Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Síða 26
frægð og frama Stefnir á 26 | Fólk 7. febrúar 2011 Mánudagur Íslendingar keppast um hamingju Ásdís Olsen er sérstök áhuga-manneskja um raunveru-leikaþætti og langaði til að nota það form í dagskrárgerð tengdri hamingju. Hún hefur um- sjón með ansi óvenjulegum þátt- um sem hefja göngu sína á Stöð 2 í mars en þar verður fylgst með átta Íslendingum vinna markvisst að því að auka hamingju sína. Þætt- irnir eru byggðir á metsölubókinni Meiri hamingja sem hefur sleg- ið í gegn um víða veröld og eigin- maður Ásdísar, Karl Ágúst Úlfsson, þýddi. Í henni er fjallað um leiðir fyrir venjulegt fólk til að bæta líf sitt og líðan í daglegu lífi. „Höfundur bókarinnar, Tal Ben- Shahar, hefur vakið mikla athygli með kenningum sínum og kennslu í jákvæðri sálfræði. Ég byggi á pró- grammi úr þessarri bók og læt þátttakendur leysa ýmis verkefni. Þeir halda einnig dagbók og kort- leggja líf sitt með ákveðnum hætti. Hugmyndin er ekki að þeir séu að keppa hver við annan held- ur frekar við sjálfan sig. Margt af þessu er eitthvað sem við vitum en þetta er spurning um að fram- kvæma, þetta er ákveðin tilraun þegar fólk fær þetta góðan stuðn- ing við að halda sér við efnið.“ Ásdís vonar innilega að fleiri en þeir sem skráðu sig til leiks keppi við sjálfa sig um meiri hamingju. „Vonandi verður þetta bráðsmit- andi,“ segir hún og skellir upp úr. En fylgir hún sjálf þessu pró- grammi? „Já, ég myndi nú segja það, ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki einhver ráð til að grípa í þegar illa liggur á mér.“ Gerði við þurrkara Selma Björnsdóttir lýsti því yfir á Facebook-síðu sinni í vikunni að hún þyrfti ekki á neinum karlmönnum að halda. „Gerði við þurrkarann. Karlmenn eru dauðir fyrir mér,“ skrifaði þessi hæfileikaríka kona og bætti við: „Nennið þið að senda mér bikar?“ Selma Björnsdóttir sendi nýverið frá sér kántríplötu en hún hefur um nokkurra ára skeið verið ein af okkar fremstu poppsöng- konum. Hún hefur einnig slegið í gegn sem leikstjóri, víðar en bara á Íslandi. Hugleikur fer á kostum „Ég skrifa helst um sjálfstæðar konur sem finnst gaman að ríða,“ segir Hugleikur Dagsson myndlist- armaður um óskir aðdáenda hans um teiknimyndaseríu um femínista eftir birtingu vinsæls pistils sem hann skrifaði um femínisma. Pistillinn er hluti af átaki Þórdísar Elvu Bachman, Öðlingurinn, á Vísi. Hugleikur fer á kostum í pistlinum og segist finna það undarlegt að í hatursskrifum kynbræðra hans á netinu sem beinast gegn femínistum komi oft fram að þessar „kellingar“ þurfi bara að láta ríða sér. Hann segist ekkert skilja í þessu enda þekki hann fullt af femínista- stelpum sem hann viti ekki betur en að séu alltaf að ríða. „Ég skrifaði heilt leikrit um þetta, leikritið Leg,“ bendir Hugleikur á. Ásdís Olsen: Kolbrún Ýr Sturludóttir: Keppa ekki við aðra sjálfa sig Átta Íslendingar læra um ham- ingjuna í nýjum og óvenjulegum raunveruleikaþætti undir stjórn Ásdísar Olsen. K olbrún Ýr Sturludóttir er á sautjánda ári og stund- ar nám í Fjölbrautaskól- anum í Garðabæ. Hún er sigurvegari Ford-fyrirsætu- keppninnar á Íslandi og mun keppa fyrir Íslands hönd í fyrir- sætukeppninni Supermodels of the World í New York í sumar. Ís- land hefur aldrei náð langt í þeirri keppni og slagurinn verður harð- ur. Kolbrún segist vitaskuld stefna hátt. Hennar eini draumur sé að verða þekkt fyrirsæta. „Þetta er draumurinn og ég vona að mér takist að láta hann rætast. Ég hef ekkert annað markmið í lífinu sem stendur. Þetta er bara númer eitt og það er ekkert annað á döfinni. Ég er mjög spennt fyrir förinni út því mig hefur lengi langað að sinna fyrirsætustörfum erlendis.“ Mamma fer með til New York Kolbrún komst í fréttir árið 2009 en þá þótti umdeilt að hún lék í auglýs- ingum frá olíufélaginu N1 þar sem athygli vakti að hún var ekki orðin nægilega gömul til að nýta sér sjálf þau kostaboð til viðskiptavina sem hún kynnti í auglýsingunum en Kol- brún var 15 ára þegar hún sat fyrir í þeim. En þrátt fyrir ungan aldur læt- ur Kolbrún ekkert stöðva sig og móðir Kolbrúnar og framkvæmdastjóri Esk- imo Models fara með Kolbrúnu út til New York. „Mamma veit alveg hvern- ig þessi heimur er. Hann er harður og ég er ung. Hún og Andrea fara með mér og það er mér nauðsynlegt að fá þann stuðning. Ég er hins vegar ekk- ert kvíðin, bara full tilhlökkunar og ef- ast ekki um að ég eigi eftir að pluma mig ágætlega. Ef ekki í keppninni þá í fyrirsætustörfum almennt.“ Kolbrún segist vilja klára nám til stúdentsprófs en sé þó tilbúin að stökkva á góð tækifæri. „Ef stór og góð verkefni verða á vegi mínum þá læt ég ekkert stöðva mig og sinni þeim eins vel og ég get. Ég trúi því að ef maður tekur sér eitthvað fyr- ir hendur þá geri maður það bara eins vel og kostur er, það er allt í lagi að hafa metnað fyrir þessu eins og hverju öðru.“ Vinsæl á Facebook Kolbrún segist finna fyrir miklum áhuga hins kynsins eftir að hún skráði sig til leiks í keppninni. „Það berast mér óvenju margar vina- beiðnir frá strákum á Facebook,“ segir hún hlæjandi. „Mér finnst þetta bara fyndið og tek þetta ekki alvarlega. Hinar stelpurnar fundu fyrir þessu líka. Svona er þetta bara.“ Kolbrúnu hefur margoft ver- ið líkt við ofurfyrirsætuna Claudiu Schiffer. „Ég heyri það mjög oft, vonandi nýtist það mér bara, “ segir hún og skellir upp úr. Úrslit keppninnar má kynna sér hér til hliðar. n Kolbrún sigraði í Ford-fyrirsætukeppninni á Íslandi n Er á lausu og fær ótal vinabeiðnir frá strákum í kjölfar sigursins n Á sér aðeins einn draum og hann er að verða þekkt fyrirsæta Á sér aðeins einn draum Kolbrún ætlar sér að verða fyrirsæta og hlakkar til að takast á við þá áskorun. Ung og umdeild Kolbrún komst í fréttir árið 2009 þegar hún lék 15 ára gömul í auglýsing- um þar sem hún kynnti kostaboð til þeirra sem höfðu bílpróf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.