Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2011, Qupperneq 21
Davíð fæddist í Vestmanna-eyjum og ólst þar upp. Hann var í Barnaskólanum í Vest-
mannaeyjum og Framhaldsskól-
anum í Vestmannaeyjum, stundaði
nám í líffræði við Háskóla Íslands
og lauk þar BSc-prófi, hóf síðan
nám í læknisfræði við Háskóla Ís-
lands og er nú kandídat við Land-
spítalann.
Davíð vann við húsamálun á
unglingsárunum í Eyjum. Hann
æfði og keppti í knattspyrnu og
handbolta með ÍBV og lék m.a.
með meistaraflokki.
Fjölskylda
Eiginkona Davíðs er Eyrún Sigurjóns-
dóttir, f. 9.3. 1981, viðskiptafræðingur
hjá Almenna lífeyrissjóðnum.
Dóttir Davíðs og Eyrúnar er Erna
Sólveig Davíðsdóttir, f. 20.1. 2007.
Bræður Davíðs eru Huginn Magn-
ús Egilsson, f. 7.2. 1972, lögreglumað-
ur, búsettur í Garðabæ; Jóhannes Eg-
ilsson, f. 7.4. 1977, markaðsfræðingur
hjá Stöð 2, búsettur í Garðabæ.
Foreldrar Davíðs eru Erna Jóhann-
esdóttir, f. 6.7. 1950, fræðslufulltrúi og
kennsluráðgjafi í Vestmannaeyjum
og fyrrv. fegurðardrottning Íslands,
og Egill Egilsson, f. 23.11. 1947, þjón-
ustufulltrúi hjá Vestmannaeyjabæ.
Á morgun verður þrítugur Þór Vilhjálmsson, sjómaður og fjár-bóndi, sem býr í Grímsey með
eiginkonu, tvö börn og fimmtíu og
fimm rollur. Konan hans heitir Stella
Gunnarsdóttir en börnin heita Ægir
Daði og Helga Hrund.
Stella er innfæddur Grímseying-
ur en Þór er fæddur og uppalinn í
Svarfaðardalnum: „Við komum hing-
að systkinin árið 2000. Ég held að
við höfum verið lokkuð hingað til að
kynbæta Grímseyinga. Alla vega líkar
mér afskaplega vel hérna og er ekkert
á förum.“
En er nokkuð hægt að halda stór-
afmæli í Grímsey?
„Nei, ekki í janúar eða febrúar. Þá
er nú ekki á vísan að róa með sam-
göngur hingað. Maður veit aldrei
hvort gestir úr landi komist til veisl-
unnar, né heldur hvort maður losn-
ar aftur við þá. Konan verður þrí-
tug þann 15. febrúar og við ætlum
að halda sameiginlegt stórafmæli í
sumar. Þá verður flogið hingað og
siglt á hverjum degi svo þá ætti að
vera hægt að bregða fyrir sig betri
fætinum.“
En er það ekki skítt – að halda bara
upp á stórafmæli á sumrin?
„Nei, nei. Þorrablótið er að skella
á: Súrmaturinn að verða klár, kven-
félagið er að semja annálinn og svo
kemur hljómsveit úr landi. Það verð-
ur á við mörg stórafmæli.“
Er svolítið félagslíf hjá ykkur?
„Hér er glymrandi félagslíf. Miklu
meira en hjá ykkur: Allir karlar í Ki-
wanis og kellurnar í kvenfélaginu. Svo
mætir hver einasti Grímseyingur í fé-
lagsheimilið til að horfa á handbolt-
ann. Það er nú meira en hægt er að
segja um ykkur þarna fyrir sunnan.“
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is Ættfræði | 21Mánudagur 24. janúar 2011
Til hamingju!
Afmæli 24. janúar
Til hamingju!
Afmæli 25. janúar
30 ára
Agata Michalec Sléttuvegi 3, Reykjavík
Pawel Zelaznicki Faxabraut 36d, Reykja-
nesbæ
Adam Bjarki Ægisson Holtsgötu 20, Hafn-
arfirði
Margrét Helga Ögmundsdóttir Háteigsvegi
38, Reykjavík
Anna Rósa Friðriksdóttir Höfðahlíð 7,
Akureyri
Guðrún Þórarna Sveinsdóttir Reykási 31,
Reykjavík
Davíð Rósenkrans Hauksson Baldursgötu
20, Reykjavík
Harpa Kristín Sæmundsdóttir Skessugili
18, Akureyri
Þorsteina Svanlaug Adolfsdóttir Brekku-
stíg 6a, Reykjavík
Sigurður Sigurbjörnsson Sóltúni 3, Reykja-
nesbæ
Karitas Jónasdóttir Vindakór 5, Kópavogi
Ingvar Jónsson Sambyggð 16, Þorlákshöfn
40 ára
Zbigniew Koscielecki Egilsbraut 21, Þor-
lákshöfn
Friðrik Höskuldsson Kirkjubrekku 7, Álftanesi
Erla Baldursdóttir Klukkuvöllum 3, Hafn-
arfirði
Jón Ingi Hákonarson Nönnustíg 5, Hafnarfirði
Einar Sigurðsson Austurmýri 6, Selfossi
Hlynur Kristinsson Kvisti, Akureyri
Bryndís Ernstsdóttir Brekkustíg 14, Reykjavík
50 ára
Súsanna Steinþórsdóttir Hlynskógum 2,
Akranesi
Guðbjörg Pétursdóttir Selsvöllum 22,
Grindavík
Reimar Ingimundarson Löngumýri 9,
Selfossi
Rannveig Óskarsdóttir Logafold 156,
Reykjavík
Sigrún Guðlaugsdóttir Haga, Selfossi
Bergsveinn Ólafsson Stafafelli, Höfn í
Hornafirði
Stefán Tryggvason Merki, Akureyri
Guðbjörg Steinarsdóttir Seljalandi 3,
Reykjavík
Rúnar Valgeir Hákonarson Helgafelli 9,
Eskifirði
Egill Aðalgeir Þorláksson Gullengi 27,
Reykjavík
Sóley Birgisdóttir Kirkjuvegi 39, Reykjanesbæ
Ómar Stefánsson Hásteinsvegi 32, Vest-
mannaeyjum
Bragi Þór Jósefsson Lundarbrekku 10,
Kópavogi
Paul William Marti Suðurgötu 15, Reykjavík
60 ára
Salóme E Fannberg Meistaravöllum 25,
Reykjavík
Halldór Bergmann Þorvaldsson Bolla-
tanga 9, Mosfellsbæ
Jón S. Ástvaldsson Unufelli 23, Reykjavík
Sigurjón G. Davíðsson Lækjasmára 62,
Kópavogi
Kristín Snæbjörnsdóttir Þórufelli 16,
Reykjavík
Lovísa Erlendsdóttir Jörvabyggð 9, Akureyri
Páley B. Geirdal Vesturgötu 133, Akranesi
Tryggvi Gíslason Hólmgarði 19, Reykjavík
70 ára
Elsa Jóhanna Gísladóttir Stigahlíð 18,
Reykjavík
Guðjón Jónsson Yrsufelli 6, Reykjavík
Guðrún Borgh. Jóhannesdóttir Hlíðarhaga,
Akureyri
Guðbjörg Andrésdóttir Þórólfsgötu 10,
Borgarnesi
75 ára
Úlfar Gunnar Jónsson Arnarsmára 8,
Kópavogi
Þórdís Þorleifsdóttir Búðasíðu 3, Akureyri
Unnur Árný Thorarensen Klapparstíg 3,
Reykjavík
Jón Þórðarson Ljúfustöðum, Hólmavík
Ragnheiður Garðarsdóttir Sóltúni 8,
Reykjavík
80 ára
Herdís Þorgrímsdóttir Mýrarvegi 111, Akureyri
Ingigerður Gottskálksdóttir Hjálmholti
5, Reykjavík
Guðmundur Guðnason Mosarima 21,
Reykjavík
Guðrún Guðnadóttir Norðurbrún 16,
Reykjavík
Ragnar Jónatansson Vogatungu 30, Kópa-
vogi
30 ára
Lamduan Seejaem Völusteinsstræti 15,
Bolungarvík
Irma Lekaviciute Háaleitisbraut 155, Reykjavík
Víkingur Heiðar Eyjólfsson Breiðvangi 12,
Hafnarfirði
Ragnar Sveinbjörnsson Álfholti 2a, Hafn-
arfirði
Salka Guðmundsdóttir Skeiðarvogi 135,
Reykjavík
Anna María Gísladóttir Hávallagötu 51,
Reykjavík
Einar Viðar Viðarsson Gilsbakka 33, Hvolsvelli
Bjarni Bjarnason Steinagerði 7, Reykjavík
Þóra Lilja Sigurðardóttir Lindarhvammi 6,
Hafnarfirði
Stella Soffía Jóhannesdóttir Eskihlíð 16,
Reykjavík
40 ára
Beata Marta Kasprzyk Ásgarði 27, Reykjavík
Ármann Þór Sigurvinsson Drekakór 3,
Kópavogi
Ágústa Kristín Andersen Þingholtsstræti
33, Reykjavík
Sigurbjörg Jóna Helgadóttir Freyjugötu 9,
Reykjavík
Sigurður Óli Ingólfsson Steinkirkju, Akureyri
Elín Sigurðardóttir Laufengi 6, Reykjavík
Ragnheiður Eiríksdóttir Bergstaðastræti
28, Reykjavík
Skarphéðinn Orri Björnsson Norðurbakka
25d, Hafnarfirði
Karen Huld Gunnarsdóttir Lindasmára 1,
Kópavogi
Elínrós Þóra Benediktsdóttir Seljudal 44a,
Reykjanesbæ
Helga Ágústsdóttir Hjallabraut 86, Hafnarfirði
Stella Þórðardóttir Vallarbarði 5, Hafnarfirði
Unnur Hrefna Jóhannsdóttir Þorláksgeisla
29, Reykjavík
Anna Ársælsdóttir Uppsölum 2, Akureyri
Þórður Ólafur Ragnarsson Vættaborgum
6, Reykjavík
Eiður Páll Birgisson Kristnibraut 75, Reykjavík
Jens Ágúst Reynisson Espigerði 12, Reykjavík
Jakob Yngvason Þrúðsölum 4, Kópavogi
Óskar Jón Helgason Birkigrund 10, Kópavogi
Brynhildur Ingvarsdóttir Viðarási 21a,
Reykjavík
50 ára
Stefán Sigurbjörn Guðmundsson Hólavegi
30, Sauðárkróki
Óskar Einarsson Bræðraborgarstíg 12,
Reykjavík
Hólmfríður Kristín Helgadóttir Njálsgerði
7, Hvolsvelli
Kristjana Kjartansdóttir Línakri 1, Garðabæ
Sigurður Ingólfsson Haukanesi 12, Garðabæ
Marinó Gunnar Njálsson Fróðaþingi 3,
Kópavogi
Guðríður Ólafsdóttir Suðurhlíð 38d, Reykjavík
Sveinn Ólafsson Vogatungu 14, Kópavogi
Jóhann Konráð Sveinsson Túngötu 25,
Siglufirði
Hallgrímur T. Ragnarsson Fagrahvammi 8,
Hafnarfirði
Kristín Sigríður Jensdóttir Stigahlíð 14,
Reykjavík
Svavar Kristinsson Logafold 136, Reykjavík
Andrea Ursula Elisabeth Laible Neðra-
Vatnshorni, Hvammstanga
60 ára
Margrét Jónsdóttir Sóltúni 22, Selfossi
Albína Halla Hauksdóttir Sílakvísl 2,
Reykjavík
Steinunn Melsteð Vallengi 3, Reykjavík
Alda Engilráð Stefánsdóttir Hátúni 10b,
Reykjavík
Ingólfur Steinsson Mánastíg 2, Hafnarfirði
Katrín Pálsdóttir Nesbala 114, Seltjarnarnesi
Þorbergur Ólafsson Garðastræti 6, Reykjavík
70 ára
Guðlaug Karlsdóttir Laugarnesvegi 114,
Reykjavík
Katrín Gunnarsdóttir Aðalstræti 39, Þingeyri
Guðmundur Heiðar Magnússon Gljúfraseli
9, Reykjavík
75 ára
Valborg Jónsdóttir Túngötu 19, Sandgerði
Stefán Gestsson Arnarstöðum 2, Hofsós
80 ára
Þórunn Vernharðsdóttir Jöklafold 41,
Reykjavík
Ólöf Sveinsdóttir Beykilundi 2, Akureyri
Sigurður Ketill Gunnarsson Hellulandi 8,
Reykjavík
Hannelore Helga Jahnke Galtalind 2,
Kópavogi
85 ára
Halldór Jónsson Dalbraut 14, Reykjavík
95 ára
Kristín Hinriksdóttir Kleppsvegi 64, Reykjavík
Ægir fæddist í Reykjavík en flutti til Flateyrar á þriðja ár-inu þar sem hann ólst upp.
Hann gekk í barna- og unglingaskóla
á Flateyri, lauk landsprófi frá Héraðs-
skólanum á Núpi við Dýrafjörð 1967,
stúdentsprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri 1971 og prófi í viðskiptafræði
við Háskóla Íslands 1976.
Ægir hóf störf hjá Iðnaðarbanka
Íslands hf. að námi loknu og starf-
aði þar á árunum 1976–80, tók þá við
starfi sparisjóðsstjóra hjá Sparisjóði
Önundarfjarðar á Flateyri og starfaði
þar til 1996 er hann tók við starfi úti-
bússtjóra Landsbankans í Þorláks-
höfn þar sem hann starfar enn.
Ægir sat m.a. í hreppsnefnd Flat-
eyrarhrepps í átta ár, var oddviti
hreppsnefndar í fjögur ár, sat í fjölda
nefnda á vegum sveitarfélagsins og
ýmissa félagasamtaka, innan sveit-
ar og utan, var m.a. formaður Lions-
klúbbs Önundarfjarðar eitt kjörtíma-
bil, tók þátt í stjórnmálum og var um
tíma vþm. Alþýðuflokksins á Vest-
fjörðum, sat sem fulltrúi Byggðastofn-
unar í svonefndri Vestfjarðanefnd
sem starfaði 1994–96, var fulltrúi
heimamanna í nefndinni Samhugur
í verki sem starfaði eftir snjóflóðin á
Flateyri 1995. Þá hefur hann starfað
að félagsmálum kirkjunnar og er nú í
sóknarnefnd Þorláks- og Hjallakirkju.
Ægir er nú virkur félagi í Oddfellow-
reglunni, Kiwanisklúbbnum Ölveri
og Golfklúbbi Þorlákshafnar auk þess
sem hann var fjárhirðir í Hrútavinafé-
laginu Örvari.
Fjölskylda
Ægir kvæntist 17.8. 1974 Margréti
Thorarensen frá Akureyri, f. 20.9.
1953, húsmóður. Hún er dóttir Valdi-
mars Thorarensen, f. 26.9. 1910, d.
9.10. 1974, og Láru Hallgrímsdóttur, f.
28.12. 1917, d. 24.1. 1973, húsmóður.
Þau bjuggu á Akureyri.
Börn Margrétar og Ægis eru Ein-
ar, f. 25.2. 1972, stjórnmálafræðing-
ur og starfsmaður Íslandsbanka en
sambýliskona hans er Sigríður Rósa
Kristinsdóttir frá Eskifirði og eru börn
þeirra Heiða Máney Hafberg, f. 22.2.
2008 og Ægir Hafberg, f. 27.10. 2009,
en dóttir Einars og fyrri sambýliskonu
hans, Kristjönu Nönnu Jónsdóttur,
var Sunneva, f. 17.3. 1995, d. 7.7. 2004;
óskírður drengur, f. 4.8. 1976, d. s.d.;
Lára, f. 7.11. 1979, viðskiptafræðing-
ur hjá Íslandsbanka en maður henn-
ar er Gunnar B. Guðmundsson, leik-
stjóri og kvikmyndagerðarmaður og
er dóttir þeirra Jóna Sigríður, f. 22.8.
2007.
Systkini Ægis eru Friðrik, f. 21.3.
1949, stýrimaður og sölustjóri, bú-
settur í Reykjavík; Sesselja, f. 25.12.
1952, bankafulltrúi í Grindavík; Björn
Kristján, f. 4.7. 1956, námsráðgjafi
í Reykjavík; Sigurður Jóhann, f. 5.1.
1959, kennari á Flateyri; Ágústa Mar-
grét, f. 13.7. 1967, starfsstúlka í Kópa-
vogi.
Foreldrar Ægis: Einar Jens Frið-
riksson Hafberg, f. 8.8. 1919, d. 2.1.
1974, vélstjóri og síðar kaupmaður á
Flateyri, og k.h., Kristbjörg Hjartar-
dóttir Hafberg, f. 17.7. 1928, d. 30.1.
1979, húsmóðir og verkakona.
Ætt
Einar Jens var sonur Friðriks Hafberg
Einarssonar, verslunarmanns og síð-
ar bifreiðarstjóra og kafara á Flateyri,
og Ágústu Margrétar Sigurðardóttur.
Friðrik var sonur Einars Jens Frið-
rikssonar Hafberg, bónda í Ráða-
gerði og í Brekkukoti á Álftanesi, og
Ingibjargar Eysteinsdóttur. Ágústa
Margrét var dóttir Sigurðar Jónsson-
ar, b. í Hrepphólum í Hrunamanna-
hreppi, og k.h., Jóhönnu Guðmunds-
dóttur.
Kristbjörg var dóttir Hjartar
Gunnlaugssonar, sjómanns í Stykkis-
hólmi, og Sesselju Helgadóttur.
Ægir E. Hafberg
Útibússtjóri Landsbankans í Þorlákshöfn
Davíð Egilsson
Læknakandídat við Landspítalann
Stórafmælum frestað í Grímsey
60 ára á mánudag
30 ára á mánudag
Afmælisbarn dagsins Þór Vilhjálmsson
Afmælisbarnið og
sonurinn, Ægir Daði, í
United-sparifötunum.