Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2010, Qupperneq 20
Gamla góða tuggan
Gítarveisla í salnum Björn Thoroddsen gítarleikari stend-
ur fyrir gítarveislu í Salnum í Kópavogi dagana 5. og 6. nóvember. Fram
koma margir af helstu gítarsnillingum Íslands. Svo sem Björgvin Gíslason,
Gunnar Þórðarson, Guðlaugur Falk, Andrés Þór, og fleiri. Tónlist úr öllum
áttum verður leikin af þessu fjölhæfu gítarleikurum. Sem dæmi má nefna
metal, kántrí, blús, django, djass og allar helstu tónlistarstefnurnar þar sem
gítarinn kemur við sögu. Sérstakur gestur verður hollenski gítarleikarinn
Robin Nolan. Bjössi Thor verður einnig veislustjóri og rifjar upp kynni sín af
gestaleikurunum. Nánari upplýsingar er að finna á salurinn.is
uGlurnar á toppnum Myndin Legend of
the Guardians var tekjuhæsta mynd landsins í síðustu viku.
Þetta var önnur vika myndarinnar í sýningum en hún var
í þriðja sæti í þeirri fyrstu. Rétt rúmlega 4.000 manns hafa
séð myndina sem hefur þénað um 4 milljónir. Í öðru sæti var
Facebook-myndin The Social Network en alls hafa 16.300
manns séð hana. Hún hefur þénað tæpar 15 milljónir. Ný, í
þriðja sæti, kemur hasarmyndin Machete með 1.300 gesti
og 1,4 milljónir í tekjur.
20 fókus 3. nóvember 2010 miðvikudagur
Jesús litli
snýr aftur
Verðlaunasýningin Jesús litli snýr
aftur á svið í Borgarleikhúsinu á
sunnudaginn kemur. Verkið fékk
frábæra dóma og var tilnefnt til sjö
Grímuverðlauna. Jesús litli var valin
sýning ársins auk þess sem höfund-
ar þess hrepptu verðlaun. Verkið
verður sýnt í nóvember og desember
en tvær sýningar verða sérstaklega
fyrir heyrnarskerta. Þá munu tveir
táknmálstúlkar taka þátt í flutningn-
um og leikarar taka þá inn í leikinn.
Það er Benedikt Erlingsson sem leik-
stýrir verkinu en með aðalhlutverk
fara Kristjana Stefánsdóttir, Hall-
dóra Geirharðsdóttir og Bergur Þór
Ingólfsson.
Harmonikka
oG uppistand
Á fimmtudag verða harmonikku-
tónar og hlátrasköll í Nema-
Forum / Slippsalnum. Þá munu
Harmonikkufélag Reykjavíkur og
uppistandarinn Ari Eldjárn bjóða
upp á óhefðbundna grín-, harm-
onikku- og músíktilraun. Harm-
onikkusveitirnar Smárinn, Létt-
sveitin, Eldborgin og Fönixinn
stíga á svið og framkalla ekta, al-
íslenska alþýðustemningu. Mark-
miðið er að kynna hljóðfærið fyr-
ir yngri kynslóðinni með því að
halda kvöldvöku líkt og gert var
hér á árum áður. Dagskráin hefst
klukkan 20.30 og aðgangseyrir er
500 krónur.
íslendinGar
sýna í new York
Sjö Íslendingar eiga verk á sýningu
sem nú stendur yfir í The American-
Scandinavian Foundation’s Scandin-
avia House í New York. Sýningin ber
nafnið Nordic Models + Common
Ground: Art and Design Unfolded
og var opnuð á fimmtudag. Þeir sem
sýna eru Hans Jóhannsson fiðlu-
smiður, Bjargey Ingólfsdóttir með
Bara’ Design, Fanney Antonsdóttir &
Dögg Guðmundsdóttir iðnhönnuðir,
Katrín Ólína hönnuður, landslags-
arkitektastofan Landslag og vöru- og
iðnhönnun Studiobility. Umfjöllun
um sýninguna hefur birst í The New
York Times en á sýningunni má sjá
norræna samtímalist og hönnun.
Á undanförnum árum hafa ófáir
fyrstu persónu skotleikir litið dags-
ins ljós og keppni stóru tölvuleikja-
framleiðendanna um viðskiptavini
mikil. Medal of Honor er nýjasta
afurð Electronic Arts (EA), leikur
þróaður af dótturfélagi EA, Dang-
er Close, en leikirnir hafa notið fá-
dæma vinsælda undanfarinn ára-
tug eða svo. Sá hluti leiksins sem
ekki er spilaður á netinu gerist í Af-
ganistan árið 2002, eða skömmu
eftir árásirnar á Tvíburaturnana og
segir frá baráttunni gegn afgönsk-
um uppreisnar- og hryðjuverka-
mönnum.
Það verður ekki tekið af Medal
of Honor að hann lítur þokkalega
vel út og er grafíkin til fyrirmynd-
ar, með nokkrum undantekning-
um þó. Bandarískir hermenn voru
framleiðendum leiksins innan
handar til að gera upplifunina sem
raunverulegasta og tekst þeim vel
til þar. Vopnin eru ágætlega fjöl-
breytt sem og verkefnin sem þarf að
glíma við. Sá hluti leiksins sem ekki
er spilaður á netinu er hins vegar
stuttur og tók það ekki langan tíma
að skjóta sig í gegnum þann hluta.
Hann hefði að ósekju mátt vera
mun lengri enda upplifunin þar
mun meira fyrir augað en netspil-
unin sem framleiðendur leiksins
virðast hafa reitt sig mikið á.
Borðin í netspiluninni eru þó vel
hönnuð þótt það sé oft auðvelt að
fela sig, bíða eftir andstæðingunum
og láta síðan vaða.
Það hafa ófáir klukkutímarn-
ir farið í að spila hinn geysivinsæla
Modern Warfare 2 í heimahúsi með
nokkrum félögum. Medal of Honor
býður hins vegar ekki upp á þann
möguleika sem er miður.
Þegar leikurinn er spilaður er
ómögulegt annað en að bera leik-
inn saman við Modern Warfare 2.
Medal of Honor er nokkrum skref-
um á eftir honum en þó langt frá því
að vera ómögulegur. Staðreyndin er
hins vegar sú að skotleikir eins og
Medal of Honor verða alltaf bornir
saman við það besta sem til er. Til
að toppa leik eins og Modern War-
fare dugar ekkert annað en að tjalda
öllu til og gera eitthvað nýtt, eitt-
hvað sem er öðruvísi en það sem
þegar er til. Með þessum nýja Med-
al of Honor-leik gekk það ekki upp
hjá framleiðendunum og leikurinn
vart meira en skammgóður vermir
í því úrvali tölvuleikja sem fyrir er.
Einar Þór Sigurðsson
Medal
of Honor
Tegund: Fyrstu persónu skotleikur
Spilast á: PS3, PC, Wii, Xbox 360
Skammgóður vermir Medal of Honor
er ágætisskemmtun en þegar allt
kemur til alls lítið meira en þokkaleg
viðbót við það sem þegar er til.
TÖlVuleIkIr
Machete
(Trejo ) er fyrr-
verandi lög-
reglumaður í
Mexíkó sem
leitar hefnda í
Texas eftir að
fjölskylda hans
er myrt af fíkni-
efnabarónin-
um Rogelio
Torrez (Seag al).
Myndin er unn-
in upp úr gervi-
„trailer“ sem var sýndur á undan
Grindhouse-myndum þeirra Rob-
erts Rodriguez og Quentins Tarant-
inos.
Danny Trejo fer með hlutverk
Machete, líkt og hann gerði í hinum
fræga grín-„trailer“. Machete er yf-
irgengilega sterkur og bardagafim-
in er á heimsmælikvarða. Eins og
nafnið gefur til kynna er hans kjör-
vopn sveðja og skiptir engu þótt
andstæðingar hans noti vélbyssur,
Machete hlýtur ekki skrámu. Trejo
smellpassar í hlutverkið enda hef-
ur hann löngum leikið hörkutól og
glæpamenn. Trejo er enginn sér-
stakur leikari, en þetta er í fyrsta
skipti sem hann er í aðalhlutverki í
kvikmynd.
Jeff Fahey er ágætur í hlutverki
illmennisins Michaels Booths en
restin er að mestu þreytandi, til
dæmis Steven Seagal, sem stend-
ur sig svo illa sem eiturlyfjabarón-
inn Torrez að það er ekki einu sinni
fyndið. Maður vorkennir mannin-
um. Persónur myndarinnar eru að
öðru leyti yfirgengilegar og ýktar.
Ýmist algjörir skíthælar eða góð-
hjartaðir píslarvottar.
Ýktar persónurnar eru í takt við
myndina í heild sinni. Leikstjórinn
ætlast ekki til að hún sé tekin mjög
alvarlega, enda er verið að gera grín
að slæmum hasarmyndum síðustu
áratuga og exploitation-myndum
8. áratugarins. Grínið virkar fyrstu
10 mínúturnar, þegar hetjan okk-
ar ræðst inn í íbúðarhús vopnaður
sveðju og hausar fjúka í allar átt-
ir. Eftir þessa mögnuðu kynningu
þynnist grínið út og verður fljótt
þreytandi. Fátt stendur eftir nema
örfá ýkt hasaratriði.
Myndin er auk þess um það bil
hálftíma of löng og skilur eftir sig
slepjulegan boðskap pólitískrar
rétthugsunar í lokin.
Machete er þó ekki alveg dauða-
dæmd, því á sama hátt og hægt er
að hlæja að sama brandaranum
aftur og aftur heilt kvöld er eflaust
hægt að finnast Machete fyndin
og skemmtileg. Það er þó einmitt
stærsta vandamál Machete sem
kvikmyndar. Brandarinn er sá sami
alla myndina. Eðlilega getur manni
þótt það þreytandi í 105 mínútur.
kVIkMyndIr MacHeTe
Leikstjórn: Robert Rodriguez,
Ethan Maniquis.
Handrit: Robert Rodriguez,
Álvaro Rodriguez.
Leikarar: Danny Trejo, Michelle
Rodriguez, Jeff Fahey, Jessica Alba,
Robert De Niro, Steven Seagal,
Cheech Marin, Don Johnson,
Lindsay Lohan.
105 mínútur
brJálaður
með breddu
JÓN INGI
STEFÁNSSON
skrifar
MacHeTe Danny Trejo
smellpassar í hlutverkið.
VandræðaLeGT Steven Seagal er svo lélegur að maður vorkennir honum.