Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Blaðsíða 26
Aumingja kerlingarhróið hún Jórunn frá Brún – alltaf tókst henni að standa þar sem veðr- ið var verst. Þegar Gunnar hross- haus, eiginmaður hennar, frétti að hún hefði sofið hjá nær öllum körl- um í einhverjum kaupstað, þá svar- aði karlinn og sagði: Tja, plássið okk- ar er engin stórborg. Og þannig var með þau hjónin að alltaf sáu þau bestu hliðarnar á öllum málum. Voru ekki að væla yfir eigin mistökum ef hægt var að þræta. Og þeim var svo náttúruleg sú yndislega ósvífni að hagræða sannleika að erf- itt er í seinni tíð að finna fólk sem náð hefur slíkri færni. En þó kemur mér í hug nafn manns sem kannski fer með hælana þar sem þau hjónin höfðu tærnar. Og þar er á ferð enginn annar en Dabbi litli blaðberi. Einhverju sinni talaði Dabbi litli blaðberi um það að ógeðslegir menn hefðu boðið honum mútur. Þetta var á þeim árum er hann var opinber starfs- maður og var að undirbúa þann stóra glæp sem síðar varð að bankahruni og efnahagskreppu. En í dag minnist Dabbi litli ekki á mútur þegar Launa- sjóður íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) mokar í hann klinki. Reyndar veit hann, að á hinum falsaða peningi eru tvær hliðar: Svo lengi sem Dabbi litli blaðberi mærir hið rotna kerfi kvóta- kónganna, fær hann að hella úr skál- um reiði sinnar, sverja af sér sakir og ljúga öllu sem hann langar til að ljúga. Flestir Íslendingar eru vissir um að Dabbi litli blaðberi sé bannsett- ur bjáni. En ég er á annarri skoðun – ég veit að hann er slóttugur, þótt ekki ætli ég að gera neitt sérstaklega mikið úr greind hans. Og manngæsku hans veit ég ekkert um. Dabbi litli veit að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er besta ríkisstjórn íslenska ríkisins frá upphafi vega. En hann veit einn- ig að ef þessi staðreynd kemst í há- mæli þá glatar Sjálfstæðisflokkur- inn þeim uppdiktaða trúverðugleika sem hann er frægur fyrir. Það hefur nefnilega komið í ljós, kæru lesend- ur, að brauðmolarnir sem féllu af veisluborði velmegunarinnar voru öllu dýrari en gefið var í skyn á sínum tíma. Og leynir hann Dabbi litli. Nú er Dabbi litli blaðberi óskilget- ið afkvæmi þeirra hjóna, Jórunnar frá Brún og Gunnars hrosshauss. Snáð- inn hefur auðvitað erft alla bestu eiginleika foreldranna, þótt eitthvað meira fari fyrir þeim slæmu kostum sem þau lögðu til. En það segja, mér eldri og reyndari menn, að erfitt sé að komast í gegnum lífið án þess að fá svartan blett á tunguna stöku sinn- um. Til er fólk sem ferðast kann svo frjálst á bleiku skýi, það fegrar sjálfan sannleikann með sinni bestu lygi. 26 | Umræða 17.–19. desember 2010 Helgarblað FÁTÆKT HINNA FALLEGU „Ekki lengur, því ég verð fyrir ótrúlegu áreiti frá fullu fólki í miðbænum. Einu sinni fannst mér þetta mjög fyndið en ég er komin með leið á bull- inu núna.“ n Fatlaða stjórnlagaþingkonan Freyja Haraldsdóttir er hætt að fara út á lífið vegna áreitis. – Monitor „Það væri gríðarlega gaman að keppa fyrir Íslands hönd.“ n Jón Þór Sigurðsson, eða Nonni kjuði, trommari vinsælustu hljómsveitar landsins, Diktu, gæti verið á leiðinni til Liechtenstein næsta sumar að keppa í skotfimi á Smáþjóðaleikunum. – Frétta- blaðið „Það var virkilega sætt og gaman að tryggja okkur sigurinn.“ n Handknattleiksmaðurinn Aron Pálmarsson tryggði Kiel sigur á Lübbecke í bikarnum með marki á lokasekúndum leiksins. – Morgunblaðið „Við vitum samt að við höfum getuna til þess að vinna öll lið í deildinni.“ n Reynir Þór Reynisson, þjálfari N1-deildar liðs Fram, er ánægður með árangurinn hingað til en Fram er eina liðið sem hefur unnið Akureyri á tímabilinu. – Fréttablaðið Sólristruflanir á þingi Það gerist með reglulegu millibili að ákveðnir þing-menn missa jarðtenging- una og reyna að stjórna því hvenær sólin kemur upp. Guðmundur Steingríms- son, Róbert Marshall, Árni John- sen, Sigmundur Ernir Rúnars- son og fleiri nýir þingmenn hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að seinka klukkunni um eina klukkustund, svo að sólin rísi fyrr á morgnana. Réttlætingin er að sú að ennþá sé nótt þegar við vöknum á morgnana stóran hluta vetrar og því sé erfitt fyrir fólk að fara á fætur. Þetta þýðir að vísu að loksins þeg- ar fólk fer út að gera eitthvað eftir vinnu, sest sólin klukkutíma fyrr. Frá 4. nóvember til 28. janúar nær sólin ekki að vera á lofti yfir Reykjavík fram yfir vinnulok klukk- an 17. Á þessu tímabili er alltaf myrkur við lok vinnudags. Ef þing- mönnunum tekst að færa klukk- una þarf fólk að bíða til 15. febrúar til að sjá sólina á lofti eftir vinnu- tíma. Fólk þarf að þola í heildina meira en mánuð í viðbót af myrkri eftir vinnu. Þá kæmi eflaust upp sú frábæra hugmynd að flýta klukk- unni, svo fólk hefði einhverja birtu í frítímanum eftir vinnu. Tilfærsla á sólartíma er hámark tilgangsleysis alþingismanna. Ef þeir finna enga mikilvægari leið til að verja tíma sínum en að horfa til himintunglanna vita þeir ekki hvað klukkan slær. Það hefur sjaldan verið meira af mikilvægum, óleyst- um verkefnum fyrir þingmenn. Það þarf að endurmóta fjármála- kerfið, uppræta spillingu, skapa aðstæður til atvinnusköpunar og finna leiðir til að skera niður með sem minnstum skaða fyrir verst stadda landsmenn, og án þess að rústa millistéttinni og eyðileggja þar með endurreisnina, svo eitt- hvað sé nefnt. Þegar allt kemur til alls erum við að borga þessum mönnum laun fyrir þessa vinnu. Annaðhvort er þeim ofaukið eða þeir þurfa að breyta forgangsröðun sinni. Sam- félag okkar beið skipbrot og þing- mennirnir eru í vinnu við að móta það upp á nýtt. Nú er ekki tíminn fyrir þá til að vinna að því að sól- in rísi á öðrum tíma en nú, hvað þá að haga því þannig að hún rísi svo snemma á morgnana að við vinn- um fram á nótt mánuði lengur á árinu. Þorgerður iðrunarlaus n Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir alþingismaður er sá ráðherra sem stærsta ábyrgð ber varðandi oftöku Menntaskólans Hraðbrautar á opinberu fé. Þor- gerður mætti í morgunþáttinn Í bítið á Bylgjunni á miðvikudag þar sem hún var spurð um mál- efni Hraðbraut- ar sem DV opnaði á sínum tíma og Ríkisendurskoðun hefur staðfest. Þorgerður var laus við iðrun vegna afglapa sinna og taldi að opinberu skólarnir hefðu líka oftekið fé. Aug- ljóst var að ráðherrann fallni taldi það vera smámál að skólinn fékk 192 ofgreiddar milljónir og stjórn- endur greiddu sér stórfé í arð. Guðfríður fann Buchheit n Svo er að sjá sem það hafi verið gæfuspor hjá ríkisstjórninni að fá Lee Buchheit til að semja um Icesave. Himinn og haf eru á milli samn- ings hans og þess sem Svavar Gestsson, guð- faðir VG, gerði á sínum tíma. Það var þingmaður- inn Guðfríður Lilja Grétarsdóttir sem á sínum tíma fékk Buchheit til verks- ins. Guðfríður er í órólegu deildinni í VG sem meðal annars vann sér til óhelgi að hafa hafnað samningi Svavars. Hún er nú í fæðingarorlofi en snýr aftur á þing í vetur. Birgitta vill pening n Einn skrýtnasti og poppað- asti stjórnmálaflokkur á Íslandi er Hreyfingin. Þingmenn þess flokks komust inn fyrir tilstilli þeirrar öldu sem reis með Borgarahreyfingunni. Þingmenn Borgarahreyfingarinn- ar, undir forystu Birgittu Jónsdóttur, hlupust undan merkjum og stofn- uðu Hreyfinguna. Við afgreiðslu fjárlaga í vikunni hafði þessi hópur þá einu athugasemd að þjóðin ætti að styrkja hann um 26 milljónir króna en Borgarahreyfingin fær nú þá peninga. Mótmælandi á Saga Class n Víst er að stjórnarsinnar kætast yfir fjárlagabetli Hreyfingarinn- ar. Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, átti bágt með sig þegar hann sagði frá því að það eina sem Hreyfingin hefði fram að færa varðandi fjárlögin væri að hún fengi sjálf veglegt framlag. Birgitta Jónsdóttir þing- flokksformaður hefur reyndar átt undarlega spretti. Hún er þekkt fyrir að bregða sér úr þingsalnum til að mótmæla fyrir utan. Og þegar hún ferðast milli landa bregður við að hún geti ekki setið á almennu far- rými heldur noti Saga Class eins og önnur fyrirmenni samfélagsins. Sandkorn TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is Umsjón innblaðs: Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is DV á netinu: dv.is Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010, Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050. Smáauglýsingar: 512 7004. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Leiðari Bókstaflega Svarthöfði hefur í gegnum tíðina verið tilfinningavera. Honum renna mjög til rifja þau bágindi sem hellast yfir fólk sem hefur haft það gott. Þannig sárvorkennir Svarthöfði sómahjón- ununum Stefáni Hilmarssyni, fyrr- verandi fjármálastjóra Baugs, og Friðriku Geirsdóttur sjónvarpsdís. Hjónin hafa í gegnum tíðina búið við allsnægtir en nú hefur hann verið gerður gjaldþrota. Og ekki nóg með það þá hefur skiptastjóri hótað að hirða af þeim listaverk og aðra verðmæta lífsfyllingu. Þau mega aðeins halda látlaust heimili. Til að hámarka forherðinguna þá brást skiptastjóri trúnaði við þrota- hjónin. Og nú er Stefán á leiðinni til Luxemborgar þar sem hann mun líklega búa við örbirgð. Annað par á einnig í mikl-um erfiðleikum. Hjón-in Kristján Arason, hand- boltastjarna og fjármálasnillingur, og Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, þingmaður og fyrrverandi ráðherra, gátu ekki greitt tveggja milljarða skuld sem tilkomin var vegna kúluláns. Félag þeirra 7 hægri er gjaldþrota. Þetta er auð- vitað gríðarlegt áfall fyrir parið sem hefur lifað í vellystingum og dettur nú úr háum söðli. Sauðsvartur almúginn sem þarf að velta fyrir sér hverjum þúsundkalli verður að átta sig á því áfalli sem þeirra marg- blessaða fólk hefur orðið fyrir. Þeir sem eru litlu vanir geta vel lifað við knappan kost. Hinir upplifa svartnætti. Þorgerður Katrín á erfitt með að ganga í fjöldaframleidd- um fötum. Hún er meira fyrir sér- saumað. Og Rikka sjónvarpsstjarna hefur vanist því að borða á dýrum veitingastöðum og hafa húshjálp. Nú fer hún í hamborgarana og þarf sjálf að skúra, skrúbba og bóna ásamt eiginmanni sínum. Og þetta góða fólk þarf hugsanlega að eiga sömu bílana árum saman. Það kann ekki einu sinni að fara með bíl í skoðun. Þjóðin verður að sýna samhug gagnvart þessu fólki eins og öðrum sem lenda í sárum missi og raunum. Eðlilegt er að efna til landssöfnunar í þeirra þágu og aflétta risavöxnu kúluláninu af Kristjáni og Þorgerði. Þá þarf að hjálpa þeim Friðriku og Stefáni að endurheimta málverk sín og önn- ur verðmæti. Nú verður þjóðin að standa saman og bjarga sínum feg- urstu börnum undan skuldaklafan- um ógurlega. Við megum ekki við því að missa hæfileikafólk í örbirgð til útlanda. Slagorð söfnunarinnar gæti verið: Björgum fallega fólkinu frá fátækt. Svarthöfði Jón Trausti Reynisson ritstjóri skrifar„Tilfærsla á sólar- tíma er hámark tilgangsleysis alþingis- manna. Maðurinn sem missti sig Skáldið skrifar Kristján Hreinsson „Dabbi litli veit að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er besta ríkisstjórn íslenska ríkisins frá upphafi vega.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.