Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2010, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2010, Blaðsíða 17
miðvikudagur 20. október 2010 erlent 17 Fyrrverandi landlæknir Bandaríkjanna telur að lögleiða eigi marijuana: Marijuana verði lögleitt Fyrrverandi landlæknir Bandaríkj- anna, dr. Joycelyn Elders, sagði í viðtali við CNN á dögunum að hún teldi fýsilegt að lögleiða marijuana um gjörvöll Bandaríkin. Talsverð umræða hefur verið vestanhafs um lögleiðingu marijuana síðustu daga, en í næsta mánuði geta íbúar Kaliforníuríkis kosið um hvort al- menn notkun á efninu verði gerð lögleg – svokölluð tillaga 19. Stuðn- ingsmenn tillögunnar hafa bent á að ríkið myndi hagnast umtals- vert með skattheimtu af sölu mari- juana, auk þess sem fjármunir eigi eftir að sparast þegar lögreglan læt- ur af kostnaðarsömum aðgerðum til að vinna bug á ræktun marijúana og sölu. Andstæðingar tillögunn- ar hafa hins vegar bent á skaðlegar aukaverkanir marijuanareykinga. Elders bendir hins vegar á að „mari- juana er ekki eitrað efni. Það er ekki líkamlega ávanabindandi og hefur ekki leitt til nokkurs einasta dauða með beinum hætti. Ólíkt til að mynda löglegum efnum á borð við áfengi og sígarettur.“ Elders bendir á að Bandaríkja- menn hafa hæsta hlutfall dæmdra glæpamanna í heiminum en það sé að miklu leyti vegna sakfellinga ungs fólks vegna glæpa tengdum mari- juana. „Við erum að sakfella ungt fólk sem hefur aldrei stundað of- beldisglæpi, enda leiðir marijuana- neysla ekki til árásarhneigðar. Áfengi gerir það hins vegar en er samt lög- legt. Við getum notað mannauð okk- ar miklu betur en þetta,“ segir Elders. Aðspurð hvort hún eigi eftir að neyta marijuana verði það löglegt seg- ist hún efast um það: „Ég hef aldrei reykt á ævi minni, hvorki sígarettur né neitt annað. Ég fer varla að byrja á því úr þessu.“ Evrópusambandið ætlar sér að sameina löggjöf um fæðingarorlof mæðra í aðildarríkjum sínum, en frumvarp þess efnis bíður nú af- greiðslu í Evrópuþinginu og líklegt er að kosið verði um málið í þessari viku. Til stendur að lengja fæðing- arorlof mæðra í 20 vikur á fullum launum en til þessa hafa mæður þurft að láta sér 14 launaðar vikur duga í flestum aðildarríkjum ESB. Í Bretlandi gilda hins vegar aðr- ar reglur. Þar eiga mæður rétt á 90 prósent launa sinna í 6 vikur eftir barnsburð, en næstu 33 vikur þar á eftir fá þær aðeins 125 pund á viku – sem samsvarar liðlega 22 þús- undum íslenskum krónum. Breskar mæður eiga rétt á 12 mánaða leyfi frá störfum eftir barnsburð en af- ganginn af tímanum sitja þær uppi með engar tekjur. Of kostnaðarsamt Verði hin nýja löggjöf samþykkt er talið að það muni kosta bresk yfir- völd sem og fyrirtæki tvo og hálf- an milljarð punda, sem nemur tæp- lega 450 milljörðum íslenskra króna. Breska ríkið er nú þegar gífurlega skuldsett og telja margir að gamla heimsveldið muni ekki þola svo stór- aukin útgjöld. Breskir Evrópuþing- menn eru nú milli steins og sleggju, en talið er að þeir muni reyna að koma í veg fyrir að frumvarpið verði samþykkt. Á sama tíma vilja þeir ekki gera breskum mæðrum gramt í geði en aðstæður þeirra eru lakar mið- að við það sem gengur og gerist á meginlandi Evrópu. Talið er líklegt að samþykkt verði málamiðlun sem lögð var fram af Evrópuráðinu, sem kveður á um að fæðingarorlof verði lengt í 18 vikur á fullum launum. Marina Yannakoudakis er þing- maður íhaldsmanna á Evrópuþing- inu: „Þessar tillögur munu kosta bresk smáfyrirtæki og félagsmála- yfirvöld milljarða punda og einnig leiða til kynjamismununar á vinnu- stöðum. Ríkisstjórnir einstakra ríkja eiga að geta ákveðið hversu miklu þær vilja eyða í fæðingar orlof og mæðurnar sjálfar eiga rétt á að ákveða hvað er best fyrir þær og fjöl- skyldur þeirra. Evrópusambandið á að hætta að skipta sér af og draga þetta brjálaða frumvarp til baka.“ Munu síður ráða konur á barneignaraldri Godfrey Bloom, sem einnig situr á Evrópuþinginu, tekur í sama streng. Segir hann að sér í lagi muni minni fyrirtæki á Bretlandseyjum vera síð- ur líkleg til að ráða konur á barneign- araldri verði frumvarpið samþykkt. „Ef það er markmið Evrópusam- bandsins að hanna lög sem hvetji at- vinnurekendur til kynjamismununar þá gæti þeim ekki hafa farist verk- efnið betur úr hendi. Fáránleg lög- gjöf sem þessi útilokar atvinnutæki- færi ungra kvenna og neyðir þær til að sitja aðgerðarlausar heima við. Það er verið að færa stöðu kvenna á atvinnumarkaði til 1920 með einu pennastriki.“ Bresk stjórnvöld ætla sér að koma í veg fyrir nýja löggjöf Evr- ópusambandsins um fæðingarorlof mæðra. Löggjöfin sé of dýr, sérstaklega fyrir smærri fyrirtæki. Umdeild planta Kaliforn- íubúar munu kjósa um hvort lögleiða eigi marijuana. Vilja ekki lengja fæðingarorlof björn teitssOn blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is evrópuþingið Til stendur að greiða atkvæði um samræmda löggjöf um fæðingarorlof mæðra í vikunni. fram á, þrátt fyrir allt saman, að 69 prósent Frakka styðja frumvarp ríkis- stjórnarinnar. Alltént er minnihlutinn mjög hávær þar í landi. bylting gegn sarkozy Kristín Jónsdóttir, sem margir þekkja sem Parísardömuna, er búsett í Frakk- landi. Hún sagði í samtali við DV mót- mælin vera talsvert áberandi. „Þessi mótmæli eru ekki eingöngu vegna eftirlaunafrumvarpsins, heldur líka almennra óánægju með Sarkozy og hans ofurhægristefnu. Það eru all- ir komnir með upp í kok af honum, jafnvel fólkið úr hans eigin flokki. Ég bý í frekar rólegu úthverfi, en í morg- un voru heilmikil mótmæli við metró- stöðina okkar, á stórum gatnamótum. Þar var kominn hópur frá aðalstéttar- félaginu, með blys og lúðra, og dreifðu einblöðungum til að hvetja fólk til að taka þátt í mótmælunum. Reglulega er svo boðað til allsherjarverkfalla, sem eru missterk. En ég held að þessi mótmæli muni halda eitthvað áfram og hver veit nema þau snúist upp í allsherjar „byltingu“ gegn Sarkozy og stjórn hans.“ aðgerðir fÓlkSinS laMa frakklanD Mikil mótmælabylgja hefur skekið Frakkland undanfarnar vikur sem minnir um margt á stúdentamótmælin 1968. Eldsneytisskortur er staðreynd vegna verkfalls í olíuhreinsunarstöðvum. Kosið verður um hækkun eftirlaunaaldurs í vikunni. Þingið vill ræða við Zuckerberg Mark Zuckerberg, stofnandi net- samfélagsins Facebook, hefur verið kallaður til fundar af fulltrúadeild bandaríska þingsins. Ástæðan er upplýsingaleki, en nýlega kom í ljós að fjöldamörg fyrirtæki notfærðu sér persónulegar upplýsingar um mögulega viðskiptavini í gegnum Facebook. Vill þingmannanefnd fá að vita hve marga notendur málið snerti, og hvernig vefurinn hyggst koma í veg fyrir slíkan upplýsinga- leka í framtíðinni. Zuckerberg hefur frest til 27. október til að svara. Hraðlest milli lund- úna og frankfurt Deutsche Bahn ætlar sér að hefja reglulegar ferðir á milli tveggja fjár- málamiðstöðva Evrópu – Lundúna og Frankfurt – fyrir árið 2013. Með þessu móti ætlar Deutsche Bahn sér í samkeppni við lestarfyrirtækið Eurostar, sem býður meðal annars upp á lestarferðir frá Lundúnum til Parísar og á milli Parísar og Brussel. Búið er að prufukeyra lest Deutsche Bahn nú þegar, en hún mun ferðast á yfir 300 kílómetra hraða á klukku- stund og á ferðin ekki að taka meira en fjóra tíma að hámarki. Skotið á Pentagon Ónafngreindur maður tók upp á því að hefja skothríð í átt að Pentagon, varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna í gær. Enginn mun hafa slasast né mun nokkurt eignatjón hafa átt sér stað vegna skotárásarinnar, en það er haft eftir talsmanni ráðuneytisins. Er þetta í fyrsta sinn sem skotið er á Pentagon síðan í maí, en þá tókst skotmanni að særa öryggisverði við aðalinngang byggingarinnar og var í kjölfarið skot- inn til bana. Í kjölfarið voru örygg- ismál ráðuneytisins tekin til endur- skoðunar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.