Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Side 11
Bókaútgá fan Opna · Sk ipho l t i 50b · 105 Reyk j av í k · s ím i 578 9080 · www.opna . i s Heimsreisa bragðlaukanna Heima og heiman Heimsreisa bragðlaukanna Meistarakokkurinn Gordon Ramsay er í miklum metum, ekki hvað síst vegna þess hversu auðvelt er að fylgja uppskriftum hans. Í þessari stóru og glæsilegu bók fá lesendur að kynnast lykilréttum úr matarmenningu Mið-Austurlanda, Taílands, Bandaríkjanna, Kína, Indlands, Spánar, Frakklands, Ítalíu, Grikklands og Bretlands. Þessi bók á erindi í öll íslensk eldhús. Heimsmynd tungumálanna Tungumál veraldar segja lifandi menningarsögu. Í þessari glæstu bók er boðið til mikillar reisu, þar sem lesendur kynnast eitt þúsund tungumálum um veröld víða. Lýst er bakgrunni þeirra, sögu, tengslum við önnur mál og sérkennum. Með hjálp fjölbreytilegra ljósmynda, skýringarmynda og landakorta opnast heillandi veröld - aðgengileg og umfram allt bráðskemmtileg. Kærleikur og von Í fimmtán ár ferðaðist listaljósmyndarinn Ken Opprann um heiminn og myndaði fólk á fundi við guð sinn. Hann var viðstaddur ótal trúarhátíðir helstu trúarbragða heims, vitjaði helgistaða og sótti fólk heim. Myndirnar bera vitni falslausri einlægni og þrotlausri leit að þeim mætti sem er æðri öllum skilningi. Bókin geymir einnig glögga umfjöllun um Hindúasið, Kristindóm, Gyðingdóm, Búddasið og Íslam. „Pétur er einn af orðlögðustu ferðagörpum sinnar tíðar.“ Páll Ásgeir Ásgeirsson Fjöll á Fróni er þriðja fjallabók Péturs, áður skrifaði hann Fólk á fjöllum og Íslensk fjöll í félagi við Ara Trausta Guðmundsson. Í þessari bók kynnumst við Pétri nánar í ítarlegu viðtali Páls Ásgeirs Ásgeirssonar. Pétur Þorleifsson er frumkvöðull í fjalla- ferðum. Hér lýsir hann göngu á 103 fjöll, há sem lág, löngum göngum og stuttum - fyrir alla fjölskylduna. Hverri göngulýsingu fylgir greinargott kort. Jökulsárlón á Breiðamerk rsandi hefur á síðustu árum orðið nokkurs konar táknmynd Íslands í augum umheimsins. Aðdráttarafl staðarins er með ólíkindum og umhverfið magnað. Þorvarður Árnason hefur tekið myndir af Lóninu á öllum árstímum og við ólík veðurskilyrði - við blasir heillandi veröld sem er lyginni líkust. Bókin fæst í enskri, franskri og þýskri útgáfu, auk þeirrar íslensku. Táknmynd Íslands Fjöllin laða og lokka H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Lesið í landið Bókin lýsir jöklum þessa lands og sambúð þjóðarinnar við þá frá upphafi byggðar til okkar daga, sögu jöklarannsókna og hvernig jöklar hafa mótað landið og eytt. Margverðlaunuð bók. „Þessi bók á mikið erindi til allra Íslendinga, ekki síst hinna ferðaglöðu. Hún opnar augu allra sem hafa unun af að lesa í landið fyrir undrum náttúru- aflanna. Þeir munu líta landið öðrum augum eftir lesturinn.“ Guðni Einarsson, Mbl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.