Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Page 10
Kattavinur Elín Kristjánsdóttir, forstöðukona Kattholts, segir fjölda katta þurfa á athvarfinu að halda. 10 | Fréttir 28. febrúar 2011 Mánudagur Búist við að Goðafoss verði í slipp næstu þrjár vikurnar: Goðafoss til Óðinsvéa „Við erum að vonast til þess að hann verði ekki mikið meira en svona tvær til þrjár vikur í slipp,“ segir Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips. Flutningaskipið Goðafoss, sem strandaði við Fredrikstad í Nor- egi fimmtudagskvöldið 17. febrúar síðastliðinn, fer til Óðinsvéa í Dan- mörku á mánudagsmorgun. Þar fer skipið í slipp en upphaflega stóð til að skipið færi þangað á sunnudag. „Norsk yfirvöld fara fram á einhvern sex klukkustunda fyrirvara því þeir þurfa að hafa báta til taks til að fylgja skipinu út fjörðinn. Þeir eru bara að passa að allt verði í lagi,“ segir Ólafur og bætir við að skipið verði að sigla út úr norskri landhelgi í dagsbirtu. Talsverðar skemmdir urðu á skip- inu þegar það tók niðri en Ólafur segir að skemmdirnar séu þó mun minni en óttast var í fyrstu. „Mið- að við það sem fór af olíu í sjóinn þá virðist þetta vera mun minna en óttast var. Skipið verður sett í þurrk- ví og skoðað vandlega undir það. Það verður skorið undan honum þar sem eru göt og sett nýtt stál. Það þarf líka að athuga hvort það séu beyglur og svo þarf að þykktarmæla. Okkar björtustu vonir eru tvær vikur en við reiknum með þremur vikum,“ segir Ólafur. Farmur skipsins, um 430 gámar, er nú allur kominn til Fredrikstad og segir William að þeir gámar sem áttu að fara til Evrópu séu þegar farnir af stað. Sömu sögu er að segja af hluta þess farms sem átti að fara til Íslands en enn eru nokkrir gámar sem enn bíða flutnings til Íslands. „Þetta á allt að vera að smella,“ segir Ólafur að lokum. einar@dv.is „Það er mikið af köttum sem þurfa á okkur að halda og við munum ekki bregðast þeim. Kattholt mun starfa áfram í óbreyttri mynd,“ seg- ir Elín Kristjánsdóttir, forstöðumað- ur Kattholts, sem segir stórt skarð hafa myndast í hóp kattavina við frá- fall Sigríðar Heiðberg, fyrrverandi forstöðukonu Kattholts og formann Kattavinafélags Íslands. Sigríður lést þriðjudaginn 22. febrúar síðastliðinn. Erfitt ár fyrir Kattholt Eftir fráfall Sigríðar hafa margir katta- vinir óttast um stöðu Kattholts og verið uggandi um framtíð þess góða starfs sem þar hefur unnist á und- an förnum árum. Fyrir utan að hýsa heimilislausa ketti hefur markmið Kattholts verið að upplýsa fólk um mikilvægi þess að merkja og gelda ketti sína og veita fróðleik um katt- arhald. Þar er einnig kattahótel sem hefur notið mikilla vinsælda meðal kattareigenda því sinna þarf köttun- um þegar eigendur fara í frí. Sigríður Kristjánsdóttir hefur starf- að í Kattholti í 11 ár en hún tók við for- stöðu Kattholts í veikindum Sigríðar og mun halda áfram því óeigingjarna starfi sem Sigríður vann þar í gegnum árin. „Það verður seint fyllt upp í þetta skóra skarð en maður reynir sitt besta og við höfum ástríðu hennar á Katt- holti að leiðarljósi í okkar starfi,“ segir Elín og bætir við að síðasta ár hafi ver- ið mjög erfitt í Kattholti. „Þetta er búið að vera hræðilegt ár. Það er óvenju mikið af köttum sem finnast á víða- vangi og fólk er að losa sig við. Einn- ig er mjög erfitt að finna köttum nýtt heimili í augnablikinu. Það eru ekki margir að fá sér kisur í dag.“ „Þeirra hús og athvarf“ Mun meira af köttum kemur inn í at- hvarfið en fara þaðan og segir Sigríð- ur að ástæðuna megi að nokkru leyti rekja til ástandsins í þjóðfélaginu, þar sem fólk hafi oft minna á milli handanna en áður. „Þegar fólk þarf að skera niður þá vill það oft bitna á blessuðum dýrunum, því miður. Þess vegna er svo mikilvægt að Katt- holt geti starfað áfram. Ég veit ekki hvað yrði um kisurnar ef þetta færi, þetta er þeirra hús og athvarf.“ Sigríður Heiðberg, forstöðukona Kattholts í tæp tuttugu ár og for- maður Kattavinafélags Ísland, lést að morgni 22. febrúar eftir erfið veik- indi. Hún var 72 ára að aldri. Sigríð- ur var öflug báráttukona fyrir velferð katta en hún tók við formennsku Kattavinafélags Íslands árið 1989 með opnun Kattholts að leiðarljósi. Hún sat einnig í stjórn Verndar síð- an 1986 og var varaformaður síðan 2001. Sigríður sagði eitt sinn í viðtali að það að sinna dýrum léti sér líða vel og helgaði hún líf sitt köttum og velferð þeirra. Kattholt verður áfram til staðar n Engin ástæða fyrir kattavini að óttast um framtíð Kattholts n Erfitt að finna köttum ný heimili n Kreppan bitnar fyrst á dýrunum Hanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is „Einnig er mjög erfitt að finna köttum nýtt heim- ili í augnablikinu. Það eru ekki margir að fá sér kisur í dag. Stórt skarð Sigríður Heiðberg var öflug baráttu kona fyrir velferð katta. Hún lést 22. febrúar eftir erfið veikindi. Á leið í slipp Ólafur segir að björtustu vonir geri ráð fyrir að skipið verði í tvær vikur í Óðinsvéum. Þó sé gert ráð fyrir þremur vikum. MYND REUTERS Siv ætlar að segja já Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segist ætla að segja já í þjóðaratkvæðagreiðsl- unni um Icesave. Þessari skoðun sinni lýsti Siv í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni á sunnu- dag. Þessi skoðun Sivjar vekur athygli, ekki síst í ljósi þess að for- maður flokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hefur lýst því yfir að best færi á ef málið kæmi til kasta dómstóla. Siv sagðist hafa tekið þessa ákvörðun eftir að hafa hlust- að á lögfræðinga færa rök fyrir því að betra sé að borga Icesave-skuld- ina í stað þess að málið fari fyrir dómstóla. Rándýr snjómokstur Kostnaður við snjómokstur og hálkuvarnir á Víkurskarði á síð- asta ári nam tæpum 19 milljónum króna. Þetta kemur fram á vef hér- aðsfréttablaðsins Vikudags. Þar seg- ir að á fimm ára tímabili, árin 2006 til 2010 hafi kostnaður við snjóm- okstur á Víkurskarði numið samtals 86,5 milljónum króna. Er vísað í upplýsingar frá Vegagerðinni. Kostnaðurinn hefur farið vax- andi undanfarin ár ef marka má tölurnar. Þannig nam hann 13,5 milljónum króna árið 2006, 12,5 milljónum árið 2007, 19,8 milljón- um árið 2008 og um 21,6 milljón- um króna árið 2009. Oft hefur verið ófært um Víkurskarð í vetur og eru mörg dæmi þess að björgunarsveit- ir og lögregla hafi þurft að aðstoða vegfarendur í vandræðum á ferð um Víkurskarð. 458 kandídatar brautskráðir 458 kandídatar voru brautskráð- ir frá Háskóla Íslands á laugardag. Um var að ræða fyrri brautskrán- inguna af tveimur á aldarafmæli skólans. Kandídatar fengu venju samkvæmt prófskírteini sín afhent við hátíðlega athöfn. Kristín Ing- ólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, ávarpaði gesti. Fyrsta haustið sem skólinn starfaði, fyrir rétt- um hundrað árum, voru aðeins 45 nemendur skráðir til náms og í þeim hópi var aðeins ein kona. Meirihluti nemenda nú er hins vegar konur þannig að ljóst er að ýmislegt hefur breyst á undanförn- um hundrað árum. Frá upphafi hafa á fimmta tug þúsunda nem- enda tekið við prófskírteinum frá Háskóla Íslands frá stofnun hans, þann 17. júní árið1911.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.