Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Blaðsíða 40
Sigurður Bjarnason
fyrrv. sendiherra, alþm. og ritstjóri Morgunblaðsins
Sigurður fæddist í Vigur í Ísafjarð-
ardjúpi og ólst þar upp. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
á Akureyri 1936, lögfræðiprófi frá
Háskóla Íslands 1941 og lauk fram-
haldsnámi í lögfræði í Cambridge á
Englandi 1945.
Sigurður var ritstjóri Vesturlands
1942–50, ritstjóri Stefnis 1950–53,
blaðamaður við Morgunblaðið frá
1941, stjórnmálaritstjóri þess frá
1947 og aðalritstjóri þess 1956–70,
alþm. 1942–59, varaþm. 1959–63 og
alþm. 1963–70, forseti neðri deild-
ar Alþingis 1949–56 og 1963–70,
var sendiherra Íslands í Danmörku
1970–76 og jafnframt á Írlandi, í
Tyrklandi og fyrsti sendiherra Ís-
lands í Kína, Bretlandi 1976–82 og
jafnframt Írlandi, Hollandi og Níger-
íu, og fyrir Indland, Kýpur og Túnis
1983–85 en hann gegndi lykilhlut-
verki við heimkomu handritanna til
Íslands.
Sigurður var formaður Stúdenta-
ráðs HÍ 1938–39, formaður Stúd-
entafélags Reykjavíkur 1941–42,
forseti bæjarstjórnar Ísafjarðar 1946–
50, formaður BÍ og Norræna blaða-
mannasambandsins 1957–58, for-
maður menningarsjóðs blaðamanna
1946-62, sat í Útvarpsráði 1947–70
og formaður 1959, var einn af frum-
kvöðlum að stofnun Norðurlanda-
ráðs, formaður Íslandsdeildar þess
og forseti í ráðinu 1953–59 og 1963–
70, í Þingvallanefnd 1957-70, sat á
allsherjarþingi SÞ 1960-62, formaður
Norræna félagsins 1965–70, formað-
ur utanríkismálanefndar Alþingis og
hefur setið í fjölda opinberra nefnda.
Sigurður hefur skrifað fjölda
tímarits- og blaðagreina auk út-
varpserinda um þjóðleg og sögu-
leg efni. Hann hefur verið sæmd-
ur fjölda orða og heiðursmerkja og
sýndur annar sómi í viðurkenning-
arskyni fyrir margháttuð opinber
störf sín.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 5.2. 1956 Ólöfu
Pálsdóttur, f. 14.4. 1920, myndhöggv-
ara. Hún er dóttir Páls Ólafssonar,
útgerðarmanns og ræðismanns, og
k.h., Hildar Stefánsdóttur húsmóður.
Börn Sigurðar og Ólafar eru Hild-
ur Helga, f. 8.8. 1956, sagnfræðingur
og blaðamaður í Reykjavík, en sonur
hennar er Óðinn Páll Ríkharðsson, f.
12.4. 1994, nemi; Ólafur Páll, f. 13.6.
1960, menningar- og bókmennta-
fræðingur og MA í gerð kvikmynda-
handrita og leikstjórn.
Systkini Sigurðar: Björn, f. 31.12.
1916, d. 20.10. 1994, bóndi í Vig-
ur; Baldur, f. 9.11. 1918, d. 8.7. 1998,
oddviti og hreppstjóri í Vigur; Þor-
björg, f. 16.10. 1922, d. 7.1. 2006,
skólastjóri Húsmæðraskólans á Ísa-
firði; Þórunn, f. 14.7. 1925, fyrrv.
kennari í Reykjavík; Sigurlaug, f. 3.7.
1926, fyrrv. alþm. og kennari.
Foreldrar Sigurðar voru Bjarni
Sigurðsson, f. 24.7. 1889, d. 30.7.
1974, bóndi og hreppstjóri í Vigur, og
k.h., Björg Björnsdóttir, f. 7.7. 1889,
d. 24.1. 1977, húsfreyja.
Ætt
Bjarni var bróðir Sigurðar, sýslu-
manns á Sauðárkróki, föður listmál-
aranna Sigurðar og Hrólfs, og Árna,
pr. á Blönduósi. Bjarni var sonur
Sigurðar, pr. og alþm. í Vigur, bróður
Stefáns skólameistara, föður Valtýs
ritstjóra, föður Helgu leikkonu og
Huldu, fyrrv. blaðamanns, en syst-
ir Valtýs var Hulda, móðir Guðún-
ar Jónsdóttur arkitekts. Sigurður var
sonur Stefáns, b. á Heiði í Göngu-
skörðum Stefánssonar og Guðrúnar
Sigurðardóttur, skálds á Heiði Guð-
mundssonar.
Móðir Bjarna var Þórunn, systir
Ólafs, afa Ólafs Bjarnasonar próf-
essors. Annar bróðir Þórunnar
var Brynjólfur, langafi Þorsteins
Gunnarssonar, leikara og arkitekts.
Þórunn var dóttir Bjarna, dbrm.
á Kjaransstöðum Brynjólfssonar,
b. á Ytra-Hólmi Teitssonar, bróð-
ur Arndísar, langömmu Finnboga,
föður Vigdísar. Móðir Þórunnar
var Helga Ólafsdóttir Stephensen,
stúdents í Galtarholti Björnsson-
ar Stephensen, dómsmálaritara
á Esjubergi Ólafssonar, ættföður
Stephensenættar Stefánssonar.
Móðir Þórunnar var Anna, systir
Þórunnar, langömmu Jónasar, föð-
ur Jónasar Rafnar alþm. Anna var
dóttir Stefáns Schevings, umboðs-
manns á Leirá, og Helgu Jónsdótt-
ur, pr. á Staðastað Magnússonar,
bróður Skúla fógeta.
Meðal móðursystkina Sigurðar
var Haraldur leikari, faðir Stefáns
yfirlæknis og Jóns arkitekts, föður
Stefáns, leikara og leikstjóra. Ann-
ar bróðir Bjargar var Sigurður, faðir
Björns, læknis á Keldum, föður Sig-
urðar krabbameinslæknis, og Eddu
augnlæknis. Björg var dóttir Björns,
dbrm. og óðalsb. á Veðramóti Jóns-
sonar og Þorbjargar, systur Sigurðar,
pr. í Vigur.
Sigurður heldur upp á daginn í
faðmi fjölskyldunnar.
95 ára á laugardag
Trausti fæddist á Húsavík en ólst
upp á Laugum í Reykjadal. Hann
var í Litlu-Laugaskóla og við fram-
haldsskólann að Laugum, stund-
aði nám við Aarhus Tekniske Skole
í Árósum í Danmörku og lauk þar
prófum í margmiðlunarhönnun
2007. Þá stundar hann nú nám í
ritlist við Háskóla Íslands.
Trausti var verslunarmaður hjá
Pennanum á Akureyri í þrjú ár. Þá
starfaði hann hjá teiknistofunni
Teikn á lofti á Akureyri 2007-2009.
Trausti er áhugaljósmyndari og
hefur tekið þátt í nokkrum sam-
sýningum. Á afmælisdag Trausta
kemur út bók ritlistarnema við Há-
skóla Íslands: Beðið eftir Sigurði.
Trausti starfaði með áhugaleik-
húsinu Eflingu á Laugum og hefur
tekið þátt í nokkrum uppfærslum
þess. Sýning Eflingar, Síldin kemur
og síldin fer, var valin besta upp-
færsla áhugaleikhúss hér á landi
og sýnd af því tilefni í Þjóðleikhús-
inu 2000.
Fjölskylda
Eiginkona Trausta er Lily Erla Ad-
amsdóttir, f. 19.6. 1985, nemi í
myndlist við Listaháskólann.
Bræður Trausta eru Hjalti
Dagsson, f. 10.6. 1965, vélstjóri
á Akureyri; Atli Dagsson, f. 1.6.
1966, starfsmaður Samherja á Dal-
vík; Finnur Dagsson, f. 20.5. 1967,
byggingafræðingur á Akureyri;
Þórður Dagsson, f. 18.12. 1973,
múrari í Kópavogi.
Foreldrar Trausta eru Dagur
Tryggvason, f. 21.7. 1937, d. 18.2.
2009, bóndi, oddviti og sparisjóðs-
stjóri á Breiðanesi í Reykjadal í
Suður-Þingeyjarsýslu, og Guðrún
Friðriksdóttir, f. 9.3. 1943, hús-
freyja.
Trausti Dagsson
Nemi í ritlist við Háskóla Íslands
30 ára á föstudag
Benedikt fæddist á Akureyri en
ólst upp í Bragholti við Hjalt-
eyri. Hann var í Þelamerkurskóla,
stundaði nám við Verkmennta-
skólann á Akureyri og lauk þaðan
prófum í húsasmíði. Þá lauk hann
meiraprófi 1998.
Benedikt ólst upp við almenn
sveitastörf, starfaði hjá Gámaþjón-
ustunni á Akureyri um skeið, var
verslunarmaður hjá Nettó og um
skeið hjá Bónus, vann hjá bræðr-
unum og stórbændunum Jóni og
Gretti á Hrafnagili í hálft ár, lærði
húsasmíði hjá Sigurði Björgvini
Björnssyni og hefur starfað hjá
Samskipum frá 2009.
Fjölskylda
Eiginkona Benedikts er Lína
Björg Sigurgísladóttir, f. 16.1.
1985, starfsmaður hjá Tiger á Ak-
ureyri.
Börn Benedikts og Línu Bjarg-
ar eru Hákon Freyr Benediktsson,
f. 15.8. 2006;
Helga Fanney
Benediktsdótt-
ir, f. 15.2. 2010.
Systkini
Benedikts
eru Jónas
Helgason, f.
24.3. 1968,
starfsmaður
hjá Sandblæstri á Akureyri; Jón
Helgason, f. 5.4. 1970, flutn-
ingabílstjóri hjá Ragnari og Ás-
geiri í Grundarfirði; Sigfús Valtýr
Helgason, f. f. 10.8. 1971, lestun-
arstjóri hjá Vífilfelli í Reykjavík;
Guðlaug Bára Helgadóttir, f. 6.10.
1973, verslunarmaður hjá Bónus
í Reykjavík; Þórunn Helga Helga-
dóttir, f. 26.8. 1975, verslunarmað-
ur hjá Bónus á Akureyri.
Foreldrar Benedikts eru Helgi
Aðalsteinsson, f. 26.3. 1948, bóndi,
og Guðrún Árný Jónasdóttir, f. 4.6.
1945, bóndi og húsfreyja.
Benedikt Helgason
Flutningabílstjóri á Akureyri
30 ára á föstudag
Ægir fæddist í Neskaupstað en
ólst upp á Fáskrúðsfirði. Hann
var í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar,
stundaði nám við Verkmennta-
skóla Austurlands í Neskaupstað
og við Tækniskólann og lauk það-
an prófum í vélvirkjun.
Ægir var háseti á togurum og
fjölveiðiskipum, einkum frá Fá-
skrúðsfirði, í nokkur ár og hefur
verið vélvirki hjá Launafli á Reyð-
arfirði um nokkurt skeið.
Fjölskylda
Eiginkona Ægis er Anna María
Örnólfsdóttir, f. 25.2. 1983, há-
skólanemi.
Dóttir Ægis og Önnu Maríu er
óskírð Ægisdóttir, f. 11.12. 2010.
Systkini Ægis eru Ásta Ægis-
dóttir, f. 16.6. 1965, starfsmaður
hjá Þekking-
arneti Austur-
lands, búsett á
Fáskrúðsfirði;
Hafþór Æg-
isson, f. 30.6.
1966, tækja-
maður hjá
Vegagerðinni,
búsettur á Fá-
skrúðsfirði; Eygló Hrönn Ægisdótt-
ir, f. 2.10. 1968, endurskoðandi á
Egilsstöðum; Málfríður Hafdís Æg-
isdóttir, f. 28.1. 1970, húsmóðir á
Fáskrúðsfirði.
Foreldrar Ægis eru Ægir Krist-
insson, f. 8.2. 1943, fyrrv. hafnar-
vörður á Fáskrúðsfirði, og Sigríður
Guðbjörg Guðmundsdóttir, f. 15.1.
1947, starfsmaður við hjúkrunar-
heimilið á Fáskrúðsfirði.
Sigurður Ægir Ægisson
vélvirki
Janina Laskowska
matráðskona í Reykjavík
Janina fæddist í Stare Juchy í Pól-
landi, þar sem hún ólst upp og bjó
þar til hún fluttist til Íslands árið
1981. Hún lauk gagnfræðanámi í
Póllandi og tveggja ára námi í bú-
fræðum.
Janina starfaði hjá Brauðbæ
1981–86, hjá Kjötmiðstöðinni 1986–
90, var ræstingastjóri á Hótel Sögu
1990–1992 og hefur verið matráðs-
kona við mötuneyti Símans frá 2001.
Fjölskylda
Janina giftist 16.5. 1981 Þorvaldi
R. Valssyni, f. 8.12. 1946, lofskeyta-
manni og yfirsímritara. Hann er
sonur Vals Sigurbjarnasonar, f. 13.9.
1917, d. 21,12, 1998, vélstjóra og sjó-
manns í Reykjavík, og k.h., Ólínu
Kristínar Þorvaldsdóttur, f. 13.4.
1921, d. 17.2. 1987, húsmóður.
Synir Janinu og Þorvalds eru
Andrés Pétur Þorvaldsson, f. 6.9.
1992, nemi; Kristján Þórður Þor-
valdsson, f. 6.9. 1992, nemi.
Systkini Janinu: Danuta, f. 22.2.
1949, húsmóðir í Reykjavík, gift Zyg-
mund Pawlik trésmið og eiga þau
þrjá syni sem búsettir eru á Íslandi;
Piotr, f. 20.10. 1950, lést í frum-
bernsku; Jagoda, f. 15.1. 1952, hár-
skeri í Póllandi en hennar maður
var Michat bifvélavirki sem er látinn
og eignuðust þau þrjú börn sem öll
eru búsett á Íslandi; Stanislaw, f. 1.3.
1955, d. 1958; Andrzej, f. 11.2. 1959,
d. 1983; Regina, f. 9.1. 1963, d. 2.6.
1990, smurbrauðsdama í Reykjavík,
var gift Friðjóni Steinarssyni toll-
þjóni.
Foreldrar Janinu: Míeczyslaw
Laskowskí, f. 17.9. 1925, d. 1986,
bóndi og hreppstjóri í Stare Juchy í
Póllandi, og Genowefa Laskowska, f.
17.1. 1928, húsmóðir.
50 ára á laugardag
40 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kgk@dv.is 17.–19. desember 2010 Helgarblað
30 ára á föstudag