Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2010, Qupperneq 12
Ekki fæst upplýst hverjir raunveruleg-
ir eigendur Lyfjaþjónustunnar ehf. eru
auk Kristjáns Jóhannssonar, lektors
í viðskiptafræði við Háskóla Íslands,
þrátt fyrir fyrirheit um að hluthafalisti
yrði kynntur í haust. Krstján var einn
skráður eigandi Lyfjaþjónustunnar
síðastliðið sumar þegar félagið keypti
lyfjadreifingarfyrirtækið Parlogis af
Landsbankanum. Kaupverð var 250
milljónir króna og var upphæðin
staðgreidd samkvæmt upplýsingum
frá Landsbankanum. Ljóst er að við
endurfjármögnun félagsins afskrifaði
Landsbankinn einn milljarð króna að
lágmarki.
Kristján, framkvæmdastjóri og eig-
andi Lyfjaþjónustunnar, er ekkert á því
að nafngreina aðra hluthafa. „Fram-
kvæmdastjóri félagsins, Kristján Jó-
hannsson, vildi ekki veita Creditinfo
upplýsingar um hluthafa en vísaði í
ársreikning 2010 sem birtur verður að
12 mánuðum liðnum,“ segir í gögnum
Creditinfo frá 14. október.
Samruni á lyfjamarkaði
„Bankinn veit þetta já,“ sagði í svari
Landsbankans við fyrirspurn DV um
hluthafa í Lyfjaþjónustunni í byrj-
un september síðastliðins. Bankinn
upplýsti hins vegar ekki hverjir þessir
hluthafar væru frekar en Kristján þeg-
ar Creditinfo bað hann um slíkar upp-
lýsingar. Engu að síður hafði Kristján
með tilkynningu til Creditinfo þann
17. ágúst gefið til kynna að hluthaf-
ar væru fleiri og að staðfestar upplýs-
ingar um það lægju fyrir í byrjun sept-
ember.
Aftur á móti upplýsti Landsbank-
inn að staðgreiðslan fyrir Parlogis, 250
milljónir króna, hefði verið greidd inn
á reikning og yrði upphæðin innköll-
uð um leið og Samkeppniseftirlitið
hefði farið yfir samruna Lyfjaþjóns-
tunnar og Parlogis.
Samkeppniseftirlitið skilaði niður-
stöðu sinni 8. október síðastliðinn og
sá að athuguðu máli ekki ástæðu til
þess að aðhafast frekar vegna kaupa
Lyfjaþjónustunnar á öllu hlutafé í Par-
logis. Í umfjöllun Samkeppniseftir-
litsins segir meðal annars: „Eigend-
ur Lyfjaþjónustunnar eru að verulegu
leyti sömu aðilar og eiga Icepharma.
Sömu aðilar munu því að miklu leyti
hafa yfirráð yfir báðum fyrirtækjunum
verði samruninn heimilaður. Í skiln-
ingi samkeppnislaga fela því kaup
Lyfjaþjónustunnar á hlutafé Parlogis
í sér samruna Icepharma og Parlogis.“
Tapaði 1,3 milljörðum
Lyfjafyrirtækið Icepharma var að öllu
leyti í eigu Lyngs ehf. í fyrra. Lyng var
á sama tíma í meirihlutaeign Akur-
eyjar ehf. en aðra hluti í félaginu eiga
Margrét Guðmundsdóttir og Karl Þór
Sigurðsson. Akurey ehf. var á þessum
tíma hins vegar algerlega í eigu Kristj-
áns Jóhannssonar og Ingu Rósu Guð-
mundsdóttur, tengdadóttur hans og
sérfræðings hjá Lyfjastofnun. Upplýst
er nú að Inga Rósa hafi selt Kristjáni
sinn hlut en störf hennar hjá eftirlits-
stofnun með lyfjadreifingu í landinu
gátu hæglega valdið vanhæfi hennar.
Rekstrartap Parlogis árið 2008
nam nærri 1.260 milljónum króna og
var eigið fé þess neikvætt um nánast
sömu upphæð. Skuldir námu um 2,4
milljörðum króna.
Í ársreikningi Parlogis fyrir árið
2009 kemur fram að hlutafé félagsins
hafi verið aukið um 1.253 milljónir
króna með skuldbreytingu lána fyrir
síðustu áramót.
Með sölu Parlogis frá Vestia, eign-
arhaldsfélagi Landsbankans, er sam-
kvæmt þessu búið að færa til bók-
ar að minnsta kosti eins milljarðs
króna afskrift. Í fréttatilkynningu frá
23. júlí sagði Steinþór Baldursson,
framkvæmdastjóri Vestia, að Parlogis
væri fyrsta fyrirtækið sem selt væri úr
eignasafni Vestia. „Með sölunni hefur
Vestia náð að uppfylla meginmarkmið
sín um að hámarka endurheimtur
við ráðstöfun eigna, lágmarka eignar-
haldstíma og gæta jafnræðis og gagn-
sæis við söluferli.“
Af hverju pukur?
Þrátt fyrir orð um jafnræði og gagn-
sæi við söluferli veit bankinn hverjir
nýir hluthafar eru ásamt Kristjáni Jó-
hannssyni aðaleiganda. Hvorki bank-
inn né Kristján hafa áhuga á að upp-
lýsa hverjir raunverulegir eigendur
Lyfjaþjónustunnar eru og því ekki
ljóst hverjir staðgreiddu 250 milljón-
ir króna fyrir félagið og fengu um leið
álitlegar afskriftir skulda.
Aðspurðir hafa talsmenn Lands-
bankans neitað því að bankinn hafi
lánað Kristjáni og huldumönnunum
í hópi hluthafanna fyrir kaupverð-
inu, alls 250 milljónir króna. Vitað er
að Landsbankinn er viðskiptabanki
meðal annars Icepharma sem er nú
í rauninni eitt og sama fyrirtækið og
Lyfjaþjónustan/Parlogis eins og Sam-
keppniseftirlitið bendir á.
Nauðsynlegt er að halda því til
haga að Gunnar Helgi Hálfdánarson,
stjórnarformaður Landsbankans, og
Kristján Jóhannsson, kaupandi Par-
logis af bankanum, eru samkvæmt
heimildum DV nánir vinir allar götur
frá skólaárum sínum í Verslunarskól-
anum. Ekki er þar með sagt að kunn-
ingjaræði eða klíkuskapur hafi haft
einhver áhrif á ofangreind viðskipti.
Af fyrirliggjandi upplýsingum má
ráða að Kristján Jóhannsson er mikil-
virkur kaupandi fyrirtækja að undan-
förnu. Auk þess að hafa keypt Parlogis
af Landsbankanum og rennt því sam-
an við Lyfjaþjónustuna og Icepharma
án athugasemda Samkeppniseftirlit-
isins keypti hann einnig nýverið 50
prósenta hlut Ingu Rósar Guðmunds-
dóttur, tengdadóttur sinnar, út úr
eignarhaldsfélaginu Akurey.
Kröfur Háskóla Íslands
Samkvæmt reglum Háskóla Íslands
þarf Kristján að gera grein fyrir auka-
störfum sínum utan Háskólans eins
og aðrir akademískir starfsmenn
hans. Í reglum skólans segir að starfs-
maður skuli rækja störf sín við Há-
skóla Íslands af metnaði og alúð og
gæta trúnaðar við skólann í hvívetna.
„Starfsmaður skal gæta þess að störf
hans utan Háskóla Íslands, hvort sem
þau eru launuð eða ekki, samræm-
ist faglegum skyldum hans í Háskól-
anum, þannig að ekki verði véfengt
að ákvarðanir hans og athafnir í starfi
samræmist reglum Háskólans og séu í
þágu skólans.“
Enn fremur segir í reglum HÍ:
„Hyggist starfsmaður Háskólans taka
við launuðu starfi í þjónustu annars
aðila [...] taka sæti í stjórn atvinnufyr-
irtækis eða stofna til atvinnurekstr-
ar, þá ber honum að skýra forseta
þess fræðasviðs sem hann tilheyrir
frá því áður en hann ákveður að taka
við starfinu. Telji forseti fræðasviðs
tilgreinda starfsemi ósamrýmanlega
starfi hans við Háskólann er starfs-
manninum bannað að hafa hana með
höndum [...] Forseta fræðasviðs ber
að tilkynna starfsmanni þetta innan
tveggja vikna frá því hann móttekur
erindi hans.“
DV hefur ekki upplýsingar að svo
stöddu um það hvort Kristján, sem
taldist launahæsti háskólamaðurinn í
sumar með 2,2 milljónir króna á mán-
uði, hafi tilkynnt yfirvöldum Háskóla
Íslands um eignarhald og ábyrgðar-
störf sín í þágu þeirra fyrirtækja sem
Samkeppniseftirlitið lítur svo á að hafi
nú runnið saman í eitt.
12 fréttir 27. október 2010 miðvikudagur
Ástrós
Með ferska sýn
á nýja stjórnarskrá
stjórnmálafræðingur
Framboð til stjórnlagaþings
Gunnlaugsdóttir
astrosg.is„Ég borga þessa auglýsingu úr eigin vasa“.
Ástrós G
Landsbankinn veit hverjir eiga fyrirtækið Lyfjaþjónustuna, sem fékk að kaupa lyfjadreifingarfyrirtækið
Parlogis ehf. af bankanum síðastliðið sumar fyrir 250 milljónir króna. Upphæðin var staðgreidd. Kristján
Jóhannsson, lektor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, var við kaupin skráður eini eigandinn og ætlaði
að gefa upp nöfn hluthafa í september. Hvorki hann né bankinn vilja nú upplýsa hverjir hluthafarnir eru og
segir Kristján nöfnin verða birt með ársreikningum á næsta ári.
LeynihLuthafar með
háskóLaLektornum
JóHAnn HAuKSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Framkvæmda-stjóri félagsins,
Kristján Jóhannsson,
vildi ekki veita Credit-
info upplýsingar um
hluthafa en vísaði í árs-
reikning 2010 sem birt-
ur verður að 12 mánuð-
um liðnum.
Samruni á lyfjamarkaði Icepharma,
LyfjaþjónustanogParlogiserueittog
samafyrirtækiðíeiguKristjánsJóhanns-
sonarlektorsogóþekktrahluthafa.
Lofaði gagnsæi Landsbankinntalaði
umgagnsæiþegarVestia,rekstrarfélag
Landsbankans,seldilyfjafyrirtækiðmeð
afföllum,engefurekkiuppkaupendur
nemaaðhluta.
Háskólamaðurinn KristjánJóhannsson
kennirviðskiptafræðiviðHáskólaÍslands
oghefurgertlengi.Hannogformaður
bankastjórnarLandsbankanseruvinir.