Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2010, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2010, Síða 2
2 fréttir 3. nóvember 2010 miðvikudagur Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og einn af hugsanlegum kaupend- um tryggingafélagsins Sjóvár, ætlaði líklega að festa kaup á félaginu með aflandskrónum, íslenskum krónum sem keyptar eru á aflandsmarkaði. Slík viðskipti með gjaldeyri ganga út á að menn kaupa sér gjaldeyri á lægra verði á aflandsmarkaði í út- löndum en í landinu þar sem við- komandi gjaldmiðill er notaður. Algengt er að menn geti sparað sér 10 til 40 prósent af verði gjaldeyris með því að kaupa hann á aflands- markaði. Seðlabankinn er stærsti núverandi hluthafi Sjóvár og á eftir að skrifa upp á söluna á tryggingafé- laginu til Heiðars Más og viðskipta- félaga hans. Viðskiptin áttu að ganga þannig fyrir sig að íslenskt eignarhaldsfé- lag Heiðars Más, Ursus capital ehf., gæfi út skuldabréf sem erlendur að- ili keypti síðan með aflandskrón- um, væntanlega sem Heiðar Már á erlendis. Þannig hefði aflands- krónunum verið komið til landsins á löglegan hátt þar sem undanþága hefur verið fyrir slík viðskipti í regl- um Seðlabankans um gjaldeyrismál. Skaðlegt fyrir þjóðina Samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins í sumar, en blaðið var fyrsti fjölmið- illinn til að greina frá þessum ætl- uðu krónuviðskiptum Heiðars Más og Ursus og fleiri félaga, ákvað Seðla- banki Íslands hins vegar að koma í veg fyrir að hægt væri að koma af- landskrónum til landsins með þess- um hætti. Umrædd undanþága var í reglunum um gjaldeyrismál til að liðka til fyrir erlendri fjárfestingu á Íslandi og til að auðvelda að af- landskrónum væri komið í umferð, samkvæmt Viðskiptablaðinu. Und- anþágan var væntanlega ekki í regl- unum svo innlendir aðilar gætu notað aflandskrónur til að stunda viðskipti á ódýrari hátt hér á landi en með því að festa kaup á krónum á Ís- landi. „Seðlabankinn fetti fingur út í það að aðrir aðilar en erlendir væru að taka krónur inn í landið með þess- um hætti. Á meðan einungis erlendir aðilar stunduðu það að taka aflands- krónur inn með þessum hætti fannst Seðlabankanum það bara fínt til að fá þetta fjármagn hingað inn. Svo hertu þeir reglurnar eftir að þeir komust að því að innlendir aðilar væru líka byrj- aðir að gera þetta,“ segir íslenskur bankamaður sem ekki vill láta nafns síns getið. Í frétt Viðskiptablaðsins kom enn frekar fram að eignarhalds- félögin hefðu ætlað að nota krónurn- ar til fjárfestinga hér á landi. Tekið skal fram að vegna áður- nefndrar undanþágu var ekki ólög- legt að taka krónur með þessum hætti hingað til lands en ef krónurn- ar hefðu verið keyptar hér á landi hefðu viðskiptin getað styrkt opin- bert gengi íslensku krónunnar. Þetta gerist hins vegar ekki ef um aflands- viðskipti með krónur er að ræða. Ef krónur eru keyptar í stórum stíl á af- landsmarkaði leiðir slíkt til styrking- ar krónunnar á viðkomandi markaði. Því má segja að aflandsviðskipti með krónur, sem síðar eru notaðar til fjár- festinga hér á landi, séu ekki í anda gjaldeyrishaftareglna Seðlabank- ans sem miða að því að styrkja gengi krónunnar hér á landi en ekki á af- landsmarkaði. Í svari Seðlabanka Íslands til DV um rannsóknina á fjármagnsflutn- ingunum segir að flutningur á af- landskrónum til landsins geti ver- ið skaðlegur fyrir alla landsmenn: „Flutningur á aflandskrónum til landsins er ógnun við stöðugleika í gengis- og peningamálum meðal annars sakir þess að þeim gæti ver- ið skipt á ný á álandsmarkaði með verulegum hagnaði á kostnað allra landsmanna.“ Viðræður á milli Heiðars Más og viðskiptafélaga hans við fyrirtækja- ráðgjöf Íslandsbanka, sem sér um söluna á Sjóvá, hafa staðið yfir um margra mánaða skeið. Viðræðurnar stóðu meðal annars yfir í sumar þeg- ar Ursus gaf út umrædd skuldabréf. Ekki er vitað til þess að Heiðar Már sé í öðrum fjárfestingarhugleiðingum hér á landi. Líkt og DV hefur greint frá á liðn- um vikum skipulagði Heiðar Már stórfellda skortsölu fyrirtækja Björg- ólfs Thors Björgólfssonar á íslensku krónunni og íslenskum hluta- og skuldabréfum í hagnaðarskyni á ár- inu 2006 auk þess sem hann tók stöðu gegn íslensku krónunni árið 2007 og tapaði á styrkingu hennar á árinu. Heiðar svaraði fréttaflutningi DV á þann veg að um áhættuvarn- ir hefði verið að ræða og að ætlunin hefði verið að verja fyrirtæki Björg- ólfs Thors fyrir gengislækkun ís- lensku krónunnar. Kanna brot á reglum Í frétt Viðskiptablaðsins kom einnig fram að Seðlabankinn væri að kanna hvort „reglur um gjaldeyrishöft hafi verið brotin þegar eignarhaldsfélög gáfu út skuldabréf sem hægt væri að kaupa fyrir aflandskrónur“, líkt og Heiðar Már gerði. Haft var eftir Má Guðmundssyni seðlabankastjóra að komið hefði í ljóst að einhver „mis- notkun“ væri í gangi á þessari und- anþágu frá reglunum um gjaldeyris- mál og að tekið yrði á þessum brotum ef þau teldust sönnuð. „Síðan hefur komið í ljós að það var einhver mis- notkun þarna,“ hafði blaðið eftir Má. Meðal annarra fyrirtækja sem Seðlabankinn var að skoða sam- kvæmt fréttinni var Magma Energy sem gaf út skuldabréf í apríl síðastlið- inn sem kaupa átti fyrir aflandskrónur sem síðar átti að nota til að fjármagna kaupin á HS Orku. Viðskiptablaðið hafði eftir Má að útlendingar mættu kaupa það sem þeim sýndist hér á landi og að engin höft væru á erlendri fjárfestingu. Hins vegar yrðu þeir „að skipta gjaldeyri yfir í krónur“ til að fjármagna kaup sín. Samkvæmt svari Seðlabankans við fyrirspurn DV um málið er þessi at- hugun á viðskiptunum ennþá í gangi: „Seðlabanki Íslands hefur mál eins og þau sem um er rætt í fréttinni til skoð- unar en ekki liggur fyrir niðurstaða þeirrar athugunar.“ Viðskipti tengd Heiðari Má hafa því verið til athug- unar í Seðlabankanum í meira en tvo mánuði. Skuldabréf fyrir hálfan milljarð Samkvæmt lista Verðbréfaskráningar Íslands um útgefin skuldabréf á árinu 2010 voru skuldabréf Úrsus ehf. gef- in út þann 21. júní 2010. Nafnverð á hverja einingu í skuldabréfaútgáfunni var ein milljón króna. Samkvæmt upplýsingum frá Verðbréfaskráningu voru gefnar út 490 einingar. Væntan- legt söluandvirði skuldabréfanna er því 490 milljónir króna. Verðbréfa- skráning getur hins vegar ekki gefið út hversu mikið af bréfunum hefur ver- ið keypt né hver keypti skuldabréfin. „Við getum eingöngu gefið upp mjög takmarkaðar upplýsingar um þessi viðskipti til þriðja aðila,“ segir starfs- maður Verðbréfaskráningar. Líklegt má telja að Heiðar hafi með þessum viðskiptum ætlað að koma með tæplega hálfan milljarð króna af aflandskrónum hingað til lands og að tilgangur hans hafi ver- ið að nota þessar krónur til að greiða fyrir hluta af hlutabréfum Seðla- banka Íslands og Íslandsbanka í Sjóvá . Seðlabankinn virðist hins veg- ar hafa stöðvað þessi viðskipti, líkt og önnur sambærileg. Má því ætla að Heiðar og Ursus þurfi að verða sér út um íslenskar krónur með öðrum hætti til að greiða fyrir hlutinn í Sjóvá ingi f. vilhjálmSSon fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is HEIÐAR MÁR TIL RANNSÓKNAR Seðlabankinn hefur rannsakað hvort heiðar már guðjónsson, og ýmsir aðrir fjárfestar, hafi brotið reglur um gjaldeyrisvið- skipti þegar þeir ætluðu að láta kaupa skuldabréf af íslenskum eignarhaldsfélögum sínum með aflandskrónum. Salan á Sjóvá til Heiðars og viðskiptafélaga hans hefur verið til meðferðar hjá Fjármálaeftirlitinu og Seðlabankanum en báðar stofnanirnar virðast hafa efasemdir um viðskiptin. Heiðar Már ætlaði líklega að koma með hálfan milljarð af aflandskrónum til landsins. nÍársreikningiUrsuscapitalehf.fyrirárið2009kemurframaðfélagiðskuldar Heiðarinærri98milljónirkróna.Þettaerlangstærstihlutiskuldafélagsinssemalls nemaum108milljónumkróna.Ekkiertekiðframhvernigþessiskuldertilkomin. AfársreikningnumaðdæmaerekkiaðsjáaðUrsusogHeiðarhafigefiðúteða seltskuldabréfáárinu2009ogþvímáætlaaðskuldabréfaútboðiðísumarséhið fyrstasemUrsusferímeðþessumhætti. StaðaUrsuseralmenntséðágæt.Félagiðskilaðihagnaðiuppárúmamilljóní fyrra.Eigiðféfélagsinsnemur99,9milljónum.Áhættufjármunirfélagsinsnema nærri190milljónum,þaraferuverðbréfoghlutabréfstærstihlutinn,ogheildar- eignirfélagsinserutæplega208milljónirkróna.Skuldirnareru,líktogáðursegir, um108milljónirkrónaogeruaðmestuviðHeiðarsjálfan. Skuldar Heiðari nærri 100 milljónir nSérfræðingurígjaldeyrismálumsemDVræddi viðsegiraðviðskiptimeðkrónuráaflandsmarkaði (off-shore)hafiveriðmjögalgengáðurenSeðla- bankiÍslandshertireglurumgjaldeyrisviðskiptií kjölfarbankahrunsinsárið2008.Hannsegiraðtvö gengiséuákrónunni:opinbertgengi(on-shore)og svogengiðáaflandsmarkaði.Hannsegiraðviðskipti meðkrónuráaflandsmarkaðistyrkigengiðáþeim markaðienleiðihinsvegartilþessaðfyrirvikið styrkistopinbertgengikrónunnarekki. nSérfræðingurinnsegiraðmarkmiðSeðlabankaÍslandsmeðgjaldeyrishaftalög- unumhafiveriðaðreynaaðstyrkjagengikrónunnará„on-shore“-markaðnum ogslíkviðskiptimeðkrónunaáaflandsmarkaðigrafivissulegaundanþessari viðleitni.Þvímásegjaaðkrónuviðskiptiáaflandsmarkaðifarigegnanda gjaldeyrishaftalaganna.Seðlabankinnviljihelstaðöllviðskiptimeðkrónunafari framá„on-shore“-markaðnum.Hinsvegarséerfittaðeigaviðslíkaviðskiptahætti þarsemekkiséólöglegtaðkaupakrónuráþennanhátt. Hannsegiraðfyrirtækigetisparaðsér10til40prósentákaupverðigjaldeyris meðþvíaðkaupahannáaflandsmarkaði.Fyrirtækisemþurfaaðkaupasér krónurgetaþvísparaðsérumtalsverðarupphæðirmeðþvíaðgeraþaðá aflandsmarkaði. Krónuviðskipti á aflandsmarkaði nEignirEignasafnsSeðlabankaÍslandserubókfærðarsemtæplega491 milljarðurkrónaíársreikningifélagsins2009semskilaðvartilársreikningaskrár íoktóber.Tilgangurfélagsinseraðfarameðeignarhaldáfullnustueignumog kröfumSeðlabankaÍslandssemstafaafbankahruninuáÍslandiogfallaekkiundir reglubundnastarfsemibankans.EinafnúverandieignumEignasafnsinser73 prósentahluturinníSjóváenríkissjóðurþurftiaðleggjatryggingafélaginutil 12milljarðakrónaífyrratilaðbjargaþvífrágjaldþroti.HelstueignirEignasafn SeðlabankaÍslandseruskuldabréfaeignogaðrarlangtímakröfur,samtalsrúmlega 200milljarðarkrónaogveðkröfurágjaldþrotafjármálafyrirtæki,tæplega250 milljarðarkróna.VeðkröfurnarerutilkomnarvegnaveðlánannasemSeðlabanki Íslandsveittiíslenskubönkunumígegnumaðrarlánastofnanir,sérstaklega Icebank.Fullyrðamáaðþegartryggingafélagiðverðurseltmunieignasafniðekki fáþáfjármunitilbakaaðfullusemlagðirvoruinníSjóvá. Þurfa að afskrifa út af Sjóvá Tvíþætt staða Seðlabankans Staða SeðlabankaÍslandsíSjóvár-viðskiptun- umersérstökþvíbankinnerbæðiað seljastærstahlutinníSjóváenhefur einnigveriðaðrannsakaviðskiptieins fjárfestisins,HeiðarsMásGuðjónssonar, meðaflandskrónurfyrrísumar.Már Guðmundssonerseðlabankastjóri. vildi nýta sér undanþágu HeiðarMárvildinýtasérund- anþáguígjaldeyrishaftalögunumtilaðkomaaflandskrónum tilÍslandssíðastliðiðsumar.Seðlabankinnvarekkihrifinnaf slíku,frekarenítilfellumnokkurraannarraþekktraaðila.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.