Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Síða 12
12 | Fréttir 7. febrúar 2011 Mánudagur „Mamma, hjálp!“ sagði 17 ára stúlka við móður sína, Guðnýju Sigurðar- dóttur á Facebook í nótt. „Þú verður að sækja mig, plís. Ég er verð að kom- ast út, ég er svo hrædd. Ég er búin að klúðra öllu. Ég er að deyja og ég þarf að tala við þig.“ Þessi stúlka er ein af þeim sem reglulega hverfur af heim- ili sínu og lýst er eftir í fjölmiðlum. Barnaverndar yfirvöld höfðu fyrst af- skipti af dóttur Guðnýjar árið 2007. Síðan hefur hún reynt öll úrræði sem í boði eru en án árangurs. „Við höfum alltaf verið að berjast við hana. Ég var einmitt að rifja það upp í gær,“ seg- ir hún og dregur þykkan skjalabunka upp úr töskunni, „hvað það er ofboðs- lega mikið búið að ganga á. Þetta er eitt og hálft ár í lífi hennar sem búið er að taka saman í greinargerð. Það var gert þegar ég var að sækja um vist- un í langtímameðferð. Hún vildi ekki fara þannig að það þurfti að fara fyrir nefnd hjá Barnavernd og þá var þetta tekið saman til að styðja mitt mál.“ Með greinagerðinni er 31 fylgiskjal varðandi þau skipti sem kerfið hef- ur haft afskipti af máli hennar. „Þetta nær til ársins 2008. Síðan hefur örugg- leg bæst annar eins bunki við. Hún er enn ósjálfráða þannig að hún er á veg- um Barnaverndar en það eru engin fleiri úrræði þannig að hún er búin að vera á götunni í mánuð. Ég hafði ekki heyrt í henni frá því á jóladag,“ segir Guðný vonlítil. Hún stígur nú fram fyrir hönd allra foreldra sem hafa ekki bara barist við börnin sín heldur einnig fyrir þau. Baráttan hefur verið erfið og Guðný hefur oftar en ekki verið við það að brotna saman og gefast upp. En „það sem drepur mann ekki styrkir mann,“ segir hún og heldur baráttunni áfram. Grátbað um hjálp Þegar hún heyrði í dóttur sinni í nótt hafði hún ekki vitað af henni í mán- uð. „Hún grátbað um hjálp. Ég benti henni á að fara á næstu lögreglustöð eða hringja í 112 ef hún væri í vand- ræðum, því hún er enn undir lögaldri og inni í kerfinu þannig að þeim er skylt að veita henni skjól. Hún á alltaf leið út. En hún vill ekki fara þá leið því hún er ekki tilbúin til að hætta. Í nótt spurði ég hana hvort hún væri tilbúin til þess að fara inn á neyðarvistun og ef svo væri myndi ég sækja hana, ann- ars ekki. Annað væri ekki í boði. Hún samþykkti það að lokum og sem betur fer fékk ég síðasta lausa plássið.“ Neyðarvistun á Stuðlum er eina úrræðið fyrir foreldra í þessari stöðu. Guðný hefur oft þurft að leita þang- aði í gegnum tíðina og hefur ekki tölu á þeim skiptum sem hún hefur kom- ið að lokuðum dyrum vegna pláss- leysis. „Það eru bara fimm laus pláss þarna og um helgar er nánast alltaf fullt. Á meðan er ekki einu sinni leit- að að henni, því það er tilgangslaust á meðan engin úrræði eru í boði þegar hún finnst. Þannig að við höfum þurft að sætta okkur við að hún sé áfram í neyslu og ógeði þar til það losnar pláss fyrir hana. En þetta var í fyrsta sinn sem hún bað sjálf um hjálp og nú grátbað hún um hjálp. Reyndar þá held ég að hún hafi bara verið á svona heiftarlegum niðurtúr.“ Tabú að tala um þetta Guðný er gift kona í Grafarvoginum og þau hjónin eiga saman þrjú börn, þar af tvo syni, sex ára og ellefu ára. Sjálf lýsir hún fjölskyldunni sem dæmi- gerðri úthverfafjölskyldu. „Við erum ótrúlega venjulegt fólk. Ég er í félags- fræði í Háskólanum og hann er skip- stjóri,“ segir hún og bætir því við að hún hafi á þessari þrautagöngu fund- ið hverjir séu vinir hennar og hverj- ir séu það ekki. Sumir hafa ekki ráðið við þessa erfiðleika og látið sig hverfa á meðan aðrir hafi sýnt þeim stuðn- ing. „Ég hef alltaf verið mjög opinská með þetta og sumum hefur þótt það óþægilegt. Sumir hafa hent mér út af vinalistanum. Það er svolítið sárt, þótt ég skilji vel að það vilji ekki allir setja sig inn í svona aðstæður. Aðrir vita ekki alveg hvernig þeir eiga að vera og fara í vörn. Þetta er svo mikið tabú að það má ekki tala um þetta. Mér fannst það ofboðslega erfitt fyrst.“ Stöðug barátta frá barnæsku Sem móðir varð hún mjög snemma vör við það að dóttir hennar var ekki eins og flest önnur börn. „Hún var allt- af á skjön við allt og alla. Ég fór fyrst til sálfræðings þegar hún var þriggja ára til þess að athuga hvort það væri í lagi með þessa hegðun. Hún hélt ekki at- hygli og var alltaf að trufla alla í kring- um sig. Í mörg ár gekk ég á milli lækna sem vísuðu hver á annan og sögðu að hún væri orkumikið og fjörugt barn. Ég sætti mig ekki við það en það var ekki fyrr en hún varð ellefu ára árið 2004 sem ég fékk greiningu á hana. Síðan fluttum við frá Vesturbæn- um í Grafarvog þegar hún var fjórtán ára og þá lenti hún í slæmu einelti. Hún var veik fyrir og upp frá því leitaði hún í eldri krakka og fór að drekka. Það var sameiginleg ákvörðun okkar foreldranna og skólayfirvalda að þau myndu láta barnavernd vita, eins og þeim er reyndar skylt að gera. Það var eiginlega bara léttir þegar hún var komin inn í kerfið því þá fengum við loksins stuðning.“ Hvarf í helgarleyfinu Stúlkan var send á Stuðla þar sem hún kynntist nýju fólki. „Það er séns sem við urðum að taka. Annaðhvort loka þau dyrunum að baki sér eða opna nýjar dyr. Hún valdi það að halda áfram og ganga lengra. Í kjöl- farið mældist kannabis í henni í fyrsta skipti. Síðan lá leiðin niður á við. Að heyra hana tala núna er eins og að hlusta á lyfjafræðing. Hún þekkir öll lyf og virkni þeirra. Hún vildi fara inn á Stuðla en sner- ist hugur þegar hún áttaði sig á því að þetta var meðferð. Hún sá ekki vanda- málið. Ég hef verið mjög óánægð með öll meðferðarúrræði því yfirleitt er það hluti af prógraminu að senda hana heim í bæjarleyfi og helgarleyfi. Það var líka gert þarna og í einu helg- arleyfinu notaði hún tækifærið til þess að strjúka að heiman og detta í það. Það var mikið áfall. Alveg hræðilegt.“ Leitar til lögreglu í neyð „Á Stuðlum eru börn kannski ekki komin svo langt í neyslu, ekki öll alla vega, en þegar börnin eru komin langt í neyslu þýðir ekkert að senda þau heim í helgarleyfi. Sérstaklega ekki ef þau eru mótfallin því að vera í með- ferð. Það fyrsta sem þau gera er að láta sig hverfa. Það er það sem hún hefur alltaf gert, hún kemur heim í helgar- leyfi og hún er farin. Við getum ekk- ert gert til þess að koma í veg fyrir það. Sum meðferðarheimilin eru lok- uð yfir páska, jól og aðra hátíðardaga þegar það er mikil hætta á því að þessi börn falli. Ég hefði til dæmis haldið að neyðarvistun Stuðla væri úrræði sem ætti alltaf að vera hægt að leita til. En í fyrra lét hún sig hverfa með vinkonu sinni viku fyrir jól og við viss- um ekki neitt. Við vissum hvað þær voru að gera en við vissum ekki hvar þær voru. En það þarf alltaf að líða viss tími áður en hægt er að auglýsa eftir þeim. Þetta er ekki forgangsmál hjá lögreglunni, alls ekki,“ segir hún og útskýrir að þótt hún hafi stundum mætt skilningi og alúð hjá lögreglunni hafi henni líka stundum liðið eins og hún væri að tilkynna um skemmda kartöflu. „Það er mjög erfitt að mæta slíku viðmóti því þegar ég hringi í lög- regluna er ég búin að missa von. Ég geri það ekki nema í neyð.“ Stöðugt sorgarferli Í þetta skiptið kom stelpan í leitirnar á Þorláksmessumorgun þegar Guð- ný fékk símtal frá slysadeildinni. „Mín fyrsta hugsun að þetta væri símtalið. Allir fíklaforeldrar þekkja það hvern- ig það er að bíða eftir símtalinu og ég hugsaði ósjálfrátt að núna væri þetta búið. Að ganga í gegnum þetta er eins og að missa barnið sitt aftur og aftur. Þú missir barnið þitt og gengur í gegn- um sorgarferli. Síðan gerist eitthvað jákvætt og þú færð barnið þitt aftur og fyllist von. Þegar barnið fellur aftur gegnur þú aftur í gegnum sama sorg- arferli. Þannig að þetta er stöðug til- finningakreppa, stanslaus sorg, dep- urð og reiði.“ Símtalið var þó af öðrum meiði þar sem stúlkan hafði þá komið sjálf- viljug af ótta við að hafa tekið of mik- ið af e-pillum. Guðný lét vita af því að hún væri vistuð á fósturheimili og þar sem þetta væri barnaverndarmál ætti læknirinn að tilkynna málið til lög- reglunnar, sem hann gerði. Í kjölfarið „Þetta er eins og að missa barnið sitt aftur og aftur“ n Móðir sautján ára stúlku berst fyrir lífi hennar n Dóttirin strauk fyrst 14 ára n Henni er haldið uppi af körlum sem vilja kynlíf n Fékk Facebook-skilaboð: „Mamma, hjálp. Þú verður að sækja mig.“ n Dóttirin dópuð í jólamatnum, vissi ekki að það væru jól n „Við erum ótrúlega venjulegt fólk“ Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is „Þú missir barnið þitt og gengur í gegnum sorgar- ferli, síðan gerist eitthvað já- kvætt og þú færð barnið þitt aftur og þú færð von. Síðan fell- ur barnið þitt og þú ferð aftur í sorgarferli. Þetta er stöðug til- finningakreppa, stanslaus sorg, depurð og reiði. „Þetta eru yfirleitt menn á milli tví- tugs og þrítugs. Það hef- ur verið þannig síðan hún var fjórtán ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.