Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Síða 15
Tökum þátt Lífshlaup er hafið og er fólk hvatt til að nýta sér
tækifærið og huga að daglegri hreyfingu sinni með því að taka þátt.
Á heimasíðu Lýðheilsustöðvar má lesa að Lífshlaupið sé fræðslu- og
hvatningarverkefni ÍSÍ og höfði til allra aldurshópa. Tilgangurinn með
Lífshlaupi er að fá landsmenn til að huga betur að heilsu sinni og hvetja
þá til að hreyfa sig. Samstarfsaðilar Lífshlaupsins eru velferðarráðu-
neytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið ásamt fleirum. Leikurinn
sem er ætlaður vinnustöðum og grunnskólum fer fram dagana 2. til 22.
febrúar og allir eru hvattir til að taka þátt.
Sniðgangið litarefnin Enn eru litarefni sem hafa varasöm áhrif, sem vitað
er um, notuð og seld á Íslandi. Þessu mótmæla Neytendasamtökin og hvetja neytendur til
að sniðganga matvæli sem innihalda eftirfarandi efni: E102, E104, E110, E122, E124 og E129.
Á heimasíðu samtakanna segir jafnframt að algengt sé að litarefnin séu í frostpinnum og
sælgæti en oft séu vörurnar þó ekki merktar með upplýsingum um innihaldsefni. Þetta eigi
einkum við nammibarina. Samtökin segja það ólíðandi að ekki sé farið eftir lögum og neyt-
endur eru hvattir til að senda Neytendasamtökunum póst (ns@ns.is) með upplýsingum um
sölustaði verði þeir varir við að innihaldslýsingu vanti við nammibari. Ef sælgæti inniheldur
eitthvert hinna umdeildu efna ættu neytendur auðvitað að sniðganga það.
Neytendur | 15Mánudagur 7. febrúar 2011
Forðumst þetta
Hér gefur að líta matseðil sem
hægt er líta á sem mótsögn við
þann holla:
Morgunmatur:
n Sykrað morgunkorn með
nýmjólk
Neysla á sykri keyrir upp blóðsykurinn í
skamman tíma en svo fellur hann fljótt
niður aftur. Þá upplifum við hungur og
líkaminn kallar á skjóta orku. Sykraður
morgunmatur er til dæmis ekki góð
byrjun á deginum.
Millibiti að morgni:
n Kex
Ef maður hefur ekki fengið staðgóðan
og næringarríkan morgunverð segir
hungrið fljótlega til sín. Þá freistast
margir til að leita í sæt matvæli svo
sem kex.
n Kaffi með mjólk
Fitumeiri mjólkurvörur eru með mikið af
mettaðri fitu og eru háar í kalóríum.
Hádegisverður:
n Hamborgari
Hamborgarabrauðið er hvítt með
töluverðu magni af sykurs og það vantar
trefjarnar sem fást úr grófu brauði.
Sósan er oftast gerð úr majónesi og
hakkið er feitt kjöt.
n Franskar kartöflur
Franskar kartöflur og snakk innihalda
transfitusýrur sem eru á allan hátt
neikvæðar. Sem dæmi má nefna að
þær auka magn kólesteróls í blóðinu
sem stuðlar að þrengingu æðaveggja.
Neysla á transfitusýrum er yfirleitt talin
tengjast aukinni hættu á hjarta- og
æðasjúkdómum, sykursýki, heilablóð-
falli og ýmsum langvarandi lífsstílssjúk-
dómum
n Gos
Síðdegiskaffi:
n Vínarbrauð og snúður
Kvöldmatur:
n Smjörsteiktar lambakótilettur
í raspi
n Brúnaðar kartöflur
n Rjómasósa
n Gos
Kvöldnasl:
n Snakk og ídýfa
Þrátt fyrir ágæti íslenska lambakjötsins
eru smjörsteiktar lamba kótilettur í raspi
ekki það hollasta sem hægt er að fá sér í
kvöldmat. Raspið sýgur í sig smjörið sem
er mettuð fita.
Besta og versta mataræðið
n Lítil breyting á mataræði getur fært þig úr óhollustu í hollustu n Hér er matseðill sem gefur frábæra næringu og hæfilega orku
n Brauð á heima á matseðlinum hjá langflestum en það skiptir máli hvernig við smyrjum
það. Bæði hvað varðar magn og tegund af smjöri eða viðbiti og tegund áleggs. Fólki
hættir við að festast í kjötáleggi og osti en við þurfum fjölbreyttara álegg en það.
Kjötálegg og ostur eru auk þess með töluvert saltinnihald og mettaða harða fitu.
n Gott er að skipta yfir í baunakæfu eða fiskálegg. Með því fáum við fjölbreyttari
próteingjafa og ómettaða fitu í stað mettaðrar. Hugsunin skal alltaf vera að reyna að
fá frekar mýkri fituna inn sem stuðlar að jákvæðum áhrifum á hjartað og æðakerfið. Í
baunamauki er einnig notuð jurtaolía og tahini (sesammauk) sem innheldur ómettaða
fitu. Meiri fjölbreytni í áleggi á brauðið gerir brauðmáltíðir hollari.
n Íslendingar borða ekki nógu mikið af grófu brauði en með grófkorna brauði er átt við
brauð sem inniheldur minnst 6 grömm af trefjum á hver 100 grömm. Mikið af því brauði
sem fólk telur vera gróft er einungis með 3 grömm af trefjum svo það er í raun bara hálf
gróft. Með því að borða meira af grófu korni flýtum við ferðinni um ristilinn sem hefur
jákvæð áhrif á meltinguna og getur dregið úr sjúkdómum í ristli.
n Aukin neysla grænmetis og ávaxta er ekki einungis vörn gegn sjúkdómum heldur getur
hún einnig haft jákvæð áhrif á holdafar og stuðlað að eðlilegri líkamsþyngd. Trefjarík
fæða veitir mettunartilfinningu og fyllingu en frekar litla orku. Sætir ávextir eru einnig
hollari en sætmeti með viðbættum sykri.
n Með ávexti, eins og aðra fæðuflokka, er um að gera að velja fjölbreytt úrval, og um
að gera að velja þær vörur sem mest er framboð af og á besta verðinu hverju sinni. Þá er
líklegt að um sé að ræða vöru á uppskerutíma.
n Sýrðar mjólkurvörur eru eins og aðrar mjólkurvörur góðir kalkgjafar. Við bætist að
sumar tegundir sem innihalda vissar tegundir gerla eins og til dæmis AB-mjólkin hafa já-
kvæð áhrif á þarmaflóruna og geta þannig stuðlað að heilbrigði meltingarvegarins. Best
er að velja sem oftast vörur með lágu fituinnihaldi og frekar þær sem eru óbragðbættar
en sæta þær sjálfur, til dæmis með þurrkuðum ávöxtum.
Hádegismatur
Grófkorna brauð
Gott álegg, til dæmis baunakæfa (húmmus) og tómatar
(ferskir eða sólþurrkaðir)
Blandað salat eða ávöxtur að eigin vali
Sýrð mjólkurvara, til dæmis AB-mjólk, skyr eða jógúrt fyrir
þá sem þurfa meira
n Fiskurinn er sá fæðuflokkur sem fæstir borða daglega en mættu auka við og borða
að minnsta kosti tvisvar í viku og gjarnan oftar. Hann inniheldur gæðaprótein og úr
honum fáum við góða fitu. Ýmis önnur næringarefni fást við fiskneyslu svo sem selen
og joð. Mikilvægt er að borða bæði magran og feitan fisk sem er auðugur af D-vítamíni
og ómega-3 fitusýrum. Fitusýrurnar eiga þátt í uppbyggingu frumuhimna og myndun
efna sem hafa áhrif á blóðþrýstingsstjórnun, blóðstorknun og bólgu- og ónæmisvarnir
líkamans. Í bæklingi Lýðheilsustöðvar segir að samkvæmt erlendum rannsóknum þá
fái þeir, sem borða fisk tvisvar til þrisvar í viku, síður hjartaáfall en þeir sem borða hann
sjaldan eða aldrei.
n Ef kjöt er valið á kvöldverðardiskinn er mikilvægt að velja magurt kjöt og skera
frá auka fitu. Fitan sem við fáum úr kjöti er mettuð fita sem maður ætti að reyna að
takmarka. Íslendingar mættu vera duglegri að borða kál og annað gróft grænmeti en
við höfum í seinni tíð notað meira af fínni og vatnsmeiri tegundum. Ólík næringarefni
eru í þessum tveimur tegundum og grófara grænmetið er trefjaríkarar. Dæmi um gróft
grænmeti er spergilkál, hvítkál, blómkál, gulrætur, rófur, rauðrófur, laukur og baunir.
Vatnsmeiri tegundir eru til dæmis tómatar, agúrkur, salat og paprika. Hér, eins og annars
staðar, er það þó fjölbreytnin sem skiptir höfuðmáli.
n Kartöflur og bygg og bulgur eða hýðishrísgrjón eru allt gott meðlæti. Velja skal sem
oftast grófar tegundir til að hámarka magn næringarefna og trefja. Hins vegar er öllu
hægt að ofgera, þannig að ef máltíðin og fæðuval dagsins er þegar mjög trefjaríkt
þá má velja venjuleg grjón eða pasta á móti. Langflestir Íslendingar þurfa að auka
trefjaneysluna, en mjög mikið magn trefja getur hins vegar komið í veg fyrir frásog sumra
næringarefna.
n Ekki er gert ráð fyrir að við þurfum að vera í algjöru fráhaldi. Lítill sætur moli í lok
máltíðar dugar oft til þess að eyða sykurlöngun sem oft vill láta kræla á sér stuttu eftir
máltíð. Ef maður hefur borðað vel samsetta máltíð á undan er í góðu lagi að
fá sér einn mola auk þess hefur það ekki sömu áhrif ef maður fær sér sætindi við hungri.
Þá má benda á að sumt sælgæti eins og súkkulaði og ís veitir einnig næringarefni á
meðan hlaup og brjóstsykur eru nær eingöngu sykur. Hófsemin er þó framar öllu.
Kvöldmatur
Ofnbakaður fiskur með þaki úr góðu grænmeti, til dæmis
spergilkáli og tómötum
Svolítill ostur bræddur yfir fiskinn
Salat, til dæmis úr fínskornu hvítkáli, papriku og hnetum,
með olíuediksósu
Kartöflur, bygg, búlgur eða hrísgrjón með
Sætur moli fyrir þá sem vilja
n Fólk drekkur mismikið kaffi en það er
talið hæfilegt að fá sér tvo bolla yfir daginn.
Við þurfum hins vegar að huga að magni
mjólkur sem sett er í kaffið og takmarka
sykurinn því annars getur kaffibollinn hæg-
lega orðið mjög orkuríkur. Það getur verið
ótrúlegur fjöldi kalóría sem við innbyrðum
úr mjólkinni sem við setjum í kaffið.
n Gott er að fylla vatnsglas reglulega því
stundum höldum við að svengdin sé að
gera vart við sig þegar fyrst og fremst er um
þorsta að ræða.
n Eitt glas af hreinum ávaxtasafa getur
verið hluti af ávaxtaneyslu dagsins.
Drykkir yfir daginn
Kaffi
Vatn
Hreinn ávaxtasafi