Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Síða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Síða 42
42 | Minning Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kgk@dv.is 17.–19. desember 2010 Helgarblað Matthías Björnsson Loftskeytamaður, vélstjóri og kennari Fæddur. 9.12. 1921, dáinn 8.12. 2010 MERKIR ÍSLENDINGAR Þórarinn fæddist að Víkinga- vatni í Kelduhverfi, sonur Björns Þórarinssonar, bónda þar, og Guð- rúnar Hallgríms- dóttur húsfreyju. Björn var bróðir Jónínu, móður Björns, alþm. á Víkingavatni, afa Björns Þórhalls- sonar, viðskipta- fræðings og vara- forseta ASÍ, föður Karls Björnssonar, fyrrv. bæjarstjóra Árborgar. Föðurafi Þórarins var Þórarinn á Víkingavatni, bróðir Ólafar, ömmu Benedikts Sveinssonar alþm., föður Bjarna forsætisráðherra, og Sveins, afa Bjarna Benediktssonar, alþm. og núverandi formanns Sjálfstæðis- flokksins. Þórarinn var sonur Björns á Víkingavatni, bróður Þórarins, afa Nonna. Þórarinn stundaði nám við Gagnfræðaskóla Akureyrar og lauk þar stúdentsnámi en varð að taka prófið í Reykjavík 1927 því enn hafði Menntaskólinn á Akureyri ekki verið stofnaður. Þórarinn stundaði síðan nám við Sorbonne- háskólann í París sam- kvæmt tillögu Sigurð- ar Guðmundssonar skólameistara og lauk prófi í frönsk- um bókmenntum, latínu og uppeldis- fræði. Þórarinn var kennari í latínu og frönsku við Menntaskólann á Akureyri frá 1933. Hann varð snemma Sigurði skólameistara til aðstoðar og var sjálf- ur skólameistari frá 1948. Þórarinn var röggsam- ur stjórnandi, skapríkur og gat verið þungorður ef svo bar undir, en tilfinningaríkur og hjartahlýr. Hann bar mjög hag nemenda sinna fyrir brjósti, var góður kennari, virtur skólameistari, skynsamur og mælsk- ur. Til er fjöldi góðra tilvitnana í Þór- arinn, eins og t.d. eftirfarandi: „Þekk- ing verður að menntun, þegar hún breytist úr minnisraun í skilnings- raun.“ Hann sagði einnig: „Það er enginn vandi að vera öfgamaður.“ Þórarinn Björnsson Skólameistari Menntaskólans á Akureyri f. 21.11. 1823, d. 29.10. 1904 Merkir Íslendingar Merkir Íslendingar Snæbjörn fæddist á Akur- eyri. Foreldrar hans voru Jónas Jón Snæbjörnsson, menntaskólakenn- ari og brúarsmiður á Akureyri og síðar í Reykjavík, og k.h., Herdís Símonar- dóttir húsmóðir. Snæbjörn og Kristján Hafliðason póstrekstrarstjóri voru bræðrasynir. Föðurafi Snæbjörns, Snæbjörn, hreppstjóri í Hergilsey, var bróðir Stefáns, langafa Gunn- laugs Sigmundssonar, fyrrv. alþm., föður Sigmund- ar Davíðs, formanns Framsóknar- flokksins. Í föðurætt var Snæbjörn af Ormsætt og komin af Eyjólfi eyja- jarli, alþm. í Svefneyjum. Snæbjörn og Jóhannes Zoëga hitaveitustjóri voru hins vegar systrasynir. Snæbjörn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1941, prófi í byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands 1946, stund- aði framhaldsnám við Eidgenöss- ische Technische Hochschule í Zürich í Sviss 1947–48 og við hinn fræga verkfræðiháskóla MIT, Massachusetts Institute of Technology í Cambridge í Bandaríkjunum 1951. Snæbjörn varð verkfræðingur hjá Vegagerð ríkisins 1948, deildarverk- fræðingur 1963–64, yfirverkfræðingur 1964–74, forstjóri tæknideildar 1974– 76 og vegamálastjóri 1976–92 er hann hætti fyrir aldurs sakir. Snæbjörn sat í stjórn Verkfræðingafé- lags Íslands, í stjórn Stétt- arfélags verkfræðinga, var ritari Íslandsdeildar Norræna vegtækn- isambandsins, sat í stjórn skipu- lagsnefndar Efnahags- og framfara- stofnunar Evrópu um rannsóknir aðildarríkja í vegagerð, í skipulags- stjórn og Almannavarnaráði og var formaður um skeið. Þá var hann formaður skipulagsstjórnar og sam- vinnunefndar um skipulag Reykja- víkur og nágrennis og um skipulag Akureyrar og nágrannasveitarfélaga frá 1978. Snæbjörn Jónasson Vegamálastjóri f. 18.12. 1921, d. 16.7. 1999 Matthías fæddist á Akureyri og ólst þar upp. Hann lauk prófi frá Gagn- fræðaskóla Akureyrar 1942, prófi frá Loftskeytaskóla Íslands 1943, lauk vélstjóranámskeiði á Akureyri 1952, kennaraprófi frá handavinnu- deild Kennaraskóla Íslands 1959, og stundaði síðan frekara réttindanám við Kennaraháskóla Íslands. Matthías var á íslenskum togur- um sem sigldu með fisk til Bretlands á stríðsárunum, og síðan á banda- rískum kaupskipum til 1946. Hann lenti í miklum loftárásum Þjóðverja á Hull og Grimsby, var oft hætt kominn og varð vitni að mörgum hildarleikj- um stríðsins á Atlants- og Miðjarðar- hafinu. Hann varð t.d. vitni að því er Dettifossi var sökkt. Matthías var síðan loftskeytamað- ur til sjós og í landi, stundaði kennslu í Reykjavík, á Húsavík, við Lauga- gerðisskóla á Snæfellsnesi og var síð- ast skólastjóri við Grunnskóla Mýra- hrepps í Austur-Skaftafellssýslu. Matthías og kona hans, Fjóla Guðjónsdóttir, keyptu jörðina Gísla- bæ á Hellnum í Breiðuvíkurhreppi og voru meðal brautryðjenda í að stofna ferðaþjónustu á sunnanverðu Snæfellsnesi. Þar bjuggu þau í fjór- tán ár, kenndu á vetrum en voru með trilluútgerð og ferðaþjónustuna á sumrin. Matthías sat í hreppsnefnd Breiðuvíkurhrepps í sjö ár og var varaoddviti Mýrahrepps í tvö ár. Þau hjónin bjuggu síðan í Varmahlíð í Skagafirði í fjögur ár, en fluttu þá til Akureyrar þar sem þau voru búsett til 2007. Þá fluttu þau í Mosfellsbæ. Matthías var mikill áhugamað- ur um morssendingar um langt ára- bil og radíóamatör fram í andlátið. Hann tileinkaði sér helstu kosti ver- aldarvefsins og notaði tölvutækn- ina til að vera í sambandi við vini og vandamenn víða um heim. Matthías var alla tíð mikil áhuga- maður um þjóðmál, var félagi í Al- þýðubandalaginu og síðar Vinstri hreyfingunni grænu framboði. Þá var hann félagi í Heimssýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum, og ritaði hann nokkrar greinar gegn að- ild Íslands að Evrópusambandinu. Fjölskylda Matthías kvæntist 6.5. 1951 Fjólu Guðjónsdóttur, f. 3.5. 1933, húsmóð- ur og kennara. Hún er dóttir Guðjóns Guðjónssonar, trésmíðameistara í Völundi í Reykjavík, og Guðlaugar Brynjólfsdóttur húsmóður. Börn Matthíasar og Fjólu eru Steingrímur, f. 27.8. 1951, kvæntur Maríu Sally Jónsdóttur, og eiga þau þrjú börn; Karl Valgarður, f. 12.8. 1952, vímuvarnarprestur Þjóðkirkj- unnar, búsettur í Reykjavík, kvænt- ur Sesselju Guðmundsdóttur leik- skólakennara og eiga þau þrjú börn; Oddný Soffía, f. 6.7. 1954, hjúkrun- arfræðingur í Kópavogi, gift Stef- áni Evertssyni tölvumanni og eiga þau þrjú börn; Einar Pálmi, f. 27.12. 1955, húsasmíðameistari í Mosfells- bæ, kvæntur Önnu Maríu Jónsdótt- ur geðlækni og eiga þau fjögur börn; Guðjón, f. 26.9. 1961, d. af slysförum 2.1. 1969; Inga Nína, f. 15.7. 1968, fatahönnuður og heildsali í Reykja- vík, gift Leifi Erni Leifssyni, við- skiptafræðingi og framkvæmdastjóra og eiga þau tvo syni; Stefán Heimir, f. 15.7. 1968, húsasmiður í Noregi, kvæntur Selmu Pálsdóttur ferða- málafulltrúa og eiga þau þrjú börn. Matthías og Fjóla eiga átján barnabörn og sex barnabarnabörn. Systkini Matthíasar: Ásta, f. 4.9. 1918, hjúkrunarfræðingur í Reykja- vík; Þóra, f. 17.10. 1919, dó í frum- bernsku; Gerður, f. 22.10. 1920, d. 4.5. 1999, húsmóðir á Húsavík og síð- ar í Reykjavík; Harpa María, f. 29.11. 1922, d. 21.10. 1987, húsmóðir á Ak- ureyri og síðar í Kópavogi; Grím- ur Mikael, f. 7.3. 1924, tannlæknir í Kópavogi; Jakobína Elísabet, f. 15.9. 1927, húsmóðir í Hafnarfirði; Karl Hans, f. 16.7. 1929, d. 28.10. 1991, kennari í Kópavogi. Foreldrar Matthíasar voru Björn Grímsson, f. 15.5. 1891, d. 26.3. 1986, verslunarmaður og einn stofnenda Pöntunarfélags verkalýðsins og framkvæmdastjóri þess, og Vilborg Soffía Lilliendahl, f. 15.1. 1888, d. 13.9. 1974, húsmóðir. Ætt Björn var bróðir Gríms, skólastjóra í Ólafsfirði. Björn var sonur Gríms, b. á Helgustöðum í Fljótum og á Möðru- völlum í Héðinsfirði Björnssonar, b. á Stórholti í Fljótum Þorleifsson- ar. Móðir Gríms var Sigurlaug Soff- ía, systir Ingiríðar, langömmu Árna Garðars Kristinssonar sem var aug- lýsingastjóri Morgunblaðsins. Bróð- ir Sigurlaugar Soffíu var Jósef, lang- afi Knúts Otterstedt, verkfræðings og svæðisstjóra Landsvirkjunar. Sig- urlaug Soffía var dóttir Gríms, pr. á Barði Grímssonar, græðara á Espi- hóli Magnússonar. Móðir Gríms, pr. á Barði, var Sigurlaug, systir Kristj- áns, langafa Jóhanns Sigurjónsson- ar skálds og Jóhannesar, afa Bene- dikts Árnasonar leikara, föður Einars borgarfulltrúa. Systir Jóhanns var Snjólaug, móðir Sigurjóns, fyrrv. lög- reglustjóra, föður Jóhanns, forstjóra Hafró. Systir Sigurjóns lögreglu- stjóra var Ingibjörg, móðir Magnúsar Magnússonar, þáttagerðarmanns hjá BBC, föður Sallýjar og Önnu Snjó- laugar hjá BBC. Sigurlaug var dótt- ir Jósefs, b. í Ytra-Tjarnarkoti, bróð- ur Jónasar á Hvassafelli, afa Jónasar Hallgrímssonar skálds. Annar bróð- ir Jósefs var Davíð, langafi Páls Árdal skálds, afa Páls Árdal heimspekings og Steingríms Thorsteinssonar próf- essors. Davíð var einnig langafi Jóns Magnússonar forsætisráðherra. Þá var Davíð langafi Sigríðar, langömmu þeirra Inga Hrafns og Hannesar Pét- urssonar skálds. Jósef var sonur Tómasar, ættföður Hvassafellsætt- ar Tómassonar. Móðir Sigurlaugar á Espihóli var Ingibjörg Hallgríms- dóttir, systir Gunnars, pr. á Upsum í Fnjóska dal, afa Tryggva Gunn- arssonar bankastjóra og Kristjönu, móður Hannesar Hafstein. Móðir Sigurlaugar Soffíu var Ingibjörg, syst- ir Rannveigar, langömmu Etilríðar, móður Steins Steinars skálds. Ingi- björg var dóttir Jósefs, b. í Hvammi, bróður Sigurlaugar á Espihóli. Móðir Björns verslunarmanns var Ásta Gísladóttir. Soffía Lilliendahl var dóttir Carls Péturs Lilliendahls, hafnsögumanns á Vopnafirði, föðurbróður Karls Ís- felds. Carl Pétur var sonur Jakobs Christian Lorentzson Lilliendahl, verslunarstjóra á Akureyri, og Odd- nýjar Þorvaldsdóttur, b. á Stóra-Eyr- arlandi Jónssonar, afa Jóhanns Lár- usar á Lýtingsstöðum, afa Brodda Jóhannessonar skólastjóra, föður Þorbjörns prófessors og Brodda, varafréttastjóra RÚV. Móðir Soffíu var Þóra Jakobína Lilliendahl Beck, systir Hans, föður Richards Beck, prófessors í Grand Forks í Norður-Dakota. Þóra var dóttir Niels Richards Beck, beykis og verslunarmanns á Eskifirði, son- ar Christens Nielsens Beck, assis- tants á Eskifirði, og Elísabetar, syst- ur Maríu, langömmu Eiríks, föður Þórólfs Beck knattspyrnukappa. María var einnig langamma Ey- steins Jónssonar, fjármálaráðherra og formanns Framsóknarflokksins, og dr. Jakobs Jónssonar, sóknar- prests í Hallgrímskirkju, föður Þórs hafísfræðings, Guðrúnar Írakfræð- ings, Svövu rithöfundar og Jökuls leikritaskálds, föður rithöfundanna Illuga, Hrafns og Elísabetar. Bróð- ir Elísabetar á Eskifirði var Þórar- inn, afi Finns listmálara og Ríkarðs myndskera. Elísabet var dóttir Ri- chards Long, ættföður Longættar. Móðir Þóru Jakobínu var Soffía Þor- valdsdóttir, systir Oddnýjar á Akur- eyri. Matthías verður jarðsunginn frá Guðríðarkirkju, föstudaginn 17.12. kl. 13.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.