Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2010, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2010, Page 24
,,Auðvitað eigum við að vinna Letta,“ sagði Guðmundur Þórður Guð- mundsson, þjálfari íslenska hand- boltalandsliðsins, við DV á æfingu liðsins í Safamýri á þriðjudagskvöld. Ísland mætir Lettlandi í kvöld, mið- vikudagskvöld, í fyrsta leik undan- keppni EM 2012, klukkan 19.40 en á laugardaginn er svo leikur gegn Aust- urríki ytra. „Við verðum að mæta á fullu í þennan leik og gera þetta al- mennilega. Það er mín krafa til leik- mannanna. Allt annað er einfaldlega ekki nægilega gott,“ sagði Guðmund- ur ákveðinn en Lettar teljast seint til sterkustu handboltaþjóða heims og segir sig sjálft að silfur- og brons- drengirnir eiga að fara létt með Letta fyrir framan sitt fólk í Laugardalshöll- inni. Bilið að minnka Guðmundur segist tiltölulega sáttur við hvernig liðið hefur mætt í leiki gegn þessum minni þjóðum undir hans stjórn. „Þetta hefur verið mjög gott fram að þessu en það verður að halda því áfram. Bilið á milli góðu liðanna og þeirra sem eiga að teljast veikari er að minnka. Við unnum til dæmis Eistland og Belgíu hér heima í síðustu undankeppni mjög sannfær- andi. En hvað gerðist svo? Við gerðum jafntefli í Eistlandi og lentum í bull- andi vandræðum í Belgíu. Þetta er bara þannig íþrótt að það þarf að taka hana á fullu, alltaf,“ sagði Guðmundur. Ísland er án Guðjóns Vals Sigurðs- sonar sem verður lengur frá vegna meiðsla. Alexander Petersson verð- ur ekki með gegn Lettum og einnig há önnur smávægileg mein liðinu. „Lexi verður ekki með en ég vona að hann geti spilað gegn Austurríki. Logi Geirsson er veikur en ég vona að hann verði nú með. Eins finnur Aron Pálmarsson aðeins til þannig að ég veit ekki alveg með hann,“ sagði Guðmundur. Allt annað en sigur er vonbrigði Skyttan Arnór Atlason sem fór á kost- um á Evrópumótinu í Austurríki í byrjun árs var ekki með í fótboltan- um sem leikmennirnir nota ætíð til að hita sig upp. Hann snéri sig að- eins á ökkla í fyrradag en hann verð- ur með gegn Lettlandi. Hvað veit hann um Lettana? „Við sáum þá bara í fyrsta skiptið áðan á myndbandi. Þetta var einhver leikur frá því í vor. Þeir kunna alveg að spila handbolta. Þeir eru með vinstri skyttu úr þýsku Bundesligunni sem er væntanlega þeirra aðalmaður,“ sagði Arnór og viðurkenndi að sigur væri það eina sem kæmi til greina. „Við erum komnir á þann stall að á heimavelli eigum við að vinna. Allt annað er bara vonbrigði. Við höfum samt sýnt það áður að við getum gert ótrúlegustu hluti, bæði jákvæða og neikvæða. Heilt yfir erum við samt bara nokkuð rólegir yfir þessu,“ sagði Arnór. Gott og vont fyrirkomulag Fyrir síðasta Evrópumót var tek- ið upp nýtt fyrirkomulag á undan- keppninni sem svipar til þess sem er í knattspyrnunni. Það er að riðlar STÓRLEIKUR Í KEFLAVÍK Fimmta umferð Iceland Express-deildar karla í körfubolta verður leikin á fimmtudag og föstudag. Stórleikur umferðarinnar er á föstudagskvöldið þegar KR-ingar heimsækja Keflavík í Toyota-höllina. Keflavík hefur farið afleitlega af stað í vetur og aðeins unnið einn af fyrstu fjórum leikjum sínum en KR þrjá af fyrstu fjórum. Aðrir leikir eru á fimmtudaginn: Njarðvík - Hamar, Tindastóll - Snæfell og Fjölnir - Haukar. Á föstu- daginn mætast svo Keflavík og KR suður með sjó og Stjarnan fer á Ísafjörð og heimsækir KFÍ. Allir leikir hefjast klukkan 19.15. MIST SAMDI VIÐ VAL Valskonur sem hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn undanfarin fimm ár ætla sér greinilega að sækja þann sjötta næsta sumar. Styrking fyrir næsta tímabil er hafin og tilkynnti Valur um félagaskipti hinnar bráðefnilegu Mist Edvardsdóttur frá KR. Mist er tvítug og á að baki 44 leiki í efstu deild fyrir KR og Aftureldingu. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, talar ætíð um hana sem framtíðarlandsliðskonu, en hún var í hópi íslenska landsliðsins á Algarve Cup í byrjun þessa árs. Mist getur bæði spilað sem varnar- og miðjumaður. MOLAR BRÆÐUR LEIÐBEINA RED BULL n Bræðurnir Ralf og Michael Schum- acher segja báðir að það sé kominn tími á Red Bull að veita Mark Webber allan þann stuðning sem mögulegt er svo að liðið eigi möguleika á að eignast heims- meistara í fyrsta sinn. Þýsku bræðurnir segja að nú verði Red Bull einfaldlega að setja liðsreglur um að Webber sé númer eitt. „Nú verður Red Bull bara að hugsa um einn mann, Mark Webber,“ segir Ralf í þýska tímaritinu Bild. „Vettel verður að ná í eins mörg stig og hann getur en Red Bull verður að sjá til þess að Mark Webber vinni titilinn,“ bætir Michael Schumacher við. Webber er ellefu stigum á eftir Fernando Alonso í stigakeppninni. ÞARF AÐ LÍTA Í EIGIN BARM n Matthew Upson, fyrirliði West Ham, viðurkennir að liðið þurfi að líta í eigin barm ætli það að snúa við genginu á tímabilinu, en West Ham er á botni ensku úr- valsdeildarinnar eftir níu umferðir. Liðið tapaði fyrir Newcastle á heimavelli síðast- liðinn laugardag og voru leikmenn West Ham baulaðir af velli. „Stuðningsmennirnir hafa fullan rétt á því að vera reiðir, sérstak- lega þar sem við spiluðum svo illa í seinni hálfleik. Nú verðum við bara að komast að því hvað er að sem ein heild. Knattspyrnustjórinn verður að finna einhver svör og fara að vinna í þeim. Það er eina leiðin til að laga það sem er að,“ segir Upson. DÓMARANUM HÓTAÐ n Skoski dómarinn Willie Collum hefur fengið nokkur hótunarsímtöl eftir frammistöðu hans í fyrsta leik erkifjendanna, Rangers og Celtic, á þessu tímabili. Þetta var í fyrsta skiptið sem Collum dæmdi í leik á milli liðanna, sem Rangers vann, 3–1. Neil Lennon, stjóri Rangers, gagn- rýndi Collum harkalega eftir leikinn en Collum gaf Rangers glórulausa vítaspyrnu sem kom gestunum í 3–1. Collum hefur greint lögreglunni frá því að hann hafi svarað nokkrum hótunarsímtölum þar sem menn hafa lofað því að ráðast gegn honum, konu hans og börnum. ÁNÆGÐUR MEÐ BRAMBLE n Harðjaxlinn Alan Smith, sem leik- ur með Newcastle í ensku úrvals- deildinni, er ánægður með fyrrver- andi liðsfélaga sinn, klaufabárðinn Titus Bramble, og hvernig hann hefur farið af stað með Sunderland. „Við sáum það hjá Newcastle að hann var jafngóður og hver sem er stundum. Mun- urinn á honum þá og núna er að hann er mun stöðugri í sínum leik. Hann hefur alltaf verið góður, þess vegna keypti Sir Bobby Robson hann frá Ipswich þegar hann var bara tvítugur. Nú er hann orðinn þroskaðari og mun betri leikmaður,“ segir Smith en Bramble hefur ætíð þótt vera einn mistækasti miðvörður í sögu úrvalsdeildarinnar. 24 SPORT UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON tomas@dv.is 27. október 2010 MIÐVIKUDAGUR Bardagaíþróttakappinn Gunnar Nel- son mun glíma hér á landi 20. nóv- ember við Englendinginn Michael Russell á Icelandic Fitness and Health Expo, heilsu- og líkamsræktarsýningu sem fer fram í Reykjavík og Mosfells- bæ dagana 19.–21. nóvember. Rus- sell er breskur meistari í gólfglímu en hann varð á sínum tíma yngsti Bret- inn til að fá svarta beltið í brasilísku Jiu-Jitsu. Gunnar Nelson hefur einn- ig svarta beltið í Jiu-Jitsu en hann fékk það frá Renzo Gracie sem hefur þjálf- að hann í New York. Bardaginn er ekki MMA-bardagi eins og Gunnar hefur verið að keppa í að undanförnu þar sem má berja frá sér. Keppt verður í No-Gi-gólfglímu (enginn keppnisgalli) með sömu regl- um og eru á Abu Dhabi-mótinu sem Gunnar sló í gegn á í fyrra. „Þetta er bara „superfight“ sem hróflar ekkert við árangrinum í MMA. Þetta fer bara á grappling- eða Jiu-Jit- su-ferilinn. Þessi Mitchell er sterkur. Spekingar á spjallborðum ytra segja að hann sé eini Bretinn sem gæti mögulega unnið Gunna í glímu,“ seg- ir Haraldur Nelson, faðir og umboðs- maður Gunnars. Gunnar hefur unnið ófá verðlaun- in á No-Gi-gólflímumótum en hann vakti gríðarlega athygli í fyrra þegar hann lagði hinn risavaxna Jeff Mon- son að velli í Abu Dhabi. Monson er 140 kíló og einn sá alreyndasti í glímubransanum. Glíma Gunnars og Mitchells verð- ur aðalatriðið á degi tvö á sýningunni og verður „show“ í kringum hana en hún fer fram í Laugardalshöll að kvöldi 20. nóvember. tomas@dv.is Ekki MMA-bardagi: Gunnar glímir við sterkan Breta Magnaður sigur Gunnar Nelson er engum líkur þegar kemur að því að glíma en hann lagði hinn 140 kílóa þunga Jeff Monson í Abú Dabí í fyrra. MYND JON SHOTTER/EFNSPORTS.COM TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Strákarnir okkar í íslenska landsliðinu í handbolta hefja leik í undankeppni EM 2012 á miðvikudagskvöld þegar þeir taka á móti Lettum í Laugardalshöll. Á laugar- daginn mætir liðið svo Austurríkismönn- um ytra. Strákarnir sáu Lettana í fyrsta skipti á myndbandi á þriðjudag en það er ekkert launungarmál að Ísland á að vinna Lettland. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari vill þó ekkert vanmat. EIGUM AÐ VINNA Þeir kunna alveg að spila hand- bolta. Þeir eru með vinstri skyttu úr þýsku Bundesligunni sem er væntanlega þeirra aðalmaður. VILL SIGUR Guðmundur Guðmundsson heimtar alvöru leik frá strákunum og vill ekkert annað en sigur. MYND SIGTRYGGUR ARI ALLT ANNAÐ EN TAP VONBRIGÐI Arnór Atlason, vinstri skyttan knáa, segir að Ísland eigi að vinna alla leiki á heimavelli. MYND SIGTRYGGUR ARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.