Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2010, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2010, Síða 24
HANDBOLTINN AFTUR AF STAÐ Eftir landsleikja- hlé fer N1-deildin í handbolta aftur af stað en þrír leikir verða leiknir í fimmtu umferðinni á fimmtudaginn. Hið ósigraða lið Akureyrar tekur á móti Valsmönnum sem hafa ekki enn unnið leik í deildinni en sá leikur hefst klukkan 18.30 í Vodafone-höllinni. HK-ingar sem hafa komið liða mest á óvart fara í heimsókn í Mosfellsbæinn og mæta þar nýliðum Aftureldingar á meðan stórleikur umferðarinnar verður í Kaplakrika þar sem FH tekur á móti Fram. Báðir þessir leikir hefjast klukkan 19.30 en á laugardaginn lýkur svo umferðinni með leik Hauka og Selfoss. FJÖGURRA LEIKJA BANN HJÁ KÁRA Kári Árnason sem leikur með 2. deildarliðinu Plymouth á Englandi var dæmdur í fjögurra leikja bann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í tapi gegn Oldham um síðastliðna helgi. Þetta var annað rauða spjald Kára á leiktímabilinu. Kári mun því missa af þremur leikjum í 2. deildinni ásamt einum í bikarkeppni neðri deilda liða sem eitt sinn hét Framrúðubikarinn. Plymouth tapaði leiknum, 4–2, en komst samt, með tveimur mönnum færri leikmenn, yfir, 2–1. MOLAR YAYA AFTUR TIL BARCA? n Spænskir miðlar halda því fram að Barcelona ætli að reyna að fá miðjumanninn YaYa Toure aftur frá Manchester City fyrir slikk en Fílabeins- strendingurinn hefur átt erfitt með að aðlagast lífinu í Manchester. Toure var keyptur til City í sumar á 24 milljónir punda og fær um 200 þúsund pund í vikulaun. Samkvæmt umboðsmanni hans er Toure samt ekki á eitt sáttur við hugarfar nokkurra samherja sinna. „Yaya finnst nokkrir leikmenn City, sérstaklega þeir sem hafa verið hér lengi, taka sæti sínu í liðinu sem sjálfsögðum hlut en það veit aldrei á gott þegar lið ætla að vinna titla,“ segir umboðsmaður hans. HODGSON ÁNÆGÐUR MEÐ SEIGLUNA n Roy Hodgson ætlar að endast eitthvað lengur í starfi hjá Liver- pool eftir að liðið vann sinn annan leik í röð í ensku úrvalsdeildinni gegn Bolton um síðastliðna helgi, 1–0. Gat Hodgson ekki hætt að hrósa liði sínu fyrir mikla seiglu. „Ég er að komast að því hversu mikil seigla er í þessu liði og það er tilbúið í þessa baráttu með mér. Síðustu tveir leikir hafa verið góðir og ég veit að þegar birtir meira til hjá okkur verðum við flottir. Ég er samt ekkert að blekkja sjálfan mig því ég veit að það er mikil vinna eftir. Sérstaklega með öll þessi meiðsl í leikmanna- hópnum hjá okkur núna,“ segir Hodgson. TIGER EKKI HISSA n Ömurlegu ári Tigers Woods á golfvellinum lauk með því að hann missti efsta sæti heimslistans til Englendingsins Lee Westwood. Tiger hafði setið á toppnum samfleytt í 281 viku en þar sem hann hefur ekki unnið mót í bráðum tvö ár og spilað skelfilega undanfarið var það óhjákvæmilegt að hann missti toppsætið. „Þetta kom mér ekkert á óvart. Ég er ekki lengur númer eitt í heiminum, því hefði ég átt að halda toppsætinu hefði ég þurt að vinna mót í ár. Það gerði ég ekki og því fór sem fór,“ segir Tiger Woods sem tekur þátt í móti í Kína um næstu helgi til að reyna skora nokkur stig á heims- listanum. VERÐUR ENGINN BARDAGI n Freddie Roach, þjálfari hnefa- leikakappans Mannys Pacquiao, efast um að áhugamenn um hnefaleika fái nokkurn tíma að sjá skjólstæðing sinn og hinn magnaða Floyd Mayweather takast á í hringnum. Bæði Pacquioa og Mayweather eru ósigraðir á sínum ferli og vill fólk sjá þá berjast um hvor sé besti hnefaleikakappi allra tíma. „Ég get ekki séð að það verði af þessum bardaga. Það er búið að bjóða Mayweather óheyrilegar fjárhæðir fyrir að berjast. Ég bara skil ekki hvernig hann getur neitað þessu. Hnefaleikar eru vissulega íþrótt en þetta eru viðskipti líka,“ segir Roach. 24 SPORT UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON tomas@dv.is 3. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR PULIS NIÐURLÆGIR ÍSLENDINGA Í fjórða skiptið á leiktímabilinu þurfti Eiður Smári Guðjohnsen að sitja allan tímann á bekknum hjá Stoke þegar liðið tapaði gegn Ev- erton, 1-0, á Goodison Park um síðastliðna helgi. Eiður hefur ekki enn fengið að byrja leik með Stoke frá því hann gekk í raðir liðsins á lokadegi félagaskipta í ágúst og á laugardaginn var hann ónotaður varamaður í fjórða skiptið á leiktíð- inni. Tony Pulis, knattspyrnustjóri Stoke, hefur áður farið illa með Ís- lendinga en samband hans við þá hefur sjaldan verið gott. Pulis gerði þeim Tryggva Guðmundssyni og Þórði Guðjónssyni morgunljóst að hann myndi aldrei nota þá þegar íslenskir eigendur Stoke keyptu þá til félagsins í ársbyrjun 2005. Nið- urlægði Pulis Tryggva illilega með því að láta hann keyra bíl annars leikmanns á eftir rútunni. Eins fór hann illa með feril Bjarna Guðjóns- sonar og frysti hann hjá tveimur liðum og endaði þar með atvinnu- mannaferil hans. Stoke Holding, íslenska eign- arhaldsfélagið sem átti Stoke, réð Tony Pulis til starfa í nóvember 2003 þegar Steve Cotterill, sá er tók við af Guðjóni Þórðarsyni, sagði upp störfum. Í byrjun tímabilsins 2004/2005 var mikil kergja á milli Pulis og íslensku stjórnarinnar sem fékk að bitna á íslensku leikmönn- unum. Pulis var rekinn frá liðinu en ráðinn aftur um leið og Peter Coat- es, sá sem seldi Íslendingunum fé- lagið, keypti það aftur. Rándýr á bekknum Eftir komu Eiðs til Stoke gagnrýndi Pulis hann harkalega í fjölmiðl- um fyrir það í hversu slæmu formi hann væri. „Ég veit ekki hvað hann var að gera í sumar,“ sagði Pulis um Eið og bætti því við að einhver tími þyrfti að líða þar til Eiður gæti spil- að heilan leik með Stoke. Eiður hef- ur nú æft með Stoke í tvo mánuði og spilað þrjá varaliðsleiki. Sú afsökun að Eiður sé í slæmu formi hlýtur að vera orðin úldin af elli en um miðjan október sagðist Eiður vera tilbúinn til að spila heilan leik. Knattspyrnuspekingum hefur komið á óvart hversu mikið Eiður er látinn dúsa á bekknum, sérstak- lega vegna launa hans. Enskir miðl- ar greindu frá því að Eiður hafi tekið á sig launalækkun upp á tíu þúsund pund eða 1,8 milljónir króna svo samningar gætu náðst. Er því Eiður með 65.000 pund í vikulaun eða því sem nemur ellefu og hálfri milljón króna. Veikur Kenwyne Jones í stað Eiðs Fyrir viku héldu margir að Eiður Smári fengi loks að byrja leik með Stoke þegar liðið fékk West Ham í heimsókn í deildarbikarnum. Er deildarbikarinn oft nýttur til að gefa leikmönnum á bekknum tækifæri og bárust þær fréttir frá Englandi að nú væri loks komið að Eiði. Svo var þó ekki. Langtímauppáhald Pul- is, framherjinn Kenwyne Jones, var látinn spila leikinn í stað Eiðs. Jones var veikur en samt tekinn fram yfir Eið. „Kenwyne vildi ekki spila leik- inn en ég stappaði í hann stálinu og sendi hann út á völlinn. Hann var sveittur og kaldur og sagðist hafa verið slappur í viku,“ sagði Pulis eftir leikinn sem tapaðist, 3-1. Kom Eið- ur inn á sem varamaður á 58. mín- útu og þar sem leikurinn fór í fram- lengingu fékk hann að spila í rétt rúma klukkustund. Töluvert meira en áður hefur þekkst á stuttum ferli hans hjá Stoke. Peð í rifrildi Pulis og stjórnarinnar Eiður hefur lítið tjáð sig um bekkjar- setuna og þar sem hann hefur skrúf- að á öll samskipti við íslenska blaða- menn hefur ekki verið hægt að fá viðbrögð hans við ákvörðunum Pul- is hingað til. Án efa hefur form Eiðs eitthvað haft að segja til að byrja með en hvaða fótboltaáhugamað- ur sem er hlýtur að spyrja sig hvers vegna Eiður Smári er ekki einu sinni sendur til að hita upp þegar liðið er að tapa 1-0 fyrir Everton og vantar svo sannarlega einhverja töfra inn á völlinn. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Tony Pulis fer illa með íslenska leik- menn en íslenskir eigendur Stoke fengu á sínum tíma Tryggva Guð- mundsson og Þórð Guðjónsson til liðsins sem þá var í næstefstu deild, en þeim var fljótt gerð grein fyr- ir stöðu sinni hjá liðinu. „Hann til- kynnti mér nánast um leið og við mættum að hann myndi aldrei nota mig nema í ítrustu neyð,“ segir Þórð- ur Guðjónsson. „Þegar við komum inn var mikill ágreiningur á milli stjórnarinnar og Pulis og við vorum svolítið eins og peð í tafli þeirra,“ út- skýrir Tryggvi Guðmundsson. Talaði illa um Íslendingana Þórður Guðjónsson kom til Stoke frá Bochum fyrir tilmæli Ásgeirs Sigur- vinssonar sem mælti með Skaga- manninum. „Pulis sagði mér að hann hefði aldrei ætlað að fá mig. Hann samþykkti þetta bara fyr- ir eigendurnar en lét mig vita að ég myndi aldrei spila fyrir hann,“ seg- ir Þórður Guðjónsson. Hann og Tryggvi Guðmundsson voru lítið meira en æfingadýr hjá liðinu þar sem þeir fengu nánast aldrei að vera í hópnum. Það var ljóst að Pulis var ekki vel við íslenska eignarhaldið og fengu þeir félagarnir að súpa seyðið af því. „Það sem sló mig mest var hversu illa hann talaði um Íslend- ingana. Í fjölmiðlum var hann dug- legur að skjóta þá í kaf og svo var sláandi hvernig Pulis talaði um eig- endurna fyrir framan leikmennina. Það kom svo í ljós að hann var að vinna með fyrrverandi eigandan- um [Peter Coates, innsk. blm]. Um leið og hann keypti klúbbinn aft- ur 2006 var Pulis ráðinn til starfa. Ég get alveg tekið undir það að við vorum bara peð í þessari skák hans við stjórnina,“ segir Þórður sem var kominn heim til ÍA ári síðar. Frá degi til dags var Pulis þó ekki leiðinlegur við hann og Tryggva. „Hann kom alltaf mjög hreint fram við mig. Hann sagði mér að sama hversu góður ég væri í fótbolta fengi ég aldrei að spila undir hans stjórn. Ég vissi því alltaf hvernig staða mín var hjá félaginu,“ segir Þórður en segir þó ekki að Pulis hafi verið heið- arlegur. „Hann var hreinskilinn, ekki heiðarlegur. Við skulum orða það þannig.“ Látinn keyra bíl annars leikmanns „Pulis neitaði bara að nota okkur Eiður Smári Guðjohnsen hefur ekki enn verið í byrjunarliði hjá Stoke og um síðustu helgi var hann í fjórða skipti á leiktíð- inni ónotaður varamaður. Eiður er ekki fyrsti Íslendingurinn sem Tony Pulis, knattspyrnustjóri Stoke, hefur farið illa með. Pulis tjáði Þórði Guðjónssyni árið 2005 að hann myndi aldrei nota hann, Bjarni Guðjónsson var frystur hjá tveimur liðum undir stjórn Pulis og þá var Tryggvi Guðmundsson látinn keyra bíl annars leikmanns á eftir liðsrútunni hjá Stoke þeg- ar Íslendingar áttu félagið. TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Pulis brá þá á það ráð að kalla á mig og spyrja hvort ég gæti ekki bara keyrt bílinn. FRYSTUR TVISVAR Bjarni Guðjóns- son var ungur á uppleið hjá Stoke þegar Tony Pulis frysti hann þar. Pulis frysti Bjarna svo aftur hjá Plymouth og þar endaði atvinnumannsferill hans. UPPÁHALDIÐ Tryggvi Guðmundsson var látinn keyra bíl Kenwynes Jones á eftir rútunni og í síðustu viku var Jones látinn spila veikur í stað Eiðs Smára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.