Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2010, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2010, Blaðsíða 15
Einar: „Ekki fyrir amatöra en skemmtilegt og fræðandi.“ Mikael: „Alveg eins og að vera niður- lægður í sjónvarpssal í fáfræði sinni fyrir framan alþjóð. Fræðandi og fjörugt fyrir alvitra í tónlist. Sérleg- ur bónus er að fá að geta spilað sem Bjartmar.“ Valgeir: „Þú spilar þetta ekki með mömmu þinni nema hún heiti Andr- ea Jónsdóttir. Flott umgjörð, vandað spil en mjög erfiðar spurningar.“ Jóla jóla spilið Framleiðandi: IC ehf. Verð: 2.500 til 3.000 kr. Skemmtilegt fyrir börnin Hér er á ferðinni lítið borðspil sem hentar allri fjölskyldunni þótt það sé einkum ætlað börnunum. Jóla jóla spilið er í raun tvö spil í einum pakka. Annars vegar ertu í hlutverki jóla- sveinsins sem þarf að koma pökk- um til barnanna. Hann þarf að fara í sex hús sem reynist þrautin þyngri því leikmenn eiga á hættu að detta í gegnum göng og fara aftur um nokkra reiti eða lenda á gormi og skjótast þá langt áfram í spilinu. Sá vinnur sem er fyrstur í mark og með fæsta pakka eft- ir. Hins vegar er Jóla jóla spilið teng- ingaspil þar sem markmiðið er að vera fyrstur í mark. Jóla jóla spilið hentar börnum sér- staklega vel þar sem það er mjög ein- falt. Foreldrar, frændur, frænkur, afar og ömmur geta líka spilað með og ætti spilið að henta vel til dæmis á að- fangadagskvöld þegar búið er opna pakkana. Þeim sem vilja meira fjör er þó ráðlagt að finna eitthvað annað að gera því Jóla jóla spilið er fyrst og fremst fjölskylduspil þar sem börnin geta skemmt sér. Spilið er tiltölulega ódýrt og gæti hentað í skóinn á að- fangadag eða sem möndlugjöf. Baldur: „Spil sem gengur mjög hægt. Maður endist ekki lengi í þessu en þetta er fínt fyrir börnin.“ Einar: „Fínasta skemmtun fyrir börnin.“ Mikael: „Jákvætt jólagaman fyrir börnin.“ Valgeir: „Gott í skóinn. Þriggja punkta fjölskyldufjör.“ Þú veist! Framleiðandi: Nordic Games ehf. Verð: 4.000 kr. á nordicgames.is Skyndipróf fyrir þrætugjarna Borðspilið Þú veist! er nýtt íslenskt spil sem kom út nú fyrir jólin. Leik- urinn gengur í stuttu máli út á það að stafrófsteningi er kastað. Þátttak- endur fá úthlutað spjöldum þar sem gefin eru tilmæli. Keppendur verða síðan að finna tólf orð af spjöldunum sem byrja á þeim staf sem upp kom á teningnum áður en tíminn rennur út. Stig eru gefin fyrir hvert orð sem hóp- urinn samþykkir sem gilt. Hér reynir á orðaforða manna og hugvit spilara. Spilið er því krefjandi og vinnur á eftir því sem spilað er. Gallarnir eru þó fleiri en kostirnir. Í fyrsta lagi er það 24 hliða stafróf- steningurinn sem er misheppnaður og olli okkur félögunum miklu hug- arangri og ljóst er að ekki er hægt að nota hann ef borðið er ekki rennislétt. Spilið býður upp á rifrildi þar sem orð sem keppendur finna upp er opin fyr- ir túlkun og spilarar semja í raun sínar eigin leikreglur. Mikið af vafaatriðum koma upp og spilið býður ekki upp á mikla spennu. Ágætt fyrir eldri fjöl- skyldumeðlimi en ekki hentugt fyr- ir yngri börn. Spurningamerki er sett við endingarmöguleika þess. Baldur: „Gott að grípa með sér hvert sem maður fer.“ Einar: „Fínt í flugvél.“ Mikael: „Krefjandi leikur fyrir þrætu- gjarna.“ Valgeir: „Leið eins og í skyndiprófi fyrst en síðan vann spilið á.“ Activity Framleiðandi: Egilsson flytur inn Verð: 6.980 kr. á spilavinir.is Ágætt en til- breytingarlaust Borðspil sem gengur út á að leika, teikna og lýsa orðum á spjaldi. Leikmenn velja sér spjöld eftir erf- iðleikaflokkum. Ef leikmaður leys- ir erfiða þraut fer hann áfram um fimm reiti, ef hann leysir miðl- ungserfiða þraut fer hann áfram um fjóra reiti og þrjá reiti ef hann leysir einfalda þraut. Spilið hent- ar yngri notendum, en þeir sem hafa spilað önnur sambærileg spil á borð við Party og Co., Action- ary eða Pictionary munu frekar kjósa þau. Ágætlega vandað spil, en vantar tilbreytingu í það og þar af leiðandi ekki nógu mikið fjör. Leikmenn pirruðu sig á því að það vantaði bæði skrifblokkir og blý- anta í spilið. Baldur: „Pictionary, Actionary og Alias, sett saman. Óspennandi borð og verður fljótt þreytandi. Þó fínt til að spila með krökkunum.“ Einar: „Ágæt afþreying. Góð hug- mynd en samt vantar eitthvað.“ Mikael: „Alias fyrir einfalda eða kreppuútgáfan af Party og Co. Sjón- rænt leiðinlegt.“ Valgeir: „Bætir engu við önnur vin- sæl spil. Lítið fjör. Spilaðu frekar Party og Co.“ Fuglaspilið Framleiðandi: Bókaútgáfan Æskan Verð: 4.790 kr. Einfalt fuglabingó Fuglaspilið er hægt að spila á fjóra máta en er fyrst og fremst bingó í sinni einföldustu mynd. Hljóð 130 fugla eru á geisladiski sem fylgir spil- inu. Spilinu fylgja svo fjögur bing- óspjöld (níu fuglamyndir á hverju spjaldi). Á eftir hverju fuglahljóði les þulurinn upp hvaða fuglategund var að syngja og leikmenn leggja laus spjöld (með mynd af viðkomandi fugli) á hvolf ofan á ef hljóðið tilheyr- ir fugli sem er á þeirra spjaldi. Sá sem er svo heppinn að klára fyrst vinnur. Spilið gerir engar kröfur til hæfni og býður ekki upp á keppni nema heimatilbúnar reglur séu notað- ar. Auðvelt hefði verið að gera spil- ið þannig að sá ynni sem flest fugla- hljóðin þekkti. Það er raunar synd að upp á slíkt sé ekki boðið – því það felst ágætis skemmtun í að spreyta sig á kunnuglegum fuglahljóðum. Spilið gæti verið gott í bústaðinn að vori eða sumri þar sem hægt er að búa til leiki með börnunum eða kenna þeim hljóðin. Þetta er fyrst og fremst fyrir börn en það er galli á spilinu að aðeins eru spjöld með um 30 fuglategundum á meðan hljóðin á diskinum eru 130. Baldur: „Væri hægt að gera gott úr þessu með börnunum. Maður kemst í vorfíling af því að hlusta á fugla- hljóðin.“ Einar: „Gerir ekkert fyrir Playsta- tion-fíkla, fínt fyrir þá sem eru for- vitnir um fugla.“ Mikael: „Nytsamlegt fyrir Náms- gagnastofnun og sumarbústaðina. Forvitnilegt fyrir fuglaforvitna en hefur ekkert skemmtanagildi.“ Valgeir: „Grunnskólarnir ættu að kaupa þetta en þetta ratar líklega ekki í marga jólapakka. Mjög fróð- legt en ekki skemmtilegt.“ Furða sig á Jóni „Það verður að teljast meira en lítið undar- legt þegar sá ráðherra sem fer með matvælamál þekkir ekki eigin reglur betur,“ segir á vef Neytendasamtakanna um Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Þar er greint frá því að Jón hafi fyrir nokkrum dögum haldið því fram að minni kröfur væru gerðar til innflutts kjúklinga- kjöts en innlendrar framleiðslu hvað varðar salmonellusýkta kjúklinga. „Það er hins vegar svo að kjúklingakjöti sem flutt er inn frá öðrum löndum verður að fylgja heilbrigðisvottorð um að það séu án salmonellu,“ segja samtökin sem furða sig á þessari staðhæfingu ráðherra. Of strangar kröfur? Neytendasamtökin segja að í kjölfar þeirra orða Jóns Bjarnasonar ráðherra að minni kröfur væru gerðar til innflutts kjúklinga- kjöts en erlendrar framleiðslu hvað varði salmonellusýkta kjúklinga, hafi yfirlýsing borist frá upplýsingafulltrúa ráðuneytis landbúnaðar- og sjávarútvegs þar sem hann kvartaði yfir því að hér giltu of strangar heilbrigðiskröfur varðandi kjúklinga- framleiðslu. Birgðir af kjúklingakjöti væru oft litlar vegna tíðra salmonellusýkinga í kjúklingabúum hér á landi. „Lesa mátti milli línanna að einfaldast væri að slaka á kröfum og leyfa um leið að salmonellusýktar vörur séu í verslunum,“ segir á vef samtakanna sem mótmæla þessum sjónarmiðum harðlega. Blaðamenn prófuðu sjö spil Frá vinstri: Valgeir Örn, Sigurður Mikael, Einar Þór og Baldur. myNd HuldA ÖSp AtlAdóttIr Flott flakk Tekið skal fram að DV gafst ekki tími til að prófa íslenska borðspilið Flakk, sem er nýútkomið. Höfundar spilsins, þeir Ásgeir Viðar Árnason, Ragnar Már Ómarsson og Pétur Atli Antonsson Crivello, hafa unnið að spilinu í þrjú ár. „Okkar markmið var auðvitað að gera í fyrsta lagi áhugavert og skemmtilegt spil en einnig að ná fólki frá tölvunni,“ segir Svavar um spilið en það er ætlað 10 ára og eldri en er þó ekki einginlegt krakkaspil. DV hefur skoðað spilið og óhætt er að fullyrða að ákaflega mikið er lagt í spilið, bæði hvað varðar útlit og innihald. partý Alias Fimbulfamb Enn meiri popppunktur Jóla jóla spilið Þú veist! Activity original Fuglaspilið Partý Alias besta spilið Bestu spilin 2009 Heilaspuni Alias Sprengjuspilið Andrés Önd – fjölskylduspil Spurt að leikslokum Ísland Vikings *SaMkVæMt Skakka turNiNuM. HEiLaSpuNi Var VaLið SpiL árSiNS. Neytendur | 15mánudagur 13. desember 2010

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.