Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2010, Blaðsíða 8
8 fréttir 20. október 2010 miðvikudagur
Guðjóni Guðmundssyni, fram-
kvæmdastjóra Sambands íslenskra
sparisjóða, er gefinn sá kostur að
vinna þriggja ára uppsagnarfrest
samkvæmt samningi en öllum samn-
ingum sambandsins hefur verið sagt
upp vegna þeirrar óvissu sem ríkir
um framtíð sparisjóðanna. Gísli Jaf-
etsson, fræðslufulltrúi sambandsins,
er með eins árs uppsagnarfrest. Hin-
ir sex starfsmenn sambandsins sem
var sagt upp störfum voru allir með
þriggja mánaða uppsagnarfrest og
fengu þær upplýsingar að ekki væri
hægt að halda starfseminni áfram
vegna óvissunnar. Félagið yrði lagt
niður í núverandi mynd. Ekki liggur
fyrir hver mánaðarlaun Guðjóns eru.
Ekki lagt niður
Guðjón segir hins vegar engar ákvarð-
anir enn hafa verið teknar um framtíð
sambandsins og ekki útséð um að það
verði lagt niður. Hann segist ennfrem-
ur líklega munu þurfa að vinna út sinn
þriggja ára uppsagnarfrest í þágu Sam-
bands íslenskra sparisjóða og segist
fullsáttur verði það niðurstaðan.
Aðspurður um hvers vegna samn-
ingar hans geri ráð fyrir svo löngum
uppsagnarfresti segir Guðjón að þegar
hann hafi tekið við starfi framkvæmda-
stjóra fyrir sex árum hafi mikil óvissa
ríkt um samstarf sparisjóðanna. „Það
var lögð mikil pressa á mig að taka
starfinu og á þeim tíma var ég að koma
úr 20 ára starfi í eigin rekstri og þurfti
að gera upp við mig hvort það væri
áhættunnar virði. Ég hefði getað lent
í því að verða sagt upp af pólitískum
ástæðum en ekki vegna frammistöðu í
starfi og það er meðal annars ástæðan
fyrir því að ég gat ekki tekið starfinu án
þess að hafa fyrir því góða tryggingu.
Það var Júlíus Sólnes sem gerði samn-
inginn við mig á þessum tíma.“
Tilgangur starfsins óbreyttur
Um óvissuna sem ríkir um framtíð
Sambands íslenskra sparisjóða segir
Guðjón forsendur fyrir samstarfi
sparisjóðanna afar breyttar.
„Það ríkir mikil óvissa um fram-
tíðina í kjölfar ólgu á mörkuðum og
enn hafa ekki verið teknar ákvarðanir
um hvernig sparisjóðirnir vilja standa
að sínu samstarfi í nánustu framtíð.
Það er af þeim ástæðum sem stjórn-
in tekur þessa ákvörðun um að segja
upp öllum samningum, til að hafa
meira svigrúm í sinni stefnumótun
og stefnumótun sparisjóðanna um
þetta samstarf.“ Guðjón segir nokkuð
ljóst að samstarfið verði mikið í ná-
inni framtíð. Um það séu allir sam-
mála. Hins vegar sé form eða skipulag
samstarfsins ekki ákveðið. „Tilgang-
ur samstarfsins breytist ekki en hann
er sá að standa vörð um hagsmuni
sparisjóða og styrkja starf þeirra.
Hagsmunagæsla og þróunarverkefni
ýmiss konar eru nauðsynleg í þeim
tilgangi.“
Öllum samningum hefur verið sagt upp hjá Sambandi íslenskra sparisjóða vegna breyttra
forsenda fyrir samstarfi sparisjóðanna og óvissu um framtíð þeirra. Framkvæmdastjóri
sambandsins, Guðjón Guðmundsson, er með þriggja ára uppsagnarfrest og fræðslufulltrú-
inn með eins árs uppsagnarfrest. Aðrir starfsmenn fengu þriggja mánaða uppsagnarfrest.
FÆR ÞRIGGJA ÁRA
UPPSAGNARFREST
krisTjana GuðbrandsdóTTir
blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is
Þriggja ára uppsagnarfrestur
FramkvæmdastjóriSambands
íslenskrasparisjóðaþarfaðvinna
langanuppsagnarfrest.
Það var lögð mik-il pressa á mig að
taka starfinu og á þeim
tíma var ég að koma
úr 20 ára starfi í eigin
rekstri og þurfti að gera
upp við mig hvort það
væri áhættunnar virði.
rEykjavíkurborG:
Sækja um í frið-
arsamtökum
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti
á þriðjudag að Reykjavíkurborg sæki
um inngöngu í samtökin Mayors for
Peace. Samtökin voru stofnuð árið
1982 af þáverandi borgarstjórum
Hiroshima og Nagasaki. Í fréttatil-
kynningu frá Birni Blöndal, aðstoð-
armanni Jóns Gnarr, kemur fram að
4.200 borgir í 144 löndum séu aðilar
að samtökunum í dag. Þátttaka í
samtökunum er ókeypis. „Mayors
for Peace beita sér fyrir því að vekja
alþjóðlega athygli á mikilvægi þess
að kjarnorkuvopnum verði útrýmt
í heiminum fyrir árið 2020. Jafn-
framt leggja þau sitt af mörkum við
að útrýma hungursneyð og fátækt,
styðja við mannréttindi og verndun
umhverfisins í því skyni að stuðla að
heimsfriði,“ segir Björn í fréttatil-
kynningunni.
Haft er eftir Jóni Gnarr að Ísland
búi yfir langri friðarhefð. „Sem höf-
uðborg í herlausu landi á Reykjavík-
urborg að vera leiðandi í því að beita
sér fyrir heimsfriði með beinum eða
óbeinum hætti,“ segir hann.
Úttekt á EES
Norska ríkisstjórnin hefur ákveð-
ið að hefja allsherjarúttekt á stöðu
EES-samningsins. Í þeirri viðleitni
hefur verið sett á fót teymi norskra
Evrópufræðimanna til að fara ofan
í saumana á áhrifum samningsins
á norskt samfélag frá því hann gekk
í gildi í ársbyrjun 1994. Fara á ofan
í kjölinn á samskiptum Noregs, Ís-
lands og Liechtenstein við Evrópu-
sambandið. Hópurinn hefur fengið
Eirík Bergmann, forstöðumann Evr-
ópufræðaseturs og dósent í stjórn-
málafræði við Háskólann á Bifröst,
til að vinna að alhliða rannsókn á
áhrifum EES-samningsins á íslenskt
samfélag.
„Rannsókn lögreglu á vettvangi er
lokið og það virðist vera sem það hafi
orðið sprenging í eldfimum efnum,“
segir Gunnar Jóhannsson, yfirmað-
ur rannsóknardeildar lögreglunnar á
Akureyri. Lögreglan hefur unnið við
rannsókn á sprengingu sem varð í
heimahúsi á Siglufirði á mánudaginn.
Lögreglan telur að neisti hafi skot-
ist úr slípirokk, sem maðurinn var að
vinna með í þvottahúsi á neðri hæð
hússins, og í eldfim efni sem þar voru
geymd. Ekki er vitað hvaða eldfim efni
um er að ræða. „Við eigum eftir að
ganga úr skugga um hvaða efni þetta
voru en það skýrist þegar við höfum
rannsakað sýni sem við tókum og eftir
að við höfum tala við manninn,“ segir
Gunnar.
Eins og fram hefur komið þá slas-
aðist maðurinn töluvert við spreng-
inguna. Hann var með meðvitund
þegar hann var fluttur með sjúkrabíl
til Akureyrar. Þar gekkst hann undir
aðgerð á þriðjudag og var lagður inn á
gjörgæsludeild með töluverða áverka.
Gunnar segir að hann sé þó ekki talinn
í lífshættu. Kona sem var á efri hæð
hússins kom manninum til hjálpar en
hún var einnig flutt á sjúkrahús.
Tilkynning um sprenginguna barst
lögreglu klukkan18.20 á mánudaginn
og fór rannsóknardeild lögreglunnar
á Akureyri á staðinn til að aðstoða við
rannsóknina. Sprengingin var mjög
öflug og brotnðuðu hurð og gluggar
jafnframt sem hlaðinn veggur hrundi.
Fjölmargir Siglfirðingar urðu spreng-
ingarinnar varir.
gunnhildur@dv.is
Var að vinna með slípirokk þegar neisti fór í eldfim efni:
Neistiollisprengingu
siglufjörður Maðurinnhlaut
töluverðaáverkaísprengingunni.