Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2011, Page 10
10 | Fréttir 11. apríl 2011 Mánudagur
Óvíst er hvort 13 ára stúlka frá Hvera-
gerði sem er í sjöunda bekk í Valla-
skóla á Selfossi, fái að halda skóla-
göngu sinni þar áfram á næsta
skólaári. Stúlkan, sem er með lög-
heimili í Hveragerði, hefur sótt nám
í Vallaskóla síðan árið 2007 og bæði
hún og foreldrar hennar vilja að hún
haldi því áfram. Hvort stúlkan fái
ósk sína uppfyllta er undir bæjar-
yfirvöldum í Hveragerðisbæ komið,
en þau hafa áður sett sig upp á móti
því. Bæjaryfirvöld á Selfossi hafa þó
aldrei staðið í vegi fyrir því.
Ástæða þess að stúlkan skipti um
skóla á sínum tíma var óánægja for-
eldra hennar með ákveðinn kenn-
ara í Grunnskóla Hveragerðisog
jafnframt óánægja með það hvernig
skólayfirvöld tóku á kvörtunum for-
eldranna vegna kennarans. Skóla-
yfirvöld voru treg til að viðurkenna
að að eitthvað væri að kennsluhátt-
um kennarans og samskiptum hans
við dóttur þeirra. „Ég vil meina að
kennarinn hafi lagt barnið í einelti,“
segir Diðrik Jóhann Sæmundsson,
faðir stúlkunnar í samtali við DV.
„Ekki bara okkar barn reyndar, held-
ur fleiri. Þessi kennari hætti svo fljót-
lega eftir þetta.“ Foreldarnir fengu þó
aldrei að vita hvort kennarinn var
látinn hætta vegna kvartananna, en
hann var engu að síður látinn fara.
„Það er ákveðinn tvískinnungur í
skólayfirvöldum, annars vegar að
segja að allt sé í lagi og hins vegar að
láta kennarann fara,“ segir Diðrik.
Kennarinn gerði lítið úr stúlk-
unni
Fyrstu vísbendingar um að samskipti
umrædds kennara við dóttur Dið-
riks væru óeðlileg komu fram þriðja
skóladaginn í öðrum bekk, en kenn-
arinn tók við bekknum um haustið.
Dóttir þeirra kom heim úr skólan-
um með þau skilaboð frá kennaran-
um að hún ætti ekki að vera í öðrum
bekk, heldur fyrsta. Móðir stúlk-
unnar var verulega ósátt við þessa
boðleið kennarans enda ekki í hans
verkahring að færa börn um bekki.
Hún fór því og talaði við kennarann
daginn eftir, sem að hennar sögn, hló
að henni og sagði stúlkuna ekki hafa
þroska til að vera í öðrum bekk.
Eftir þetta atvik jókst vanlíðan
dóttur þeirra í skólanum jafnt og
þétt, að sögn foreldranna, og sam-
skipti þeirra við kennarann og skóla-
yfirvöld voru jafnframt erfið, enda
vildu þau að tekið væri tillit til dótt-
urinnar, sem átti meðal annars erf-
itt með lestur. Kennarinn virtist eiga
erfitt með að sætta sig við að stúlk-
an yrði áfram í bekknum þegar hann
taldi hana ekki hafa þroska til þess.
Þeim fannst sem kennarinn not-
aði hvert tækifæri til að gera lítið úr
stúlkunni á einhvern hátt.
Skólanefndin aðhafðist ekkert
Diðrik og kona hans sendu skóla-
nefnd Hveragerðisbæjar kvörtunar-
bréf vegna kennarans og framkomu
hans við dótturina. Úrskurður nefnd-
arinnar var sá að ekkert yrði aðhafst í
málinu. „Undirrituð telur ávirðingar
foreldra ekki eiga við rök að styðjast
og ekki frekari aðgerða þörf af hálfu
skólanefndar,“ segir í bréfi til foreldr-
anna, dagsettu 12. desember 2006.
Undir það ritar formaður skóla-
nefndar Hveragerðis. Við meðferð
málsins hjá skólanefndinni var með-
al annars stuðst við greinargerð sál-
fræðings hjá Skólaskrifstofu Suður-
lands sem mat stúlkuna. Hans mat
var að hún upplifði kennarann já-
kvætt og að henni fyndist hann sinna
sér vel. Var það þvert á upplifun for-
eldranna sem skynjuðu mikla van-
líðan hjá stúlkunni í tengslum við
kennarann. Það var þó einnig mat
sama sálfræðings að stúlkan upplifði
sig vitlausa og að henni fyndist hún
vera lélegust í bekknum. Samkvæmt
foreldrunum var það mikil breyting
frá árinu áður, þá sóttist stúlkunni
námið ágætlega og var hún ánægð í
skólanum.
Samrýmdist ekki stjórnsýslu-
lögum
Diðrik og kona hans voru, eins og
gefur að skilja, ósátt við afgreiðslu
skólanefndarinnar, enda fengu þau
til að mynda ekki tækifæri til að tjá
sig um greinargerð sálfræðingsins,
og kærðu niðurstöðuna til mennta-
málaráðuneytisins og síðar til sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðuneyt-
isins. Málið fór einnig til álitsgjafar
til umboðsmanns Alþingis og í fram-
haldi af því úrskurðaði ráðuneytið
að málsmeðferð Hveragerðisbæjar
hefði ekki samrýmst stjórnsýslulög-
um.
Diðrik segist jafnframt hafa skilið
úrskurðinn þannig að ef kæmi upp
deila á milli skólans annars vegar,
sem heyrir undir sveitarstjórnina, og
foreldranna hins vegar, þá væru sál-
fræðingarnir undir sveitarstjórninni
og því raunverulega sveitarstjórnar-
menn. „Þeir eru því ekki hlutlaus-
ir ef það er komin deila á milli skól-
ans og foreldranna,“ segir Diðrik sem
vill meina að mat sálfræðingsins hafi
ekki verið rétt.
Fékk loks að fara í Vallaskóla
Foreldarnir vildu ekki flytja úr bæn-
um en eftir að hafa staðið í stappi
við kennarann, skólayfirvöld og
skólanefndina í tvö ár fengu for-
eldrarnir nóg og sóttu um að dóttir
þeirra fengi að stunda nám í Valla-
skóla á Selfossi. Það var loksins
samþykkt á fundi bæjarráðs Hvera-
gerðisbæjar haustið 2007. Segir í úr-
skurðinum að með tilliti til forsögu
málsins sé samþykkt að stúlkan fái
að sækja skóla í öðru bæjarfélagi,
„enda hafa allar leiðir verið full-
reyndar og bæjarráð telur slíkt fyr-
irkomulag þjóna best hagsmunum
barnsins,“ segir í bréfi Hveragerðis-
bæjar til foreldranna, dagsettu 17.
ágúst 2007. Í Vallaskóla fór stúlkan
að blómstra, þar á hún sína vini og
líður vel og þrátt fyrir að umræddur
kennari hafi látið af störfum þá vill
hún ekki snúa aftur í Grunnskólann
í Hveragerði.
Hveragerðisbær neitaði
stúlkunni
Endurnýja þarf umsókn um skóla-
vist utan sveitarfélagsins á hverju
ári. Árið 2009 fékk stúlkan neit-
un frá Hveragerðisbæ og foreldr-
um stúlkunnar var tilkynnt að
hún skyldi snúa aftur til náms við
Grunnskólann í Hveragerði. „Það
þýðir bara að annað hvort verð-
ur þú að láta barnið sækja skóla
í Hveragerði eða borga sjálfur 50
þúsund krónur í skólagjöld á mán-
uði,“ segir Diðrik. Þau sættu sig
ekki við það og leituðu til umboðs-
manns Alþingis, umboðsmanns
barna og lögfræðings Sambands
íslenskra sveitarfélaga og í fram-
haldi af því var umsókinin tek-
in fyrir aftur. Þá var samþykkt að
stúlkan fengi leyfi fyrir skólavist á
Selfossi skólaárin 2009 til 2010 og
2010 til 2011. Hvorki foreldrarnir
né stúlkan vita því hvað tekur við
þegar yfirstandandi skólaári lýkur.
Diðrik og kona hans keyra dótt-
ur sína sjálf á milli Hveragerðis
og Selfoss og greiða þann kostn-
að sem af því hlýst. Þau segja það
dýrt en setja velferð dóttur sinn-
ar því framar. „Ég skil ekki hvers
vegna stúlkan fær ekki að ganga
í þann skóla sem hún vill. Ég get
ekki séð að það komi sér illa fyrir
Hveragerðisbæ á neinn hátt,“ seg-
ir Diðrik sem ætlar sér ekki að gef-
ast upp. Sálfræðingur sem nýlega
mat stúlkuna varar við því að hún
verði látin skipta um skóla. Í grein-
argerð hans kemur fram að stúlk-
an lýsi mikilli vanlíðan í tengslum
við skólagöngu sína í Grunnaskóla
Hveragerðis. Henni líði hins veg-
ar vel í Vallaskóla og flutningur á
milli skóla myndi hafa áhrif á líðan
hennar.
Pólitíkin ræður ríkjum
Foreldrarnir vilja meina að ákveð-
in pólitík og vinatengsl í litla bæj-
arfélaginu sem þau búa í hafi vald-
ið því að svo erfiðlega gekk að fá
það viðurkennt að eitthvað væri að
samskiptum kennarans við dótt-
urina. „Ef þú ert ekki í hópnum,
þá ertu ekki í góðum málum,“ seg-
ir Diðrik. Hann og kona hans telja
að einstaklingar í hópi skólayfir-
valda og sveitarstjórnar hafi reynt
hvað þeir gátu til að láta málið
niður falla án nokkurra aðgerða
og hafi jafnframt reynt að standa í
vegi fyrir því að dóttir þeirra fengi
að skipta um skóla. Það hefði ver-
ið viðurkenning á vandanum að
samþykkja að stúlkan fengi að
stunda nám í öðru sveitarfélagi.
„Þetta fólk er ekki tilbúið að horf-
ast í augu við vandann,“ segir Dið-
rik að lokum.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
VILL EKKI VERA Í
SKÓLA Í HVERAGERÐI
„Ég skil ekki hvers
vegna stúlkan fær
ekki að ganga í þann skóla
sem hún vill. Ég get ekki
séð að það komi sér illa fyrir
Hveragerðisbæ á neinn hátt.
n Foreldrar segja kennara hafa lagt dóttur þeirra í einelti n Hveragerðisbær hefur
staðið í vegi fyrir því að stúlkan fái skólavist á Selfossi n Foreldrarnir segja pólitík og
vinatengsl hafa haft áhrif n Umboðsmaður barna varð að þrýsta á bæjaryfirvöld
Ósáttur við Hveragerðisbæ Diðrik skilur ekki hvers vegna það er svona flókið að dóttir hans fái að sækja skóla á Selfossi.