Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2011, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2011, Blaðsíða 8
8 | Fréttir 2. febrúar 2011 Miðvikudagur Meiðyrðamál höfðað á hendur blaðamanni Morgunblaðsins: Stefnir Agnesi Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, lög- maður Inga Freys Vilhjálmssonar, fréttastjóra DV, segir að stefna gegn Agnesi Bragadóttur, blaðakonu Morg- unblaðsins, verði þingfest í Héraðs- dómi Reykjavíkur þriðjudaginn 8. febrúar. Vilhjálmur segir Morgunblað- ið ekki hafa brugðist við innan þess frests sem gefinn var á mánudag til þess að að leiðrétta umfjöllun blaðsins frá því á mánudag, biðjast afsökunar og greiða miskabætur. Morgunblaðið staðhæfði á forsíðu sinni á mánudaginn að lögreglan rann- sakaði nú tengsl DV og Wikileaks. Í grein inni í blaðinu, sem Agnes Braga- dóttir skrifaði, var Ingi Freyr nafn- greindur og fullyrt að hann hefði réttar- stöðu grunaðs manns. Í því samhengi var fjallað um hina svokölluðu njósn- atölvu sem fannst í húsakynnum Al- þingis á síðasta ári og einnig meintan stuld á gögnum frá lögmanni Miles- tone. Morgunblaðið fjallaði um að Ingi væri grunaður um að hafa gert ungan dreng út til þess að brjótast inn og ræna gögnunum. Björgvin Björgvinsson, yfirlög- regluþjónn hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu, staðfesti á þriðjudag að Ingi Freyr hefði ekki réttarstöðu grunaðs manns í neinni sakamála- rannsókn, þvert á það sem Agnes Bragadóttir hélt fram í Morgunblað- inu. Vilhjálmur Hans segir að í ljós hafi komið að allur málatilbúnaður Morg- unblaðsins hafi verið byggður á sandi. Þegar samsæriskenningar sem voru til grundvallar því að Ingi hefði rétt- arstöðu grunaðs manns, hefðu ver- ið hraktar, þá séu hugmyndir Morg- unblaðsins um að drengur hefði verið gerður út af örkinni til þess að stela gögnum aðeins orðin tóm. „Þetta er bara spuni Morgunblaðsins,“ segir Vilhjálmur. Agnes vildi ekkert segja við DV. „Ég tjái mig ekki eitt einasta orð, ekki eitt einasta orð. Takk,“ sagði Agnes og skellti á. valgeir@dv.iswww. tengi.is Gæði,þjónusta og ábyrgð - það er TENGI TILBOÐSDAGAR IFÖ BAÐINNRÉTTINGAR EINFALDAR Í UPPSETNINGU - KOMA SAMSETTAR! Tilboðsverð: 29.900,- kr. Furðulegt félag meints braskara Fjárfestirinn Gísli Reynisson á félagið H6 sem greiddi 1.900 þúsund krónur fyrir veitingar til viðskiptavina sinna árið 2009, eða sem nemur 15 prósent- um af rekstrargjöldum félagsins. Gísli er einn þeirra fjögurra sem grunaðir eru um gjaldeyrisbrask fyrir allt að 13 milljörðum króna í gegnum sænska fé- lagið Aserta AB. Gísli var ekki einung- is gjafmildur við viðskiptavini sína árið 2009 heldur virðist hann hafa ferð- ast mjög mikið á vegum félagsins H6. Nam ferðakostnaður þremur milljón- um króna. Gísli er skráður eigandi félags- ins H6 ásamt Ólafi Sigmundssyni en þeir sæta báðir rannsókn efnahags- brotadeildar ríkislögreglustjóra vegna gruns um stórfellt gjaldeyrisbrask. Auk þeirra voru handboltahetjan Markús Máni Michaelsson og Karl Löve Jó- hannsson handteknir fyrir rúmu ári. Eru þeir grunaðir um að hafa stundað ólögleg gjaldeyrisviðskipti fyrir allt að 13 milljörðum króna í gegnum félög- in Glacier Capital Partners og sænska félagið Aserta AB. Fjórmenningarnir störfuðu allir saman hjá fjárfestingar- bankanum Straumi fyrir bankahrunið. Eiga þeir að hafa hagnast gríðarlega á þessum viðskiptum. Á heildarhagnað- urinn að hafa numið tveimur til fimm milljörðum króna og nokkur hundruð milljónir króna eiga að hafa runnið til fjórmenninganna. Óútskýrðar tekjur Félagið H6 er skráð til heimilis að Hlíðasmára 6 í Kópavogi ásamt félag- inu ARM verðbréf. ARM hét áður Agi verðbréf og er sagt starfa við miðl- un verðbréfa og hrávörusamninga. Var Gísli einn þeirra sem keyptu Aga verðbréf (nú ARM) árið 2009 og hef- ur félagið verðbréfaleyfi frá Fjármála- eftirlitinu. Á vefsíðunni Linkedin titl- ar Gísli sig fjárfestingastjóra H6. Segir hann að félagið stundi fjárfestingar með eigið fé H6 auk þess sem félagið fjárfesti fyrir vini og fjölskyldu. 1.900 þúsund króna rekstrarkostnaður H6 árið 2009 vegna veitinga til viðskipta- vina hefur því væntanlega verið notað- ur til að halda boð fyrir vini og ættingja Gísla. Í ársreikningi félagsins fyrir árið 2009 eru bókfærðar 15 milljóna króna tekjur og er engin skýring gefin á því hvaðan þær koma. Auk þessa bók- færir félagið ferðakostnað upp á þrjár milljónir króna. Hlýtur það að teljast með ólíkindum að hægt sé að bókfæra bæði ferðakostnað og veitingar til við- skiptavina fyrir fimm milljónir króna. Nema þessir tveir liðir 40 prósentum af rekstrarkostnaði H6 sem var 13 millj- ónir króna árið 2009. Byggði glæsihýsi í Garðabæ DV sagði frá því í fyrra að Gísli væri að byggja sér 500 fermetra glæsihýsi í Garðabænum ásamt eiginkonu sinni. Þar af væri bílskúrinn einn um 50 fermetrar að stærð. Er talið að fram- kvæmdir hafi legið niðri við húsið eft- ir bankahrunið en fljótlega farið á fullt aftur eftir að Gísli varð umsvifamik- ill í gjaldeyrisviðskiptum. Samkvæmt heimildum DV er glæsihýsið í Garða- bænum ekki metið á minna en 150 milljónir króna. Rannsókn miðar hægt Lítið hefur verið fjallað um meint gjaldeyrisbrask eftir að Alþingi sam- þykkti hert lög um gjaldeyrisviðskipti í byrjun apríl 2009. Í janúar í fyrra voru forsvarsmenn sænska félagsins Aserta AB handteknir og yfirheyrðir af efnahagsbrotadeild ríkislögreglu- stjóra eins og áður kom fram. Rifjaði vefritið Pressan það upp á miðviku- daginn að ár væri liðið frá því að efna- hagsbrotadeildin hóf að rannsaka meint gjaldeyrisbrask fjórmenning- anna. Var efnahagsbrotadeildin þög- ul um framvindu rannsóknarinnar. „Rannsóknin er umfangsmikil og tek- ur tíma. Við getum ekki upplýst um hvar rannsóknin er á vegi stödd, svo sem með að upplýsa hvað hafi ver- ið gert og hvað sé fyrirhugað að gera. Rannsóknin er í fullum gangi,“ var svar efnahagsbrotadeildarinnar. Gísli og þremenningarnir sem áður störfuðu hjá Straumi eru ekki þeir einu sem taldir eru hafa grætt á tá og fingri á meintu gjaldeyrisbraski. Á miðvikudaginn sagði DV frá því að bræðurnir Friðjón og Haraldur Þórð- arsynir hefðu greitt sér nærri 300 milljónir í arð í gegnum félagið TH Investments. Hagnaðist félagið um 250 milljónir króna á einungis tveim- ur mánuðum í lok árs 2008 stuttu eftir að gjaldeyrishöftin voru sett á. Hagn- aðurinn 2009 var síðan 45 milljón- ir króna. Í samtali við DV árið 2009 þvertók Friðjón Þórðarson fyrir það að TH Investments stundaði gjald- eyrisbrask. n Kostnaður vegna veitinga til viðskiptavina nam 1.900 þúsund krónum n Gísli Reyn- isson er talinn hafa stórgrætt á gjaldeyrisviðskiptum n Býr í 500 fermetra glæsihýsi Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar as@dv.is „ Í ársreikningi fé- lagsins fyrir árið 2009 eru bókfærðar 15 milljóna króna tekjur og er engin skýring gefin á því hvaðan þær koma. Gjafmildur Gísli Reynisson virðist vera gjafmildur við viðskiptavini félagsins H6 sem hann rekur. Fóru 15 prósent af rekstrarkostn- aði H6 í veitingar til viðskiptavina, eða alls 1.900 þúsund krónur. Viðskiptavinir H6 eru vinir og ættingjar Gísla. Glæsihýsi í Garðabæ Hér má sjá 500 fermetra glæsihýsi Gísla sem hann byggði sér í Garðabæ. Er það metið á 150 milljónir króna. MYND RÓBERT REYNISSON. Staða íslenskrar tungu lögfest Frumvarp mennta- og menningar- málaráðherra til laga um stöðu ís- lenskrar tungu og íslensks táknmáls var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinn- ar á þriðjudag. Markmið frumvarps- ins er að festa í lög „stöðu íslenskr- ar tungu, mæla fyrir um varðveislu hennar, þróun og nothæfni og aðgengi manna“, eins og það er orðað. Helstu atriði frumvarpsins eru þau að staða íslenskunnar verði fest í lög. Táknmál verði viðurkennt sem fyrsta tungumál þeirra sem nota það til tjáningar og samskipta og að allir landsmenn eigi kost á íslenskukennslu. Höfuðstóllinn lækkar um tugi prósenta Landsbankinn er nú að ljúka endur- útreikningi á erlendum íbúðalánum. Tæplega 2.800 lán koma til endurút- reiknings hjá bankanum en lækkun höfuðstóls erlendra lána verður aldrei minni en 25 prósent. Meðallækkun höfuðstóls er 41 prósent. Á þetta við um þau lán sem falla undir lög um vexti og verðtryggingu frá því í desem- ber í fyrra. Viðskiptavinir bankans með erlend lán, sem fá lánin ekki end- urútreiknuð samkvæmt lögum, geta sótt um endurútreikning á grundvelli greiðsluerfiðleika. Kom sökinni á annan mann Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt þrítugan karlmann í tveggja mánaða fangelsi fyrir umferð- arlagabrot og rangar sakargiftir. Maðurinn var stöðvaður í janúar 2009 án ökuréttinda auk þess sem hann var undir áhrifum amfetam- íns við aksturinn. Maðurinn gaf upp rangt nafn og kennitölu þegar lögregla hafði afskipti af honum. Auk þess ritaði hann sama nafn á upplýsingablað dóms- og kirkju- málaráðuneytisins sem gerði það að verkum að rangur maður var ákærður fyrir brotið. Maðurinn játaði brot sín en hann á lang- an afbrotaferil að baki. Auk þess að sæta tveggja mánaða fangelsi var manninum gert að greiða 217 þúsund krónur í sakarkostnað. Dregin fyrir dóm Agnesi Bragadóttur, blaðakonu Morgunblaðsins, verður stefnt fyrir meiðyrði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.