Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Side 17
Erlent | 17Mánudagur 28. febrúar 2011
Umberto Eco telur Silvio Berlusconi vera eins og Adolf Hitler:
Berlusconi líkt við Hitler
Ítalski rithöfundurinn Umberto Eco
segir að Silvio Berlusconi, forsætis-
ráðherra Ítalíu, sé svipaður stjórn-
málamaður og Adolf Hitler. Eco var
staddur á bókahátíðinni í Jerúsal-
em á dögunum og var hann spurð-
ur hvort bera mætti saman einræð-
isherra eins og Hosni Mubarak við
Silvio Berlusconi. „Fræðilega séð
er nær lagi að líkja honum við Adolf
Hitler, þar sem hann komst einnig til
valda í frjálsum kosningum.“
Ummælin hafa vakið mikla at-
hygli. Eco, sem varð heimsfrægur
fyrir skáldsöguna Í nafni rósarinn-
ar, er jafnan talin til mestu rithöf-
unda samtímans en hann er einn-
ig virtur heimspekingur og rektor
háskólans í Bologna, elsta háskóla
Evrópu. Mennta- og menningar-
málaráðherra Ítalíu, Sandro Bondi,
var sérstaklega óánægður með um-
mælin. „Það eru mikil vonbrigði að
maður mennta og menningar eins
og Eco skuli nota slíkan samanburð
og móðga þannig milljónir Ítala, svo
ekki sé minnst á að hann lét orðin
falla í Jerúsalem.“ Eco virðist mjög
óánægður með Berlusconi, en hann
var viðstaddur fjöldamótmæli gegn
forsætisráðherranum í Mílanó í vik-
unni. „Sorglegast er auðvitað að það
var ítalska þjóðin sem kaus þetta yfir
sig. En þannig er það nú stundum,“
sagði Eco við tækifærið.
Eco var einnig spurður að því
í Jerúsalem, hvað honum fynd-
ist um að breski rithöfundurinn
Ian McEwan hafi sniðgengið há-
værar kröfur um að hann tæki
ekki við bókmenntaverðlaunum
sem honum voru veitt. Aðdáend-
ur McEwans vildu að hann neitaði
að taka við verðlaununum til að
mótmæla framferði Ísraelsmanna
gagnvart Palestínu. Eco vildi lít-
ið um málið segja: „Það eru næg
vandamál heima fyrir á Ítalíu sem
ég get talað um, ég þarf ekki að tjá
mig um vandamál annarra.“
Nú á tímum efnahagslegra þreng-
inga, þegar flest ríki þurfa að
draga saman seglin – og þá sér-
staklega í hernaðar- og varnar-
málum, hafa Rússar sett af stað
risaáætlun um endurvígvæðingu.
Stjórnmálaskýrendur eru á einu
máli um að slík áætlun hafi ekki
sést síðan á tímum kalda stríðs-
ins, en síðan því lauk hafa Rússar
dregist talsvert aftur úr Bandaríkj-
unum í vopnakapphlaupinu. Nú
ætla Rússar að freista þess að snúa
taflinu sér í vil með því að eyða
rúmlega 650 milljörðum dollara í
endurvígvæðingu, en sú upphæð
samsvarar rúmlega 76 trilljónum
íslenskra króna.
Undirstrika stöðu sína
Rússar vilja með þessari nýju
áætlun undirstrika stöðu sína
sem stórveldi í heiminum. Í kjöl-
far loka kalda stríðsins hafa áhrif
Rússlands á alþjóðavettvangi far-
ið þverrandi, en forsætisráðherra
landsins, Vladimir Pútín, á sér
draum um að koma Rússum aftur
á þann stall sem hann telur þá eiga
heima. Hann hefur reyndar grínast
með það, að hann verði óttasleg-
inn þegar hann heyrir minnst á
upphæðina sem Rússar koma til
með að eyða í hernaðar- og varn-
armál á næstu árum.
Áætlun Rússa nær til ársins
2020. Á næstu níu árum stendur
til að fjölga í skipakosti rússneska
sjóhersins um 100 skip en þar á
meðal eru 20 kafbátar, átta þeirra
verða kjarnorkuknúnir og útbún-
ir fullkomnum kjarnavopnum. Þá
mun flugherinn einnig njóta góðs
af áætluninni. Stendur til að fjölga
í honum um 600 orrustuflugvélar
og 1.000 þyrlur, bæði orrustu- og
björgunarþyrlur sem og risavaxn-
ar flutningaþyrlur. Þá er ótalið full-
komið eldflaugavarnarkerfi sem
og nýjar langdrægar kjarnorkueld-
flaugar, sem geta sprengt upp 10
skotmörk í einni sprengju.
Fjármagnað með orkusölu
Þrátt fyrir að áhrif Rússlands séu-
ekki jafn mikil og hinna sálugu Sov-
étríkja stendur eftir sú staðreynd
að Rússland er stærsti útflytjandi á
orku í heiminum. Þar fer mest fyrir
sölu á olíu og gasi til Evrópu en eft-
ir því sem verð á orku fer hækkandi
hagnast Rússar gífurlega. Það verð-
ur fyrst og fremst fjármagn sem mun
streyma til Rússlands vegna orku-
sölu sem verður notað til endurvíg-
væðingar hersins.
Vladimir Popovkin, aðstoðar-
varnarmálaráðherra Rússlands,
sagði aðalmálið vera að dragast
ekki aftur úr öðrum stórveldum.
„Meginverkefnið er að nútíma-
væða rússneska herinn.“ Rússar
ætla sér að haga því þannig, að lít-
ið sem ekkert af hinum nýju her-
gögnum verði keypt frá útlöndum.
Þannig tryggja stjórnvöld að næga
atvinnu verði að hafa í hátækni-
störfum, skipa- og flugvélasmíði
innan hersins.
Herinn hluti af sjálfsmynd
Rússa
Þær þóttu tilkomumiklar hinar ár-
legu hersýningar sem haldnar voru á
tímum Sovétríkjanna sálugu. Óku þá
skriðdrekar og brynvarðar sprengju-
vörpur um Rauða torgið í Moskvu í
takt við þrammandi hermenn fyr-
ir framan ráðamenn Kommúnista-
flokksins. Þessi siður lagðist af eftir
hrun Sovétríkjanna en það var ein-
mitt Vladimir Pútín sem endurvakti
hersýningarnar árið 2008. Pútín hef-
ur enda látið hafa eftir sér þjóðar-
stolt Rússa byggist á styrk hersins.
„Hernaður er hluti af sjálfsmynd
Rússlands,“ segir Pútín.
n Rússar ætla að eyða 650 milljörðum dala í endurvígvæðingu á næstu árum n Ætla sér að undirstrika
stöðu sína sem stórveldis í heiminum n Hækkandi olíuverð tryggir fjármagn til áætlunarinnar
RÚSSLAND VÍGVÆÐIST
„Hernaður er hluti
af sjálfsmynd
Rússlands.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Hersýning frá 2010 Hann verður ekki
árennilegur, rússneski herinn, innan fárra ára.
Pútín sáttur Segir þjóðarstolt Rússa
byggjast á styrk hersins.
Umberto Eco Ummæli
hans eru mikið áfall fyrir
Silvio Berlusconi.
Rán í spilavíti í
Las Vegas
Tveir menn eru í haldi lögreglu í Las
Vegas vegna tilraunar til að ræna 33
þúsundum dollara í spilapeningum.
Annar maðurinn, Steven Gao, gekk
inn í Rio All Suite-hótelið vopnaður
haglabyssu, sem hann beindi svo að
pókerborði þar sem nokkrir voru að
spila. Hann henti spilapeningunum
í poka og hljóp á brott en þar beið
hans Hiroyuki Yamaguchi í leigubíl.
Málið er ekki eins alvarlegt og þeg-
ar Belaggio-spilavítið í Las Vegas
var rænt í desember, en þá kom-
ust þjófar undan með eina og hálfa
milljón dollara í spilapeningum. Það
mál er ennþá óupplýst.
Forsætisráðherra
segir af sér
Mohamed Ghannouchi, forsæt-
isráðherra neyðarstjórnarinnar í
Túnis, hefur sagt af sér. Ghannouchi
tók við stjórnartaumunum í Túnis
eftir að ríkisstjórn Zine al-Abidine
Ben Ali sprakk eftir að forsetinn
flúði land í janúar. Mótmæli brutust
út í Túnisborg um helgina þar sem
mótmælendum finnst of lítið hafa
verið gert í lýðræðisumbótum síðan
Jasmín-byltingin hófst. Ghannouchi
hafði verið samstarfsmaður Ben Ali
um áratugaskeið en hann ætlaði að
stýra ríkisstjórninni tímabundið, eða
allt þangað til nýjar þingkosningar
geta farið fram.
Smábarn læstist
í bankahvelfingu
Smábarn læstist inni í bankahvelf-
ingu og þurfti að dvelja þar í nokkra
klukkutíma áður en tókst að bjarga
því út. Amma barnsins starfar í
bankanum en unga stúlkan fór á
flakk með fyrrgreindum afleiðing-
um.
Á föstudagskvöld læstist hin
rúmlega eins árs gamla stúlka inni
í bankahvelfingunni í bænum Con-
yers í Bandaríkjunum. Hvelfingin
var með tímalás og því harðlæst.
Starfsfólk bankans þurfti af þeim
sökum að leita uppi lásasmið sem
gæti opnað hana með öðrum hætti.
Áður höfðu slökkviliðsmenn gert
árangurslausar tilraunir til að frelsa
barnið.