Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Blaðsíða 18
18 | Umræða 7. febrúar 2011 Mánudagur „Við mætum á staðinn þegar aðrir hafa verið hvattir til að yfirgefa hann.“ n Jón Björgvinsson fréttaritari – DV „Það má segja að Bjarni sé fyrsta alvarlega ástin mín.“ n Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra sem fann ástina með Bjarna Bjarnasyni rithöfundi. – DV „Það er fjárhags- leg geðbilun að hanna og framleiða fatalínu.“ n Mundi vondi fatahönnuður – DV „Hún er nátt- úrulega 2 metrar og 2 kíló.“ n Björk Eiðsdóttir dagskrárgerðarkona um samstarfskonu sína Nadiu Banine „Aðalmarkmið- ið verður að vinna Simma.“ n Þóra Arnórsdóttir fréttakona Sjónvarpsins, um tilnefninguna til Eddu verðlaunanna. – DV Svikin í borginni Loftið í Reykjavík er svo meng-að að marga daga geta leik-skólabörn ekki leikið sér úti. Börn hafa jafnvel hóstað upp gráu slími vegna mengunarinnar. Reykja- vík hefur fyrir löngu misst sakleysið og hreinleikann, en ekkert er verið að gera í því, jafnvel þótt það sé hag- kvæmt á allan hátt. Það besta sem hægt er að gera fyrir umhverfið í Reykjavík, fjár- hag íbúanna og hagkerfið í heild, er að gera raunhæft fyrir fólk að nota strætó. Það myndi minnka innflutn- ing, draga úr eyðslu fólks, styrkja krónuna, hjálpa fátækum, bæta heilsuna og minnka loftmengun, há- vaðamengun og sjónmengun, svo eitthvað sé nefnt. Líklega eru engin dæmi um neina aðgerð sem sameinar hagkvæmni, umhverfisvernd og velferð með sama hætti og styrking strætós. Aðstæð- urnar til að fá fólk í strætó eru betri nú en nokkru sinni, og þörfin er meiri en nokkru sinni. Þetta er í raun sögu- lega einstakt tækifæri til að minnka umferð einkabíla á höfuðborgar- svæðinu. Enda lofuðu Samfylkingin og Besti flokkurinn að styrkja strætó. „Auka skal ferðatíðni og bæta leiða- kerfi strætós,“ sögðu þau í málefna- samningnum í fyrra. Það var ekki lið- ið ár áður en þau sviku þessi loforð ískalt. Besti flokkurinn lofaði frítt í strætó fyrir börn. Í staðinn var farmiðinn fyrir börn hækkaður úr 100 krónum í 350 krónur núna í janúar. Dagur B. Eggertsson og Jón Gnarr lýstu því yfir í nýja málefnasamn- ingnum að vefurinn www.betri- reykjavik.is yrði hafður til hliðsjón- ar við ákvarðanir og stefnumótun. Þar geta borgarar lagt fram tillögur og kosið um þær. Fjórða vinsælasta tillagan, með tæplega 1.170 atkvæði gegn rúmlega 30, er að „auka tíðni strætóferða og laga leiðakerfið“. Fyrir tæpum tveimur árum komst til valda stjórnmálaflokkur, sem gerir beinlínis út á að berjast gegn mengun og sóun, og með tekjulág- um, heilsu og velferð. Þegar Vinstri grænir og Samfylkingin gerðu með sér stjórnarsáttmála var þetta orðað svona: „Almenningssamgöngur um allt land stórefldar ...“ Niðurstaðan er hins vegar sú að ríkið, undir stjórn Vinstri grænna og Samfylkingar, rukk- ar Strætó um á bilinu 2–300 milljónir króna á ári í ýmis gjöld og leggur ekk- ert til rekstursins. Hér er sláandi munur á loforðum stjórnmálamanna og raunverulegum aðgerðum þeirra. Í staðinn fyrir að al- menningssamgöngur séu „stórelfd- ar“ og ferðatíðnin aukin og leiðakerfið bætt er niðurstaðan að framlag sveit- arfélaga til strætós er skorið niður um tæpar 250 milljónir króna. Afleiðingin er að það sem gerist er þveröfugt við það sem sagt var að myndi gerast, ef við kysum tiltekna flokka. Um leið er gert ýmist óraunsætt eða útilokað fyrir marga að stunda svokallaðan bíllausan lífsstíl, sem er einfaldasta leið venjulegs manns til að bæta fjárhaginn og heilsuna. Fólk er dæmt til að taka þátt í sóun og meng- un einkabílsins. Það sorglega er að all- ir virðast vita hvað það er heimskulegt og allir sem einhverju ráða lofa að laga það, en þeir svíkja það samt. Leiðari Voru Danir alveg ofsalega ánægðir með bókina? „Ja, de synes at den er god nok.“ segir Einar Kárason, rithöfundur sem fékk lofsamlega dóma í Weekenda- visen í Danmörku um helgina fyrir bók sína Ofsa. Spurningin Bókstaflega Jón Trausti Reynisson ritstjóri skrifar„Hér er sláandi munur á loforðum stjórnmála- manna og raunveruleg- um aðgerðum þeirra. Fjarvera Guðfríðar n Guðfríður Lilja Grétarsdóttir alþingismaður hefur undanfarna mánuði verið í fæðingarorlofi. Fjarvera hennar hefur sumpart verið Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra léttir en Guð- fríður á hug- myndafræðilega samleið með Ögmundi Jónas- syni innanríkisráðherra og öðrum í svokallaðri órólegu deild VG. Áætlað var að Guðfríður myndi snúa aftur í byrjun mars. En nú er líklegt að hún lengi fæðingarorlof sitt um mánuð og mæti aftur á þing í byrjun apríl. Þá má búast við fjöri. Ónáð formanns n Þeir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins sem gengu úr skaftinu við afgreiðslu á Icesave-málinu munu lenda úti í kuldanum hjá Bjarna Benedikts- syni formanni. Meðal náinna samherja Bjarna voru Birgir Ármannsson, sem var á móti, og Sigurður Kári Kristjánsson, sem sat hjá við afgreiðsluna. Víst er að þeirra frami innan flokks verður ekki mikill ef Bjarni situr. Það mun því verða hagur þeirra að fella formanninn hið fyrsta. Sjóðheitur stóll n Stóll Kristjáns Gunnarssonar verkalýðsleiðtoga í Keflavík er bókstaflega sjóðheitur. Kristján er með gríðarlega vafasama fortíð sem stjórn- armaður og síðar formaður í stjórn Sparisjóðsins í Keflavík og einn- ig í lífeyrissjóði samhliða því að stjórna Verkalýðs- og sjómannafé- lagi Keflavíkur. Í viðtali við Kastljós viðurkenndi Kristján að hafa skrifað undir alræmdan starfsloka- samning við Geirmund Kristinsson sparisjóðsstjóra. Eina vörnin var sú að hann hefði ekki lesið plaggið. Kristján sagði af sér trúnaðarstörf- um fyrir Starfsgreinasambandið og lífeyrissjóðinn Festu. Ekki er þó víst að þetta dugi. Kröfur um að hann stígi alveg til hliðar í verkalýðs- hreyfingunni eru háværar. Koníaksklúbburinn n Alþýðusamband Íslands undir stjórn Gylfa Arnbjörnssonar er í raun undirlagt af átökum. Allt virðist vera gert til að koma Vilhjálmi Birgissyni, verkalýðsleiðtoga á Akranesi, á kné. Annar óþekkt- arormur er Aðalsteinn Baldursson á Húsavík sem tekið hefur sér stöðu með Vilhjálmi. Innan ASÍ er gjarnan talað um ráðandi öfl sem Koníaksklúbbinn. Klúbbfélagar þar eru sagðir frábitnir því að leyfa óróaseggjum inngöngu. Sandkorn tryggvagötu 11, 101 rEykjavík Útgáfufélag: Dv ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is Fréttastjóri: Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is Ritstjórnarfulltrúi: jóhann Hauksson, johannh@dv.is Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is Umsjón innblaðs: Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is DV á netinu: dv.is Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010, Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050. Smáauglýsingar: 512 7004. Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Það er illa gert af Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, að hlýða ekki forskrift Davíðs Odds- sonar, ritstjóra Moggans, um að skuldir íslenskra óreiðumanna í útlöndum verði ekki greiddar. Davíð hefur margoft bent á þetta og vill greinilega að skuldir inn- lendra óreiðumanna gangi fyrir. Þar er auðvitað nærtækt að benda á risagjaldþrot Seðlabankans sem undir stjórn Davíðs sökk undan ástarbréfum og öðrum óreiðu- málum. Eftir fall Davíðs varð til hirð samherja í kringum hann. Sá valdakjarni varð að þeirri hirð sem ráðið hefur í undirgöngum Sjálf- stæðisflokksins. Davíð var á sínum tíma for-maður Sjálfstæðisflokksins og var nánast dýrkaður, eins og gerist víðar um heimsbyggðina þar sem um er að ræða valdamenn sem öllu ráða. Í stjórnartíð hans var komið fyrir einkar hæfu fólki í Hæstarétti, héraðs- dómstólum og víðar. Meðal annars var frábær ríkis- lögreglustjóri sem hafði reynslu af því að hóta því að drepa mann, skipaður til verka. Þá var snillingnum Hannesi Hólm- steini Gissurar- syni komið fyrir í prófessorsstöðu í Háskóla Íslands. Af þeim stóli dund- aði hann við að stela texta Nóbelsskáldsins Halldórs Laxness. Þótt hann væri dæmdur fyrir verknaðinn var auðvitað frá- leitt að reka hann, vin Davíðs, úr starfi. Davíð og hans góða hirð hafa verið áberandi í umræðunni undanfarin ár. Guðmóðir hirðarinnar er athafnakonan Guð- björg Matthíasdóttir í Vestmanna- eyjum sem heldur úti málgagni Davíðs, Morgunblaðinu. Kvóta- frúin góða greiðir tugmilljónatap í hverjum mánuði til þess að mál- staður hennar ná að fljóta fram á síðum blaðsins. Sjálfstæðismenn hafa lesið Moggann sinn eins og sanntrúaðir Biblíuna. Sátt hefur verið um þetta fyrirkomulag. En áfallið varð í vikunni þeg-ar Bjarni formaður gekk algjörlega gegn samvisku eigin flokks og lýsti því yfir að hann væri sammála kommúnistanum Stein- grími J. Sigfússyni um að rétt væri að samþykkja nýjustu útgáfuna af Icesave. Davíð var svo brugðið að hann skrifaði ekki orð í rúman sól- arhring. Svo kom árásin á þokka- piltinn sem lét eins og hann væri formaður Sjálfstæðisflokksins: „Vi- kapiltur Steingríms,“ sagði gamli formaðurinn um þann nýja í leið- ara. Og öll hirðin fór hamförum. Vandinn er aðeins sá að svo virðist sem sjálfstæðismenn líti ekki leng- ur á Davíð sem formann. Sumir þeirra ganga svo langt að upp- nefna hann sem Hádegismóra sem er í hæsta máta ósmekklegt. Nú virðist Svarthöfða sem búið sé að slá Davíð út af borðinu og eftir standi flokkur án foringjahyggju. Hinn góði leiðtogi er fallinn fram á sverð sitt en ill öfl hafa tekið stjórnina í Valhöll. Það kom á daginn að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Svarthöfði Kvótafrúin góða og hirðin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.