Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2010, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2010, Blaðsíða 20
20 | Fókus 13. desember 2010 Mánudagur Stiklað á stóru í sögu Bubba Þetta er ekki fyrsti safndiskurinn sem við sjáum frá Bubba Morthens. Fyrir nokkrum árum komu út tveir tvöfald- ir safndiskar af ferli Bubba. Nú send- ir hann frá sér 60 laga plötu í tilefni af því að tónlistarferillinn spannar 30 ár. Nú á tímum dvínandi plötusölu leggja tónlistarmenn meira upp úr umgjörð platna til þess að freista þess að fá fólk til að hala þeim ekki niður á netinu. Þannig kemur Sögur af ást, landi og þjóð í sérstakri þriggja diska útgáfu. Á plötunni er aðeins eitt nýtt lag. Öll hin lögin hafa komið út áður. Það er því auðvelt að setja spurninga- merki við þessa útgáfu í því ljósi. En platan er engu að síður eiguleg og bestu lög Bubba eru alveg jafn góð þó þau hafi verið gefin út áður. Ef til er sá Íslendingur sem þekkir ekki feril Bubba sérstaklega vel, þá er þetta platan fyrir hann. Allir hinir hafa sennilega heyrt öll lögin áður og eiga þau jafnvel í geisladiskasafninu sínu. Harðir aðdáendur fá því ekki mikið nýtt fyrir sinn snúð hvað varðar tón- listina. Þriggja diska útgáfunni fylgir hins vegar DVD-diskur með nokkr- um athyglisverðum myndböndum Bubba, sem er skemmtileg viðbót. Vert er að nefna bæklinginn, sem er nokkuð þykkur. Þar er að finna stutt- an inngangstexta eftir Árna Matthías- son og Eið Arnarson. Þá er bækling- urinn skreyttur myndum af Bubba frá hinum ýmsu stigum ferilsins, allt frá því að vera mjósleginn dópisti og yfir í það sem hann er í dag. Einnig er að finna myndir af öllum plötuum- slögum Bubba, sem er ágætt yfirlit. Þó margir þoli ekki að viðurkenna það, þá er Bubbi risastór hluti af íslenskri tónlistarsögu síðustu áratuga. Í heild- ina er þetta veglegur safnpakki, en Bubbi hefði mátt leggja meira í þetta og gefa út tvö til þrjú ný lög með. Valgeir Örn Ragnarsson Karlakórinn Fjallabræður sem tel- ur um 50 karla kemur fram ásamt hljómsveit sinni mánudaginn 13. desember í Austurbæ og flytur lög af plötunni Fjallabræður sem kom út fyrir síðustu jól ásamt því að flytja bæði ný og gömul lög. Fjallabræð- ur halda þessa aukatónleika til að anna eftirspurn en miðar á tónleika þeirra á sunnudag seldust fljótt upp og vildu fleiri komast að. Með þeim á tónleikunum verða Munað- arleysingjarnir sem er hljómsveit sem samanstendur að miklu leyti af hljóðfæraleikurum hljómsveitar Fjallabræðra ásamt öðrum frábær- um tónlistarmönnum sem slást í hópinn. Þá flytur Barnakór Fjalla- bræðra nokkur lög og eru þetta fyrstu tónleikar þessa nýstofnaða kórs sem samanstendur af börnum á aldrinum 5 til 14 ára.  Töfrar Narníu í þrívídd Þriðja ævintýramyndin um töfraheim Narníu er nú sýnd í þrívídd í kvikmyndahúsum. Myndin sem fjallar um systkinin Lucy (Georgie Henley) og Edmund Pevensie (Skandar Keynes) sem snúa aftur til ævintýralandsins Narníu með frænku sinni, Eustace. Þau slást í lið með Caspían prinsi (Ben Barnes) í ferð yfir hafið um borð í skipinu Dagfara. Á ferð þeirra mæta þau drekum, dvergum, hafmönnum og -meyjum og hópi af týndum stríðsmönnum áður en ferðalagi þeirra lýkur á ystu brún heimsins. Töfrar Narníu heilla enn meir í þrívídd og óhætt er að draga fjölskylduna í bíó á þessa ævintýramynd sem sver sig í ætt við Hringadróttinssögu. xxxxxxx Líf í Tjarnarbíói Starfsemin í Tjarnarbíói hefur vakið verðskuldaða athygli en alls hafa um 6.000 manns sótt viðburði þar síðan það var opnað 1. október eftir miklar og gagngerar endurbætur fyrir til- stilli Reykjavíkurborgar. Boðið hefur verið upp á fjölbreytta listviðburði og ljóst að rýmið hefur upp á margt að bjóða. Fram undan er spennandi dagskrá í desember, til stendur að setja Ævintýrið um Augastein aftur á svið í Tjarnarbíói. Snuðra og Tuðra mæta með Jólarósirnar sínar og sýn- ingum á nýju leikriti eftir Jón Atla verður haldið áfram út desember. Ólafur Arnalds heldur tónleika 16. desember, Seabears 19. desember og Sudden Weather Change verður svo með tónleika 27. desember.  Útgáfuhátíð á Catalinu Vestfirska for- lagið efnir til útgáfuhátíðar á Cafe Catalinu í Kópavogi. Haf- liði Magnús- son kynnir og les úr bókinni Frá Bjargtöng- um að Djúpi, bókaflokki sem fjallar um vestfirskt mannlíf að fornu og nýju. Jóhann Diego Arnórsson les upp úr bókinni Undir miðnætursól sem fjallar um lúðuveiðar Ameríkana hér við land á árunum 1884–1897. Jón Pétursson les upp úr bók sinni Jón lögga sem fjallar um aðbúnað lögreglumanna í gömlu lögreglu- stöðinni í Reykjavík. Að síðustu les Finnbogi Hermannsson úr bók sinni Vestfirskar konur í blíðu og stríðu. Þegar myndin hefst eru liðin 400 ár frá fæð- ingu Krists og Rómaveldi rið- ar til falls. Það virðist þó ganga sæmilega í eg- ypska hluta veld- isins þar sem ráðastéttin er menntuð í Alex- andríu. Hypatia (Rachel Weisz) kennir þar og stundar rannsóknir í stjörnufræði og heimspeki. Hún er trúleysingi meðal heiðingja og hinna rísandi trúarbragða kristn- innar. Þræll hennar (Max Ming- hella) leggur óbeint stund á fræði hennar og verður ástfanginn. En hann sér frelsi frá þrældómnum í kristninni sem var á þeim tíma byltingartrúarbrögð lítilmagnans. Amenábar hefur leikstýrt frábær- um myndum á borð við The Others og Abre los ojos. Hér ræðst hann í metnaðarfullt verkefni, yfirgrips- mikið og djarft. Útlitið er sannfær- andi skítugt, heitt, sveitt og gott. Trúarbragðasaga heimsins krist- allast hér í endalausum skærum og kredduleiðindum. Stéttskipting og kúgun hins heiðna rómverska valdakerfis leiðir til kristnivæðing- ar lágstéttanna og innreiðar um- burðarleysis nýju trúarinnar. Hin- ir kristnu eru strax þarna farnir að dunda sér við þá iðju að brenna menn sem mæla gegn þeim. Kristnin gegn hinum gömlu trúar- brögðum, síðar gegn gyðingunum sem grýta til baka og úr verður misk- unnarlaust blóðbað. Myndin minn- ir óhuggulega á hvernig fáir hafa farið jafn illa með gyðinga og kristn- ir. Hreyfing sem fer af stað með hat- ur sem eldsneyti á erfitt með að breyta því í framhaldinu. Svo næst er ráðist gegn öðrum kristnum sem fylgja ekki prestunum að málum og frjálslyndar konur finna einnig fyr- ir refsivendi kirkjunnar. Tækifæris- sinnuðu Rómverjarnir eru alveg til í að skipta yfir í kristni ef það þýð- ir að þeir haldi áfram völdum og sú verður raunin. En hinir kristnu hafa á sínum snærum eigin valdatæki, þar á meðal trúarbragðalögregluna Parabalani sem lýtur eigin stjórn. Þeir eru með hliðartöskur með grjóti sem staðalbúnað því það er aldrei að vita hvenær skynsemi eða umburðarlyndi skýtur upp kollin- um og þá þarf að grýta til bana. Al- gert vald hinna kristnu er upphafið á eyðingu menningar og menntun- ar sem viðgekkst svo lengi sem þeir trónuðu í valdastöðum. Í gegnum þetta allt er hin trúlausa Hypatia rödd skynseminnar sem virðist eiga sér bandamenn í öllum hópum eða þá að minnsta kosti ástfangna að- dáendur sem vernda hana. En hvað nær það langt? Ástarsagan hér gæti verið betri og það vantar einhvern kraft í fyrirferðarmiklar vísindaleg- ar vangaveltur, taut og uppgötvanir Hypatiu. En það er alltaf jafn gam- an þegar trúarbragðasagan dett- ur í gang og maður sér svartnættið sem fylgdi kristninni. Tiltektin eft- ir þessa vitleysu er gígantísk, verið var að finna aftur upp sömu hlutina meira en 1.000 árum seinna. Með tímanum var steinunum skipt út fyrir öflugri vopn en alltaf eru það sömu gömlu trúarskruddurnar sem valdamenn misbeita í sína þágu. Agora eykur skilning á hinum enda- lausu trúarbragðaskærum sem við þekkjum alltof vel í heiminum í dag. Það er þessi blóðrauða saga sem hefur sjaldan sést jafn skýrt á hvítu tjaldi. Því trúarbragðasagan er alls enginn Vatnaskógur. Kvikmyndir Erpur Eyvindarson skrifar Agora Leikstjórn: Alejandro Amenábar Aðalhlutverk: Rachel Weisz, Max Ming- hella, Oscar Isaac, Ashraf Barhom, Michael Lonsdale, Rupert Evans, Homayoun Ershadi Handrit: Mateo Gil, Alejandro Amenábar Blóðrauð saga á hvítu tjaldi Fjallabræður og vinir í Austurbæ Fjallabræður Halda aukatónleika í kvöld, mánudags- kvöld. Bubbi Morthens Sögur af ást, landi og þjóð 1980-2010 Flytjandi: Bubbi Morthens Útgefandi: Sena Ungir ein- söngvarar Hópur ungra einsöngvara tekur þátt í hádegistónleikaröð Íslensku óperunnar í vetur ásamt Antoníu Hevesi, píanóleikara við Íslensku óperuna, en einnig er ráðgert að gestasöngvarar úr röðum þekktra íslenskra söngvara láti í sér heyra. Þeir sem koma fram á næstu tónleikum í hádeginu á þriðjudag- inn eru Bylgja Dís Gunnarsdóttir, Bragi Jónsson, Erla Björg Kára- dóttir, Hörn Hrafnsdóttir, Jóhanna Héðinsdóttir, Magnús Gíslason, Rósalind Gísladóttir. Hörn Hrafns- dóttir annast efnisval og skipulag ásamt Antoníu Hevesi. Á efnis- skránni eru atriði úr Così fan tutte, Brottnáminu úr kvennabúrinu og Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart, Spaðadrottningunni eftir Tchai- kovsky og Carmen eftir Bizet.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.