Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Side 22
22 | Úttekt 28. febrúar 2011 Mánudagur n Nú fer um margan einræðisherrann eftir mótmæli í Túnis og Egyptalandi n Einræðis- herrann Gaddafi á undir högg að sækja n Sögu einræðisherra og harðstjóra má rekja langt aftur í aldir n Hugtökin höfðu ekki alltaf neikvæða merkingu, en breyttust í tímans rás E inræðisherrar eru ekki seinni tíma fyrirbæri, upp- runa orðsins má rekja aftur til Rómaveldis og var viðhaft um þá sem því stjórnuðu í gegnum tíðina nánast ein- og alráðir. Einræðis- herrar (e. dictator) var titill þeirra sem meðlimir öldungaráðs þess tíma skip- uðu til að fara með stjórn ríkisins. Þeg- ar fram liðu stundir varð reyndar allur gangur á því með hvaða hætti einræð- isherrar Rómaveldis komust til valda. Annar forn titill, harðstjóri (e. tyr- ant), á rætur að rekja til Grikklands hins forna og var upphaflega til þess að gera virðulegur titill, en varð síðar samnefnari þeirra sem stjórnuðu ríkj- um sínum með harðri hendi og kúg- un. Nú á dögum eru bæði þessi orð, dictator og tyrant, tengd harðstjórn, kúgun og einræði sem gjarnan er við- haldið með hervaldi og ógn. Fjöldi leiðtoga hefur komið fram á sjónar- sviðið í hinum ýmsu stjórnarformum; herforingjastjórn, einsflokkskerfi og borgaralegum stjórnum undir hram- mi eins leiðtoga. Á meðal þeirra sem lítil áhöld eru talin um að falli að nú- tímalegri skilgreiningu orðanna dicta- tor og tyrant – einræðisherra og harð- stjóri – eru Adolf Hitler, í Þýskalandi á árunum fyrir heimsstyrjöldina síðari og á meðan hún varði, Jósef Stalín, á sama tíma og Hitler og gott betur, og Kim Jong-il í Norður-Kóreu. Jákvæð merking En þrátt fyrir að þessi tvö hugtök sem upphaflega fólu ekki í sér neikvæðni hefðu í aldanna rás orðið samnefnari fyrir ógnarstjórn, kúgun, spillingu og margt þaðan af verra er þó að finna þess dæmi í ekki mjög svo fjarlægri fortíð þegar „einræðisherra“ hafði ekki endilega neikvæða merkingu. Árið 1860 lýsti Giuseppe Garibaldi sig „einræðisherra Sikileyjar“ og virt- ist sem hann hefði sótt merkingu hugtaksins til hins upprunalega róm- verska skilnings þar á – um einhvern sem tekur sér völd til takmarkaðs tíma til að taka á einhverju vanda- máli. Vandamálið sem um ræddi var í hans tilfelli sameining Ítalíu. Þrátt fyrir þennan vafasama og „neikvæða“ titil öðlaðist Garibaldi vinsældir á meðal Ítala og ímynd hans var jákvæð í augum alþjóða- samfélagsins. Þegar hann hafði lokið verkefni sínu afhenti hann ríkisstjórn Viktors Emmanúels II, konungs Ít- alíu, völdin og lét gott heita. En dæmið um Garibaldi er senni- lega undantekningin sem sannar regluna og hugtakið einræðisherra fékk á sig neikvæða mynd og var ekki upphugsað af einræðisherrun- um sjálfum heldur andstæðingum þeirra. Gott dæmi um það er Maxim- illian Robespierre sem var einn mesti áhrifavaldurinn í frönsku byltingunni 1789 til 1799, eða allt þar til hann var tekinn af lífi árið 1794. Í hugum stuðningsmanna Robes- pierres var hann „hinn óspillanlegi“ en annað var uppi á teningnum hjá andstæðingum hans sem kölluðu hann „blóðþyrstan einræðisherra“. Mikilmennskuæði og siðblinda Sem fyrr segir hafa einræðisherrar gjarna tengst hrottaskap og kúgun í huga Vesturlandabúa og eðli málsins samkvæmt tengst kúgun í garð pól- itískra andstæðinga þess sem er við völd. Gott dæmi um slíkt var Henry Clay, bandarískur þingmaður, sem vegna slíkrar kúgunar fékk viðurnefn- ið „Einræðisherrann“, hann lét reynd- ar nægja að kúga. Mikilmennskuæði virðist einn- ig hafa gripið marga einræðisherra í gegnum tíðina – óbilandi trú á eig- ið ágæti og óskeikulleika sem þreifst með miklum ágætum í skjóli þess valds sem þeir höfðu tryggt sér. Eitt skýrasta dæmið um það mik- ilmennskuæði sem gripið getur ein- ræðisherra er Idi Amin Dada. Idi Amin hafði, áður en hann tók völdin í sjálfstæðu Úganda, verið lautinant í breska hernum. Fyrir Idi Amin dugði enginn smátitill: Hans hátign, forseti til lífstíðar, hermarskálkur pílagrímur doktor Idi Amin Dada, VC, DSO, MC, sigurvegari yfir breska heimsveld- inu í Afríku almennt og í Úganda sér- staklega (VC, DSO og MC eru breskir heiðurstitlar úr hernum). Eitt af því sem gerir einræðisherr- um, geðbiluðum eða heilum á geði, kleift að halda völdum er her lands- ins og tengsl þeirra á milli eru algeng. Sumir einræðisherrar leggja sig í líma við að undirstrika tengsl sín við herinn með því að klæðast einkennisfatnaði hersins, stundum með réttu og stund- um ekki. Ógnin er ómissandi Það er ekki fyrr en eftir að einræðis- herra hefur verið velt úr sessi að kem- ur í ljós staðfesting á hverju völd hans raunverulega byggðu. Undanfarið hefur einræðisherrum nokkurra ríkja Norður-Afríku og víðar verið velgt undir uggum, með þeim árangri að tveir hafa séð sinn kost vænstan að yfirgefa landið. Ólíkt Írak, sem sá á bak einræðis- herranum og harðstjóranum Sadd- am Hussein í kjölfar innrásar „vilj- ugra þjóða“ með Bandaríkin í broddi fylkingar, er ekki enn búið að opin- bera pyntingarklefa öryggissveita fyrrverandi ríkisstjórna Túnis og Eg- yptalands sem nýverið var bolað frá völdum – einræðisherrum sem þekktir voru af þaulsætni. Lífverðir fyrrverandi einræðis- herra, og kumpánar, hafa tekið við stjórnartaumunum og eru eflaust lítt áfjáðir í að opinbera dökkar hliðar þeirra stjórnarhátta sem þeir aðstoð- uðu við að viðhalda. Ógnin er hverjum einræðisherra nauðsynleg og Saddam Hussein vissi það betur en margur annar. Eftir fall hans birtust myndir af kjallaraklef- um sem voru vettvangur ólýsanlegra pyntinga og ógnarverka, og svo ein- hverrar reglu væri gætt héldu böðlar Saddams ítarlegar skrár. Þó Hosni Mubarak sé á bak og burt í Egyptalandi og Zine El Abidine Ben Ali heyri sögunni til í Túnis varpa samverkamenn einræðisherranna – EINRÆÐI OG HARÐSTJÓRN Júlíus Sesar Uppruna orðsins einræðis- herra (e. dictator) má rekja til Rómaveldis. Adolf Hitler Hitler er talinn einn versti einræðisherra sögunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.