Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2010, Qupperneq 8
8 fréttir 3. nóvember 2010 miðvikudagur
Jón Bjarnason tekur undir áhyggjur fólksins á Flateyri:
„Lögin heimila ekki beinar úthlutanir“
„Þetta er alvörumál og sýnir veika
stöðu sjávarbyggðanna til þess að
njóta auðlinda sinna,“ segir Jón
Bjarnason, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, þegar hann er
inntur eftir viðbrögðum við stöðunni
sem upp er komin á Flateyri.
Síðastliðinn föstudag var öllum
starfsmönnum Eyrarodda á Flateyri
sagt upp störfum en fyrirtækið hafði
verið í greiðslustöðvun síðan í maí.
Stjórnendur vonuðust þó til að fyr-
irtækið næði að rétta úr kútnum og
í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að
forsvarsmenn félagsins hafi leitað
leiða til að styrkja og tryggja rekstr-
argrundvöll félagsins. Þær aðgerðir
hafi ekki gengið sem skyldi og upp-
sögn allra starfsmanna fyrirtækisins
á þessum tímapunkti því óumflýjan-
leg. Alls fengu 42 uppsagnarbréf og
jafngildir fjöldinn fimmtungi íbúa
Flateyrar.
Ráðherra segir jafnframt að
ástandið á Flateyri eigi áralanga sögu
að baki. „Staðan sem er nú komin
upp sýnir greinilega veikleika þeirrar
fiskveiðistefnu sem hefur verið hér á
undanförnum árum og hversu veikar
byggðirnar hafa verið,“ segir hann og
bætir við að örlög Flateyrar séu hluti
af þessu.
Þegar svipuð vandræði blöstu við
á Þingeyri á sínum tíma var byggða-
kvóti sveitarfélagsins allur færð-
ur þangað og því fordæmi fyrir sér-
tækum aðgerðum. Aðspurður hvort
mögulegt sé að beita svipuðum að-
gerðum til hjálpar Flateyringum seg-
ir Jón að lögin heimili ekki neinar
beinar úthlutanir.
„Það er í rauninni ekkert hægt að
segja nema að þetta á sér sínar for-
sendur í því hvernig kerfið var byggt
upp. Við höfum miklar áhyggjur af
þessu og vildum gjarnan að kerfið
væri þannig að við gætum tryggt rétt
fólks á þessum stöðum. Við tökum
afdráttarlaust undir áhyggjur fólks-
ins á Flateyri,“ segir hann að lokum.
gunnhildur@dv.is
Jón Bjarnason,
sjávarútvegs- og
landbúnaðar ráðherra
Ráðherra segir ástandið á
Flateyri afleiðingu slæmrar
fiskveiðistefnu.
Fyrrverandi rekstrarfélag skemmti-
staðarins Players í Kópavogi hefur
verið úrskurðað gjaldþrota og nema
lýstar kröfur tæpum 243 milljónum
króna. Upp í þessar kröfur og skipta-
kostnað náðust nærri 1,5 milljónir
króna. Afgangurinn af kröfunum verð-
ur því afskrifaður. Skiptalok voru í búi
rekstrarfélagsins, Playcaffi ehf., í byrj-
un október og voru þau auglýst í Lög-
birtingablaðinu á þriðjudaginn. Helsta
ástæða gjaldþrots félagsins eru ört
hækkandi skuldir vegna gengismunar
á myntkörfuláni frá Landsbankanum.
Playcaffi er ekki núverandi rekstr-
arfélag Players samkvæmt fyrirtækja-
skrá en félagið breytti um nafn fyrir
rúmu ári síðan, samkvæmt gögnum
frá Lánstrausti. Áður hét rekstrarfé-
lagið Players ehf. Núverandi eigandi
skemmtistaðarins er eignarhaldsfé-
lagið C8 ehf. en eigendur þess félags
festu kaup á félaginu í febrúar á þessu
ári. Annar eigandi hafði þá átt Players
til skamms tíma.
Eigandi Playcaffi er Óskar Guðjón
Einarsson en framkvæmdastjórinn
heitir Jón G. Magnússon.
Gera sitt besta
Einn af núverandi eigendum Play-
ers segir að þeir hafi keypt skemmti-
staðinn af öðrum aðila en Óskari í lok
febrúar á þessu ári. Hann segir að síð-
ustu tvö árin þar á undan hafi rekstur-
inn ekki verið mjög góður. Hann seg-
ir Óskar hvorki koma að rekstrinum
né eignarhaldinu á neinn hátt. „Þegar
kreppan kom seldi hann þetta til nýrra
aðila og við keyptum svo af þeim. Þeir
voru mikið í erlendum lánum að ég
held.“
Aðspurður hvernig reksturinn
gangi og hvort staðurinn sé ekki hálf-
gerð gullnáma segir hann að svo sé
ekki en að núverandi eigendur stað-
arins geri sitt besta. „Nei, þetta var það
en í dag reynum við bara að gera okkar
besta. Það er allt annað að reka þetta í
dag,“ segir hann.
152 milljóna króna tap
Í ársreikningi Playcaffi fyrir árið 2008
kemur fram að tap Playcaffi hafi verið
rúmlega 152 milljónir króna á árinu.
Skuldir og skuldbindingar Playcaffi
það árið voru skráðar sem rúmlega
220 milljónir króna. Á móti þessum
skuldum komu eignir sem námu um
68 milljónum króna, þar af var við-
skiptavild upp á tæplega 59 milljónir
króna.
Í ársreikningnum kemur fram að
stærsti hluti skulda Playcaffi hafi verið
við Landsbanka Íslands. Félagið skuld-
aði bankanum rúmlega 175 milljónir
króna vegna myntkörfuláns árið 2008
og má ætla að afborganir af því hafi
gert sitt til að knésetja félagið. Geng-
ismunur nam 110 milljónum króna af
heildartapi félagsins á árinu. Í reikn-
ingnum kemur fram að afborganir fé-
lagsins af skuldunum hafi aukist um
25 milljónir króna á milli áranna 2007
og 2008. Afborganir af skuldum félags-
ins námu um 5 milljónum árið 2007
en 30 árið 2008. Í reikningnum kemur
jafnframt fram að myntkörfu lánið hafi
verið tekið að hluta til árið 2007 en þá
tók félagið ný lán upp á samtals 100
milljónir króna.
Fyrrverandi rekstrarfélag skemmtistaðarins Players skilur eftir sig skuldir upp á tæplega 242 milljónir.
Players er rekinn af öðru félagi í dag sem keypti staðinn í febrúar. Myntkörfulán frá Landsbanka Íslands
gerði sitt til að knésetja félagið. Gengismunur nam 110 milljónum af tapi félagsins árið 2008.
243 MILLJÓNA ÞROT
VEGNA PLAYERS
inGi f. vilhJálmsson
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Þegar kreppan kom seldi hann
þetta til nýrra aðila og
við keyptum svo af þeim.
Einn frægasti gestur Players Einn
frægasti gestur Players er erkihnakkinn
og Kópavogsbúinn Egill Einarsson,
kallaður Gillz.
myntkörfulánin erfið Myntkörfulán sem
fyrrverandi rekstrarfélag skemmtistaðarins
Players í Kópavogi, Playcaffi ehf., tók vógu
þungt og eru ein helsta ástæðan fyrir
gjaldþroti félagsins. Players er nú rekinn af
öðru félagi.