Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Blaðsíða 11
Bókaútgá fan Opna · Sk ipho l t i 50b · 105 Reyk j av í k · s ím i 578 9080 · www.opna . i s
Heimsreisa bragðlaukanna
Heima og heiman
Heimsreisa bragðlaukanna
Meistarakokkurinn Gordon Ramsay er í miklum
metum, ekki hvað síst vegna þess hversu auðvelt er
að fylgja uppskriftum hans. Í þessari stóru og
glæsilegu bók fá lesendur að kynnast lykilréttum úr
matarmenningu Mið-Austurlanda, Taílands,
Bandaríkjanna, Kína, Indlands, Spánar, Frakklands,
Ítalíu, Grikklands og Bretlands.
Þessi bók á erindi í öll íslensk eldhús.
Heimsmynd tungumálanna
Tungumál veraldar segja lifandi menningarsögu. Í
þessari glæstu bók er boðið til mikillar reisu, þar
sem lesendur kynnast eitt þúsund tungumálum
um veröld víða. Lýst er bakgrunni þeirra, sögu,
tengslum við önnur mál og sérkennum. Með hjálp
fjölbreytilegra ljósmynda, skýringarmynda og
landakorta opnast heillandi veröld - aðgengileg
og umfram allt bráðskemmtileg.
Kærleikur og von
Í fimmtán ár ferðaðist listaljósmyndarinn Ken Opprann
um heiminn og myndaði fólk á fundi við guð sinn.
Hann var viðstaddur ótal trúarhátíðir helstu
trúarbragða heims, vitjaði helgistaða og sótti fólk
heim. Myndirnar bera vitni falslausri einlægni og
þrotlausri leit að þeim mætti sem er æðri öllum
skilningi.
Bókin geymir einnig glögga umfjöllun um Hindúasið,
Kristindóm, Gyðingdóm, Búddasið og Íslam.
„Pétur er einn af orðlögðustu
ferðagörpum sinnar tíðar.“
Páll Ásgeir Ásgeirsson
Fjöll á Fróni er þriðja fjallabók Péturs, áður
skrifaði hann Fólk á fjöllum og Íslensk fjöll í
félagi við Ara Trausta Guðmundsson.
Í þessari bók kynnumst við Pétri nánar í
ítarlegu viðtali Páls Ásgeirs Ásgeirssonar.
Pétur Þorleifsson er frumkvöðull í fjalla-
ferðum. Hér lýsir hann göngu á 103 fjöll, há
sem lág, löngum göngum og stuttum - fyrir
alla fjölskylduna. Hverri göngulýsingu fylgir
greinargott kort.
Jökulsárlón á Breiðamerk rsandi hefur á
síðustu árum orðið nokkurs konar
táknmynd Íslands í augum umheimsins.
Aðdráttarafl staðarins er með ólíkindum
og umhverfið magnað. Þorvarður Árnason
hefur tekið myndir af Lóninu á öllum
árstímum og við ólík veðurskilyrði - við blasir
heillandi veröld sem er lyginni líkust.
Bókin fæst í enskri, franskri og þýskri útgáfu,
auk þeirrar íslensku.
Táknmynd Íslands Fjöllin laða og lokka
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Lesið í landið
Bókin lýsir jöklum þessa lands og sambúð
þjóðarinnar við þá frá upphafi byggðar til
okkar daga, sögu jöklarannsókna og hvernig
jöklar hafa mótað landið og eytt.
Margverðlaunuð bók.
„Þessi bók á mikið erindi til allra Íslendinga, ekki síst
hinna ferðaglöðu. Hún opnar augu allra sem hafa
unun af að lesa í landið fyrir undrum náttúru-
aflanna. Þeir munu líta landið öðrum augum eftir
lesturinn.“
Guðni Einarsson, Mbl.