Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2010, Síða 26
26 | Fréttir 13. desember 2010 Mánudagur
Stefán Karl Stefánsson gerir það enn gott í Bandaríkjunum:
Kunni ekki ensku
Jón Stóri:
Komin á fast
Leikkonan glæsilega Halla Vilhjálms-
dóttir er kominn á fast með breskum
leikara að nafni Duncan Mais. Frá þessu
er greint í nýjasta tölublaði Séð og heyrt.
Halla býr með Duncan í London þar sem
hún hefur verið búsett meira og minna
undanfarin ár. Duncan er að gera fína
hluti í leiklistinni og er hann til dæmis
með hlutverk í næstu X-Men-kvikmynd.
Með leiklistinni starfar Halla í líkams-
ræktarstöð sem þjálfari og danskennari.
Stigahæsta
stjarnan
Stjörnuhátíð Körfuknattleikssambands
Íslands fór fram um helgina. Líkt og í
fyrra var einn af hápunktum hátíðar-
innar leikur fyrrverandi landsliðsmanna
og hins svokallaða „celeb“-liðs sem er
skipað þjóðþekktum einstaklingum.
Einn af nýliðum liðsins, Auðunn Blöndal,
skaraði fram úr og var stigahæstur með
sjö stig. Leikurinn endaði með öruggum
sigri landsliðsmannanna fyrrverandi,
34–26. Liðsfélagar Auðuns voru á meðal
annarra Guðmundur Benediktsson,
Hjörvar Hafliðason, Jogvan Hansen, Egill
Einarsson og Sverrir Bergmann.
Stefán Karl Stefánsson er ennþá að
slá í gegn í hlutverki sínu sem The
Grinch, Trölli, í Bandaríkjunum. Stef-
án Karl hefur ferðast með sýninguna
víða um Bandaríkin og sýndi fyrir
skemmstu í Dallas í Texas-fylki. Í til-
efni af því var Stefán í viðtali í morg-
unþættinum Good Morning Texas
þar sem hann sagði meðal annars frá
því að hann hafi ekki kunnað ensku
áður en honum var boðið hlutverk
Glanna glæps eða Robbie Rotten í
Latabæ.
„Á þeim tíma talaði ég ekki neina
ensku,“ segir Stefán Karl um það þeg-
ar honum var boðið að taka að sér
hlutverkið sem kom honum á kort-
ið. Stefán útskýrði í þættinum að
Latibær hefði byrjað sem söngleikur
í Þjóðleikhúsinu en hann og Magn-
ús Scheving hafi svo farið að tala um
þann möguleika að gera sjónvarps-
þátt. „Og hann var nógu klikkaður til
að kýla á það.“
Stefán segir að hann hafi fengið
vin sinn sem var enskukennari heima
á Íslandi til þess að kenna sér ensku.
„Þú verður að kenna mér ensku
núna!“ sagði ég við hann,“ bætir Stef-
án Karl við. „Þar sem við höfðum
engan tíma til að sökkva okkur í bæk-
ur þá fórum við bara á kaffihús og ég
sagði honum frá lífi mínu á ensku og
hann leiðrétti mig bara jafnóðum.
Síðan flutti ég hingað til Bandaríkj-
anna árið 2005.“
Stefán notaði einnig tækifærið og
las úr sögunni Þegar Trölli stal jólun-
um á barnaspítala í borginni. Stefán
verður á Íslandi fram í miðja viku en
þá fer hann til Kanada þar sem hann
sýnir næstu þrjár
vikurnar.
tomas@dv.is
„Eins og samfarir
við górillu“
A ð vera í neyslu er, eins og þeir segja, alveg eins og að stunda samfarir við górillu,“ segir Jón Hilm-
ar Hallgrímsson, betur þekktur sem
Jón Stóri, í bók Helga Jeans Claessen,
Jóns saga Stóra. „... og þeim er ekki
lokið, fyrr en górillan hefur lokið sér
af,“ bætir Jón við en í lok bókarinn-
ar, sem er skáldsaga byggð á persónu
hans, er að finna ítarlegt viðtal við
Jón sem hefur helst unnið sér það til
frægðar að vera tengdur hinum svo
kölluðu undirheimum.
Á meðal þess sem Jón ræðir í bók-
inni er uppeldi hans. „Mitt uppeldi
var mjög gott og eðlilegt í alla staði
– enginn alkóhólismi eða annað hjá
foreldrum mínum [...] Ég man eftir
að mamma ákvað að ég yrði læknir
eða hetja eins og skíðakappinn Ing-
emar Stenmark,“ en Jón segir þó að
uppeldi hans hafi breyst mikið með
tilkomu stjúpföður um átta ára ald-
urinn. Það var ekki fyrr en á mennta-
skólaaldrinum sem Jón fór að koma
sér í vandræði samkvæmt því sem
kemur fram í bókinni en þá fíkni-
efnaneysla hans.
Jón lýsir því að með árunum hafi
hann þróað með sér sterka sjálfs-
eyðingarhvöt og að neysla e-taflna
hafi haft skelfileg áhrif á hann. Svo
skelfileg að árið 2007 sýndu rann-
sóknir að hann væri kominn með
of stórt hjarta vegna mikillar neyslu
stera og kókaíns. Þetta var ekki nóg
til að halda aftur af Jóni sem þurfti að
skrifa undir skjöl með vottum til að
fá að yfirgefa sjúkrahúsið sem hann
var skoðaður á og þær hættur sem
fylgdu því.
„Ég finn að neyslan hefur tekið svo
margt frá mér. Ég er ekki sami maður-
inn og ég var áður – og verð það aldrei;
hvorki andlega né líkamlega. Það eru
afleiðingar af því vali sem ég hef tekið.
Og ég hef svo sem enga eftir sjá endi-
lega – svona hefur bara mitt líf verið
– en menn geta metið sjálfir hversu
sniðugt þetta er. Ég óska engum að
ganga í gegnum þetta.“
Jón segir frá ótrúlegustu hlut-
um í viðtalinu í heild. Meðal annars
mörgum af glæpum sínum frá fyrri
tíð, því að hann hafi verið búinn að
missa fimm vini sína um tvítugt og að
hann hafi verið „tekinn óumbeðinn“
á þjóðhátíð. Í lok viðtalsins segir hann
svo: „Ég vona að þetta viðtal sýni um-
fram vafa – að það ætti enginn að fikta
með fíkniefni.“
Í nýútkominni bók Helga Jeans Claessen, Jóns
saga Stóra, er að finna ítarlegt viðtal við Jón Hilmar
Hallgrímsson. Hann segir meðal annars frá uppeldi
sínu og hvernig sé að vera í eiturlyfjaneyslu sem hann
líkir við samfarir við górillu. Jón talar einnig um þau
ótrúlegu áhrif sem neyslan hefur haft á hann líkam-
lega og andlega. Jón óskar engum að enda í neyslu og
vonar að frásögn hans sé öðrum víti til varnaðar.
Næstum því dáinn Jón segir frá því að
neysla kókaíns og stera hafi orðið til þess að
hjarta hans varð of stórt. MyNd FaCebooK
Jón Stóri „Ég vona að þetta viðtal
sýni umfram vafa – að það ætti
enginn að fikta með fíkniefni.“
Vinsæll Sýningin hefur átt vinsældum að fagna um öll Bandaríkin.
Stefán Karl Lærði ensku fyrir hlutverk
sitt í Latabæ og sér eflaust ekki eftir því.