Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Page 29
Fólk | 29Mánudagur 7. febrúar 2011
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Kim Kardashian dregin inn í forræðisdeilu:
M
iley Cyrus er búin að fá sér enn eitt
húðflúrið! Söng- og leikkonan, sem
er 18 ára, fékk sér sitt fimmta húðflúr
á dögunum og það á síðuna. „Þetta er
mynd af „dreamcatcher“ sem hangir yfir rúmi
með fjórum fjöðrum sem tákna fjögur systk ini
hennar,“ segir vinur Miley í samtali við banda-
ríska tímaritið People. Húðflúrin sem Miley
var með fyrir er hjarta og lítill kross á fingrun-
um, orðið „ást“ á eyranu og „just breathe“, eða
andaðu, á brjóstkassanum. Öll húðflúrin hafa
einhverja merkingu.
Miley er ein skærasta barnastjarna heims en
hún hefur síðustu ár verið að reyna að brjót-
ast út úr því hlutverki og færa sig nær því að
vera alvöru poppstjarna. Hún kom fyrst fram
í Disney-sjónvarpsþáttunum Hannah Mon-
tana og síðar í Disney-kvikmyndum. Miley
hefur vakið hörð viðbrögð margra foreldra
vestanhafs fyrir að vera slæm fyrirmynd ungra
stúlkna síðustu mánuðina en hún hefur látið
það eins og vind um eyru þjóta.
Miley komin með
fimmta húðflúrið
Miley Cyrus fékk sér húðflúr:
Partíljón Miley hefur
ekki beint verið góð
fyrirmynd undanfarið.
LÖMUÐ AF FEIMNI
Keira Knightley fórnaði félagsþroska fyrir leiklistina:
Þ
að helst greinilega ekki alltaf í hendur að vera
heimsfræg leikkona og að vera laus við feimni.
Allavega ekki í tilfelli bresku leikkonunnar
Keiru Knightley. Í viðtali sem tekið var á dögun-
um sagði leikkonan frá því að hún lamaðist hreinlega
stundum af feimni.
„Að ganga inn í herbergi fullt af fólki í samkvæmi
er eitt það mest ógnvekjandi sem ég get ímyndað mér
í heiminum. Ég endist yfirleitt í svona tíu mínútur. Ég
bara lamast af feimni, bara gjörsamlega lamast.“ Keira
segist ekki ráða við þessa feimni sína og vinir hennar
segi hana virka óvingjarnlega og þurra sökum þessa.
„Einn vinur minn spurði mig hvenær ég hefði breyst í
ísdrottninguna. Þetta er vandamálið sem fylgir því að
vera feiminn og frægur.“
Keira telur að ástæðan fyrir því að hún sé svo slök
í mannlegum og félagslegum samskiptum sé að hún
fórnaði meira og minna unglingsárunum til þess að
verða góð leikkona. Hún fór til dæmis ekki í framhalds-
skóla. „Ég sat aldrei á barnum með vinum mínum, ég
fór aldrei út að skemmta mér eða neitt annað sem
unglingar eru vanir að gera. Þannig að að hluta til var
ég mjög þroskuð og öguð þegar kom að leiklistinni
en langt á eftir þegar kom að félagslega þættinum.“
Keira Knightley
Virkar köld út af því
að hún er svo feimin.
Vandræðapésinn Charlie Sheen hefur tilkynnt að hann muni snúa aftur á tökustað
Two and a Half Men í lok mánað-
arins. Charlie er nú í meðferð eftir
að hafa misst tökin á lífi sínu með
neyslu eiturlyfja og áfengis und-
anfarna mánuði. Botninum náði
hann fyrir skemmstu þegar hann
skemmti sér með klámmyndaleik-
konum í Las Vegas og svo á heimili
sínu stuttu seinna. Það endaði með
því að hann var lagður inn á spítala.
Í fyrstu var talað um að með-
ferð leikarans myndi vara í heila
þrjá mánuði. Skömmu seinna kom
í ljós að Charlie hefði í raun ekki far-
ið í meðferð heldur hafði meðferð-
in farið til hans. Hann er í heima-
meðferð til að tryggja friðhelgi sína.
Charlie hefur nú komist að sam-
komulagi við framleiðendur þátt-
anna vinsælu um að snúa aftur fyrr
en áætlað var þar sem fjarvera hans
hefði jafnvel þýtt endalok þáttanna.
Charlie er því í erfiðri stöðu þar sem
störf fjölda fólks eru í hans drykk-
felldu höndum. Í yfirlýsingu sem
Charlie sendi frá sér þakkar hann
þann stuðning og þá þolinmæði
sem samstarfsfólk og aðdáendur
hafa sýnt honum.
Leikarinn Martin Sheen, faðir
Charlies, hefur talað opinberlega
um að hann hafi enga trú á „heima-
meðferð“ sonar síns. Fréttir hafa
borist af því að fjölskylda Charlies
hafi reynt að svipta hann sjálfræði
líkt og gert var við Britney Spears á
sínum tíma en án árangurs.
Snýr aftur í
lok mánaðar
Heimameðferð Charlies styttri en áætlað var:
Meðferðin stytt
úr þremur mán-
uðum í einn Pabba
Charlies, Martin
Sheen, líst ekkert á
heimameðferð.