Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Side 10
10 | Fréttir 7. febrúar 2011 Mánudagur
STOFNUÐU FÉLAG
MEÐ TzVETANSKI
Arnar Guðmundsson, fyrrverandi
viðskiptastjóri hjá Landsbankanum í
Lúxemborg, situr í stjórn fasteignafé-
lags sem búlgarski kaupsýslumaður-
inn Gueorg Tzvetanski var meðeig-
andi að. Landsbankinn í Lúxemborg
lánaði Pro Invest, félagi Tzvetanskis
4,5 milljarða króna 30. september
2008, daginn eftir þjóðnýtingu Glitn-
is. Á þeim tíma var Arnar starfandi hjá
Landsbankanum í Lúxemborg.
Lánið til Gueorg Tzvetanski þann
30. September 2008 er eitt þeirra mála
sem sérstakur saksókanir hefur nú til
rannsóknar vegna meintar markaðs-
misnotkunar Landsbankans. Talið er
að hann hafi fengið lánið til þess að
kaupa hlutabréf í Landsbankanum.
Í samtali við DV segist Gueorg
Tzvetanski þekkja Bjögólf Thor Björ-
gólfsson. „Já. Við erum viðskiptafélag-
ar, segir hann. Tzvetanski bað blaða-
mann um að hringja í sig klukkutíma
síðar til þess að ræða lánamál hans
hjá Landsbankanum og tengslin við
Björgólf Thor. Þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir hefur ekki náðst í Tzvetanski
aftur.
Árið 2005 kom Arnar að stofnun fé-
lagsins Landmark Property Manage-
ment ásamt Gueorg Tzvetanski. Var
Tzvetanski skráður stofnandi Land-
mark í gegnum dótturfélag Altima
Partners sem skráð er á Cayman-eyj-
um. Einnig kom félagið Keldur Hold-
ing, sem skráð er á Tortólaeyju, að
stofnun Landmark. Var Arnar skráður
stofnandi Landmark fyrir hönd Keld-
ur Holding ásamt Sveini Björnssyni.
Sveinn var forstjóri Novator Prop-
erties og framkvæmdastjóri Samson
Properties, fasteignafélags Björgólfs-
feðga.
Nöfn þeirra Tzvetanskis, Arnars og
Sveins koma fram í lögbirtingablað-
inu í Lúxemborg árið 2005. Í samtali
við DV staðfestir Arnar Guðmunds-
son að Keldur Holding hafi verið
stofnað af Landsbankanum í Lúxem-
borg árið 2005 fyrir íslenska fjárfesta.
Ágætir kunningjar
Ragnhildur Sverrisdóttir, talskona
Björgólfs Thors, sagði nýlega í sam-
tali við fréttastofu Stöðvar 2 að tengsl
Björgólfs Thors og Tzvetanskis hefðu
ekki verið nein eftir að sameiginleg
viðskipti þeirra í gegnum Balkan-
pharma og Pharmaco lauk árið 2002.
Aðkoma Landsbankans í Lúxemborg
að stofnun fasteignafélagsins Land-
mark árið 2005 virðist þó hafa verið
mikil, eins og stofnun Altima sýnir.
Samkvæmt heimildum DV eru Björg-
ólfur Thor og Tzvetanski ágætir kunn-
ingjar. Hafa þeir til dæmis hist í Lond-
on.
Tveir stjórnendur Landmark í
Búlgaríu, þau Richard Macdonald og
Tanya Kosseva Boshova, keyptu síð-
an Landmark í lok árs 2007 fyrir 19
milljarða króna. Fóru kaupin fram
í gegnum félagið Bridgecorp Man-
egement Services. Stuttu síðar var
það sameinað félaginu Alfa Devel-
opments sem Richard Macdonald
stjórnar í dag. Ekki liggur ljóst fyr-
ir hvaðan þessir stjórnendur fengu
fjármagn til þess að geta staðið undir
slíkum kaupum. Alfa Developments
er í dag stærsti eigandi skrifstofu-
bygginga í Búlgaríu.
Keldur Holding og Altima Partners
áttu hvort um sig 42 prósent í Land-
mark. Einnig var sagt frá því að Sam-
son Properties, félag Björgólfsfeðga,
hefði farið með 67 prósenta hlut í
Keldur Holding og 33 prósenta hlutur
hafi verið í eigu sjóða í vörslu Lands-
bankans í Lúxemborg.
Þvertekur fyrir öll tengsl
Eftir að Landsbankinn í Lúxemborg
var tekinn yfir í lok árs 2008 stofnaði
Arnar félagið Arena Wealth Manage-
ment ásamt Þorsteini Ólafssyni. Þeir
voru báðir starfsmenn Landsbankans
í Lúxemborg. Arena Wealth Manage-
ment er með skrifstofur við 15 Rue
Louvigny í Lúxemborg. Er það sama
heimilisfang og fasteignafélagið
Landmark, sem Gueorg Tzvetanski
var meðeigandi að, er skráð með að-
setur. Er Arnar skráður í stjórn Land-
mark en Tzvetanski var um tíma for-
stjóri félagsins.
Arnar segir að það séu engin tengsl
á milli Landmark og Arena sem er í
hans eigu. „Ég útvegaði þeim bara
heimilis fang,“ segir hann aðspurð-
ur af hverju Landmark og Arena séu
með heimilisfang á sama stað. Hann
sé í stjórn Landmark en ætli sér að
segja sig úr henni fljótlega. Á heima-
síðu Landmark er hvergi minnst á að
Arnar hafi unnið hjá Landsbankan-
um. Þar er því haldið fram að hann
hafi starfað hjá Arena frá árinu 2001
en ekki frá 2008.
Auðgaðist á sölu
Balkanpharma
Gueorg Tzvetanski varð viðskipta-
félagi Björgólfs Thors Björgólfsson-
ar í gegnum búlgarska lyfjafyrirtækið
Balkanpharma árið 1998. Tzvetanski
keypti Balkanpharma árið 1993 ásamt
Peter Terziev. Fengu þeir síðar kaup-
rétt að þremur ríkisreknum lyfja-
verksmiðjum sem átti að einkavæða.
Settu þeir sig í samband við Deutsche
Bank sem síðan fékk Björgólf Thor til
að taka þátt í verkefninu. Þessi kaup
þóttu mjög umdeild í Búlgaríu á þeim
tíma. Markaðurinn greindi frá greina-
flokki sem skrifaður var um Björgólf
Thor í búlgörskum blöðum árið 2005.
Þar kom fram að búlgörsk þingnefnd
sem fylgdist með spillingu hefði viljað
taka viðskipti Björg ólfs Thors, Deuts-
che Bank og Balkanpharma til skoð-
unar í byrjun árs 2000. Af því hefði þó
ekki orðið.
Pharmaco yfirtók Balkanpharma
árið 2000 og var Sindri Sindrason þar
forstjóri á meðan Gueorg Tzvetanski
og Peter Terziev voru gerðir að fram-
kvæmdastjórum innan samstæðunn-
ar. Í tilkynningu frá því í júlí árið 2002
kemur fram að þá hafi Tzvetanski selt
öll bréf sín í Pharmaco sem hann átti
í gegnum félagið GMGT Investment.
Þá hafi hann líka látið af starfi aðstoð-
arforstjóra Pharmaco. Hann sat einn-
ig í stjórn Pharmaco á árunum 2001 til
2003. Þegar Tzvetanski fór frá Pharm-
aco réð Deutsche Bank hann sem
ráðgjafa, í ágúst árið 2002.
Tzvetanski uppvís að
skattabrotum
Árið 2002 reyndi Björgólfur Thor
að kaupa búlgarska tóbaksfyrirtæk-
ið Bulgartabac. Var það reynt í sam-
vinnu við þá Dominic Redfern og
Radenko Milokovic, starfsmenn
Deutsche Bank, sem höfðu komið að
kaupunum á Balkanpharma. Gueorg
Tzvetanski var líka þátttakandi í þeim
kaupviðræðum. Eftir að Tzvetanski
varð uppvís að því að hafa ekki greitt
um 5,2 milljónir dollara í skatta vegna
sölunnar á bréfum sínum í Pharmaco
slitnaði upp úr þeim viðræðum. Björ-
gólfur Thor eignaðist þar með aldrei
tóbaksfyrirtækið Bulgartabac sem
hann hafði ásælst.
Búlgarska ríkið seldi Björgólfi Thor
síðan stóran hluta í símafyrirtækinu
BTC árið 2004. Í lok árs 2005 átti hann
félagið að fullu. Árið 2007 seldi Björ-
gólfur Thor síðan BTC á 130 milljarða
króna og var söluhagnaður til félaga
tengdra honum talinn hafa numið
um 60 milljörðum króna.
30. september 2008, daginn eft-
ir þjóðnýtingu Glitnis, veitti Lands-
bankinn í Lúxemborg félagi Tzvetan-
skis 4,5 milljarða króna yfirdráttarlán.
Litlar upplýsingar er að finna um fé-
lagið sem heitir Pro Invest. Í gæslu-
varðhaldskröfu yfir Sigurjóni Þ. Árna-
syni er honum meðal annars gefið að
sök að hafa borið ábyrgð á þessu láni.
Ekki er vitað hvort önnur félög sem
tengjast Tzvetanski hafi fengið aðra
lánafyrirgreiðslu hjá Landsbankanum
í Lúxemborg. Einungis er vitað að
Landsbankinn í Lúxemborg kom að
stofnun félagsins Landmark árið 2005
ásamt Altima Partners. Fór Tzvet-
anski fyrir Altima Partners í þeim við-
skiptum eins og kemur fram í lögbirt-
ingablaðinu í Lúxemborg.
Starfsmenn Deutsche Bank hjá
Altima
Dominic Redfern og Radenko Milo-
kovic, fyrrverandi starfsmenn Deuts-
che Bank sem komu að fjárfestingum
Balkanpharma árið 1998, stofnuðu
síðar félagið Altima Partners. Þar
hefur Gueorg Tzvetanski einnig ver-
ið hluthafi og verið í framkvæmda-
stjórn. Þremenningarnir störfuðu þó
um tíma allir hjá Deutsche Bank eftir
að Tzvetanski yfirgaf Balkanpharma
árið 2002. Altima Partners var síðan
stofnað árið 2004. Þrálátur orðróm-
ur hefur verið um það á síðustu árum
að Björgólfur hafi einnig verið í hlut-
hafahópnum. Sá orðrómur hefur hins
vegar aldrei fengist staðfestur.
Dominic Redfern situr enn í
stjórn fasteignafélagsins Landmark
þar sem Gueorg Tzvetanski var um
tíma forstjóri. Redfern sat á sínum
tíma í stjórn Balkanpharma og var
forstjóri tékkneska símafyrirtækis-
ins Ceske Radiokomunikace, CRa,
á árunum 2001 til 2005. Í ágúst árið
2004 keypti Björgólfur Thor CRa á
37 milljarða króna og skráði félag-
ið úr kauphöllinni í Prag nokkrum
mánuðum síðar. Í nóvember 2006
seldi Björg ólfur Thor síðan CRa á
120 milljarða króna og hafði þar
með aukið verðmæti félagsins um
324 prósent á rúmum tveimur árum.
Leiðir þeirra Björg ólfs Thors, Gu-
eorgs Tzvetanski og Dominics Red-
fern virðast því hafa legið víða sam-
an á undanförnum árum.
n Arnar Guðmundsson stofnaði félagið Landmark með Gueorg Tzvetanski
n Starfaði í Landsbankanum í Lúx n Björgólfsfeðgar áttu líka í Landmark„Þar kom fram að
búlgörsk þing-
nefnd sem fylgdist með
spillingu hefði viljað taka
viðskipti Björgólfs Thors,
Deutsche Bank og Balk-
anpharma til skoðunar í
byrjun árs 2000
Fasteignafélag með Tzvetanski Björgólfur Thor Björgólfsson átti fasteignafélagið Landmark með búlgarska kaupsýslumanninum
Gueorg Tzvetanski.
Heimili Arnars Heimili Arnars Guðmundssonar í Lúxemborg. Hann er einn eigenda Arena
Wealth Manegement og fyrrverandi starfsmaður Landsbankans í Lúxemborg.
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is