Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2011, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2011, Síða 4
4 | Fréttir 24. janúar 2011 Mánudagur Byltingarkenndar hugmyndir meindýraeyðis: Villisvín á Vestfirði Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is Slakaðu á heima • Stillanlegt Shiatsu herða- og baknudd • Djúpslökun með infrarauðum hita • Sjálfvirkt og stillanlegt nudd Verið velkomin í verslun okkar prófið og sannfærist! Úrval nuddsæta Verð frá 29.750 kr. Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Þorleifur Frímann Guðmundsson hefur með bréfi til Fiskistofu sak- að útgerðarfélagið Saltver í Reykja- nesbæ um skipulagða og afar grófa löndun fram hjá vigt. Þorleifur vill að Fiskistofa rannsaki útgerðina og óskar eftir aðstoð við að fá þau laun sem hann telur Saltver hafa hlunn- farið hann um. Þorleifur kveðst ekki geta horft fram hjá brotunum líkt og aðrir sjó- menn sem hafi staðið frammi fyr- ir afarkostum; að missa vinnuna eða þegja. Þorleifur segir að sér sé fullljóst að eftir 37 ára starf við sjó- mennsku á Suðurnesjum sé hann búinn að vera í greininni vegna þess að hann stígur nú fram. Hann vill að- eins að sannleikurinn komi í ljós og hann fái það sem hann telur sig eiga inni hjá fyrirtækinu vegna meintra brota þeirra á lögum um fiskveiðar. Eigandi Saltvers segir þessar ásak- anir kjaftæði. Hélt bókhald Saltver, sem er í eigu Þorsteins Er- lingssonar fyrrverandi bæjarfull- trúa og stjórnarmanns í Sparisjóði Keflavíkur, var með skipið Ósk KE-5 frá því í nóvember og fram í byrjun janúar og var Þorleifur ráðinn í pláss þar sem matsveinn. Skipið hef- ur verið gert út á net til þorskveiða. Í bréfi Þorleifs til Fiskistofu segir hann að við skoðun á launauppgjöri sínu hafi hann uppgötvað að veru- lega hafi vantað upp á aflatölur. „Til dæmis á uppgjöri vegna nóv- ember er gefinn upp afli 46.057 kíló. Við lönduðum 153 körum þann mánuð, það hef ég skráð hjá mér á minnisblað […] Ég áætla að í hverju kari sé 370–400 kg. Þarna vant- ar verulega uppá vigtina að mínu mati,“ segir Þorleifur í bréfinu. DV hefur minnisblað Þorleifs undir höndum þar sem hann skráir dag- lega fjölda kara sem landað er. Bara í nóvember virðist skeika um að minnsta kosti tíu tonn sem Þorleif- ur kveðst hafa staðfestan grun um að hafi verið landað fram hjá vigt. Hann var á skipinu til 5. janúar síð- astliðins. Afla sturtað í hausunarvél Í bréfinu til Fiskistofu lýsir Þorleif- ur því hvernig meint brot eigi sér stað við löndun. „Í lok róðurs þá gefur skipstjóri upp karafjölda með sms-skeyti og fær svo til baka frá útgerðarstjóra hvað eigi að setja í veiðiskýrslu. Síðar við löndun þá er aflinn sóttur með lyftara að skips- hlið og ekið í hús sem er við bryggju- rótina í Njarðvík. Vigtin er hægra megin í húsin en hausari vinstra megin. Afla er af ásetningi sturtað beint í hausunarvél og ekkert fer á vigt. Þegar eftirlitsmenn eru til stað- ar eða á svæðinu þá hefur verið tek- in sú ákvörðun að landa ekki öllum aflanum, ítrekað hefur það komið fyrir að það er farið með nokkur kör aftur í róður eða landað síðar, eða í skjóli nætur þó ekki fyrr en Fiski- stofa hefur yfirgefið svæðið, ekkert eftirlit hefur verið með hvort löndun hafi raunverulega verið lokið,“ segir Þorleifur í bréfi sínu til Fiskistofu. Ekki til umræðu Þegar tvær grímur fóru að renna á skipverja segir Þorleifur að háseti einn hafi gengið á útgerðarstjórann. „Hásetinn fer að spyrja út í þennan fisk sem er tekinn framhjá, hvort við eigum ekki að fara að fá hann borg- aðan. Og við vissum ekki að ver- ið væri að taka fram hjá vigt fyrr en skipstjórinn fer að segja okkur að henda lifrinni í sjóinn til að fela afla- magnið sem kemur í land. Fiskistof- an getur nefnilega séð þegar magn lifrar stemmir ekki við afla sem fer inn í húsið,“ segir Þorleifur í sam- tali við DV. Skipverjar hafi farið á fund með útgerðarstjóra Saltvers í kjölfarið. „Og þar segir hann; í sam- bandi við þennan fisk sem verið er að taka framhjá hérna, hann er bara ekki til umræðu,“ segir Þorleifur. Í kjölfarið hafi mönnum verið boðið pláss á öðrum bát að sögn Þorleifs ef þeir væru reiðubúnir að sætta sig við kjörin. Það hafi hann sjálfur ekki verið reiðubúinn að gera og krafð- ist leiðréttingar á meðan hinir þáðu plássin. Vísar ásökunum á bug Þorsteinn Erlingsson, eigandi Salt- vers, heyrði fyrst af bréfi Þorleifs í á fimmtudag þegar blaðamaður bar málið undir hann. Hann harðneit- ar öllum ásökunum sjómannsins og segir þær kjaftæði. „Ég veit hver þessi maður er en veit ekki af hverju hann er að saka okkur um þetta. Það er kannski út af því að hann fékk ekki pláss hjá okkur á einhverjum bát. Ég get ekki svarað þessu með öðru en því að hann sé í sárum út af því,“ seg- ir Þorsteinn og gefur þar að auki lítið fyrir bókhald Þorleifs yfir fjölda kara og segir að hann geti búið til kör og skráð það niður á blað. „Ég skil bara ekki hvert hann er að fara.“ Útgerðarmaðurinn vísaði annars á tengdason sinn sem er útgerðar- stjóri. Ekki náðist í hann við vinnslu fréttarinnar þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir. Fiskistofa skoðar ábendingar Eyþór Björnsson Fiskistofustjóri segir að Fiskistofa tjái sig ekki um einstök mál. Almennt sé það svo að þegar ábendingar berast sé lagt mat á hvort málið sé þess eðlis að tilefni sé til rannsóknar. „Það er það oft og þá förum við í rannsókn á svona málum.“ Eyþór segir að umhverfi stofunnar sé þannig að hægt sé að fara í svokallaða bakreikningsrann- sókn sem sé umfangsmikil og tím- arfrek. Í raun þurfi að standa menn að verki með rannsókn á vettvangi. Og jafnvel þó að menn geti vitn- að um meint brot hafi Fiskistofa fá tækifæri til að nýta vitnisburð ein- staklinga við rannsókn á málum aft- ur í tímann. „Rétta leiðin er að kæra slíkt til lögreglu. Því við handtökum ekki menn eða yfirheyrum. Nálgun okk- ar á rannsóknum getur aldrei ver- ið sambærileg þeirri sem lögreglan hefur heimild til.“ KOKKUR SAKAR ÚTGERÐ UM SVINDL „Ég skil bara ekki hvert hann er að fara n Sjómaður segir tugi tonna hafa verið tekna fram hjá vigt n Stundum farið með kör út aftur í róður í stað þess að landa n Eigandi útgerðarinnar segir ásakanirnar kjaftæði Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is Vakti athygli á málinu Bréfið sem Þorleifur Frímann sendi Fiskistofu þar sem hann ber Saltver þungum sökum. Orð gegn orði Þorsteinn Erlingsson segir ásakanir Þorleifs út í hött. Meindýraeyðirinn og rithöfundur- inn Eyjólfur Guðmundsson hefur haft samband við Atvinnuþróunarfé- lag Vestfjarða og lagt fram nýstárlegar hugmyndir sem hann telur að muni auka ferðamannastraum til Vestfjarða til muna. Eyjólfur sem hefur áhyggjur af fólksfækkun á svæðinu vill láta flytja kuldaþolna grasbíta hingað til lands og sleppa þeim villtum á Vestfjörð- um. Þannig verði hægt að skapa störf í ferðamannaiðnaði sem aftur komi í veg fyrir fólksfækkun. Dýrin sem hann telur að gætu aukið fjölbreytileika líf- ríkisins á Vestfjörðum og dregið að sér ferðamenn eru meðal annars lamadýr, villisvín, fasanar, sauðnaut og snæhér- ar. Aðspurður um það hvort hann hafi ekki áhyggjur af því að slíkur innflutn- ingur myndi raska lífríkinu sem fyr- ir er segir Eyjólfur: „Það má ekki gera neitt til þess að skemma neitt. Það yrði að vera hægt að draga þetta til baka ef í ljós kæmi að eitthvað færi öðruvísi en ætlað var. Það væri til dæmis lítið mál að kippa sauðnautunum í burtu ef þau væru til vandræða.“ Eyjólfur segir Þróunarfélagið ekki hafa svarað umleitan hans, en hann segir svo um- fangsmikill innflutning á villtum dýr- um ekki gerast á einum degi, nokkur ár taki að byggja upp stofna. Eyjólfur segir möguleikana mikla í ferðamannaiðnaðinum ef þessi leið yrði farin: „Villisvínið sem lifði hér á landnámsöld er náttúrulega kafloðið og hörkuljótt en þeir sem hafa smakk- að það segja það bragðgott. Það væri hægt að selja veiðileyfi á það eins og gert er í Eystrasaltslöndunum. Vestfirð- ingar hafa haft áhyggjur af því að græn- lensk sauðnaut séu mannýg en mér hefur verið sagt að það ráðist aldrei á fólk nema þegar það er að atast í ný- fæddum kálfum.“ jonbjarki@dv.is Fleiri dýr Eyjólfur vill flytja alls kyns tegundir af villtum dýrum á Vestfirðina, þar á meðal sauðnaut, snæhéra og villisvín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.