Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Síða 3
Alls verða því veð m.v. þetta um 71,7 ma.kr. á móti láni upp á 50 ma.kr. (70% veðhl.)“ Af þessu má sjá að einungis tveir milljarðar króna skiptu raunveru- lega um hendur í viðskiptunum: Lán Fons, og hlutabréf í Iceland- keðjunni, færðust bara yfir á ann- an aðila, Styttu ehf. Hins vegar voru viðskiptin ekki kynnt á þennan hátt heldur var talað um að slegið hefði verið Íslandsmet í hagnaði og mátti ætla að viðskiptin hefðu farið fram á algerlega viðskiptalegum og eðlileg- um forsendum. Sannleikurinn virð- ist hins vegar hafa verið annar. Af fundargerðinni sem vísað er til í rannsóknarskýrslunni sést líka að meðlimir lánanefndar bank- ans hafa verið sáttir við viðskiptin, að færa áhættuna vegna lánveit- inga til Fons yfir á annað félag, en að þeim hafi þótt slæmt að þurfa að láta tvo milljarða fylgja með til að kaupa Iceland Express út úr Northern Travel Holding Group. Í skýrslunni segir nefnilega, og er vís- að í fundargerð lánanefndarinnar: „Þess má geta að aðeins 48 milljarð- ar króna komu til uppgreiðslu lána hjá Landsbanka Íslands, 2 milljarða króna fékk Fons til að „kaupa út Ice- land Express [...] það eina sem hefur gerst vont í þessu er það að Iceland Express, það er keypt þarna síðan út og hluti af peningunum fer í það.“ Lánanefndin virðist því hafa met- ið það sem „vont“ að milljarðarnir tveir hefðu líka farið til Fons. Ætla má að þetta atriði hafi verið mikil- vægt í samningunum og verið ein af ástæðunum fyrir því að Pálmi í Fons gat sætt sig við viðskiptin. Frumkvæðið kom frá Stoðum Í skýrslunni kemur jafnframt að stofnun Styttu og skuldsetning fé- lagsins hafi verið að frumkvæði stjórnenda Stoða hf. „Undanfari lán- veitingar  Landsbankans  og  Glitn- is  til Styttu ehf. er samningur sem Stoðir hf.,  Fons  hf. og Stytta ehf. gerðu í júlí 2008.“  Samkvæmt fund- argerð lánanefndar Landsbankans frá 16. september treystu Stoðir, áður FL Group, sér ekki til að styðja við rekstur Northern Travel Group, sem innihélt flugfélögin Sterling, Iceland Express og Astreus, en að Fons, sem átti í félaginu á móti Stoð- um, hafi gert það. Í fundargerðinni segir: „Sterling sem er í eigu NTG hefur átt í miklum rekstrarerfiðleik- um og sjá Stoðir ekki fram á að geta stutt reksturinn meira á næstunni. Eigendur  Fons  hafa hins vegar trú á rekstrinum og eru tilbúnir til að setja pening áfram inn í félagið og sjá til hvort þetta gangi ekki upp.“ Viðskiptin voru því hluti af nokk- uð flókinni viðskiptafléttu á milli Stoða og Fons sem fól það í sér að Stoðir drógu sig út úr Northern Travel Holding, og Fons eignaðist félagið að fullu, og Fons dró sig úr Iceland, og Stoðir eignuðust stærri hlut í félaginu. Lykilatriði í viðskipt- unum virðist jafnframt hafa verið að gera upp skuldir Fons við Lands- bankann og Glitni, líkt og fram kem- ur hér. Stytta skuldar 100 milljarða Skilanefnd Landsbankans hef- ur yfirtekið hlutabréf Styttu í Ice- land-keðjunni og vinnur nú að því að hefja söluferli á verslununum. Skilanefndin hefur gefið það út að reynt verði að selja Iceland-keðjuna á þessu ári. Fyrir liggur að Malcolm Walker hefur boðið milljarð punda í keðjuna en ætla má að fleiri áhuga- samir aðilar muni bætast í hópinn þegar tilkynnt verður um söluferli félagsins þar sem um er að ræða mjög gott fyrirtæki sem skilaði um 35 milljarða króna hagnaði í fyrra. Samkvæmt nýbirtum ársreikn- ingi Styttu skuldar félagið um 100 milljarða króna og er eina eign fé- lagsins hlutabréfin í Styttu. Ef kröfu- hafar Styttu vilja sleppa við afskriftir á skuldum félagsins má ætla að selja þurfi Iceland-keðjuna fyrir töluvert hærra verð en milljarð punda, jafn- gildi tæplega 190 milljarða króna í dag. Fréttir | 3Mánudagur 28. febrúar 2011 „Lánsfjárhæðin á 48,12mj. láninu er miðuð við núverandi fjárhæðir á lánum Fons miðað við gengið 15. ágúst 2008 Blekkingarnar með Iceland-bréf Fons Einn af eigendum Styttu Malcolm Walk- er, einn af stofnendum Iceland-keðjunnar, er einn af eigendum Styttu í gegnum eignar- haldsfélagið Blackstar ltd. á eyjunni Mön. Skuldir Fons yfirteknar Stytta yfirtók skuldir Fons, eignarhaldsfélags Pálma Haraldssonar, við Landsbankann í viðskiptun- um. Viðskiptin voru teiknuð upp með það að markmiði að þessar skuldir yrðu yfirteknar. Mynd karl pEtErSSon 75 milljarða hagnaður Brot úr frétt Stöðvar 2 um viðskipti pálma 15. ágúst 2008: „Ég er mjög sáttur,“ segir Pálmi Haralds- son, eigandi Fons, sem hefur selt hluti sína í Iceland, Landic Property, Booker og Goldsmith fyrir um 100 milljarða króna. Hagnaður Fons af sölunni af hlutnum í Iceland er um 75 milljarðar króna. Pálmi þvertekur fyrir að hann sé í peningavandræðum eða að félög hans gangi illa. Hópur fjárfesta, þar á meðan Stoðir, áður FL Group, keypti hlut Fons í Iceland og hinum félögunum en kaupin eru fjármögnuð með hjálp frá Landsbankanum, Glitni og Kaupþingi. Ljóst er að eftir viðskiptin er Fons eitt öflugasta fjárfestingarfélag á Íslandi. En hvers vegna þetta skref. Fyrir því eru tvær ástæður, segir Pálmi í samtali við Markaðinn í dag. „Annars vegar vegna þess að ég vildi selja og hins vegar að kaupandinn vildi kaupa.“ Þá þvertekur Pálmi fyrir að hann hafi verið kominn í peningavandræði en fyrir sölu var eigið fé Fons um 40 milljarðar króna.“ „Andvirði ráðstafast alfarið til uppgreiðslu á lánum Fons hf., Sikker ehf. (yfirtökufélag Securitas) og fleiri aðila í LÍ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.