Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Blaðsíða 22
22 | Erlent 17.–19. desember 2010 Helgarblað
Richard Holbrooke, sérlegur erindreki í Miðausturlöndum, lést eftir erfiða skurðaðgerð:
Enn eitt áfallið vestanhafs
Bandaríska utanríkisráðuneytið
varð fyrir miklu áfalli í vikunni þegar
sérstakur erindreki þeirra í Afganist-
an og Pakistan, Richard Holbrooke,
lést á þriðjudag. Holbrooke þjáðist
af ósæðarrofi og þurfti þess vegna
að gangast undir tímafreka og flókna
aðgerð þar sem tilraun var gerð til að
koma fyrir gerviósæð. Aðgerðin bar
ekki árangur. Holbrooke var 69 ára
að aldri og hafði starfað í utanríkis-
þjónustu Bandaríkjanna í rúmlega
40 ár. Stjórnmálaskýrendur vest-
anhafs segja að hann skilji eftir sig
skarð sem verður erfitt að fylla.
Holbrooke er sennilega þekkt-
astur fyrir að vera höfundur Day-
ton-samkomulagsins ásamt núver-
andi utanríkisráðherra Svíþjóðar,
Carl Bildt. Í Dayton-samkomulag-
inu, sem var undirritað árið 1995,
var samið um frið í stríðinu í fyrr-
um Júgóslavíu á Balkanskaga. Hol-
brooke þótti góður samninga-
maður þó margir hafi talið hann
fullharðan í horn að taka. Það bar
í það minnsta árangur í friðarvið-
ræðunum á Balkanskaga en hefur
aftur á móti ekki gengið eins vel í
Miðausturlöndum. Stjórnmálaleið-
togar í Afganistan og Pakistan hafa
ekki kunnað að meta hinn „harða“
stíl Holbrookes og hafði honum
ekki tekist að mynda sameiginleg-
an grundvöll á meðal leiðtoga fyrir
friðarviðræðum á svæðinu.
Lítill árangur Holbrookes í Mið-
austurlöndum skapaði spennu milli
hans og Baracks Obama, forseta
Bandaríkjanna. Obama mun ekki
hafa líkað vel við Holbrooke, sem
starfaði meðal annars sem utan-
ríkismálaráðgjafi Hillary Clinton í
kosningabaráttunni milli hennar og
Obama. Í Washington varð fræg sú
saga að Obama kaus alltaf að kalla
Holbrooke „Dick“, þrátt fyrir að aðrir
kölluðu hann ætíð Richard.
Holbrooke talar, Obama hlustar Obama líkaði illa við Holbrooke og kallaði hann ætíð
„Dick“.
Berlusconi hefur níu líf
n Berlusconi stóð af sér vantrauststillögu n Gífurleg mótmæli brutust út
n Fjölmargir slasaðir og handalögmál á þinginu
Vantrauststillaga á ríkisstjórn
Silvios Berlusconis var felld á
þriðjudaginn í neðri deild ít-
alska þingsins. Óhætt er að segja
að Berlusconi hafi sloppið fyr-
ir horn, en einstaklega mjótt var
á mununum í kosningunni. 314
þingmenn höfnuðu vantrauststil-
lögunni á meðan 311 voru henni
fylgjandi, fimm skiluðu ekki at-
kvæði í neðri deild þar sem 630
sitja. Þetta þýðir að ríkisstjórn
Berlusconis getur setið áfram, að
minnsta kosti um sinn. Ljóst er að
það mun hins vegar reynast erf-
itt til lengdar, eftir að samstarfs-
maður Berlusconis til margra ára,
Gianfranco Fini, sagði sig úr rík-
isstjórninni og tók með sér fjóra
ráðherra nú í nóvember síðast-
liðnum.
Mótmæli og slagsmál
Eftir að úrslitin úr atkvæða-
greiðslunni um vantrauststillög-
una voru kunngjörð hófust mikil
mótmæli á götum úti, víðs vegar
um Ítalíu. Verkamenn og náms-
menn mótmæltu hástöfum ríkis-
stjórn Berlusconis og fyrirséðum
niðurskurði í almannaþjónustu.
Í Róm þurfti að kalla út óeirða-
lögregluna og götum umhverfis
þinghúsið var lokað. Allt að 100
manns slösuðust í mótmælun-
um, þar af voru 40 lögreglumenn
sem þurftu að þola grjótkast og
glerflöskuregn. Kveikt var í lög-
reglubifreið og mikil ringulreið
ríkti fyrir utan þinghúsið.
Ringulreiðin var síst minni
inni í þinghúsinu sjálfu. Þing-
menn lentu í handalögmálum
eftir að Katia Polidori, meðlimur
í Framtíðar- og frelsishreyfingu
Finis, lýsti yfir stuðningi sínum
við Berlusconi. Það var einmitt
Fini sem var einn þeirra sem áttu
frumkvæðið að vantrauststillög-
unni.
Pólitísk framtíð Berlusconis
óljós
Þó að ljóst sé að Berlusconi fái
að halda sæti sínu enn um sinn
spá stjórnmálaskýrendur á Ítalíu
kosningum á næsta ári. Kosning-
ar myndu þá sennilega fara fram
um vorið, þrátt fyrir að tvö ár séu
enn eftir af núverandi kjörtíma-
bili en það telst til undantekn-
inga á Ítalíu ef ríkisstjórn nær að
sitja heilt kjörtímabil. Berlusc oni,
og Frelsisflokkur hans, mun í öllu
falli eiga undir högg að sækja en
ríkisstjórnin nýtur nú ekki þing-
meirihluta, eftir að Fini yfirgaf
fyrrverandi samherja sinn.
Aðrir segja hins vegar að
Berlusconi gæti allt eins setið í
10 ár til viðbótar og líkja stjórn-
málaferli hans við níu líf kattar-
ins. Það virðist litlu skipta þótt
skýr teikn séu á lofti um póli tíska
spillingu forsætisráðherrans og
þegar fréttir berast af stöðug-
um kynlífshneykslum hins smá-
vaxna Sardiníubúa brosa Ítalir út
í annað. Berlusconi gerði þó lítið
úr vantrauststillögunni en þegar
úrslitin voru gerð ljós stóð hann
upp og sagði einungis: „Tutto
bene!“
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
„Berlusconi gerði
þó lítið úr van-
trauststillögunni en
þegar úrslitin voru gerð
ljós stóð hann upp og
sagði einungis: „Tutto
bene!“
Mótmæli við
Popolo-torg Hörð
mótmæli brutust út.
Allt að 100 manns
slösuðust.
Berlusconi í þinginu Hann
lét sér fátt um finnast.
Fílabeinsströndin
þarf að þola refsi-
aðgerðir
Evrópusambandið hefur ákveðið
að hefja refsiaðgerðir gegn Fíla-
beinsströndinni í kjölfar ófremd-
arástands sem ríkir þar í landi eftir
forsetakosningar í síðasta mánuði.
Í aðgerðunum gætu falist frysting á
bankareikningum í Evrópu og ferða-
bann Fílabeinsstrendinga til Evrópu.
Aðgerðunum er fyrst og fremst beitt
gegn ríkjandi forseta, Laurent Gbag-
bo, sem neitar að stíga af valdastóli
þrátt fyrir að hafa tapað kosningun-
um fyrir sínum helsta keppinauti,
Alassane Ouattara. Fílabeinsstrend-
ingar óttast að borgarastyrjöld gæti
verið í uppsiglingu.