Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2010, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2010, Blaðsíða 18
Svarthöfði fylgist af athygli og ánægju með velgengni nokkurra helstu hrunverja landsins úr stjórnmálastétt- inni. Nýjasta dæmið er ráðning Árna Mathiesen, dýralæknis og fyrrver- andi fjármálaráðherra, sem aðstoðar- framkvæmdastjóra Matvælastofnun- ar Sameinuðu þjóðanna í Róm. Árni hefur að mestu sinnt aðhlynningu dýra á Suðurlandi eftir bankahrun- ið en fær nú aftur tækifæri til að láta ljós sitt skína í stjórnunarstarfi eftir að hafa sloppið við að vera ákærður fyrir embættisglöp og vanrækslu af Al- þingi vegna aðkomu hans að banka- hruninu árið 2007. Fyrst Árni stóð sig ekki betur við að stjórna litla Íslandi þá er um að gera að gefa honum ann- að tækifæri á alþjóðavettvangi. Þetta finnst Svarthöfða að minnsta kosti. S agan af Árna bætist við nýleg tíðindi af endurráðningu Halldórs Ásgrímssonar hjá Norðurlandaráði og svo má auðvitað ekki gleyma ráðningu Dav- íðs Oddssonar á ritstjórastól Morgun- blaðsins í fyrra. Þessir tveir landsfeð- ur og fyrrverandi forsætisráðherrar hafa því alls ekki fengið að finna fyrir því að hafa einkavætt íslensku bank- ana upp í hendurnar á vinum sínum og munu líklega hafa ágætis tekjur á næstu árum, ofan á eftirlaun frá ís- lenska ríkinu vegna embættisstarfa sinna, þar til þeir setjast endanlega í helgan stein. Þ etta finnst Svarthöfða vera til fyrirmyndar. Ef það er eitt-hvað sem Svarthöfða finnst vera ömurlegt í manneðlinu þá er það þessi tilhneiging mannsins að vera stöðugt að horfa í baksýnis- spegilinn og velta fyrir sér því sem gerðist í fortíðinni þegar framtíðin er það sem skiptir máli. Svarthöfði man ekki betur en að Svafa Grönfeldt, bankaráðsmaður í Landsbankan- um og rektor Háskólans í Reykjavík, hafi einmitt bent á þetta í greininni „Áfram Ísland!“ í október 2008, rétt eftir hrunið. Bæði þá og nú er Svarthöfði sammála Svöfu. Þá strax þótti Svöfu nóg um fortíð-ar- og uppgjörshyggju Ís- lendinga og var skilningurinn sá að frekar ætti að bretta upp ermarnar og gleyma fortíðinni og reyna að græða á núinu. Enda hefur enginn nokkru sinni grætt nokkuð á því að velta sér upp úr orðnum hlutum og gagnrýna og jafnvel refsa þeim sem gert hafa í brækurnar eða upp á bak. K jarninn í máli Svöfu var einmitt sá að íslensku við-skiptasnillingarnir hefðu unnið í góðri trú og má í reynd heimfæra þetta viðhorf upp á stjórnmálastéttina, meðal annars Árna Mathiesen: „Ég er talsmaður útrásar og verð það áfram. Ég er sannfærð um að flestir þeir sem komið hafa að útrásarmálum síð- ustu árin gerðu það af góðum hug og góðum ásetningi.“ Einmitt af þessari ástæðu eigum við Íslendingar ekki að refsa þessum mönnum eða fjalla um það sem þeir gerðu og enn síður að reyna að komast til botns í því hvort þeir hafi framið glæpi. Allt neikvætt úr fortíðinni er best að gleyma og grafa og halda áfram uppbygging- unni. Alveg eins og fyrir hrunið. Svarthöfði mælist því til þess að landsmenn taki því fagn-andi þegar Árni Mathiesen fær nýtt starf eða þegar Hall- dór Ásgrímsson fær endurráðningu því það hefur sýnt sig að það er fárán- legt og eykur ekki arðsemi og velmeg- un að lifa stöðugt í fortíðinni. Seljum Sjóvá til Karls Wernerssonar ef hann á fyrir því, Jón Ásgeir Jóhannesson má fá forkaupsrétt að Högum, Bjarni Ár- mannsson getur orðið næsti forstjóri Íslandsbanka, Davíð Oddsson mun verða aftur forsætisráðherra, Svafa Grönfeldt á að verða næsti forstjóri Actavis og Björgvin G. skal verða næsti formaður Samfylkingarinnar. Áfram Ísland og hættum þessu fortíð- arkjaftæði! „ÁFRAM ÍSLAND!“ „Skulda Íslending-um svör.“ n Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, um að ríkisstjórnin skuldi þjóðinni svör vegna mun betri Icesave-samn- inga sem séu í sjónmáli. Þar sem stjórnin hafi gert allt sem í hennar valdi stóð til þess að fá þá fyrri samþykkta. - Visir.is „Hann er jafn voldugur og Genghis Khan á sínum tíma.“ n Bubbi Morthens, um Davíð Oddsson sem hann segir vera hinn eina sanna orsakavald hrunsins á Íslandi. Bubbi hefur verið gagnrýndur fyrir að verja útrásarvíkinga í pistlum sínum en hann segir þá marga hafa fengið ósanngjarna meðferð. - Rás 2 „Við þurfum að hætta þessum aumingjaskap.“ n Gerður Kristný, um að eyða eigi fáttækt á Íslandi. Hækka skatta ef það er það sem þarf í stað þess að láta hjálparstofnanir einar aðstoða þá sem minna mega sín. - DV „Þetta er bara ill meðferð á fullorðnu fólki.“ n Gerður Árnadóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar, um ákvörðun Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík sem ætlar að loka heimili þar sem þrír þroskahamlaðir fullorðnir einstaklingar búa. „Óásættanlegt ástand.“ n Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasam- takanna, gagnrýnir bankana harðlega fyrir að bjóða viðskiptavinum sínum ekki betri vexti en raun ber vitni. - DV Krossferð Bubba Morthens Bubbi Morthens hefur rétt fyrir sér. Jón Ásgeir Jóhannesson ber ekki einn ábyrgð á hruninu. Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur líka rétt fyrir sér. Davíð Oddsson ber ekki einn ábyrgð á hruninu. Geir H. Haarde hefur líka rétt fyrir sér. Hann ber ekki einn ábyrgð á hruninu. Meira að segja Jóhanna Sigurðardóttir hefur rétt fyrir sér. Ingi- björg Sólrún Gísladóttir og Geir báru ekki ein ábyrgð á hruninu, heldur margir aðrir. Nú dynur á okkur stöðugur áróð- ur um sakleysi sumra og sekt annarra. Bubbi Morthens líkir Davíð Oddssyni við einn brjálaðasta herforingja sögunnar – mann sem lagði hvert heimsveldið á fætur öðru undir sig. „Hann er jafnvoldugur og Gengh is Khan á sínum tíma,“ sagði Bubbi á Rás 2. Hugmyndin virðist vera að end- urvekja tvískiptingu samfélagsins milli Sjálfstæðisflokks, undir forystu Davíðs, og Baugsmanna, leiddum áfram af Jóni Ás- geiri og Jóhannesi. Það er alið á meðvirkni með hinum grunuðu. Aðferðirnar eru tvær: í fyrsta lagi er sagt að viðkomandi sé ekki endanleg or- sök hrunsins. Í öðru lagi er bent á að and- stæðingar viðkomandi vilji koma höggi á hann. Við eigum ekki að taka þátt í tvískipt- ingunni. Þau eru öll sek um hrunið. Þeir sem leita að hinum endanlega sökudólgi hrunsins eru í raun í leit að skálkaskjóli. Ábyrgð eins útilokar ekki ábyrgð annars. Davíð Oddsson leysir Jón Ásgeir ekki und- an ábyrgð og öfugt. Hrunið hefði aldrei orðið ef sökudólgarnir og orsakirnar hefðu ekki verið svona margar. Endanleg orsök – þar sem orsökin er aðeins ein – er fyrst og fremst þekkt í trúarbrögðum. Nýja Ísland má ekki falla í gryfju trúarlegrar þjóðfé- lagsumræðu tvíhyggjunnar, eins og það gamla. Blind fylgispekt við eina eða aðra valda- blokk er sjúkdómur sem grefur undan lýðræðinu. Hvorki Baugsmenn né Davíð Oddsson skipta raunverulega máli. Það er ekkert samsæri gegn Jóni Ásgeiri og ekk- ert samsæri gegn Davíð. Hins vegar hef- ur verið viðvarandi barátta milli sérhags- munaklíka um völd og peninga, þar sem klíkurnar taka völd og peninga frá al- menningi. Svarið við því er ekki að fylkja sér að baki einhverjum leiðtoga, heldur að taka stöðu með hagsmunum fjöldans gegn klíkunum. Lausnin er lýðræði og gegnsæi; meiri völd og upplýsingar til fólksins. Það er stóra stríðið. Þegar Bubbi talar hlusta margir. Hann gerir gagn ef hann tekur málstað fólks- ins frekar en að berjast fyrir valdablokkir í keppni við Hannes Hólmstein Gissurar- son. Davíð er enginn Genghis Khan. Hann er gamaldags útsendari valdablokkar á rit- stjórastóli og Jón Ásgeir er saksóttur mað- ur, dulbúinn sem fjölmiðlaráðgjafi Stöðv- ar 2. Þeir stýra ekki samfélaginu. Þeir eru upp vaktir draugar fortíðar og skipta engu máli nema sem sögulegur lærdómur. Gleymum þeim og byrjum upp á nýtt – en gleymum aldrei lexíunni sem þeir kenndu okkur. JóN TRAuSTi ReyNiSSoN RiTSTJóRi SkRiFAR. Bubbi gerir gagn ef hann tekur málstað fólksins frekar en að berjast fyrir valdablokkir. leiðari svarthöfði 18 umræða 3. nóvember 2010 miðviKudagur RíkisstjóRn í andaRslitRum n Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar- dóttur er bókstaflega í andarslitr- unum eftir að fylgishrun mælist þannig að innan við þriðjungur kjósenda styður hana. Flestir skrifa hrunið á aðgerðarleysi leiðtogans sem situr einangr- aður í ráðuneyti sínu með að- stoðarmann sem gárungar segja að eyði dögunum í að flæma í burtu mótmælendur og máva. Það dylst síðan engum að stór hluti Vinstri grænna er á allt öðrum brautum en þeim að bjarga landinu úr kreppu. tRyggvi RáðheRRa! n Á meðan Jóhanna Sigurðar- dóttir situr aðgerðarlaus, og óró- lega deildin í VG er í óða önn að stöðva fram- gang mála, dafn- ar Sjálfstæð- isflokkurinn. Hin svokallaða velferðarstjórn virðist ætla að kafna í eigin aðgerðarleysi. Sjálfstæðis- flokkurinn virðist því ætla að ná vopnum sínum með suma af helstu skúrkum hrunsins innanborðs. Tryggvi þór Herbertsson, fyrrver- andi efnahagsráðgjafi, gæti orðið ráðherra fyrr en varir. Og hver veit nema Árni Johnsen fái einnig ráðu- neyti. jón bjaRgi FlateyRi n Menn velta nú fyrir sér öllum möguleikum til að koma atvinnu- lífinu á Flateyri til bjargar eftir að öllum starfs- mönnum Eyr- arodda var sagt upp. Meðal þess sem horft er til er að Jón Bjarnason sjáv- arútvegsráð- herra grípi inn í málin og veiti vel af byggðakvóta til staðarins. Þá er einnig talið mögulegt að sterkt einkafyrirtæki sem ræður yfir kvóta muni hefja rekstur á staðn- um. En það er þó alls ekki í hendi. jónína segiR allt n Mikil eftirvænting er meðal áhugamanna um þjóðmál vegna bókar Sölva Tryggvasonar um at- hafnakonuna Jónínu Bene- diktsdóttur. Reiknað er með að bókin komi út um miðjan nóvember en það er N1 sem hefur einkarétt á sölu og dreifingu hennar. Jónína hefur staðið í eld- línu átaka milli þeirra sem tengj- ast Baugi annars vegar og Davíð Oddssyni hins vegar. Þeir sem hafa kynnt sér hluta bókarinnar fullyrða að hún dragi ekkert undan og hlífi hvorki sjálfri sér né öðrum. Það er því hrollur í mörgum. sandkorn tryggvagötu 11, 101 reykjavík Útgáfufélag: Dv ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir ritStjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is fréttaStjóri: Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is umSjón helgarblaðS: Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is umSjón innblaðS: Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is dv á netinu: Dv.IS aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 515 5550. umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: Árvakur. Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. bókstaflega „Jú, ég mun örugglega sakna þeirra en þau eru í góðum höndum,“ segir Árni MaTHieSen, dýralæknir og fyrrverandi fjármálaráðherra. Árni hefur verið ráðinn til starfa sem aðstoðarframkvæmda- stjóri hjá FaO, Matvæla- stofnun Sameinuðu þjóðanna, og mun hann hafa aðsetur í róm. eftir að hann sagði skilið við stjórnmálin hefur Árni unnið sem dýralæknir hjá Dýralækna- þjónustu Suðurlands á Stuðlum í ölfusi. MuNTu ekki SAkNA DýRANNA Á SuðuR- LANDi, ÁRNi? spurningin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.