Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Page 8
8 | Fréttir 7. febrúar 2011 Mánudagur Ungmenni tekin með fíkniefni Lögreglan á Sauðárkróki hafði hend- ur í hári þriggja ungmenna aðfara- nótt sunnudags vegna fíkniefnamis- ferlis. Ungmennin, sem voru þrjú saman í bíl, voru á ferð um Þver- árfjall þegar lögregla stöðvaði för þeirra. Ökumaðurinn er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkni- efna. Lögregla gerði lítilræði af fíkni- efnum upptæk. Aðfaranótt sunnudags var til- tölulega róleg í flestum lögregluum- dæmum. Slökkvilið höfuðborgar- svæðisins þurfti að sinna tuttugu og tveimur útköllum og var þá yfirleitt um að ræða almenn veikindi hjá fólki. Þá var slökkvilið einnig kallað út vegna reyks sem lagði frá íbúð við Bústaðaveg. Janúar var þurr og hlýr Nýliðinn janúarmánuður var þurr og hlýr en þó ekki jafn hlýr og sami mánuður í fyrra. Þetta kemur fram í yfirliti yfir tíðarfar í janúar sem Veð- urstofa Íslands hefur tekið saman. Meðalhiti var á bilinu 1,1 til 2,5 stigum ofan meðaltals. Fremur þurrt var um sunnan- og suðaustanvert landið en annars var úrkoma í ríf- legu meðallagi. Meðalvindhraði var meiri en í janúar undanfarin ár og urðu nokkrar fokskemmdir í norð- anveðri snemma í mánuðinum. Hiti í Reykjavík var 1,6 stig að meðaltali og er það 2,1 stigi ofan meðallags. Á Akureyri var meðal- hitinn 0,4 stig, eða 2,5 stigum ofan meðallags. Fremur þurrt var um landið sunnan- og suðaustanvert. Úrkoma mældist 61,2 millimetrar og er það 81 prósent meðalúrkomu. Á Akur- eyri var úrkoman 64,4 millimetrar og er það sautján prósent umfram meðallag. Skilanefnd áfrýjar í New York Skilanefnd Glitnis hefur ákveðið að áfrýja niðurstöðu dómstóls í New York í Bandaríkjunum sem hafði áður vísað frá dómi máli á hendur Glitnisklíkunni svokölluðu. Formað- ur nefndarinnar telur sjömenning- ana ekki hafa uppfyllt þau skil- yrði sem sett voru við frávísunina. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, staðfesti þetta um helgina. Málinu var upphaflega vísað frá á þeim forsendum að allir málsaðilar væru íslenskir. Málinu virðist því hvergi nærri lokið því á sama tíma hefur Jón Ásgeir Jóhann- esson hótað skaðabótamáli á hend- ur slitastjórninni. Mikillar óánægju gætir meðal leik- skólastarfsmanna vegna fyrirhugaðr- ar sameiningar á leikskólum borgar- innar. Fólk innan stéttarinnar segir allt beinlínis loga af óánægju og krefst þess að hlutirnir séu kallaðir réttum nöfnum. Að tengja sparnaðaraðgerðir við faglegan ávinning sé móðgun við leikskólakennara og með því sé verið að klæða hlutina í skrautbúning því engin ávinningur sé að því að missa fagfólk úr stéttinni. Sameiningarnefnd á vegum borg- arinnar mun skila af sér skýrslu í lok febrúar og kemur þá í ljós hvaða leik- skólar verða sameinaðir og hvort frí- stundaheimili og grunnskólar sam- einist einnig. Á meðan upplifa tugir leikskólastarfsmanna mikla óvissu um framtíð sína og starfsöryggi og gagnrýna vinnubrögð menntaráðs harðlega. Óljós faglegur ávinningur „Í byrjun nóvember var þessi samein- ingarnefnd sett á laggirnar. Hún átti að vinna að því að finna út hvar væri best að sameina með faglegan og fjár- hagslegann ávinning í huga,“ segir að- stoðarleikskólastjóri í Reykjavík í sam- tali við DV. Konan, sem vill ekki koma fram undir nafni, gagnrýnir að hlut- irnir séu ekki kallaðir réttum nöfnum. „Það sem er vitað er að faglegur ávinn- ingur samkvæmt nefndinni felst í að segja frekar stjórnendum upp og sam- eina en að segja upp starfsfólki á deild- um,“ segir hún og bætir við að formað- ur nefndar um sameiningu hafi vitnað í rannsóknir þess efnis að sameining með þessum hætti muni ekki hafa áhrif á starf barna og fagleg störf í skól- unum. „Þær rannsóknir hafa hins veg- ar aldrei komið fram og veit ég að það eru allir forvitnir um þær. Við höfum ekki fengið að sjá neinar tölur í krón- um um hver hinn raunverulegi sparn- aður verður. Né heldur hver kostn- aðurinn af sameiningarnefndinni er eða af sameiningunni ef og þegar hún verður hjá einhverjum leikskólum og grunnskólum.“ Sýndarlýðræði Að hennar mati er ófagmannlega að þessum fyrirhuguðu breytingum stað- ið og vill hún meina að illa sé að konum vegið en mikill meirihluti leikskóla- og aðstoðarleikskólastjóra eru konur. „Það eru um 78 leikskólar í Reykja- vík og þetta varðar þá með einum eða öðrum hætti. Allir leikskólastjórar borgarinnar eru konur og meirihluti aðstoðarleik skólastjóranna,“ segir konan en tekur það fram að borgin sé með flotta jafnréttisstefnu. Þetta brjóti hins vegar í bága við hana. Þá sé búið að setja sama rýnihópa meðal starfs- manna og foreldra. „Þetta hljómar allt sem einhvers konar sýndarlýðræði. Þetta er hreinn niðurskurður og sam- eining en er sett svona fram til að leyfa okkur að halda að við höfum eitthvað um þetta að segja. Nefndin talar mjög hátt um að það sé búið að hafa sam- ráð við 500–600 manns í borginni um þetta en pikka síðan út það sem hún vill heyra. Það er að minnsta kosti ekki mikið hlustað á gagnrýnisraddir,“ seg- ir hún og bætir við að verulega þungt hljóð sé í leikskólastarfsmönnum þessa dagana. „Það titrar allt meðal starfsfólks og stjórnenda. Það eru allir í sjokki. Mitt starfsöryggi er til dæmis í uppnámi og ég veit ekkert hvað bíður mín, en það er augljóst að bitist verður um hverja stjórnunarstöðu.“ Missir að fagfólki „Það virðist sem að borgaryfirvöld hafi gert sér vonir um að stjórnend- urnir, sem eru menntaðir kennarar, kæmu inn í aðrar stöður innan leik- skólanna í staðinn, en stjórnendur eru búnir að koma með þá yfirlýsingu að það muni ekki gerast,“ segir aðstoðar- leikskólastjórinn og bætir við að þar af leiðandi hverfi fagfólk út úr stéttinni. „Þetta er alveg ofboðslega umburð- arlynd starfsstétt og við höfum látið mjög margt reddast hingað til en nú eru allir komnir með nóg.“ Rætt hefur verið um það meðal leikskólakennara og leikskólastjóra að jafnvel komi til greina að boða til verkfalls. Ekkert er þó staðfest í þeim efnum. Lítill sparnaður í byrjun Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs, segir hagræðinguna nauðsynlega og reynt sé að hlusta á tillögur starfsmanna og foreldra eft- ir fremsta megni. DV lagði nokkrar spurningar fyrir Oddnýju. Margir leikskólakennarar segj- ast upplifa þessar samráðsnefndir og rýnihópa sem einhvers konar sýndar- lýðræði, þar sem í raun sé ekki hlust- að á óánægjuraddir og gagnrýni. Hvernig svarar þú því? „Hugmyndir að sameiningum leikskóla hófust strax eftir að ný lög um leikskóla voru samþykkt sumar- ið 2008, það er, áður en hrunið varð. Á síðastliðnu ári voru sex leikskól- ar orðnir að þremur. Í Reykjavík eru margir litlir leikskólar sem fullyrða má, að sameining skili bæði fagleg- um og fjárhagslegum ávinningi. Í hverjum leikskóla, jafnvel þó börnin séu einungis 24 –40, er gerð náms- skrá, fjárhagsáætlun, ársskýrsla og fleira sem tekur umtalsverðan tíma. Þá hefur stærri leikskóli á að skipa starfsmannahópi sem hefur bæði fjölbreytta menntun og reynslu sem skilar miklu inn í faglega starfið. Fyrsta ákvörðun starfshópsins sem ég stýri var að verkefnastjórinn tæki einstaklingsviðtöl við alla leik- og grunnskólastjóra ásamt forstöðu- mönnum barnastarfs ÍTR. Í fram- haldi af því voru fundir í öllum hverf- um þar sem foreldrar og starfsfólk var beðið að rýna í tækifæri í sínu hverfi. Unnið var með ábendingar úr þessari vinnu auk þess sem starfs- hópurinn lagði fram hugmyndir. Nú eru að störfum rýnihópar sem fara yfir tugi tillagna og síðan endum við vinnuna með því að þeir stjórnendur sem fengu einstaklingsviðtölin fara yfir sömu hugmyndir. Hópurinn mun gera tillögu til borgarráðs um mögu- legar sameiningar. Á sjötta hundrað aðilar koma að þessari vinnu, öllu meira samráð er vart mögulegt nema á mun lengri tíma, og rödd þeirra mun sjá sér stað í lokatillögunum en ljóst er að nauðsynlegt er að hagræða og því þurfum við að ganga lengra en vilji margra stjórnenda stendur til.“ Hver er hinn raunverulegi sparn- aður? „Útreikningar liggja ekki fyrir, fyrst viljum við klára samráðsferl- ið. Sparnaðurinn verður ekki mik- ill fyrst um sinn, það er eðlilegt þeg- ar um stórar breytingar er að ræða en við höfum alltaf litið svo á að við séum að búa í haginn fyrir næstu ár. Betri nýting skólahúsnæðis get- ur til dæms leitt til þess að við get- um endurskoðað uppbyggingaráætl- anir viðbygginga við skóla. Þannig að sá sparnaður til lengri tíma getur legið í gífurlegum fjárhæðum sem við viljum nýta í innra starf skóla og frístundastarf. Nýting húsnæðis grunnskóla fyrir til dæmis leikskóla- deildir sparar okkur stórar fjárhæðir, hugsanleg samþætting skóla- og frí- stundastarfs er spennandi bæði fag- lega og fjárhagslega og svona mætti lengi telja.“ Það liggja í loftinu mótmælaað- gerðir hjá leikskólastarfsmönnum. Hvernig hyggist þið bregðast við ef til verksfalls kemur? „Við munum hlusta á starfsfólkið okkar og upplýsa eftir fremsta megni hver staðan sé. En á tímum sem þess- um ber okkur að skoða alla mögu- leika til hagræðingar svo standa megi vörð um gott leikskólastarf.“ „Mitt starfsöryggi er til dæmis í upp- námi og ég veit ekkert hvað bíður mín, en það er augljóst að bitist verður um hverja stjórnunarstöðu n Mikil óánægja meðal leikskólastarfsmanna n Illa vegið að kvennastétt þrátt fyrir jafnréttisstefnu borgarinnar n Mikill missir að fagfólki sem mun hverfa úr stéttinni „Allir komnir með nóg“ Hanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is Óhjákvæmilegt „Á tímum sem þessum ber okkur að skoða alla möguleika til hagræðingar svo standa megi vörð um gott leikskólastarf,“ segir Oddný Sturludóttir. Mikil ólga Leikskólakennarar eru uggandi vegna fyrirhugaðs niðurskurðar og sameiningar leikskólanna. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. Mynd SIgtryggur arI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.