Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2010, Side 11
Fréttir | 11Mánudagur 13. desember 2010
Jóhannes Guðnason kom að fóstur-
syni sínum, Halldóri Elfari Hann-
essyni náfölum og meðvitundar-
lausum um laugardagsnóttina. „Ég
hrökk upp við þvílík læti um nóttina,
ég hélt að það væri verið að brjótast
inn hjá mér. Svo þegar ég kallaði á
konuna heyrði ég bara öskur og grát-
ur,“ segir Jóhannes um hina örlaga-
ríku nótt. Sautján ára fóstursonur
hans hafði farið í skyndilegt hjarta-
stopp þar sem hann sat við tölvuna.
Ekki er vitað hvað gerðist eða hvað
olli því að svona ungur maður mað-
ur fékk hjartastopp. „Þegar ég kom
hlaupandi niður, þá sá ég konuna
halda á, því sem mér fannst vera lík.
Hann bara steinlá.“ Halldór Elfar get-
ur þakkað skjótum viðbrögðum og
skyndihjálparkunnáttu Jóhannesar
að ekki fór verr.
Námskeiðið bjargaði
„Ég var sem betur fer nýbúinn að fara
á skyndihjálparnámskeið. Olíudreif-
ing býður okkur að fara á svoleiðis
námskeið, þannig að ég var búinn að
læra hjartahnoð.“ Jóhannes hringdi
strax á neyðarlínuna, sem gat leið-
beint honum símleiðis. „Mér var sagt
að hefja hjartahnoð, en þegar ég var
búinn að hnoða 10–20 sinnum var
strákurinn ennþá blár og ekkert var
að gerast,“ segir Jóhannes. „Mér var
þá sagt að hnoða fastar og ég hnoð-
aði fastar, þá loksins kom kippur í
strákinn,“ segir Jóhannes. Með beint
samband við Neyðarlínuna hnoðaði
hann fósturson sinn til lífs. „Þá fór að
koma froða upp úr honum, þetta var
þá að virka!“ bætir Jóhannes við.
Nauðsynleg þekking
Þegar blaðamaður DV náði tali af
Jóhannesi á sunnudaginn var hann
á leið á Landspítalann til fósturson-
arins. „Ég mætti í vinnuna í morgun
eins og til stóð,“ segir Jóhannes, sem
starfar sem vörubílstjóri. „Yfirmenn-
irnir húðskömmuðu mig fyrir að taka
vinnuna svona fram yfir barnið. Mér
var sagt að leggja bílnum og drífa mig
í bæinn.“ Þess má geta að Jóhann-
es lýsti því í viðtali við DV í fyrra að
hann hefði aldrei misst dag úr vinnu
vegna veikinda. Skyndihjálparnám-
skeiðið var á vegum vinnuveitanda
Jóhannesar, Olíudreifingu, en starfs-
mönnum fyrirtækisins býðst að fara
á slík námskeið í Reykjavík.
Jóhannes hefur verið atvinnu-
bílstjóri í tugi ára, en aldrei fram að
þessu hafði hann farið á skyndihjálp-
arnámskeið, þótt þörfin hafi í raun
alla tíð verið brýn. „Af því að ég keyri
svo mikið út á land, þá hef ég kom-
ið að gríðarlega mörgum bílslysum.“
En Jóhannesi hafði aldrei áður verið
kennt að nota slökkvitæki, né heldur
hvernig beita skyldi hjartahnoði.
„Það er rosalegur ókostur að kunna
þetta ekki. Nú kann ég þetta, og þetta
kvöld vissi ég nákvæmlega hvað ég
átti að gera,“ segir hann og bætir við
að það að kunna rétt handtök á ögur-
stundu geti verið spurning um líf
eða dauða. „Ég tel mig hafa bjargað
mannslífi, og það er eingöngu vegna
þess að Olíudreifing býður starfs-
mönnum sínum að fara á skyndi-
hjálparnámskeið,“ segir Jóhannes.
Baðst afsökunar eftir á
Jóhannes var skiljanlega illilega
brugðið þegar hann kom að fóst-
ursyninum. „Maður var svaka-
lega hræddur. Ég taldi barnið bara
vera dáið,“ segir hann, og bendir á
að hann hafi verið fremur stuttur í
spuna við manninn hjá neyðarlín-
unni. „Ég varð fremur reiður þegar
hann fór að spyrja hvað drengurinn
væri gamall og slíkt. Ég sagði hon-
um að senda bara sjúkrabíl strax,“
segir Jóhannes, en bætir þó við að
hann hafi séð eftir hvössum orðum
þegar skelfingin rann af honum. „Ég
hringdi aftur um tveimur tímum síð-
ar, þegar ég var búinn að róast örlít-
ið niður. Ég var þá svo heppinn að
hitta á sama mann og áður. Ég bað
hann afsökunar á minni framkomu.
En hann gerði þá bara lítið úr þessu,
sagði viðbrögð mín hafa verið full-
komlega eðlileg. Menn verða nú
reyndar hræddir í svona aðstæðum,“
bætir Jóhannes við. Hann vill þó taka
fram að maðurinn hafi verið fag-
mannlegur fram í fingurgóma. „Það
var alveg sama hvað ég var brjálaður
í símanum, alltaf hélt hann ró sinni.
Það þarf nú karakter í það.“
Blessunarleg útkoma
Margt hefði getað farið verr þetta
kvöld. „Ég sagði honum að fara að
koma sér upp í rúm áður en ég fór
að sofa, en það er gott að hann gerði
það ekki.“ Halldór hafði verið í tölv-
unni, en hefði hann farið upp í rúm
hefði líklegast enginn tekið eftir því
að eitthvað væri að. „Það heyrðist
rosalegur skellur, hann braut stólinn
drengurinn þegar hann féll í gólfið.“
Hefði hann verið liggjandi, þá hefði
líklega enginn orðið var við meðvit-
undarleysi hans. „Ég segi nú bara,
það er eins gott að hann var áfram í
tölvunni og hlustaði ekki á mig,“ seg-
ir Jóhannes.
Um nóttina var Halldór flutt-
ur á Landspítalann í Reykjavík, þar
sem læknar reyndu að komast að
því hvað olli hjartastoppinu. Seinna
um daginn var hann útskrifaður, en
hann mun þurfa að vera rúmliggj-
andi í nánustu framtíð. „Þeir rann-
sökuðu hann í dag á spítalanum,“
sagði Jóhannes á sunnudagskvöld-
inu. „Þeir fundu ekki meinið, en á
þriðjudaginn mun taugasérfræð-
ingur líta hann.“ Jóhannes og konan
hans, Sigríður Aðalborg Sigurðar-
dóttir, eru þó vongóð um framtíð-
ina.
Jóhannes bendir á að allir ættu
að ljúka skyndihjálparnámskeiði,
hafi þeir kost á því. Gott sé að fyrir-
tæki bjóði starfsmönnum sínum upp
á námskeið af þessu tagi. „Ég vil að
fyrirtæki geri einmitt svona. Ég vissi
hvað ég var að gera, en fyrir tveimur
mánuðum hefði ég ekki vitað það.
Þetta skiptir öllu,“ segir Jóhannes.
Skyndihjálpin
bjargaði lífinu
n 17 ára drengur fékk hjartastopp n Jóhannes Guðnason bjargaði lífi fóstursonar síns
n Hann var nýbúinn á skyndihjálparnámskeiði n Náði að hnoða drenginn til lífs
Símon Örn Reynisson
blaðamaður skrifar simon@dv.is
Jóhannes Guðnason og
Halldór Elfar Hannesson „Mér
var þá sagt að hnoða fastar og ég
hnoðaði fastar, þá loksins kom kippur
í strákinn.“
Skyndihjálp skiptir sköpum fyrir batahorfur:
„Það ættu allir að fara
á svona námskeið“
Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða krossins,
hvetur alla til þess að fara á skyndihjálparnámskeið,
en slík námskeið eru haldin reglulega á vegum
samtakanna. „Rauði krossinn útbýr námsefni og síðan
bjóða deildirnar upp á námskeið og eins bjóðum við
upp á þessi námskeið til fyrirtækja. Sem betur fer er
mikið um að skólar haldi námskeið og íþróttakennarar
eru með réttindi til að kenna skyndihjálp,“ segir hann.
„Það hefur náttúrulega margsýnt sig að það að fólk kunni skyndihjálp og viti hvernig
það á að bregðast við, ræður úrslitum við slys og ef það eru hjartaáföll eða eitthvað
slíkt. Það hefur sýnt sig að það ræður alveg batahorfum viðkomandi, að það sé fólk á
staðnum sem kann að bregðast við strax þangað til heilbrigðismenntað fólk kemur á
staðinn. Ef um er að ræða eitthvað sem tengist hjartastoppi þá er mikilvægt að kunna
að hnoða og blása. Rannsóknir hafa sýnt að það margfaldar lífslíkur viðkomandi,“ segir
hann.
Námskeið Rauða krossins eru af ýmsu tagi. Fullt skyndihjálaparnámskeið er 16 tíma
námskeið, en einnig er boðið upp á styttri námskeið í endurlífgun. Á 16 tíma námskeiði
lærir fólk öll helstu atriði skyndihjálpar.
„Það ættu allir að fara á svona námskeið. Þetta er einnig nokkuð sem fólk á að halda
við. Reynslar sýnir okkur að þegar fólk hefur farið á svona námskeið er alveg ótrúlegt að
sjá hversu hlutirnir rifjast upp þegar það verður að nota það sem það hefur lært.“
valgeir@dv.is
Þegar slys gerast:
1 Tryggðu öryggi Fyrstu viðbrögð í skyndihjálp skulu alltaf vera að
tryggja öryggi þess sem hjálpað er og
tryggja að hann verði ekki fyrir frekari
skaða.
2 Hringdu á 112 Næst skal hringja á neyðarlínuna, 112.
3 Beittu endurlífgun Ef viðkomandi andar ekki og svarar ekki áreiti, þá
skal strax beita endurlífgunaraðferðum.
4 Stöðvaðu blæðingu Ef viðkomandi blæðir skal stöðva blæðinguna.
Að beita hjartahnoði og
blástursaðferð
n Opnaðu öndunarveginn með því að
sveigja höfuðið aftur.
n Horfðu og hlustaðu eftir merkjum um
eðlilega öndun. Lyftist brjóstkassinn?
Andar viðkomandi frá sér?
n Hnoðaðu á miðjan brjóstkassann
með beinum handleggjum. Hnoða skal
30 sinnum. Hnoðtakturinn á að vera um
það bil hundrað hnoð á mínútu. Það er
rúmlega 1,6 hnoð á sekúndu. Eftir 30
hnoð, skal blása tvisvar.
n Klemmdu fyrir nef og blástu í munn.
Blástu þannig að brjóstkassinn lyftist
lítillega. Blástu tvisvar, og ef öndun
hefst ekki að nýju skal hnoða aftur 30
sinnum. Endurtakið ferlið þar til hjálp
berst eða viðkomandi fer að anda
eðlilega.
Réttu viðbrögðin