Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Síða 4
Glæsileg Toyota Land Cruiser-bif-
reið Gylfa Arnbjörnssonar, forseta
Alþýðusambands Íslands, féll þann
5. febrúar síðastliðinn í gegnum ís
og fór á bólakaf í vatn. Verkalýðsfor-
kólfurinn staðfesti í samtali við DV
að hafa verið í bifreiðinni sem var
á leiðinni yfir fjallveginn Kjöl þegar
óhappið átti sér stað.
„Jújú, ég lenti í smáslysi uppi á
Kili fyrir nokkrum vikum,“ sagði Gylfi
í samtali við blaðamann. Gylfi var
sjálfur við stýrið þegar atvikið átti sér
stað en með honum var einn farþegi
og sluppu þeir báðir ómeiddir frá
óhappinu.
Mikið tjón
Gylfi staðfestir í samtali við DV að
tjónið á bílnum hafi verið mikið
enda sé um kostnaðarsama og mik-
ið breytta bifreið að ræða. Á heima-
síðu Toyota á Íslandi kemur fram að
Land Cruiser-bifreiðar kosti nýjar og
óbreyttar á bilinu 8,8 til 12,6 milljón-
ir. Gylfi segist ekki vita hversu mikið
það muni kosta að gera við bílinn,
en ljóst sé að ýmislegt þurfi að laga.
„Þegar ísinn brotnaði undan honum
og hann hrundi niður þá beygluðust
til dæmis hurðir og bretti,“ segir Gylfi
og bætir við að bíllinn hafi fyllst af
vatni en það valdi einnig miklu tjóni.
Aðspurður hvort hann hefði ver-
ið að keyra utan vegar segir Gylfi
svo ekki vera: „Nei, alls ekki. Þetta
var bara leysingarvatn við Kjalveg-
inn og engin leið að sjá það fyrir. Það
var ekkert sem benti til þess að þarna
undir okkur væri vatn, ekkert að sjá á
kortunum eða neitt.“
Í 16 daga hléi
Gylfi hefur undanfarin misseri stað-
ið í eldlínunni við samningagerð
til handa almennu launafólki en
fimmtudaginn 10. febrúar, nokkr-
um dögum eftir að Land Cruiser-bif-
reið hans sökk, settist hann aftur við
samningaborðið með Samtökum
atvinnulífsins eftir sextán daga hlé
á viðræðum. Bent hefur verið á að
Gylfi sé með tæplega milljón í laun
á mánuði á meðan hinn almenni
launamaður berjist í bökkum við að
ná framfærsluviðmiðum.
Ekki eru allir á eitt sáttir með Al-
þýðusambandið undir forystu Gylfa
en á ársfundi sambandsins í októb-
er í fyrra mótmælti hópur fólks fyrir
utan Hotel Nordica. Þá skoraði Vil-
hjálmur Birgisson verkalýðsleiðtogi
á hann að segja af sér sem formaður.
Sluppu út um hliðarglugga
Á heimasíðu sksiglo.is var fjallað um
hinn sokkna bíl en þar kemur fram
að Gunnar Júlíusson nokkur hafi
fengið beiðni um hjálp klukkan 22.00
á laugardagskvöldið fimmta febrú-
ar frá vetrarferðafélögum sem voru
á ferðalagi á Kili. Þar segir að þeir
tveir sem voru um borð í bílnum hafi
sloppið út um hliðarglugga og upp á
ísinn.
„Gunnar brá sér í samfesting utan
yfir náttfötin, fyllti tanka bílsins og
hengdi bílakerruna aftan í sex hjóla
trukkinn og snaraði sér af stað í björg-
unarleiðangurinn,“ segir á síðunni.
Hann er síðan sagður hafa kom-
ið ásamt öðrum úr hópi björgunar-
manna um klukkan eitt á áfangastað
en bíllinn mun hafa sokkið rétt norð-
an við afleggjarann að Beinhóli, þar
sem Reynistaðarbræður báru bein-
in. Aðkoman er sögð hafa verið nöt-
urleg, vestangjóla og bíllinn nánast á
kafi í vatni, en heila sex tíma tók að
koma honum á þurrt. Í kjölfar þess
var síðan hafist handa við að tappa
vatni af vél og drifbúnaði.
4 | Fréttir 28. febrúar 2011 Mánudagur
Telur að Icesave-skuldin muni minnka eða hverfa með öllu:
Skuldin gæti horfið
Lárus Blöndal, hæstaréttarlögmað-
ur og fulltrúi stjórnarandstöðunnar
í seinni samninganefnd Íslands um
Icesave, segir að Íslandi beri ekki að
greiða Icesave-skuldina. Þetta sagði
Lárus í sjónvarpsþættinum Silfri Eg-
ils á sunnudag. Lárus sagði áminn-
ingarbréfið sem íslensk stjórnvöld
fengu í hendur frá eftirlitsstofnun
Fríverslunarsamtaka Evrópu, ESA,
sýna fram á röksemdarfærslu sem
byggir á mjög veikum grunni. Lárus
sagði þó að miðað við reynslu sína
sem lögfræðingur sé yfirleitt betra að
semja heldur en að fara dómstóla-
leiðina, en það þýðir þá væntan-
lega að Íslendingar komi til með að
greiða Icesave-skuldina. „Ég vinn við
þetta og oftast nær er skynsamlegra
að semja heldur en að fara fyrir dóm-
stóla.“
Athygli vöktu tölur sem Lár-
us nefndi í þættinum en að hans
áliti er í raun til nægt fé í þrotabúi
gamla Landsbankans til að greiða
skuldina að fullu „og þá er Icesave
horfið.“ Lárus sagði að eignir þrota-
bús Landsbankans vera of varlega
metnar. Minntist Lárus sérstaklega
á eignarhlut þrotabús Landsbank-
ans í matvöruverslunarkeðjunni Ice-
land Foods. Er andvirði eignarhlut-
arins skráð undir raunverulegu virði
hlutarins en Lárus nefndi að hlutur
þrotabús Landsbankans sé um 100
milljarða virði. Skilanefnd Lands-
bankans hafnaði nýverið boði sem
hljóðaði upp á 660 milljónir punda
í Iceland Foods, sem jafngildir 122
milljörðum króna. Tilboðið þótti al-
gerlega óviðunandi, en vonast er til
að hlutur þrotabúsins verði seldur á
1,5 milljarð punda.
bjorn@dv.is
Verð 32.750 kr.
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Withings WiFi vogin
• Fyrir allt að 8 notendur
• Skynjar hver notandinn er
• Skráir þyngd, fituhlutfall og vöðvamassa
• Þráðlaus samskipti við tölvu og smartsíma
• Fæst í hvítum lit eða svörtum
Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16
Handtekinn með
stórt barefli
Lögreglan á Selfossi handtók aðfara-
nótt sunnudags þrjá menn sem voru á
leið á skemmtistað til að útkljá deilu-
mál sem ekki er vitað nánari deili á.
Að sögn lögreglu var einn mannanna
sem lögregla handtók með 60 sentí-
metra barefli úr járni sem hann ætlaði
að nota í uppgjörinu á skemmtistaðn-
um sem aldrei varð.
Maðurinn, sem er erlendur ríkis-
borgari, reyndi að komast undan lög-
reglu á tveimur jafnfljótum þegar hún
hafði afskipti af honum. Lögregla var
þó fljót að hafa hendur í hári hans en
maðurinn reyndist vera undir áhrifum
áfengis. Hann fékk að gista fanga-
geymslur lögreglu og var yfirheyrður á
sunnudag.
Fall sparisjóða
verði rannsakað
Þór Gunnarsson, fyrrverandi spari-
sjóðsstjóri hjá Sparisjóði Hafnar-
fjarðar, segir að óheiðarlegir menn
hafi komist til valda í sparisjóðum
landsins sem hafi rænt þá innan
frá í eigin þágu. Þór starfaði hjá
Sparisjóði Hafnarfjarðar í 45 ár, þar
af 25 ár sem sparisjóðsstjóri. Hann
sagði í RÚV á sunnudag að mikil-
vægt væri að ráðist verði í opinbera
rannsókn á falli sjóðanna sem allra
fyrst.
Sagði Þór það vera dapurlegt að
horfa upp á hvernig fyrir sparisjóð-
um landsins sé komið. Hann sagði
stöðu sparisjóðanna einn allsherj-
ar áfellisdóm yfir stjórnendum
þeirra sem og endurskoðunarfyrir-
tækjum og eftirlitsaðilum.
Fiskiskipaflotinn
stækkar
Alls voru 1.625 fiskiskip á skrá hjá
Siglingastofnun í árslok 2010 og fjölg-
aði þeim um 43 frá árinu áður. Þetta
kemur fram í hefti Hagstofu Íslands í
efnisflokknum Sjávarútvegur en heftið
kom út á föstudag. Þar kemur fram að
fjöldi vélskipa hafi verið 761 og sam-
anlögð stærð þeirra 83.457 brúttó-
tonn. Vélskipum fækkaði um sjö skip
á milli ára og minnkaði flotinn um
3.312 brúttótonn. Togarar voru alls 57
og fækkaði um einn frá árinu á undan.
Heildarstærð togaraflotans var 65.087
brúttótonn og minnkaði um 2.783
brúttótonn frá árinu 2009. Opnir fiski-
bátar voru 807 talsins og fjölgaði um
51 á milli ára.
Icesave-samninganefndin Lárus var fulltrúi stjórnarandstöðunnar í nefndinni.
n Gylfi Arnbjörnsson missti glæsilega Land Cruiser-bifreið sína ofan í vatn uppi á
hálendi n Óljóst hversu mikið fjárhagslegt tjón er en bifreiðin kostar fleiri milljónir
„Þegar ísinn brotnaði undan
honum og hann hrundi niður þá
beygluðust til dæmis hurðir og bretti.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
MILLJÓNAJEPPI SÖKK
UNDAN FORSETANUM
Slapp ómeiddur Gylfi Arnbjörnsson
forseti ASÍ slapp ómeiddur þegar glæsileg
Toyota Land Cruiser-bifreið hans sökk uppi
á Kili í upphafi mánaðarins.
Á bólakafi Gylfi segist ekki hafa
verið að aka utan vegar heldur hafi
verið um leysingarvatn að ræða
MYND GUNNAR JÚLÍUSSON
Glæsibifreið sekkur Ný Toyota Land
Cruiser-bifreið kostar á bilinu 8,8 til 12,6
milljónir hjá umboðinu MYND GUNNAR JÚLÍUSSON