Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2010, Qupperneq 17
Suðurafrískur ræðari er talinn af eftir að krókódíll réðst á hann:
Étinn af krókódíl
Talið er líklegt að krókódíll hafi orðið
kajakræðara að bana í afríska ríkinu
Kongó síðastliðinn þriðjudag. Ræð-
arinn, Hendrik Coetzee frá Suður-
Afríku, var í leiðangri á ánni Lukuga
ásamt tveimur Bandaríkjamönn-
um. Coetzee leiddi leiðangurinn,
en hann var þaulreyndur útivistar-
maður og kajakræðari. Bandaríkja-
mennirnir, Ben Stookesberry og
Chris Korbulic, sáu Coetzee róa í
róleg heitunum þegar krókódíll birt-
ist skyndilega og náði taki á honum
og hrifsaði hann með sér ofan í vatn-
ið. Skelfingu lostnir náðu þeir að róa
að árbakkanum en Coetzee sáu þeir
ekki aftur og gárurnar hurfu af vatns-
yfirborðinu á augabragði. Fastlega er
gert ráð fyrir að krókódíllinn hafi étið
Coetzee.
Leiðangur þessi var farinn til að
kanna Lukuga-ána í Kongó áður en
hún hverfur í sinni upprunalegu
mynd vegna stíflubyggingar. Coetzee
hélt úti bloggsíðu um leiðangurinn,
sem var kallaður „Síðasti hvíti land-
könnuðurinn“. Í síðustu færslu sinni
á bloggsíðunni, sem er frá 26. nóv-
ember, skrifaði Coetzee: „Á sama
tíma og á okkur dundu stórir, volgir
dropar árvatnsins, áttuðum við okk-
ur á að við vorum staddir á óþekktu
landsvæði djúpt í innviðum Afríku.
Loksins gátu hjarta mitt og höfuð
verið sammála, ég mun aldrei upp-
lifa betri dag en þennan.“
Coetzee var þekktur fyrir uppá-
tæki sín á sviði útivistaríþrótta.
Hann var til að mynda fyrsti ræðar-
inn til að fara frá upptökum Nílar-
fljóts alla leið út á haf, en það afrek
vann hann árið 2004. Samkvæmt
fjölskyldu Coetzees var hann ein-
staklega andlega sinnaður og þótti
eiga í sérstöku sambandi við náttúr-
una og móður jörð.
Erlent | 17Mánudagur 13. desember 2010
Krókódílar Geta
verið varasamir.
Mikill óhugur er í Svíþjóð eft-
ir sjálfsmorðsárás sem gerð var
í miðbæ Stokkhólms síðdegis á
laugardag. Árásarmaðurinn not-
aði heimatilbúnar rörasprengj-
ur við verknaðinn, en hann féll
fyrir eigin hendi þegar ein þeirra
sprakk upp við kvið hans – tveir
særðust í árásinni. Skömmu áður
en árásarmaðurinn sprengdi
sjálfan sig hafði hann sprengt
aðra sprengju í bifreið með til-
heyrandi látum. Hann hafði
einnig meðferðis fimm aðrar
rörasprengjur sem honum tókst
ekki að sprengja, auk þess að vera
með bakpoka fullan af nöglum.
Fyrri sprengjan sprakk við hina
fjölförnu verslunargötu Drottn-
inggatan, en sú síðari, þar sem
árásarmaðurinn lést, sprakk við
Bryggargatan.
Sendi hótunarbréf
Árásarmaðurinn sendi bréf
til sænskra fjölmiðla, sem og
sænsku öryggislögreglunnar
SAPO, skömmu áður en hann lét
til skarar skríða. Í bréfinu, sem
hefst á orðunum „Til Svíþjóð-
ar og sænsku þjóðarinnar,“ tek-
ur hann til ástæður sem lágu
að baki árásinni. Þar ber helst
að nefna teiknimyndir sænska
teiknarans Lars Vilks af Múham-
eð spámanni, sem fóru mjög fyr-
ir brjóstið á árásarmanninum en
í bréfinu kallar hann Vilks svín.
Hann var einnig ósáttur með við-
veru sænska hersins í Afganist-
an, en þar eru nú um 500 sænsk-
ir hermenn. Í bréfinu sagði hann:
„nú munu börn ykkar, dætur og
systur deyja,“ í hefndarskyni fyrir
fórnarlömb stríðsins í Afganistan.
Í bréfinu hvatti hann alla heilaga
stríðsmenn islams í Svíþjóð og í
Evrópu til að sameinast og grípa
til vopna. „Óttist engan, óttist ekki
fangelsisvist og óttist ekki dauð-
ann,“ sagði hinn 28 ára árásar-
maður í bréfinu.
Skelfing greip um sig
Aðeins nokkrum mínútum eft-
ir að bréfið hafði verið sent
sprengdi árásarmaðurinn fyrstu
sprengjuna. Mikil skelfing greip
um sig í miðborg Stokkhólms,
enda fjölmargir á ferðinni í jóla-
innkaupum. Í samtali við Dagens
nyheter lýsti eitt vitnanna, Gabr-
iel Gabiro, því þegar hún sá árás-
armanninn sprengja sig. „Það leit
út fyrir að hann bæri eitthvað sem
sprakk svo við kvið hans. Hann
virtist ómeiddur í andliti en það
var mikið blóð sem rann frá maga
hans. Við fundum allt nötra í búð-
inni sem ég var í, og síðan fylltist
allt af reyk og púðurlykt.“
Lögreglan vildi ekki staðfesta
að um sjálfsmorðsárás hefði ver-
ið að ræða, en viðurkenndi þó að
„það væri mögulegt.“ Carl Bildt,
utanríkisráðherra Svía, skrifaði á
Twitter-síðu sína „hryðjuverka-
árás sem olli miklum áhyggjum
í miðborg Stokkhólms mistókst.
En hún hefði getað endað með
hörmungum.“
„Á Við fundum
allt nötra í búð-
inni sem ég var í, og síð-
an fylltist allt af reyk og
púðurlykt.
slegnir óhug eftir
sjálfsmorðsárás
n Árásarmaður sprengdi sjálfan sig í miðbæ Stokkhólms á laugardaginn, tveir
aðrir slösuðust n Sendi fjölmiðlum bréf fyrir verknaðinn n Sagði árásina vera
hefnd fyrir skopmyndir af Múhameð og viðveru sænskra hermanna í Afganistan
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Judi Dench berst
gegn reykingum
Breska leikkonan Judi Dench fer fyr-
ir baráttusamtökum gegn reyking-
um í Bretlandi. Hún er varaforseti
samtakanna British Lung Found-
ation, en nú beita samtökin sér fyrir
því að banna reykingar í bílum þar
sem börn eru farþegar. Dench hef-
ur þegar tekist að safna 12 þúsund
undirskriftum til styrktar málefn-
inu en markmið hennar er að safna
50 þúsund pundum. Eiginmaður
Dench lést árið 2001 en hann var
með lungnakrabbamein. „Börn eru
enn óvarin gegn óbeinum reyking-
um, sem eru mjög hættulegar þegar
lungun eru enn að þroskast,“ sagði
Dench.
Sonur svindlara
fremur sjálfsmorð
Mark Madoff, sonur fjármálasvindl-
arans Bernies Madoffs, fannst látinn
í íbúð sinni á Manhattan í New York
um helgina. Hann hafði ákveðið að
hengja sig, réttum tveimur árum eft-
ir að komst upp um fjármálasvindl
föður síns. Hinn yngri Madoff hafði
starfað í fyrirtæki föður síns allt frá
því að hann útskrifaðist úr háskóla,
eða allt þangað til að hann, ásamt
bróður sínum, benti stjórnvöldum
á glæpi föður síns. Bernie Maddoff
hafði alls um 50 milljarða dollara af
trúgjörnum fjárfestum og fyrir það
situr hann nú í fangelsi en hann fékk
150 ára dóm fyrir fjármálaglæpi.
Sarah Palin
heimsækir Haítí
Sarah Palin, ríkisstjóri í Alaska í
Bandaríkjunum, er nú á ferð á Haítí.
Hún þekktist boð prestsins Frankl-
ins Grahams, sem taldi að kraftur
og jákvæðni Palin gæti gert Haít-
um gott en þeir hafa þurft að glíma
við miklar hörmungar að undan-
förnu. Fyrir rúmlega ári fórust um
220 þúsund manns á Haítí í kjölfar
öflugs jarðskjálfta og nú geisar þar
alvarlegur kólerufaraldur sem þegar
hefur skilið eftir tvö þúsund manns í
valnum. Palin heimsótti meðal ann-
ars flóttamannabúðir, en þúsundir
Haíta þurfa að gera sér slíkar vistar-
verur að góðu. „Þau eru öll svo full
af gleði,“ sagði Palin þegar hún var
spurð álits á búðunum.
Fyrri sprengjan sprakk í bíl
Bíllinn varð alelda á augabragði.