Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2010, Blaðsíða 19
Í könnunum al-
veg fram á þenn-
an dag eru Ís-
lendingar sagðir
haminguríkastir
allra þjóða. Engu
líkara en að hag-
vöxtur hamingj-
unnar aukist
með veldishraða
þegar harðnar á
dalnum. Og brátt
sprengja þeir ef-
laust hamingju-
skalann.
Allt er þetta svo undarlegt að
menn sem lengi hafa dvalist í vel-
ferðarsamfélögum erlendis hafa
aldrei kynnst öðru eins. Kalli gamli
Marx talaði um að trúarbrögðin væru
ópíum fólksins en á Íslandi er það
eymdin og volæðið sem virka eins og
innspýting til himnaríkis.
Annað hvort er þetta vitnisburður
um vitsmuni og húmor landans eða
þeirra sem gera slíkar kannanir. Því
samtímis hamingjutölunum fjölgar
íbúðum í eigu banka og Íbúðalána-
sjóðs. Sagt er að þetta ótrúlega glaða
fólk „gangi frá“ íbúðunum þegar það
yfirgefur þær rétt eins og sígaunar/
rómafólk ku gera á meginlandi Evr-
ópu þegar vegið er að þeim. Einnig
fylgir fréttunum að fjármálastofnan-
ir hóti lögsókn vegna þessara kátu
kveðja íbúanna.
Réttlaust utangarðsfólk
Það sem vekur athygli er hvað þetta
hamingusama fólk er í raun eitt og
einmana. Eins og það lifi í einskis-
mannslandi án bakhjarla og stuðn-
ings og þurfi eitt að ráða fram úr öllu.
Líkt og það sé réttlaust og lifi í sam-
félagi án réttlætis. Þetta er áberandi
meðal stéttlausa atvinnuleitenda og
öryrkja sem án samningsréttar taka
aðeins við því sem að þeim er rétt og
standa í biðröðum fyrir utan mann-
úðarstofnanir sem eru ekki í sumar-
eða vetrarleyfi.
Engu breytir þó Íslendingar hafi
undirritað mannréttindasáttmála.
Þeir fá sjaldnast lagagildi vegna and-
stöðu atvinnurekenda og talsmanna
þeirra. Ef það hendir eru settir fyrir-
varar um að landsréttur sé hafinn yfir
þjóðarrétt. Þannig eru mannréttinda-
sáttmálar aðeins málamyndasamn-
ingar í augum íslenskra stjórnvalda.
Nú hefur heldur betur fjölgað í
hópi utangarðsfólksins. Bæst hafa við
einstaklingar sem eiga allt í einu ekki
bót fyrir rassinn á sér og ráða ekki við
skuldbindingar sem margfölduðust
á einu andartaki. Líkt og þegar risa-
stórir loftsteinar rákust á jörðina og
eyddu risaeðlum. Að vísu voru loft-
steinarnir íslenskir athafnamenn,
ólíkindatól sem fyrirmunað var að
skynja afleiðingar gjörða sinna.
Við þennan forsendubrest bætt-
ust við þúsundir ef ekki tugþúsundir
einstaklinga án samningsréttar. Eng-
inn rétti þeim litla fingur. Þeir voru
álíka einir og hinir stéttlausu. Eina
sem þeir gátu gert var á fara í fjöl-
miðla og væla yfir óréttlætinu – eða
fara á Austurvöll með hrossabresti og
berja í tómar tunnur. Eða taka með
sér teygju- eða lykkjubyssur og skjóta
þaksaum og fúleggjum í holduga aft-
urenda vitstola þingmanna hlaup-
andi inn bakdyramegin þinghússins
til að fá áfallahjálp forsetans og bisk-
upsins.
Innbyggð kyrrstaða
Þann 16. nóvember 1976 var Wolf
Biermann vísað úr landi til Vestur-
Þýskalands. Þá voru mótmæli um allt
Austur-Þýskaland í skjóli myrkurs.
Daginn eftir fóru undirritaður og fé-
lagarnir Bo og Leena í Ráðhúskjallar-
ann í Dresden sem kemur fyrir í Slát-
urhúsi 5, frægri bók Kurts Vonneguts.
Við gengum í gegnum höggmynda-
garðinn þar hjá. Hvarvetna hafði
styttum verið velt af stalli.
Þessi kraftbirtingarhljómur van-
máttarins tröllríður húsum á Íslandi.
Í alþjóðlegum tölfræðihandbókum er
gefið í skyn að íslenskir launþegar séu
afar stéttvísir. Þannig virðist það vera
vegna skylduaðildar þeirra að hinum
og þessum samtökum. En allir vita
að þessi félög eru meira og minna
steindauð og koma að litlu sem engu
gagni fyrir hina stéttlausu og nýja ut-
angarðsfólkið. Það á sig sjálft.
Staðreyndin er sú að vinnumark-
aðurinn hefur verið njörvað niður
í eins konar spennitreyju. Samið er
um kaup og kjör hinna lægstlaunuðu.
Samningarnir ganga síðan yfir alla
hina eftir ákveðnu forriti. Að þessu
koma innan við 50 manns frá sam-
tökum atvinnurekenda og ASÍ í sam-
ráði við ríkisstjórn hvers tíma. Önn-
ur félög koma hvergi nærri og fara
stundum í verkfall. En ekki má rjúfa
kyrrstöðuna og því hafa þau ekki er-
indi sem erfiði.
Með þessu fyrirkomulagi hef-
ur vanmáttur kyrrstöðunnar verið
byggður upp af hinum „stéttvísu“.
En þegar hamingjuímyndin brest-
ur grípa menn til örþrifaráða.
Tískugúrúinn og sjónvarpsstjarnan
KaRl BeRndsen hefur gefið frá sér
bókina VAXI-n Finndu hvað fer þér
best! Bókin er fyrsta bók Kalla sem er
einn þekktasti hárgreiðslumaður
landsins, hefur starfað með heims-
frægum söngkonum og stjórnar
hinum vinsæla þætti Nýtt útlit.
AllAr konur fAl-
legAr á sinn hátt
1 Hótað meiðingum vegna bókar um Catalinu
Þórarni Þórarinssyni og Jakobi
Bjarnari Grétarssyni hafa borist
hótanir við skrif þeirra á væntanlegri
bók um Catalinu M. Ncogo.
2 Hjúkrunarkona slökkti á öndunarvél fyrir mistök
Bresk hjúkrunarkona náðist á
myndband þegar hún slökkti óvart á
öndunarvél sjúklings.
3 jón gnarr með ofnæmi en ekki lifrarbólgu
Borgarstjórinn í Reykjavík fékk heift-
arlegt ofnæmi fyrir pensillíni sem
honum var gefið vegna sýkingar.
4 Passaðu þig á faCebook Friðrik Skúlason varar við mörgum
varasömum gildrum á Facebook.
5 Hrinti manni fyrir lest Karlmaður lést eftir að honum var
hrint fram af lestarpalli og fyrir
lest á King‘s Cross-lestarstöðinni í
Lundúnum í gærkvöldi.
6 reyndi að kúga fé af Heims-þekktri PoPPstjörnu
Lundúnabúi hefur verið fundinn
sekur um að kúga fé út úr heims-
þekktri poppstjörnu sem fjölmiðlar
mega ekki nafngreina af lagalegum
ástæðum.
mest lesið á dv.is myndin
Hver er maðurinn? „Karl Berndsen
hárgreiðslumeistari.“
Hvar ertu uppalinn? „Á Skagaströnd.“
Uppáhaldsmatur? „Indverskur og
rjúpur.“
Hvaða litir eru allsráðandi um jólin?
„Það verður mikið um glit, bæði djúpa
gull-liti, glimmer og silfur.“
Hvað drífur þig áfram? „Metnaður
og umhyggja fyrir að koma einhverju
frá mér.“
afrek vikunnar? „Að koma bókinni
minni í prentun.“
Uppáhaldsbók? „Bókin mín er
alvolgust. Hún er í uppáhaldi núna.“
Hvar líður þér best? „Einhvers
staðar uppi í sveit í rólegheitunum og í
vinnunni.“
Átt þú þér fyrirmynd? „Enga ákveðna.
Bara allt ákveðið framadrifið lið.“
Fallegasta kona sem þú hefur séð?
„Get ekki gert upp á milli. Þær eru allar
fallegar á sinn hátt.“
Hvað er fram undan? „Það eru að
koma jól. Við erum að klára Nýtt útlit og
svo kemur brjáluð vertíð fyrir jólin. Svo
ætla ég að sjá til þess að allar konur kaupi
bókina mína. Ekki veitir nú af.“
maður dagsins
„Já, ég kannast við einn frambjóðanda.
Það er Margrét Jensína Þorvaldsdóttir.“
KatRín alFa snoRRadóttIR
28 ÁRA KAFFIBARÞJóNN
„Nei, ég kannast við einhverja en þekki
engan persónulega.“
Jón VIðaR nJÁlsson
53 ÁRA VéLSTJóRI
„ég þekki hana Lovísu Arnardóttur.“
steInaR ÞóR Gíslason
30 ÁRA KöRFuBoLTAKAppI
„Já, ég þekki Ástþór Magnússon.“
olIVeR steInn BeRGsson
30 ÁRA NEMANdI
„Nei, ég geri það ekki.“
eVa Rún ÁGústsdóttIR
16 ÁRA NEMI
þekkir þú einHvern sem býður sig fram til stjórnlagaþings?
dómstóll götunnar
miðvikudagur 27. október 2010 umræða 19
kraftbirtingarhljómur vanmáttarins
sævAr
tjörvAson
doktor í félagsfræði skrifar
Bæst hafa við einstaklingar
sem eiga allt í einu ekki
bót fyrir rassinn á sér og
ráða ekki við skuldbind-
ingar sem margfölduð-
ust á einu andartaki.
kjallari
Jesús og Íþróttaálfurinn
KRotIð VíKUR Starfsfólk Reykjavíkurborgar sést nú á þönum í miðborginni við að fjarlægja krot af veggjum. Slík hreinsun er þó
alla jafna skammgóður vermir. mynd sIGtRyGGUR aRI