Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Blaðsíða 6
6 | Fréttir 17.–19. desember 2010 Helgarblað Stutt í gjaldþrot fjárfestingafélagsins: Jónmundur hættur í Berginu Jónmundur Guðmarsson, fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks- ins og fyrrverandi bæjarstjóri á Sel- tjarnarnesi, hefur sagt sig úr stjórn fjárfestingafélagsins Bergsins. Þetta kemur fram í tilkynningu til hluta- félagaskrár sem Jónmundur sendi í lok ágúst á þessu ári. Þar með teng- ist Jónmundur Berginu ekki lengur formlega. Bergið skuldar um 4 milljarða króna samkvæmt skýrslu rannsókn- arnefndar Alþingis og er ljóst að fé- lagsins bíður ekkert annað en gjald- þrot. Jónmundur á Bergið ásamt Steinþóri Jónssyni, fyrrverandi bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ. Bergið fékk tæplega tveggja millj- arða króna kúlulán frá SPRON til að kaupa 9,5 prósenta eignarhlut í Icebank af SPRON á þrjá milljarða króna síðla árs 2007. Eftir að Fjár- málaeftirlitið tók yfir rekstur spari- sjóðsins varð lán félagsins eftir þar og eftir því sem DV kemst næst ligg- ur skuldin þar enn eftir ógreidd. Í samtali við DV í fyrra sagði Jón- mundur, aðspurður um viðskipti Bergsins, að ekkert væri undar- legt við þau: „Það getur nú ekki tal- ist undarlegt að menn hafi tekið ákvörðun um að verja sparifé sínu með tilteknum hætti.“ Ætla má að eiginfjárframlag Jónmundar og Steinþórs hafi sömuleiðis tapast í viðskiptum Bergsins. ingi@dv.is Eignarhaldsfélagið Milton, sem var í eigu Baugs og Fons, var úrskurð- að gjaldþrota í nóvember síðast- liðnum. Félagið skuldaði meira en 8 milljarða króna í byrjun árs 2008. Meðal stjórnarmanna í félaginu frá stofnun þess 2007 voru Jón Ásgeir Jóhannesson, Skarphéðinn Berg Steinarsson, Stefán Hilmar Hilm- arsson og Pétur Halldórsson, starfs- maður Fons. Baugur átti um 80 pró- sent í félaginu en Fons 20 prósent. Eitt af því sem Milton gerði var að fjárfesta í hlutabréfum í bresku smá- sölukeðjunni Booker á sínum tíma. Milton átti um tíma rúmlega 30 pró- senta hlut í bresku keðjunni en seldi hlutinn um sumarið 2008 til fjárfest- ingasjóðs í eigu Kaupþings. Hagn- aður Milton í þeim viðskiptum var á þeim tíma sagður vera um 14 millj- arðar króna en Booker var sagt met- ið á rúma 52 milljarða króna. Milton er enn eitt félagið sem tengist Baugi sem er úrskurð- að gjaldþrota eftir efnahagshrun- ið 2008. Fyrir hafði Baugur sjálfur verið úrskurðaður gjaldþrota auk minni félaga sem Baugur átti í eins og Sólin skín. Líklega engar eignir Í skýrslu rannsóknarnefndar Al- þingis er fjallað stuttlega um Mil- ton þar sem rætt er um lánveiting- ar frá íslenskum bönkum til Fons og Baugs. Þar segir meðal annars: „Tvö félög úr Baugshópnum voru jafn- framt með veruleg lán, þ.e. Milton ehf. og Sólin skín ehf. en Fons átti stóra hluta í þeim félögum á móti Baugi. Um var að ræða framvirka samninga hjá þessum félögum,“ segir í skýrslunni. Skuldir Milton voru að mestu við Glitni. Skuldastaða Milton um þess- ar mundir er ókunn þar sem fé- lagið hefur ekki skilað ársreikningi síðan árið 2007. Í umfjöllun Morg- unblaðsins um lánabók Glitnis í lok janúar árið 2008 kom hins veg- ar fram að skuldir félagsins næmu 8,4 milljörðum króna. Í ársreikn- ingi Milton fyrir árið 2007 kemur sömuleiðis fram sama upphæð í er- lendri mynt, skuldir upp á rúmlega 67 milljónir punda. Eignarhlutur fé- lagsins í Booker var hins vegar sagð- ur metinn á rúmlega 12 milljarða króna. Þannig að staða félagsins var góð samkvæmt þessu þar sem eign- ir voru sagðar meiri en skuldirnar. Sögðu sig frá félaginu Vitað er að Milton seldi hlut sinn í Booker nokkrum mánuðum eftir þetta, um sumarið 2008. Þá var fé- lagið sagt hafa hagnast um 14 millj- arða á sölunni. Hlutabréfin í Booker voru jafnframt helsta eign félagsins. Enginn ársreikningur liggur hins vegar fyrir um starfsemi félagsins eftir þetta og nú hefur það verið úr- skurðað gjaldþrota. Því er ekki hægt að segja hvað varð um söluhagnað hlutabréfanna sem rann inn í Mil- ton þegar Kaupþing keypti eignar- hlutinn í Booker af félaginu 2008. Samkvæmt opinberum upplýs- ingum sem sendar voru til hlutafé- lagaskrár í kjölfar efnahagshrunsins sögðu stjórnarmenn Milton sig úr stjórn félagsins einn af öðrum eft- ir hrunið. Fyrst Jón Ásgeir Jóhann- esson í nóvember árið 2008, en þá afturkallaði hann einnig prókúru- umboð sitt hjá félaginu, og svo hættu þeir einn af öðrum, Egill Þor- varðarson, Pétur Halldórsson og loks Stefán Hilmar Hilmarsson í lok októ ber í ár. Skiptastjóri Milton, Ásgeir Þór Árnason, segir aðspurður að stutt sé síðan félagið var úrskurðað gjald- þrota og því sé ekkert að frétta að sinni um uppgjörið á því. n Félag sem var í eigu Baugs og Fons úrskurðað gjaldþrota í síðasta mánuði n Skuldirnar námu rúmum 8 milljörðum króna í árslok 2007 n Skiptastjórinn segir of snemmt að tjá sig um uppgjör félagsins ENN EITT FÉLAG BAUGS Í ÞROT „Tvö félög úr Baugshópnum voru jafnframt með veruleg lán. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Skuldaði rúma 8 milljarða Milton skuldaði rúma 8 milljarða króna í árslok 2007. Félagið var stofnað utan um fjárfestingu Baugs og Fons í bresku smásölukeðjunni Booker árið 2007. Félagið hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Hættur Jónmundur sagði sig úr stjórn Bergsins fyrr á þessu ári. Fótbrotnaði á hlaupum undan lögreglu Hann var heldur seinheppinn þjóf- urinn sem reyndi að brjótast inn í fyrirtæki í austurborginni aðfaranótt fimmtudagsins. Þjófurinn, karlmað- ur um þrítugt, hafði brotið rúðu í útidyrahurð og var á leið inn í húsið þegar til hans sást. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að maðurinn hafi þá tekið til fótanna. Því miður fyrir hann datt hann á hlaupum undan laganna vörðum og lá óvígur eftir. Hinn óprúttni aðili var enn sárþjáður þeg- ar lögreglan kom á vettvang en talið var að hann hefði fótbrotnað. Manninum, sem hefur áður kom- ið við sögu hjá lögreglu, var því ekki ekið í fangageymslu heldur strax komið undir læknishendur. Guðmundur A. Birgisson: Dæmdur til að borga 76 millj- ónir króna Guðmundur A. Birgisson, einn- ig þekktur sem Guðmundur á Núpum, hefur verið dæmdur til að greiða Landsbankanum 76 millj- ónir. Guðmundi var gefið að sök að hafa stofnað reikning í útibúi bank- ans árið 1997. Tólf árum síðar, eða í janúar 2009, námu innistæðulausar færslur á reikningnum rúmum 76 milljónum króna. Guðmundur sagði fyrir dómi að hann hafi verið í verðbréfavið- skiptum við Landsbankann og að langstærstum hluta hafi hreyfingar á reikningi hans verið vegna slíkra viðskipta. Þær hafi verið felldar á reikninginn án hans beiðni og sam- þykkis. Þá hafi hann sett tryggingar fyrir fjárhæð verðbréfaveltu af sinni hálfu en Landsbankinn farið langt yfir það. Landsbankinn ákvað að fara í mál þar sem skuldin fékkst ekki greidd þrátt fyrir innheimtutilraunir. Dómari hafnaði kröfu Guðmundar um sýknu og var honum því gert að greiða Landsbankanum upphæðina til baka ásamt dráttarvöxtum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.