Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2010, Qupperneq 23
miðvikudagur 3. nóvember 2010 lífsstíll 23
við um heilsuna, matarræði og æfingar. „Góð
félagsleg tengsl draga úr stressi,“ segir banda-
ríski sálfræðiprófessorinn dr. Micah Sad-
igh sem segir vini sem dæma ekki en hlusta
veita mikilvægan stuðning. „Í hvern mynd-
irðu hringja ef eitthvað alvarlegt kæmi fyrir
og þú þyrftir á hjálp að halda? Margir eru með
fjölda nafna í símaskránni en geta samt aðeins
nefnt eitt nafn,“ segir Sadigh. „Ef þú getur ekki
nefnt nokkur nöfn er kominn tími til að finna
nýja vini. Skráðu þig á námskeið eða hringdu í
gamlan vin og endurvektu kynnin.“
Ef líf þitt snýst um börnin og vinnuna skaltu
líka gefa þér tíma fyrir áhugamálin. „Sjálfsvit-
und okkar á aldrei að snúast aðeins um eitt
atriði. Börnin vaxa úr grasi og eins og við höf-
um séð gerast í þeim efnahagslegu þrenging-
um sem nú standa yfir þá getum við líka misst
vinnuna,“ segir Finley sem vill að við pössum
upp á að líf okkar verði aldrei það einhæft að ef
eitthvað breytist, sem mun gerast, fari heimur
okkar á hvolf.
SextugSaldurinn
Horft til baka
Þegar þú nærð fimmtugu er líklegt að þú upp-
lifir ákveðið tilfinningalegt uppnám þar sem
vitneskjan um eigin dauðleika og foreldra
þinna lætur finna fyrir sér. „Flestar konur á sex-
tugsaldrinum endurskoða líf sitt og það hvern-
ig þær vilja eyða restinni af því,“ segir Erickson
sem segir miklar líkur á að við náum áttræð-
isaldri ef við höfum náð sextugsaldrinum án
krabbameins og hjartasjúkdóma. „Þú átt hell-
ing eftir. Hvernig ætlarðu að njóta lífsins héð-
an í frá? Ef sjálfsvitund þín hefur ekki aðeins
snúist í kringum börnin geturðu upplifað frelsi
þegar þau fara að heiman.“
Horfðu til sjálfs þín
Líttu djúpt í sál þína. Það er óþægilegt að
standa á tímamótum og vita ekki hver næstu
skref eru. Erickson ráðleggur að við reynum
að svara erfiðu spurningunum eins og: Hvern-
ig hefur líf mitt verið? Hver er ég og hver vil ég
vera? Hlustaðu á þinn innri mann.
Finndu tilganginn
Samkvæmt Erickson ættirðu ekki að setja þér
niðurnjörvuð markmið þegar þú nærð þess-
um aldri, sér í lagi ef þú ert hætt/ur að vinna og
börnin farin af heiman. „Leyfðu þér að hugsa
málið og það að halda ekki fullkominni athygli
og sættu þig við það þótt þú hafir ekki gert þitt
allra besta. Ef þú gefur þér ekki tíma til að virða
fyrir þér valmöguleikana endarðu kannski á
því að skemma fyrir þér í leit að hamingju og
fullnægju. Markmið þitt á þessu stigi ætti að
vera að uppgötva nýjan tilgang. Það gæti tek-
ið þig tíma að finna ástæðu til að fara á fætur á
morgnana.“
„Ef þú er óhamingjusöm/samur í vinn-
unni eða vilt komast aftur út á vinnumarkað-
inn en veist ekki hvert þú átt að snúa þér skaltu
leita hjálpar til að komast á rétta braut,“ segir
dr. Carol Kauffman, hjá læknadeild Harvard-
háskóla. „Ef þér tekst að nýta styrkleika þína
í vinnu eða við áhugamál muntu finna ham-
ingju. Taktu lítil skref í einu. Litlar breytingar
koma þér í rétta átt. Ef þig langar til að flytja
til annars lands skaltu byrja á því að heim-
sækja landið til að sjá hvernig þér líkar. Horfðu
á sjálfa/n þig sem verk í mótun, sama á hvaða
aldri þú ert.“
SjötugSaldurinn
Ekki draga þig í hlé
Tímarnir hafa breyst. Við lifum lengur og því
má eiginlega segja að sjötugsaldurinn sé hinn
nýi sextugsaldur.
Eigin virði
Ef þú ert komin/n með nóg af tíu stunda vinnu-
dögum íhugaðu þá að minnka við þig, stofna
eigið fyrirtæki eða snúa þér að sjálfboðaliða-
störfum. Vinnan kemur okkur á fætur á morgn-
ana, veitir okkur félagslegt net og tilfinningu
um dugnað og tilgang. Ef þú hættir snögg-
lega að vinna geturðu upplifað þig týnda/n og
gagnslausa/n. „Sama á hvaða aldri við erum
þarf okkur að finnast við vera einhvers virði í
samfélaginu. Á sjötugsaldrinum geturðu mót-
að stefnuna fyrir næstu 30 árin. Finndu þér
áhugamál sem þú getur notið næstu áratug-
ina,“ segir dr. Virginia Revere sálfræðingur og
talsmaður American Psychological Associat-
ion.
Farðu út á meðal fólks. Ef þú býrð ekki í
grennd við fjölskyldu þína eða átt ekki góða
vini skaltu fara út og finna þér vini. Líttu á þá
sem fjárfestingu í framtíð þinni. „Fólk sem á í
góðum samskiptum við fjölskyldu eða vini er
ólíklegra til að veikjast á efri árum,“ segir Re-
vere sem vill að við reynum á andleg og líkam-
leg mörk okkar. „Komdu þér í aðstæður sem
reyna á þig. Settu þér skammtíma- og lang-
tímamarkmið,“ segir taugasálfræðingurinn dr.
Robert S. Wilson. „Heili þinn þrífst á áreiti, sér-
staklega erfiðum verkefnum eins og að læra
nýtt tungumál eða á hljóðfæri.“
Farðu af stað
Ef þú hefur ekki stundað líkamsrækt er kom-
inn tími til. Samkvæmt rannsókn Archives of
Internal Medicine, þar sem 284 skokkurum og
156 kyrrsetumönnum var fylgt eftir, kom í ljós
að þeir sem hlupu í fimm stundir á viku voru
líklegri til að viðhalda betri líkamlegri og and-
legri færni á efri árum. Skokkararnir fengu síð-
ur hjartasjúkdóma, krabbamein og taugasjúk-
dóma eins og Parkinson-veiki og sýkingar líkt
og lungnabólgu. Aðrar rannsóknir hafa sýnt að
líkamsrækt hjálpar til í baráttunni við of háan
blóðþrýsting, sykursýki og beinþynningu. „Ef
þú getur ekki skokkað veldu þá eitthvað ann-
að við þitt hæfi,“ segir dr. Eliza Chakravarty
aðstoðarprófessor við Stanford-læknaháskól-
ann. „Farðu út að ganga, í sund, hvað sem er.
Byrjaðu rólega og passaðu þig á að geta talað á
meðan þú æfir.“
ÁttræðiSaldurinn
Láttu til þín taka
Ef heilsan er í þokkalegu standi mun áttræð-
isaldurinn ekki virðast mikið öðruvísi en sjö-
tugsaldurinn, samkvæmt Revere. „Haltu í góðu
siðina eða byrjaðu á þeim nú þegar ef þú hefur
ekki tileinkað þér heilbrigðan lífsstíl. Láttu til
þín taka í samfélaginu. Þótt þú sért orkuminni
en þú varst eða eigir við sjúkdóm að stríða
skaltu samt hafa markmið. Það að hafa tilgang í
lífinu getur breytt öllu.“
Aldur er bara tala
Ekki haga þér eftir aldri. Gerðu uppreisn gegn
steríótýpum samfélagsins. „Þú hefur líklega
ekki jafnmörgum skyldum að gegna og áður en
ef þú tengir það aldri er hætta á að þér finnist
það vera skilaboð samfélagsins um einhvers
konar fötlun,“ segir dr. Jacqui Smith sálfræði-
prófessor við háskólann í Michigan. „Mundu
að aldur er bara tala. Ekki láta þá tölu stoppa
þig við að eltast við draumana. Haltu áfram að
vinna ef þú vilt og getur, farðu á námskeið eða
ferðastu um heiminn. Þegar þú nærð sjötugu er
kjörinn tími til að ferðast,“ segir Revere. „Líttu á
þig sem fyrirmynd barna þinna og barnabarna.
Sýndu þeim hvernig á að gera þetta!“
Skiptu um umhverfi
Ef þú býrð úti í sveit eða fjarri vinum og ættingj-
um ættirðu að reyna komast í meira fjölmenni.
„Ekki halda í hús vegna minninganna ef þú ert
einmana. Finndu þér heimili þar sem þú get-
ur gengið á milli staða og hitt annað fólk á ferð
þinni.“
níræðiSaldurinn
Ekki skilgreina þig út frá veikindum
þínum
Þegar þú verður áttræð/ur hefurðu líklega ekki
sömu orku og þú hafðir. „Eftir áttrætt upplifum
við alls kyns furðulega sjúkdóma,“ segir Revere
sem er sjálf 81 árs. „Ekki láta það stoppa þig við
að taka þátt í samfélaginu, stunda áhugamálin
og jafnvel vinnuna. Þeim sem sitja á rassinum
allan daginn líður ekki vel.“
Rifaðu seglin
Flestir óttast að missa sjálfstæði sitt með aldr-
inum. „Reyndu að halda í gömlu áhugamál-
in. Ef þú hafðir gaman af tennis þarftu ekki að
spila í sex tíma í einu eins og þú gerðir á þínum
yngri árum. Reyndu að skjóta nokkrum boltum
annað slagið. Lagaðu rútínuna að aldri og orku.
Farðu frekar út að borða með félögunum í há-
deginu en á kvöldin.“
Tileinkaðu þér nýja tækni
Þegar aldurinn færist yfir eru margir einmana.
Netið getur hjálpað þér að viðhalda tengslum.
Lærðu á tæknina, sendu sms, farðu á Face-
book og spjallaðu við fólk héðan og þaðan úr
veröldinni. Notaðu netið til að fylgjast með því
sem er að gerast. Fáðu einhvern til að kenna
þér á tölvu og netið og haltu heilanum ung-
um.
Lifðu lífinu til fullnustu
Að sama skapi máttu ekki láta „þann rétta“
sleppa bara af því að þú ætl-
aðir ekki að festa þig fyrr en á
fertugsaldrinum.
Þótt þú sért orkuminni en áður eða eigir við
sjúkdóm að stríða skaltu samt
setja þér markmið. Það að
hafa tilgang getur breytt öllu.