Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2011, Qupperneq 8
8 | Fréttir 24. janúar 2011 Mánudagur
Margréti Tryggvadóttur sárnar umræðan um njósnatölvuna:
Fáránleikastig í hæstu hæðum
Fyrirtaka í einkamáli læknisins
Hannesar Sigmarssonar gegn stjórn
Heilbrigðisstofnunar Austurlands
var tekin fyrir í Héraðsdómi Aust-
urlands síðastliðinn þriðjudag en
málið var þingfest í desember. Í
kröfugerð Karls Axelssonar, lög-
manns Hannesar, er krafist bóta
vegna embættisverka forstjóra
Heilbrigðisstofnunar Austurlands,
Einars Rafns Haraldssonar. Hann-
es Sigmarsson var yfirlæknir á heil-
brigðisstofnuninni þar til í febrúar
2009.
Hannes krefst meðal annars bóta
fyrir það sem hann telur hafa verið
ólögmæta uppsögn, en honum var
sagt upp störfum eftir að forsvars-
menn HSA sökuðu hann um fjár-
drátt árið 2009. Lögreglurannsókn
á þeim ásökunum leiddi ekkert sak-
næmt í ljós. Hannes vildi ekki tjá sig
um málið við DV að svo stöddu.
Vill skaðabætur
Samkvæmt heimildum DV er krafa
Hannesar í hærra lagi en hann kær-
ir heilbrigðisstofnunina fyrir ólög-
mæta uppsögn, krefst launaupp-
gjörs sem hefur ekki ennþá farið
fram og bóta vegna meingerðar
gegn persónu og æru hans af hálfu
forstjóra HSA. Málið á rætur sín-
ar að rekja til þess þegar Hannes
var leystur tímabundið frá störfum
þann 12. febrúar 2009.
Í fréttatilkynningu sem HSA
sendi frá sér í kjölfar uppsagnar-
innar sagði að málið snéri einkum
að vinnulagi og kostnaði sem átti
að hafa verið á skjön við það sem
tíðkaðist annars staðar innan HSA.
Forsvarsmenn HSA sökuðu Hannes
um fjárdrátt með því að hafa gefið
út óeðlilega marga og háa reikninga
fyrir læknis verk utan dagvinnu.
Lögreglan á Eskifirði rannsakaði
málið en hætti rannsókn mánuði
síðar þar sem ekkert kom í ljós sem
taldist saknæmt. Samt sem áður
fékk Hannes ekki starf sitt aftur.
Reiði í Fjarðabyggð
Margir íbúar Fjarðabyggðar urðu
æfir yfir því að Hannes var ekki ráð-
inn til starfa aftur. Tæplega þúsund
manns skrifuðu undir undirskrifta-
lista Hollvinasamtaka heilsugæsl-
unnar í Fjarðabyggð. Hópurinn
skoraði á stjórn Heilbrigðisstofnun-
ar Austurlands, HSA, að segja af sér.
„Þetta er búið að valda því-
líkri gremju hérna hjá fólki og það
eru margir sem fara bara ekkert til
læknis,“ segir Emil Thorarensen í
samtali við DV. Emil sem var for-
sprakki undirskriftasöfnunarinnar
til stuðnings Hannesi segir málið
hið snúnasta. Emil sagðist í samtali
við DV í maí 2009 furða sig á því af
hverju Hannes væri ekki kominn
aftur til starfa þar sem hann væri
afar vinsæll læknir sem sinnti öllum
útköllum af kostgæfni.
Frábær læknir
„Af hverju er hann ekki kominn
til starfa eftir að hafa verið hreins-
aður? Hann er svo vinsæll. Hann
er svoleiðis frábær læknir. Fólk
þekkir hann og hann þekkir fólk-
ið. Það sem fólk er hræddast við
er að hann fari. Hann getur feng-
ið vinnu hvar sem er,“ sagði Emil
sem var afar ósáttur við störf Einars
Rafns Haraldssonar, forstjóra HSA.
Þá sagði hann uppsögn Hannesar
hafa verið níðingsverk gegn Hann-
esi, fjölskyldu hans og öllum íbúum
Fjarðabyggðar.
n Fyrrverandi yfirlæknir heilbrigðisstofnunar Austurlands höfðar einkamál gegn stofn-
uninni n Sakaður um fjárdrátt árið 2009 n Forstjóri heilbrigðisstofnunarinnar sagði
honum upp í kjölfar málsins n Rannsókn lögreglu leiddi ekkert saknæmt í ljós „Þetta er búið
að valda þvílíkri
gremju hérna hjá fólki og
það eru margir sem fara
bara ekkert til læknis.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
LÆKNIR
KREFST
BÓTA
Fjöldi undirskrifta Rétt tæplega þúsund
manns skrifuðu undir undirskriftalista og skoruðu
á stjórn HSA að segja af sér vegna málsins.
Tjáir sig
ekki Hannes
Sigmarsson,
fyrrverandi
yfirlæknir hjá
HSA, vildi ekki
tjá sig um málið
að svo stöddu.
„Ég verð að viðurkenna að síðustu
daga hef ég verið hálfflissandi yfir
fréttum af því að svokölluð „aðskota-
tölva“ hafi fundist í herbergi sem er
á hæðinni okkar í skrifstofuhúsnæði
Alþingis við Austurvöll,“ segir Mar-
grét Tryggvadóttir, alþingismað-
ur Hreyfingarinnar, í grein á vefsíðu
sinni sem birtist þar á sunnudag-
inn. „Hæðinni deilum við með Sjálf-
stæðisflokknum sem einnig er með
skrifstofur á hæðinni fyrir neðan
og Þingvallanefnd. Auk þess er þar
fundarherbergi sem er talsvert not-
að.“
Margrét segist þó ekki flissa
vegna þess að hún taki tölvufundinn
ekki alvarlega heldur sé fáránleika-
stig málsins í heild í hæstu hæðum.
Margrét segist ekki hafa mikið vit
á njósnum en telur að það hljóti að
vera til árangursríkari aðferðir en að
skilja eftir fartölvu tengda við netið
innan þingsins. „Ef um njósnatilraun
hafi verið að ræða hafi sú tilraun ver-
ið árangurslaus.“
Margrét segist raunar hafa oft
tengt fartölvuna sína með þessum
hætti við netið á Alþingi en af örygg-
isástæðum sé þessi kostur ekki leng-
ur fyrir hendi. Margrét segir að sér
og öðrum þingmönnum Hreyfingar-
innar hafi sárnað hvernig ýmsir hafi
vegið að heiðri þeirra og látið í veðri
vaka að Wikileaks tengdist málinu.
„Sú hugmynd að meinta njósna-
tölvan sé þarna á vegum Wikile-
aks og að ekki hafi beinst grunur að
neinum öðrum, enda hafi yfirstjórn
þingsins ekki veitt lögreglu neinar
upplýsingar um aðrar „grunsamleg-
ar mannaferðir“ og öll myndskeið úr
öryggismyndavélum frá 28. desem-
ber 2009 hafi sjálfkrafa verið eytt eins
og virðist viðgengin venja í þinginu
er nú kannski fyrst og fremst hlægi-
leg vegna þess að Wikileaks starfar
ekki þannig. Wikileaks er fjölmiðill,
ekki leyniþjónusta,“ skrifar Margrét.
valgeir@dv.is
Margrét Tryggvadóttir
„Wikileaks er fjölmiðill, ekki
leyniþjónusta.“
Lést í
umferðarslysi
Maðurinn sem lést í umferðarslysi á
Akureyri í síðustu viku hét Gísli Ólaf-
ur Ólafsson til heimilis að Vættagili
21 á Akureyri. Gísli var að skokka
meðfram Eyjafjarðarbraut en varð
fyrir fólksbifreið. Hann var fluttur
með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Akur-
eyri þar sem hann var úrskurðaður
látinn. Hann var 49 ára að aldri og
lætur eftir sig eiginkonu og fjögur
börn aldrinum 8 til 28 ára.
Harður árekstur
Harður árekstur varð á Hafnarfjarð-
arvegi í Kópavogi á sunnudag. Ann-
ar ökumannanna flúði af vettvangi
og er hans nú leitað af lögreglu.
Hinn ökumaðurinn, sem slapp nær
ómeiddur samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni, var illa á sig kominn
vegna neyslu áfengis eða fíkniefna.
Lögreglan vill ekki gefa nánari upp-
lýsingar um slysið þar sem hún telur
það geta skemmt fyrir í leit að þeim
sem flúði af vettvangi. Hann er grun-
aður um að hafa verið undir áhrifum
áfengis eða fíkniefna.
Segir House of
Fraser ekki til
sölu
Páll Benediktsson, upplýsingafull-
trúi skilanefndar Landsbankans,
hafnar því að 35 prósenta hlutur
Landsbanka Íslands í verslunarkeðj-
unni House of Fraiser, sé til sölu. í
samtali við fréttavefinn visir.is sagði
Páll að frétt breska blaðsins Daily
Mail, sem fullyrti að skilanefndinn
íhugaði að selja hlutinn, væri „della.“
Páll segir þó að undirbúningur sé
hafinn á söluferli Iceland Foods og
Hamleys-leikfangaverslunarinnar.
Eitthvað gæti gerst í þeim málum á
þessu ári, en ákveðið hafi verið að
bíða með söluna á House of Fraser
til ársins 2012.