Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Blaðsíða 31
að ég mætti nota á hvaða máta sem ég vildi. Mér finnst útkoman mjög falleg.“ Innlegg Bjarkar hefur vitanlega vakið mikla athygli og í viðtölum er Ólöf iðulega spurð út í samstarfið. „Við höfum grínast með það hvernig það var ætlun hennar að læðast inn í lag hjá vinkonu sinni, en vegna þess hversu þekkt stærð röddin hennar er orðin eftir langan feril kæmist hún ekki upp með það. Dáldið eins og ég sé lítill söngfugl á grein á Þingvöllum og svo kemur hún eins og páfugl sem hlammar sér á greinina við hliðina á mér, þannig að greinin svignar. Páfuglabrandarinn fór síðan heilan hring þegar ég endaði á að taka upp myndbandið við lagið inni í skógi á Þingvöllum." Gaf sjálfri sér loforð Ólöf gaf sér loforð um að verða tón- listarmaður þegar hún var 12 ára og finnst tónlistin vera það mikil- vægasta í lífi sínu. „Ég er alin upp við mikinn söng og klassíska tónlist. Nám mitt í tónlist stundaði ég frá sex ára aldri til 26 ára aldurs. Ég var upp- tekin af tónlist alla barnæskuna en það var þegar ég var 12 ára sem ég lofaði sjálfri mér að sinna henni af heilum hug og ég held mér hafi tekist að halda það loforð.“ Ólöf segist hafa verið opin og glaðlynd að upplagi sem barn. „Mér fannst gaman að öllu svona bralli og var alltaf með stórar hugmyndir um að búa til alls kyns hluti. Til dæmis í fyrsta skipti sem ég sá ljósritunar- vél þá sagði ég: Er þá hægt að búa til bækur með þessu tæki? Það var svo mikill framkvæmdavilji í mér og ég þurfti alltaf að vera á fullu spani. Sem betur fer var ég alin upp við það að orku minni var beint í skapandi far- veg.“ Skrifar í kollinum Hjá Ólöfu fæðast melódíur úr ólíku hugarástandi og hún skrifar lögin í kollinum á sér. „Ég skrifa mikið í kollinum og svo þegar ég er búin að ganga með þau í svolítinn tíma þá þarf ég að fara að prófa þau á ýmis hljóðfæri og finna þeim farveg. Mér finnast oft melódíur fæðast úr ólíku hugarástandi. Til dæmis ef ég á gott samtal við manneskju sem gefur mér innblástur þá getur það gefið mér laglínur og heilu lögin. Ég er líka oft að skrifa texta um fólk sem er mér náið. Fyrsta plata mín var um fjölskylduna, næsta um vini mína, svo sjáum við til hvað gerist næst. Ég er með 20 lög í kollinum núna, belgurinn er orðinn fullur og ég þarf að fara að tappa af honum. Ég sé það að setja saman tónlist ekki sem fyrirframákveðið verk heldur nota frjálsa aðferð. Kannski væri ég til í að prófa að setja mér einhverja parametra og sjá hvað gerist inn- an þeirra. Það gæti verið áhugaverð leið.“ Velgengni Ólafar hefur skilað henni spennandi verkefnum á nýju ári. Eftir áramót ferðast hún til Ástr- alíu og Tasmaníu og heldur tónleika sjálf og hitar upp fyrir hljómsveit Nick Cave, Grinderman. „Mér finnst frábært að fá að spila á undan Nick Cave í hans heimalandi, ég hafði ráðgert að fara í tónleikaferð til Ástr- alíu á eigin vegum og það fréttist til Nick Cave sem hafði í framhaldinu samband við mig og bað mig um að hita upp fyrir sig.“ ÓTRÚLEG VELGENGNI Nýlega kaus iTunes lag Ólafar Madrid sem lag ársins, breska tímaritið Uncut nefndi plötuna hennar Innundir skinni sem eina af topp 50 plötum 2010 og gaf henni að auki fjórar stjörnur. Það gerði líka hið víðfræga MOJO-tímarit sem sagði hana að auki vera næstu Kate Bush. Dagblöðin Guardian og The Wall Street Journal fjölluðu um Ólöfu á heilli síðu og á BBC var fjallað um hana sem einn eftirtektarverðasta listamann ársins en þar flutti hún tónlist sína. Rómantískar kvikmyndir Fyrir jólin er nauðsynlegt að horfa á að minnsta kosti eina rómantíska gamanmynd. You Will Meet a Tall Dark Stranger er rómantískur farsi frá meistara Woody Allen. Leikarahópurinn er ekki af verri endanum og Antonio Banderas, Josh Brolin, Anthony Hopkins, Freida Pinto og Naomi Watts gera sér mat úr bitastæðum hlutverkum og kostulegum samræðum en þau eru öll sögð fara á kostum. Fyrir þá sem ekki komast í bíó mælum við með nokkrum gömlum og rómantískum sem hægt er að skella í tækið heima: Casablanca, City Lights, Eternal Sunshine of the Spotless Mind, It‘s a Wonderful Life, Scrooge og Love Actually. Skeggtískan skeggrædd Í Þjóðminjasafninu stendur sýningin Klippt og skorið – um skegg og rakstur yfir í Horninu út árið. Á sýningunni eru ljósmyndir úr Ljósmyndasafni Íslands sem gefa mynd af skeggtísku á Íslandi í gegnum tíðina. Eins getur að líta ýmsa gripi sem tengjast rakstri og umhirðu skeggs. Gripirnir voru ýmist í einkaeigu eða notaðir á rakarastofum. Fókus | 31Helgarblað 17.–19. desember 2010 Hvað er að gerast? n Gleðileg X-mas, kæru Stígamót Á árlegum X-mas tónleikum X-ins 977 stíga fjölmörg íslensk bönd á svið, Dikta, Endless Dark, Ensími, Cliff Clavin, Agent Fresco, XIII, Bloodgroup, 59‘s, Jónas Sigursson og Ritvélar framtíðar- innar, Sing for me Sandra, Hoffman, Bárujárn, Króna, Noise og High Class Monkey. Tónleikarnir fara fram á Sódómu Reykjavík. Húsið er opnað kl. 20 og hálftíma síðar hefst dagskráin. Aðgangseyrir er 977 kr. og allur ágóði rennur til Stígamóta. n Jólastuð í Kling og Bang Myndlist er besta jólagjöfin, segja aðstandendur Kling og Bang sem eru í miklu jólastuði. Þar verður opið frá 16 til 22 á föstudag, en frá 12 til 22 á laugar- dag og sunnudag. Myndlistarverk verða til sýnis og sölu, vöruhönnuðir verða með jólamatarfínerí og almenn jólagleði verður við völd. n Trúðslæti í Sinfónínunni Á jólatónleik- um Sinfóníunnar munu dansarar úr Listdans- kólanum dansa dansa úr Hnotubrjótnum, jólaforleikurinn tekur á eftirlætisjólalögunum, Hera Björk syngur og trúðurinn Barbara heldur utan um veisluna og sér til þess að bæði börn og foreldrar skemmti sér konunglega. Tónleikarnir verða haldnir kl. 17 í Háskólabíói. 17. DES Föstudagur 18. DES Laugardagur n Skálað fyrir UNIFEM í Nikita Jólin nálgast óðfluga og að því tilefni ætlar UNIFEM á Íslandi að bjóða gestum og gangandi í jólaglögg. Skálað verður í Nikita-búðinni á Laugavegi milli 16–18 þar sem Elín Ey mun syngja fyrir gesti og hljómsveitin Of Monsters and Men tekur lagið. Eins og fyrr segir verður boðið upp á jólaglögg og piparkökur auk þess sem ristaðar möndlur verða seldar til styrktar UNIFEM. n Sætustu strákarnir á Nasa Páll Óskar verður gördjöss á Nasa. Hann þeytir skífum af snilld alla nóttina, spilar uppáhaldspartílögin og syngur sín bestu lög með stælum. Bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónsson mæta sem sérstakir gestir hans. Sem sagt, þrír sætustu strákarnir í bransanum gera það sem þeir elska að gera. Gestir eru sérstaklega hvattir til þess að taka myndavélarnar sínar með því Palli elskar að pósa með þeim. Miðinn kostar 1.500 kr. í forsölu en 2.000 kr. við innganginn. n Jólagleði Kaffibarsins Kvenfélag Kaffibarsins og Karlakórinn Bartónar kynna Jólagleði 2010. Kvenfélagið verður með jóla- kökubasar og jólakakó í boði hússins klukkan 15. Karlakór, eða kallakór eins og hann er kallaður, hefur upp raust sína klukkan 17 og syngur jólin inn í hjörtu viðstaddra. n Sálin á Sjallanum Langt er liðið frá því að þessi lífseiga sveit tróð síðast upp á Akureyri og væntanlega alllangt að bíða þess að Sálverjar fari aftur norður, því um áramótin ætla þeir í pásu um óákveðinn tíma. Því verður þetta ein- stakt tækifæri fyrir íbúa norðan heiða að skella sér á Sálarball. Mega þeir eiga von á nýjum lögum í bland við helstu smelli sveitarinnar. 19. DES Sunnudagur n Syngja fyrir Fjölskylduhjálp Íslands Talið er að um 2.000 fjölskyldur muni þiggja aðstoð Fjölskylduhjálpar Íslands nú fyrir jólin. Nú getur þú tekið þátt í að styrkja gott málefni um leið og þú átt notalega kvöldstund. Því þau Ragnheiður Gröndal, Björn Thoroddsen og Guitar Islancio, Þrjár raddir og Beatur og Ari Eldjárn ætla að koma fram í Norðurpólnum. Uppákoman hefst kl. 20. Miðaverð er 2.500 kr. og ágóðinn rennur óskertur til Fjölskylduhjálpar Íslands. n Skautað í kringum jólatré Í Skautahöll- inni er búið að setja upp fagurskreytt jólatré á miðju svellinu sem skautað verður í kringum við jóladiskótónlist fram á nýja árið. Frá og með 20. desember verður Skautahöllin opin frá kl. 13–18 alla daga, nema á aðfangadag og jóladag, þá er lokað. Í Grasagarðinum er búið að opna Café Flóru aftur vegna aðventunnar. Er kaffihúsið opið á milli 13 og 18. Í garðskálanum er jólabasar og býðst börnum að skreyta tré til styrktar langveikum börnum. Þá ætlar Grýla að halda jólaveislu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, boðið er upp á hestvagnaferðir um garðinn um helgar og litla jólasmiðju í Hafrafelli. „Það var svo mikill framkvæmdavilji í mér og ég þurfti alltaf að vera á fullu spani. Sem betur fer var ég alin upp við það að orku minni var beint í skapandi farveg. Reynir að halda jarðsambandi „Mér finnst eins og allt umstangið sé eins og fyrir einhverja aðra en mig,“ segir Ólöf vegna lofsins sem ausið er yfir hana þessa dagana. Bravó, Baggalútur! „Hver þarf sælgæti þegar maður hefur svona eyrnakonfekt?“ spurði kona fyrir aftan mig félaga sinn á jólatónleikum Baggalúts í Háskóla- bíói á mánudagskvöldið. Eftir því sem á sælgætispokann minn gekk rann það skýrar upp fyrir mér að bet- ur væri vart hægt að komast að orði. Með nagandi samviskubit kláraði ég síðasta molann og laumaði pokan- um tómum í vasann, vel fyrir hlé. Ég hefði ekki þurft nammið. Á sviðinu, þetta dísæta mánu- dagskvöld, voru að minnsta kosti 14 listamenn. Þrír frábærir léku á blást- urshljóðfæri, tveir börðu skinnhúð- ir, þrír þöndu raddböndin, nokkr- ir léku á gítara, bassa og tveir léku á hljómborð – eða einhvers konar. Líkt og Jesús (sem reyndist vera hljóðmaðurinn) birtist Megas upp úr þurru eftir hlé og Sigurður Guð- mundsson lék allan tímann með hljómsveitinni og tók til viðbótar ein tvö lög af nýrri plötu; hið fyrra engu síðra en frábært. Til að gera langa sögu stutta er óhætt að segja að tónleikarnir hafi farið fram úr öllum þeim vænt- ingum sem ég, aukvisinn í tón- list, geri til slíkra viðburða. Ég hef enga faglega þekkingu á músík en við betri helmingurinn áttum frá- bæra stund í Háskólabíói. Hlátra- sköll, gæsahúð, kökkur í hálsi, tár á hvarmi og stór augu voru á boðstól- um, rétt eins og á vel útilátnu þorra- hlaðborði. Baggalútar, með þá Guðmund Pálsson og Karl Sigurðs- son í broddi fylkingar, fóru á kost- um á sviðinu og smituðu tónleika- gesti með lýtalausum söng sínum og þess á milli hárbeittri kímnigáfu, eins og þeir eru þekktir fyrir. Texta- brotin „Gefðu mér jólaknús, eitt fyrir Jesús“ og „Vertu nú knúsfús,“ bera hugmyndaauðgi textasmiðs- ins Braga Valdimars Skúlasonar vitni; hann er í sérflokki. Tónleikarnir voru frábær skemmtun; gleði Baggalúta og með- spilara skilaði sér alla leið, svo unun var á að hlusta. Þrír tímar liðu eins og korter. Bravó, Baggalútur! baldur@dv.is Jólatónleikar Baggalúts Háskólabíó 13. desember Tónleikar Eyrnakonfekt Gleði Baggalúta smitaði tónleikagesti í Háskólabíó.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.