Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2010, Qupperneq 16
16 | Erlent 13. desember 2010 Mánudagur
Á föstudag lauk loftslagsráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna í Cancún í
Mexíkó. Umhverfisverndarsinn-
ar höfðu bundið miklar vonir við
að árangur næðist í samningavið-
ræðum þjóðanna sem tóku þátt,
ekki síst vegna hinnar misheppn-
uðu loftslagsráðstefnu sem fram
fór í Kaupmannahöfn í fyrra. Ráð-
stefnan í Cancún fór fram í skugga
upplýsinga sem fram komu í skjöl-
um bandaríska utanríkisráðuneyt-
isins sem Wikileaks hefur birt, um
að Kínverjar og Bandaríkjamenn
hafi lagt á ráðin fyrir Kaupmanna-
hafnarráðstefnuna um að koma í
veg fyrir frekari skuldbindingar á
takmörkun losunar gróðurhúsa-
lofttegunda. Í ár talaði hins vegar
orkumálaráðherra Bandaríkjanna
fyrir sjálfbærri orkunýtingu í ná-
inni framtíð en á sama tíma skutu
upp kollinum nýir „óþekktarorm-
ar.“
Japanir og Rússar erfiðir
Lengi vel leit út fyrir að viðræðurn-
ar í Cancún færu út um þúfur. Jap-
anir og Rússar lýstu því yfir strax í
upphafi ráðstefnunar að þeir hygð-
ust ekki skrifa undir lagalega bind-
andi samkomulag um takmörkun
á losun gróðurhúsalofttegunda og
endurnýja þar með Kýótó-bókun-
ina, en hún rennur út árið 2012.
Bæði Japönum og Rússum finnst
ósanngjarnt að Kínverjar fái meira
rými til að losa gróðurhúsaloftteg-
undir, þar sem Kína sé skilgreint
sem þriðja heims ríki í Kýótó-bók-
uninni. Einnig voru þeir ósáttir
með að Bandaríkin hafa ekki verið
aðilar að Kýótó-bókuninni og því
ekki skuldbundin til að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda. Við-
ræðurnar í Cancún gengu því erfið-
lega til að byrja með, en þrátt fyrir
allt náðist nýtt samkomulag.
Nýja samkomulagið
Helsta atriðið í Cancún-sam-
komulaginu er stóraukin áhersla
á stuðning og fjárframlög til þró-
unarríkja. Þau á að aðstoða við að
takast á við afleiðingar loftslags-
breytinga og draga úr losun gróð-
urhúsalofttegunda. Á tímabilinu
2010–2012 verða þróunarríki styrkt
um 30 milljarða Bandaríkjadala
á hverju ári og stefnt er að því að
framlög þróaðra ríkja verði orð-
ið 100 milljarðar Bandaríkjadala
árið 2020. Þá verður stofnaður nýr
sjóður, Græni loftslagssjóðurinn,
en í hann munu ríki geta sótt um
fjármögnun til verkefna sem miða
að því að koma í veg fyrir lofts-
lagsbreytingar. Annað meginatriði
Cancún-samkomlagsins er að þró-
uð ríki reyni í meira mæli að þróa
og dreifa loftslagsvænni tækni.
Ísland lagði áherslu á kynja-
jafnrétti
Íslendingar tóku þátt í viðræð-
unum í Cancún og voru íslensku
fulltrúarnir ánægðir með árang-
ur ráðstefnunnar. Í fréttatilkynn-
ingu frá umhverfisráðuneytinu,
sem birtist á laugardag, er full-
yrt að áherslumál Íslands hafi náð
í gegn. „Á ráðstefnunni í Canc-
ún lagði Ísland áherslu á kynja-
jafnrétti og á þátttöku kvenna við
ákvarðanatöku. Texti þess efnis,
sem Ísland lagði til, er víða í Canc-
ún-samkomulaginu, þar á með-
al í inngangi þar sem fjallað er um
sameiginlega sýn á lausn loftslags-
vandans. Ísland lagði einnig fram
tillögu um að vernd og endurheimt
votlendis verði viðurkennd leið til
að draga úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda. Gengið var frá tæknilegri
skilgreiningu á framkvæmd tillögu
Íslands í Cancún, en endanlegt
samþykkt hennar bíður samkomu-
lags um framhald Kýótó-bókunar-
innar. Fréttaritari breska blaðsins
Guardian hrósaði Íslandi sérstak-
lega fyrir votlendistillöguna og
þann árangur sem náðist á þessu
sviði í Cancún.“
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
n Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna lauk um helgina n Leit lengi vel út fyrir að
viðræður sigldu í strand n Ekki náðist að framlengja Kýótó-bókunina en framlög til
þróunarríkja verða stóraukin n Ísland leggur áherslu á kynjajafnrétti í loftslagsmálum
Umhverfisráðuneytið tók saman helstu
atriði Cancún-samkomulagsins
n Skilgreind er sameiginleg sýn um að reyna eigi að halda hnattrænni hlýnun undir 2 °C
með því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, en einnig á að skoða möguleika á því
að styrkja þetta markmið og skoða möguleika á að halda hlýnun undir 1,5 °C. Ekki náðist
samkomulag um að setja hnattrænt markmið um minnkun losunar til 2050, en reyna á
að ná slíku samkomulagi á næsta ári.
n Ítarleg verkáætlun var samþykkt til að styrkja starf varðandi aðlögun að loftslags-
breytingum og sérstök nefnd sett á laggir til að stýra henni.
n Öllum ríkjum er boðið að tilkynna markmið um minnkun losunar til skrifstofu
Loftslagssamningsins og þróuðum ríkjum einnig til skrifstofu Kýótó-bókunarinnar.
Þróuð ríki eru hvött til þess að setja sér metnaðarfyllri markmið en þau hafa gert til
þessa. Þróunarríki eiga að grípa til aðgerða til að draga úr losun með aðstoð þróaðra
ríkja í formi fjármögnunar og tækniaðstoðar.
n Þróunarríki eru hvött til þess að gera áætlanir til að draga úr skógareyðingu, sem er
stór uppspretta losunar koldíoxíðs í andrúmsloftið. Þetta á að vera skref í átt til hnatt-
ræns verkefnis til að draga úr losun frá skógareyðingu í þróunarríkj-
unum, sem á að útfæra frekar hvað varðar fjármögnun, eftirlit
með árangri og fleira.
n Veita á 30 milljörðum á tímabilinu 2010–2012 til þróunar-
ríkja til að takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga og draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda. Stefnt er að því að framlög
þróaðra ríkja til þróunarríkja í því skyni verði árlega um 100
milljarðar Bandaríkjadala árið 2020. Stofnaður verður nýr
sjóður, Græni loftslagssjóðurinn. Verulegur hluti stóraukinnar
fjárhagsaðstoðar í loftslagsmálum á að renna í gegnum
sjóðinn, sérstaklega á sviði aðlögunar að loftslagsbreytingum.
Alþjóðabankinn á að vista sjóðinn a.m.k. fyrstu þrjú árin.
n Sett verður á fót kerfi til að greiða fyrir rannsóknum
á loftslagsvænni tækni og tilfærslu slíkrar tækni og
þekkingar til þróunarríkja. Sérstök miðstöð verður sett á
fót í þessu skyni, sem á m.a. að koma á neti þekking-
arstöðva, svæðisbundinna eða á sviði ákveðinna
tæknilausna.
Nýtt samkomulag
um loftslagsmál
Svandís Svavarsdóttir
umhverfisráðherra Legg-
ur áherslu á kynjajafnrétti.
Von eftir allt saman Aðgerðarsinnar
sýndu frumkvæði á ströndinni í Cancún.
Gestgjafar ræða saman Jacob Zuma, forseti Suður-Afríku, og
Felipe Calderon, forseti Mexíkó. Næsta loftslagsráðstefna Sameinuðu
þjóðanna verður haldin í Suður-Afríku.
„Á ráðstefnunni
í Cancún lagði
Ísland áherslu á kynja-
jafnrétti og á þátttöku
kvenna við ákvarðana-
töku.