Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2010, Síða 12
3. nóvember 2010 miðvikudagur
ÉG VEIT EKKI
HVORT ÉG MÁ
SEGJA ÞAÐ
EN PABBI
KENNDI MÉR
AÐ HEKLA“
Verkefnið er styrkt af
Rannsóknir sýna að ein besta
forvörnin gegn fíkniefnum er
Kynntu þér málið á www.forvarnardagur.is
eða vertu með okkur á facebook.com/forvarnardagur
Miðvikudagurinn 3. nóvember er forvarnardagur í öllum grunnskólum landsins. Ofangreind fullyrðing er byggð á áralöngum rannsóknum fræðimanna við
Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík á hegðun ungmenna og hvað skilar árangri í forvörnum. Forvarnardagurinn er samstarfsverkefni ofantaldra aðila.
að börn og foreldrar
verji tíma saman
„
móeiður,
dóttir Kristjáns
Nóvember einkennist af annríki hjá
fyrrverandi bæjarstjóra Kópavogs
Gunnari Birgissyni og fjölskyldu
hans. Tvö dómsmál eru tekin fyr-
ir í nóvember og bæði tengjast þau
meintum meiðyrðum í garð Gunn-
ars og fyrirtækis dóttur hans, Frjálsr-
ar miðlunar. Dæmt var í fyrra málinu
á þriðjudag. Þá sýknaði Héraðsdóm-
ur Reykjaness þrjá bæjarfulltrúa í
Kópavogi þau Guðríði Arnardóttur,
Ólaf Þór Gunnarsson og Hafstein
Karlsson af kröfu Frjálsrar miðlun-
ar, Brynhildar Gunnarsdóttur, dótt-
ur Gunnars, og Guðjóns Gísla Guð-
mundssonar, eiginmanns hennar,
um ómerkingu ummæla sem birtust
í grein bæjarfulltrúanna í Morgun-
blaðinu 12. júní 2009 undir yfirskrift-
inni „Hvar á að draga mörkin?“ Í
greininni gagnrýndu þau stjórnsýslu
bæjarins.
Seinna málið fer fyrir dóm þann
12. nóvember. Um er að ræða meið-
yrðamál sem Gunnar höfðaði gegn
flokksbróður sínum, framkvæmda-
stjóra IKEA, Þórarni Ævarssyni.
Gunnar krefst einnar milljónar króna
í skaðabætur vegna ummæla Þórar-
ins í Morgunblaðsgrein sem birtist
sumarið 2009. Greinina skrifaði Þór-
arinn á þeim tíma sem umræðan um
Lífeyrissjóð starfsmanna Kópavogs-
bæjar og verktakasamning bæjarins
við dóttur Gunnars stóð sem hæst. Í
henni skorar Þórarinn á Gunnar að
segja af sér embætti vegna spillingar.
Málaferli eftir afhjúpun
Málaferli Gunnars og Brynhild-
ar fylgja í kjölfar þess að DV fletti
ofan af viðskiptum Kópavogsbæjar
við Frjálsa miðlun á vormánuðum
2009 og sagði frá því að útgáfufyrir-
tækið Frjáls miðlun hefði fengið 50
milljónir greiddar frá Kópavogsbæ í
stjórnartíð Gunnars Birgissonar. Fé-
lagið fékk meðal annars greitt fyrir
afmælisrit sem aldrei var gefið út og
flest verkefnin fékk Frjáls miðlun án
útboðs.
Þá voru í hámæli fyrir ári frétt-
ir af því að Brynhildur hafi fengið
greiddar rúmar 11 milljónir króna
frá Lánasjóði íslenskra námsmanna
meðan Gunnar sinnti stjórnarfor-
mennsku í sjóðnum. Fjárhæðirnar
fékk hún greiddar vegna ýmiss kon-
ar þjónustu sem tengist útgáfustarf-
semi. Katrín Jakobsdóttir lét það
verða eitt sitt fyrsta verk sem nýskip-
aður menntamálaráðherra að víkja
stjórninni frá og skipa nýja. Svo fór
að lokum að Gunnar Birgisson var
felldur úr bæjarstjórastóli vegna
spillingarumræðu.
Bæjarfulltrúarnir þrír og Þórar-
inn Ævarsson létu öll hafa eftir sér
ummæli er tengjast fréttaumfjöllun-
um af málum Gunnars Birgissonar
og fyrirtæki dóttur hans, Brynhildar
Gunnarsdóttur, Frjálsri fjölmiðlun.
Sýknudómi fagnað
Guðríður Arnardóttir, formaður
bæjarráðs Kópavogs, sagðist í sam-
tali við DV fegin vegna sýknudóms.
„Mér er mjög létt og auðvitað mjög
fegin að það sé komin lending í mál-
inu,“ Hún segir að hún hafi ekki ætl-
að að skaða fyrirtæki dóttur Gunn-
ars með ummælum sínum.
Krafan snéri að ummælum sem
Guðríður og bæjarfulltrúarnir tveir,
Ólafur Þór Gunnarsson og Haf-
steinn Karlsson, létu falla um við-
skipti Kópavogsbæjar við fyrirtækið
Frjálsa miðlun ehf. Guðríður segist
alltaf hafa trúað því að hún og hin-
ir bæjarfulltrúarnir hafi ekki geng-
ið of langt með ummælum sínum í
greininni. „Ég hef enga aðra kosti en
að verjast áfram,“ segir hún spurð
um hugsanlega áfrýjun dómsins til
Hæstaréttar.
Gunnar Birgisson og fjölskylda eru fyrir
dómstólum í nóvember. Dóttir Gunnars,
Brynhildur Gunnarsdóttir, og eiginmaður
hennar, Guðjón Gísli Guðmundsson,
eigendur Frjálsrar miðlunar töpuðu meið-
yrðamáli sínu gegn þremur bæjarfulltrú-
um Kópavogs í héraðsdómi á þriðjudag.
Meiðyrðamál Gunnars Birgissonar gegn
framkvæmdastjóra IKEA, Þórarni Ævars-
syni, verður tekið fyrir þann 12. nóvember
næstkomandi.
kriStjana GuðBrandSdóttir
blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is
MILLJÓNA MEIÐYRÐAMÁL
Svo fór að lokum að Gunnar Birgis-
son var felldur úr bæjar-
stjórastóli vegna spill-
ingarumræðu.
15. apríl 2009 22. apríl 2009
miðvikudagur 15. apríl 20096
Fréttir
Dóttir Gunnars Birgissonar, Bryn-
hildur Gunnarsdóttir, hefur fengið
greiddar rúmar 40 milljónir króna
frá Kópavogsbæ á síðustu sex árum,
samkvæmt heimildum DV. Gunn-
ar er bæjarstjóri Kópavogs. Bryn-
hildur rekur útgáfufélagið Frjálsa
miðlun ásamt eiginmanni sínum
Guðjóni Gísla Guðmundssyni sem
jafnframt er framkvæmdastjóri
þess.
Útgáfufélagið hefur fengið þessi
verkefni án útboðs samkvæmt
heimildum og hefur Brynhildur
fengið greiðslurnar fyrir ýmiss kon-
ar útgáfustarfsemi á vegum bæjar-
ins. Meðal annars hefur útgáfufélag-
ið séð um gerð ársskýrslu bæjarins
sem dreift hefur verið á hvert heim-
ili í bænum undanfarin ár.
Samkvæmt heimildum DV fékk
félagið 7 milljónir króna frá Kópa-
vogsbæ árið 2008 fyrir hin ýmsu
verk og hefur fengið 700 þúsund
krónur það sem af er þessu ári.
Jafnframt mun fyrirtæki Bryn-
hildar hafa fengið rúmar tvær millj-
ónir króna frá bænum árið 2005 til
þess að vinna afmælisrit fyrir hönd
bæjarins í tilefni af 50 ára afmæli
Kópavogsbæjar. Þetta afmælisrit
kom þó aldrei út en Frjáls miðlun
hélt greiðslunni samt sem áður eft-
ir samkvæmt heimildum.
Krefjast svara
um greiðslurnar
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar,
þau Guðríður Arnardóttir og Haf-
steinn Karlsson, lögðu fram fyrir-
spurn fyrir bæjarráð Kópavogsbæj-
ar á miðvikudaginn í síðustu viku
þar sem þau krefja bæjarstjórann
svara um viðskipti og greiðslur til
félagsins tíu ár aftur í tímann.
Guðríður segir að þau hafi
ákveðið að leggja fyrirspurnina
fram á bæjarráðsfundi vegna þess
að þeim hafi síendurtekið bor-
ist það til eyrna að Frjáls miðlun
hafi fengið verkefni hjá Kópavogs-
bæ án þess að útboð færi fram á
þessum verkum. „Við höfum feng-
ið ábendingar um að þetta fyrir-
tæki hafi fengið fjölmörg verk án
útboðs og að viðskipti bæjarins
við þetta fyrirtæki hafi verið mik-
il á liðnum árum,“ segir Guðríður
Arnardóttir.
Hún segir að það sé sjálfsagt og
eðlilegt að þau sem kjörnir fulltrú-
ar í bæjarstjórn spyrjist fyrir um
þetta. „Okkur langar að vita hversu
stór og mikil viðskipti þetta hafa
verið við fyrirtækið og hvort það
hefði ekki verið eðlilegt að bjóða
þau út,“ segir Guðríður.
Verkin boðin út, segir Gunnar
Gunnar Birgisson segir að verkin
sem félag dóttur hans hafi fengið í
gegnum tíðina hafi verið boðin út
en að félag hennar hafi boðið lægst
og því hafi það fengið verkin. Hann
segir aðspurður að Kópavogsbær
bjóði út öll stærri verk sem unn-
in séu fyrir bæinn. „Við bjóðum út
ársskýrslur og öll stærri verk og allt
það,“ segir Gunnar og bætir því við
að Samfylkingin stundi „skítapólit-
ík“ með fyrirspurninni um félagið.
„Það eru engir óeðlilegir viðskipta-
hættir þarna og þó að hún sé dóttir
mín á ekki að refsa henni fyrir það,“
segir Gunnar.
Aðspurður segir Gunnar að
hann viti ekki hvort þær upphæð-
ir sem DV hefur heimildir fyrir að
Frjáls miðlun hafi fengið séu réttar
eða ekki.
Bæjarstjórinn segir að fyrir-
spurn bæjarfulltrúanna verði
svarað eftir bestu getu. „Menn
hafa ekkert að fela í þessu, þetta
er allt uppi á borðum hjá okkur
og mun allt koma í ljós væntan-
lega,“ segir Gunnar og bætir því
við að fyrirspurninni verði svar-
að fljótlega.
InGI F. VIlhjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Dóttir Gunnars Birgissonar, Brynhildur Gunnarsdóttir,
hefur fengið hin ýmsu verkefni frá Kópavogsbæ án út-
boðs samkvæmt heimildum. Á síðustu sex árum nema
greiðslur til hennar frá Kópavogsbæ um 40 milljónum
króna. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram
fyrirspurn um greiðslur til dóttur bæjarstjórans í síð-
ustu viku. Gunnar Birgisson segir ásakanir bæjarfull-
trúanna vera rangar og að þeir stundi „skítapólitík“.
Krefjast svara um Frjálsa miðlun
guðríður arnardóttir, bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar í kópavogi, segir að
Samfylkingin vilji fá að vita hvort Frjáls
miðlun hafi fengið verk án útboðs frá
kópavogsbæ.
MILLJÓNAGREIÐSLUR
TIL DÓTTUR GUNNARS
„skítapólitík“ samfylkingarinnar gunn-
ar Birgisson, bæjarstjóri í kópavogi, segir að
fyrirspurn Samfylkingarinnar sé dæmi um
„skítapólitík“. Hann neitar ásökununum og
segir kópavogsbæ bjóða út öll „stærri“ verk.
sverrir Pétur Pétursson málarameistari ákærður fyrir meiriháttar skattalagabrot:
Ákærður fyrir 60 milljóna skattsvik
Sverrir Pétur Pétursson málara-
meistari hefur verið ákærður fyrir
meiriháttar skattalagabrot. Ríkis-
lögreglustjóri ákærði Sverri Pétur
fyrir að svíkja rúmar 60 milljón-
ir undan skatti á árunum 2006 og
2007. Að því er kemur fram í ákæru
framdi Sverrir Pétur brotin ýmist
með því að standa skil á röngum
virðisaukaskattsskýrslum, skila
ekki slíkum skýrslum eða með því
að standa ríkissjóði ekki skil á inn-
heimtum virðisaukaskatti.
Málið verður þingfest í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í dag.
Samkvæmt ákæru byrjaði
Sverrir Pétur smátt, en frá janúar
til febrúar 2006 sleppti hann að
greiða virðisaukaskatt að upphæð
fjórtán þúsund krónur. Á næstu
tveimur mánuðum fór upphæð-
in skjótt upp í rúmar fimm millj-
ónir.
Í hegningarlögum er gert ráð
fyrir að þeir sem brjóta af sér á
þennan hátt geti átt von á allt að
sex ára fangelsi auk fjársekta. Sam-
kvæmt lögum um virðisaukaskatt
þarf Sverrir Pétur, verði hann sak-
felldur, að endurgreiða minnst
tvöfalda þá upphæð sem svikin var
undan skatti, rúmar 120 milljónir.
Hins vegar er heimild til að inn-
heimta fjársektir sem nema allt að
tífaldri upphæðinni, eða 600 millj-
ónir króna.
Sverrir Pétur er 45 ára og fékk
löggildingu sem málarameistari
fyrir tæpum átta árum.
Hann vildi ekki tjá sig um málið
þegar DV náði tali af honum í gær.
erla@dv.is
Tíföld sekt Sverrir pétur pétursson þarf
að greiða minnst 120 milljónir í sekt verði
hann sakfelldur en getur þó verið sektaður
um allt að 600 milljónir. mynd PhoTos.com
Stjórnvöldum
hefur mistekist
Bjarni Benediktsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, segir að
stjórnvöldum hafi algerlega mis-
tekist að halda uppi gengi krón-
unnar. Gengi hennar hafi fallið
um heil 16 prósent frá 1. febrúar.
„Það stefnir í nýja verðbólgu-
bylgju sem kemur í veg fyrir að
Seðlabankinn geti lækkað vexti,“
sagði Bjarni í upphafi þingfundar
á Alþingi í gær.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra spurði Bjarna hvort
hann væri að mælast til þess að
gjaldeyrisforðinn yrði notaður til
að halda uppi gengi krónunnar.
Steingrímur viðurkenndi að
glíman við að halda uppi gengi
krónunnar hefði reynst erfiðari
en menn hefðu vonað.
Sverrir í
sprengjuárás
„Ég sat inni á tuskulegum veit-
ingastað og var að panta mér
kokkteil, bankokkteil, þegar
molotovkokkteill kom allt í einu
fljúgandi inn um gluggann. Ekki
alveg það sem ég var að biðja
um,“ skrifar tónlistarmaðurinn
Sverrir Stormsker á bloggsíðu
sína. Hann var svo óheppinn að
vera staddur í Bangkok þegar
óeirðir brutust út í höfuðborg
Taílands.
Mótmælendur hafa krafist
þess að Abbhisit Veijajivi, for-
sætisráðherra landsins, segi af
sér.
Sverrir segir að á svipstundu
hafi annars lítt vinsæll veitinga-
staður breyst í einn þann heit-
asta í bænum, í orðsins fyllstu
merkingu.
Enn springur
meirihluti
Meirihlutinn í bæjarstjórn
Grindavíkur er sprunginn
eftir að deila kom upp milli
Samfylkingarinnar og Fram-
sóknar sem fóru með meiri-
hluta í bæjarstjórninni.
Deilan sem varð meiri-
hlutanum að falli er rak-
in til þess að bæjarfulltrú-
ar Samfylkingarinnar lögðu
fram bókun þess efnis að þeir
vildu ráða Garðar Pál Vignis-
son í stöðu skólastjóra Hóps-
kóla. Garðar Páll hefur verið
bæjarfulltrúi fyrir Samfylk-
inguna frá árinu 2001 og er
forseti bæjarstjórnar.
Þetta er í annað skiptið á
kjörtímabilinu sem meiri-
hluti springur í Grindavík. Sá
fyrri sprakk á síðasta ári.
Leiðinlegt á
Selfossi
Lögregla og sjúkralið var kallað
að verslun Krónunnar á Selfossi
aðfaranótt laugardags vegna
manns sem kviknað hafði í. Þeg-
ar lögregla kom á staðinn var
enginn eldur en í ljós kom að
piltur á nítjánda ári hafði hellt
bensíni í fatnað sinn og borið eld
að. Félagi hans var til staðar með
slökkvitæki og slökkti eldinn.
Pilturinn útskýrði tiltækið
með þeim hætti að hann hefði
gert þetta sér til gamans þar sem
svo leiðinlegt væri á Selfossi. Pilt-
urinn hlaut ekki skaða af en hann
hafði borið vaselín á fætur sína til
að fyrirbyggja bruna.
miðvikudagur 22. apríl 20096
Fréttir
Á þeim tíma sem Gunnar Birgis-
son, bæjarstjóri í Kópavogi, var
stjórnarformaður Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna (LÍN) fékk út-
gáfufélag dóttur hans, Frjáls miðl-
un, rúmar ellefu milljónir króna
greiddar frá sjóðnum vegna ým-
iss konar þjónustu sem tengist
útgáfustarfsemi. Ekki eru nánari
upplýsingar um eðli verkefnanna í
bókhaldi Lánasjóðsins. Þetta kem-
ur fram í upplýsingum sem starfs-
menn Lánasjóðsins hafa tekið
saman að beiðni DV.
Starfsmenn Lánasjóðsins fóru
yfir bókhald sjóðsins allt frá árinu
1992 þegar Gunnar tók við sem
stjórnarformaður LÍN og fram til
ársins 2009 þegar Katrín Jakobs-
dóttir, nýskipaður menntamála-
ráðherra, vék stjórninni frá og
skipaði nýja.
Ekki útboðsskylda
Frjáls miðlun er útgáfufélag sem
dóttir Gunnars, Brynhildur Gunn-
arsdóttir, á og rekur ásamt eigin-
manni sínum, Guðjóni Gísla Guð-
mundssyni. Félagið sérhæfir sig
meðal annars í auglýsingagerð,
tölvuvinnslu og útgáfustarfsemi
hvers konar, samkvæmt hlutafé-
lagaskrá.
Samkvæmt upplýsingum frá
Guðmundi Hannessyni, forstöðu-
manni ráðgjafasviðs hjá Ríkis-
kaupum, er ríkisstofnunum ekki
skylt að bjóða út verk sem kosta
innan við fimm milljónir króna og
er því ólíklegt að verkin sem Frjáls
miðlun fékk frá LÍN hafi verið boð-
in út. Upplýsingar frá Lánasjóðn-
um koma heim og saman við þetta
en samkvæmt þeim er sjóðnum
ekki skylt að bjóða út öll verk sem
keypt eru.
Í flestum tilfellum er það fram-
kvæmdastjóri LÍN sem tekur
ákvörðun um við hvaða fyrirtæki
eigi að skipta. Núverandi fram-
kvæmdastjóri lánasjóðsins heit-
ir Guðrún Ragnarsdóttir og tók
hún við stöðunni í byrjun febrú-
ar. Greiðslurnar til dóttur Gunn-
ars áttu sér því stað áður en hún
kom að sjóðnum. Framkvæmda-
stjóri LÍN á undan Guðrúnu var
Steingrímur Ari Arason, núverandi
forstjóri Sjúkratryggingastofnun-
ar, sem gegndi starfinu frá árinu
1999.
Gunnar neitar aðkomu
Aðspurður um hvort hann hafi átt
þátt í að veita Frjálsri miðlun verk-
efni sem það fékk greiddar fyr-
ir rúmar ellefu milljónir króna á
umræddu tímabili segir Gunnar
Birgisson að það hafi alfarið verið
framkvæmdastjóri Lánasjóðsins
sem tók ákvarðanir um við hvaða
fyrirtæki ætti að skipta. „Ég hafði
ekki milligöngu um það. Ég var
bara formaður stjórnarinnar. Það
þarf bara að spyrja framkvæmda-
stjórana að þessu,“ segir Gunnar og
bætir því við að hann hafi ekki einu
sinni haft hugmynd um að Frjáls
miðlun hefði unnið fyrir Lánasjóð-
inn.
Ekki náðist í Steingrím Ara Ara-
son við vinnslu fréttarinnar þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir.
Rúmar 50 milljónir til dóttur-
innar
Upplýsingarnar um greiðslur LÍN
til félagsins koma fram í kjölfar
fréttar DV frá því í síðustu viku um
að Frjáls miðlun hafi samkvæmt
heimildum fengið greiddar rúm-
ar 40 milljónir frá Kópavogsbæ á
síðustu sex árum fyrir alls kyns út-
gáfustarfsemi. Frjáls miðlun hefur
í flestum tilfellum fengið þau verk
sem félagið hefur unnið fyrir Kópa-
vogsbæ án útboðs en meðal ann-
ars er um að ræða gerð ársskýrslu
fyrir Kópavogsbæ sem dreift hefur
verið inn á heimili Kópavogsbúa á
liðnum árum.
Tengsl Frjálsrar miðlunar við
Kópavogsbæ hafa löngum verið
tortryggð og meðal annars birtist
frétt í DV í janúar árið 2005 um að
minnihlutinn í bæjarstjórn væri
ósáttur við að félagið fengi verk-
efni frá bænum án útboðs. Þessi
óánægja minnihlutans náði svo há-
marki fyrir tæpum tveimur vikum
þegar bæjarfulltrúar Samfylking-
arinnar, þau Guðríður Arnardótt-
ir og Hafsteinn Karlsson, lögðu
fram fyrirspurn á bæjarráðs-
fundi þar sem þau óskuðu eft-
ir upplýsingum um greiðslur
frá Kópavogsbæ til Frjálsrar
miðlunar tíu ár aftur í tím-
ann og eins hvort verkefn-
in hefðu farið í útboð áður en þeim
var úthlutað til félagsins.
Gunnar hefur neitað því að
nokkuð óeðlilegt hafi átt sér stað í
viðskiptum Frjálsrar miðlunar og
Kópavogsbæjar. Hann segir að þau
verk sem Frjáls miðlun fékk hjá
Kópavopsbæ hafi verið boðin út og
að dóttir hans eigi ekki að líða fyrir
það að faðir hennar sé bæjarstjóri.
Samkvæmt Þór Jónssyni, for-
stöðumanni almannatengsla hjá
Kópavogsbæ, er unnið að því að
safna umbeðnum
upplýsingum um
Frjálsa miðlun
saman og
munu þær
liggja fyrir
eins fljótt
og auðið
er að hans
sögn.
InGI F. VIlhjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Útgáfufélagið Frjáls miðlun sem dóttir Gunnars Birgissonar, Brynhildur Gunn-arsdóttir, á og rekur ásamt eiginmanni sínum fékk rúmar 11 milljónir króna í greiðslur frá Lánasjóði íslenskra námsmanna á meðan faðir hennar var stjórnar-formaður sjóðsins. Samkvæmt heimildum DV hefur félagið einnig fengið rúmar 40 milljónir frá Kópavogsbæ á síðustu sex árum. Gunnar Birgisson þvertekur fyrir að hafa komið að því að dóttir hans fengi verk hjá Lánasjóðnum.
DÓTTIR GUNNARS FÉKK
11 MILLJÓNIR FRÁ LÍN
líka greiðslur frá lÍn guðríður
arnardóttir, bæjarfulltrúi Samfylking-
arinnar í kópvogi, lagði fyrr í mánuð-
inum fram fyrirspurn um greiðslur
frá kópavogsbæ til útgáfufélagsins
Frjálsrar miðlunar. Nú hefur það
fengist staðfest að félagið fékk rúmar
11 milljónir frá lánasjóði íslenskra
námsmanna.
milljónagreiðslur til dótturinnar dóttir gunnars Birgissonar, Brynhildur gunnarsdóttir, fékk greiddar rúmar 11 milljónir króna frá lánasjóði íslenskra námsmanna meðan faðir hennar var stjórnarformaður sjóðsins.
neitar aðkomu að greiðslum gunnar
Birgisson neitar því að hafa haft milligöngu
um að dóttir hans fengi verkefni sem skiluðu
útgáfufélagi hennar 11 milljónum króna
meðan hann var stjórnarformaður líN.
Össur fer mikinn
gegn Bjarna Ben
Össur Skarphéðinsson tekur
Bjarna Benediktsson, formann
Sjálfstæðisflokksins, á beinið í
færslu á bloggsíðu sinni. Hann
segir að Bjarni hafi einkum getið
sér orð fyrir einstakan hæfi-
leika til að skipta oft um skoðun.
Össur gerir það sem hann kallar
hringlandahátt Bjarna varðandi
skattahækkanir og ESB að um-
talsefni. „Honum hefur tekist
að fara tvo heila hringi varðandi
skattahækkanir. Frá landsfundi
hefur hann verið jafnoft á móti
skattahækkunum, og með þeim.
[...] Sami hringlandaháttur birt-
ist um ESB. Þar er Sjálfstæðis-
flokkurinn einsog vönkuð kvíga,
sem veit ekki hvað snýr upp eða
niður.“
Eignaspjöll og
þjófnaðir á
Akranesi
Töluvert var um eignaspjöll í
umdæmi lögreglunnar á Akra-
nesi í síðustu viku. Krotað var
utan á íbúðarhús í bænum en
þeir sem þar voru að verki þekkt-
ust og telst það mál upplýst.
Einnig var farið um borð í skip
í Akraneshöfn og neyðarbauja
eyðilögð ásamt því sem gerð
var tilraun til innbrots í skipið.
Á föstudagskvöld voru brotnar
rúður í nýju verknámshúsi Fjöl-
brautaskóla Vesturlands.
Stjórnin sprung-
in, segir Guðni
Guðni Ágústsson segir að rík-
isstjórn Samfylkingar og VG
hafi sprungið á opnum fundi á
Selfossi í fyrrakvöld. Þetta segir
Guðni í samtali við vefinn sunn-
lendingur.is. „Hún sprakk á opn-
um fundi á Selfossi í gærkvöldi,
allt járn í járn,“ segir Guðni við
Sunnlending og vísaði í skoðana-
ágreining milli Björgvins G. Sig-
urðssonar og Atla Gíslasonar um
aðild að Evrópusambandinu.
Hátekjufólk
með stóra sneið
615 tekjuhæstu fjölskyldurn-
ar á Íslandi fengu í sinn hlut
4,2 prósent af heildartekj-
um fjölskyldna í landinu árið
1993, en árið 2007 var hlutur
þeirra af tekjum allra fjöl-
skyldna orðinn 19,8 prósent.
Þetta kemur fram í skýrslu
sem þeir Arnaldur Sölvi
Kristjánsson og Stefán Ólafs-
son frá Háskóla Íslands unnu
um þróun tekjuskiptingar á
Íslandi frá 1993 til 2004. Þá
segir í skýrslunni að á sama
tíma og tekjur hátekjuhóp-
anna jukust langt umfram
tekjur annarra á Íslandi hafi
stjórnvöld bætt um betur og
lækkað stórlega skattbyrði
hátekjuhópanna, með inn-
leiðingu hins nýja fjármagns-
tekjuskatts.
Þorsteinn m. jónsson breytti lánum og slapp við gengistap:
Tók ekki út arðinn
Í DV í gær var Þorsteinn M. Jónsson,
jafnan kenndur við Kók, sagður hafa
látið Sólstafi ehf, móðurfélag Vífil-
fells, greiða sér 250 milljóna króna
arð árið 2007 þrátt fyrir að félagið
hefði tapað hálfum milljarði á árinu.
Samþykkt var fyrir því hjá félaginu að
hann fengi arð sem umræddri upp-
hæð nemur en á það reyndi aldrei.
Í frétt blaðsins var tap félagsins sagt
nema 521 milljón króna. Þorsteinn
gerir athugasemdir við þessi atriði
og segir þessa fjárhæð eiga við inn-
leyst tap en tap ársins sem fært var á
eigið fé hafi numið 245,2 milljónum
króna sem sé hið eiginlega tap. Þá
segir einnig í fréttinni að á félaginu
hafi, samkvæmt ársreikningi 2007,
verið lán upp á rúmlega einn og hálf-
an milljarð í erlendri mynt. Lánið
var í fréttinni uppreiknað með tilliti
til gengisbreytinga og sagt standa í
3,2 milljörðum íslenskra króna. Þor-
steinn segir þessa fullyrðingu frétta-
rinnar ekki standast þar sem öllum
erlendum lánum félagsins hafi ver-
ið breytt í íslenskar krónur í byrjun
ársins 2008 og félaginu hafi þannig
verið forðað frá verulegu gengistapi.
Samkvæmt upplýsingum Þorsteins
var ofsagt í DV að hann hefði fengið
arðinn. Hið rétta er að samþykkt var
að hann fengi greiddan arð en hann
nýtti sér ekki þá heimild.
Þorsteinn m. jónsson
Öllum erlendum lánum
Sólstafa var breytt í íslenskar
krónur í byrjun ársins 2008 .