁRA Á FIMMTUDAG